Tíminn - 25.10.1958, Blaðsíða 12
Veslan kaldi, suðaustan, l>ykkn-
ar upp á morg-un.
Hiti vestan lands 5—6 stig, ein
6—8 stig austan Iands. Rvík 6 stig,
Laugardagur 25. október 1958.
,,List um landið” víðtæk kynning
á myndlist, skáldmennt og tónlist
Samstarf Menntamálaráís og Ríkisútvarpsins
j Um 10. nóvember er ráðgert
j að hafin verði ferð um Eyjafjarð-
Menntamálaráð íslands og Ríkisútvarpið hafa ákveðið að ar’ og Þingeyjarsýslur, og verða
reka í sameiningu starfsemi sem hlotið hefir heitið: „List
um landið". Tilgangurinn er sá, að senda hvers konar lif-
andi list sem víðast út um bæi og sveitir, skáldlist, tónlist
og myndlist.
Með löggjöf frá síðast liðnu ári
um Menningarsjóð og Mennta-
iriálaráð voru tekjur þeirra stofn-
ana auknar og þeim fengin ýmis
ný verkefni á sviði menningar-
mála. Meðal þeirra verkefna var
stuðningur við flutning góðrar
listar víðs vegar um land. Almenn
ingur utan Reykjavíkur á þes's
ekki mikinn kost að njóta list-
flutnings, og á það einkum við
um, íbúa dreifbýlisins. Viða eru
fjo komin upp myndarleg félags-
heimili, sem hentug eru til list-
flutnings. Starfskraftar íslcnzkra
listamanna eru eigi nýttir nema
að litlu leyti Þá skortir beinlínis
verkefni. Æsklegasti stuðningur-
inn við þá er í því fólginn að
bæta starfsskilyrði þeirra.
Nú hefir verið ákveðið, að
Menningarsjóður verji árlega
nokkru fé til stuðnings listflutn-
ingi í landinu. Verður tilhögun
yæntanlega með tvennum hælti:
í fyrsta lagi: farnar verða ferðir
um ýmsa landshlula að frum-
kvæði Menntamálaráðs og Uíkis-
úívarpsins, fluttir tónleikar, lesið
úr íslenzkum bókmenntum og mál
verkasýningar haidnar. í öðru
lagi: Mcnningarsjóður mun eftir
föngum styrkja menningarfélög
víðs vegar um land, er þau vilja
efna til lhjómleikahalds, bók-
œennta- eða myndlistarkynningar.
Mun brátt gerð nánari grein fyrir
reglum þeim, sem þar um verða
látnar gilda.
L,.
Kirkjutónleikar
Sú samvinna Ríkisútvarps'ins og
Menntamálaráðs um listkynningu,
sfm hlevpt hefir verið af stokk-
,unum undir nafninu „List um
.landið“, hófst rpeð lónleikaferð
um Suðvesturland, þar sem flutt
var kirkjutónlist. Komu þar fram
fistamennirnir dr. Páll ísólfss'on,
Björn ÓVafsson fiðluleikari og
Cuðmundur Jónsson söngvari.
Myndlistarsýning
Nú um helgina verður opnuð í
Vestmannaeyjum myndlistarsýn-
ir.g á vegum fyrrgreindra aðila.
Verða þar sýnd 20 málverk úr
Listasafni ríkisins eftir jafnmarga
listamenn. Eru þar verk eftir
ýmsa hina kunnustu málara okk-
ar, allt írá Þórarni B. Þorláks-
syni, Ásgrímj, Kjarval og Jóni
Stefánssyni til hinna yngri manna.
Við opnun sýningarinnar á sunnu-
dagskvöld mun Björn Th. Björns-
son listfræðingur flytja fyrir-
lestur um íslenzka myndlist og
sýna skuggamyndir.
Svo er ráð fyrir gert, að sýn-
irigin í Vestmannaeyjum verði
upphaf slíkra myndlistarsýninga
viðs vegar um land.
Óperu- og tónleikaferð
um Austurland
Þá er að hefjast óperu- og tón-
ieikaferð um Austurland, með
viðkomu i Vestmannaeyjum. Efn-
isskrá er á þessa leið: Kristinn
Hallsson syngur einsöng með und-
irieik Frilz Weisshappel. Strengja
kvartett leikur „Litið næturljóð“
eftir Mozart. Flutt verður óper-
an „La serva padrona“ (Ráðs-
konuríki) eftir Pergolesi. Flytj-
endur: Þui'íður Pálsdóttir, Guð-
mundur Jónsson og Kristinn Halls
son. Stjórnandi: Fritz Weissh.
Fyrirhugaðir sýningarstaðir eru
þessir: Vestmannaeyjar 27. og 28.
október, Fáskrúðsfjörður 30. okt.,
Reyðarfjörður 31. okt., Eskifjörð-
ur 1. nóv., Norðfjörður 2. nóv.,
Seyðisfjörður 3. nóv, Eiðar 4.
nóv. og Hornafjörður 6. nóv.
Þrjár merkis-
bækur frá
Menningarsjóði
í dag koma á markaðinn á veg-
um Bókaútgáfu Menningarsjóðs-
og Þjóðvinafélagsins þrjár merk-
ar bækur. Eru það Þjóðhátíðin
1874 eftir Brynleií Tobíasson, Frá
óbyggðum eftir Pálmti Hannes-
son og Höfundur Njálu eftir
Barða Guðmundsson.
Þessara bóka verður nánar getið
í næsta blaði.
þar einkum kynntar bókmenntir,
en jafníramt flutt tónlist. Munu
skáld og rithöfundar lesa úr verk
um sinum og söngvari svngja ein-
söng. Verður nánar skýrt frá för
þessari síðar.
Þótt fleiri ferðir hafi ekki verið
ákveðnar enn, hafa þeir aðilar,
sem að listkvnningunni standa,
fullan hug á að halda áfram því
staríi, sem nú er hafið. Munu
þeir landshlutar, sem ekki gefst
tóm til að sækja heim að þessu
sinni, verða látnir sitja fyrir,
þegar framhald verður á listkynn-
ingu, en það verður væntanlega
síðar í vetur og næsta vor.
Morgunblaðið dæmt fyrir árásir
á Samband isl samvinnufélaga
Morgunblaðið hefir nú hiotið tvo dóma fyrir árásjr þess á
Samband ísl. samvinnufélaga og Regin h.f. vegna sölu á
varnarliðseignum. Ilélt Morspinblaðiö fram livað eftir annað
s.I. vetur, aö þetta væri „stórfellt braskmál“ og hafði mörg
orð og stór í því tilefni. Öll þessi ummæli hafa nú verið
dærnd ómerk, Morgunblaðinu gert að greiða sektir og niáls-
kostnað og það skvldað til að birta greinargerð um úrslit
mála þessara.
í febrúarmánuði síöast liðnunx gerði Morgunblaðið miklar
árásir á SÍS og Regin og taldi umrædda vörusölu eitt stór-
felldasta braskmál, sem um getur, sagði að SÍS hugsaði ekki
um hagsmuni þjóðarinnar o.s.frv. Hófu bæði SÍS og Reginn
meiðyrðamál gegn ritstjóra og ábyrgðarmanni blaðsins, Valtý
Stefánssyni, og er þeim málum nú nýlega lokið með áður-
nefndum niðurstöðum. Sektirnar nema 400 krónum í hvoru
máli og málskostnaður 800 kr.
Dr. ALEXANDER JOHANNESSON
Dr. HREINN BENEDIKTSSON
Dr. Alexander Jóhannesson fær lausn
frá pórfessorsembætti vegna aldurs
Dr. Hreinn Benediktsson hefir verií skipaður
prófessor í heimspekideild
Rússar þegja
um Nóbelslaun
NTB—Stokkhólmi, 24. okt. —■
Rússneski .rithöfundunnn
Boris Pasternak lýsti í dag á-
nægju sinni yfir því, að hon-
um skyldi hafa verið úthlutað
Nóbelsverðlaununum í bók-
menntum.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
scm sænska akademían hefir feng-
ið, sagði hann, að sig langaði til
að fara til Svíþjóðar til þess að
veita verðlaununum viðtöku og
taka þátt í hátíðahöldunum 10.
des., ef hann fengi leyfi til þess
frá yfirvöldunii Sovétríkjanna. —•
Blöð og úlvarp í öllum kommún-
istaríkjum þögðu í dag gersam-
lega um veitingu verðlaunanna,
nema blöð í Póllandi, en þar var
skýrt frá henni á forsíðum.
Dr. Alexander Jóhannessyni
hefir verið veitt lausn frá prófess-
orsembætti í heimspekideild Há-
skóla íslands frá 1. þ.m. að telja
samkvæmt ákvæðum laga um ald-
urshámark embættismanna.
Frá sama tíma hefir dr. Hreinn
Benediktsson verið skipaður próí-
essor í heimspekideild.
(Frá menntamálaráðuneylinu.)
90 manns í dauðans greipum í lokuð-
um kolanámugöngum á Nova Scotia
Inngangur námunnar hrundi saman í jartJskjálfta j
i
NTB—Springhill, Nova Scotia, 24. okt. — í gærkvöldi,
urðu jarðhræringar á skaganum Nova Scotia, norðarlega á
Atlantshafsströnd Kanada, með þeim afleiðingum, að 172
menn, er þár voru að störfum á næturvakt 1 kolanámu, lok-j
uðust inni. Við jarðskjálftann lokuðust göngin upp úr nám-1
unni og loftrásarkerfið ónýttist. í kvöld þótti sýnt, að 91
maður, sem ekki tókst að bjarga fljótlega eftir að slysið
varð, muni farast í göngunum.
Mepnirnir eru í göngum, sem
liggja djúpt í jörðu, en þarna eru
dýpstu kolanámur í Ameríku. Tals-
maður fél. þess, er fer með rekstur
oámunnar, skýrði svo frá í kvöld,
að borin von virtist með öllu að
tækist að bjarga þeim, sem dýpst
væru í jörðu, en ekki vonlaust um
t>á. sem næstir væru 'yfirborðinu.
Björgun nær vonlaus.
70 manna björgunarlið, húið sér
stökum tækjum ihefur allt frá því
. tsr slysið varð, unnið sleitulaust,
en enn hefur ekki tekizt að ná
nNnu sambandi við hina innilok-
uðu. Reyna björgunarmenn í tveim
1 ur flokkum að brjótast niður í jörð
(ina til þeirra, er efstir eru, meö |
svo miklum hraða sem unnt er, en
j álilið er ,að þeir muni allir látnir,
áður en það tekst.
Þegar slysið varð, voru 172 j
! menn í námunni, flestir í fjögur
hundruð metra dýpi og um það i
bil fjóra kilómetra frá inngangin-
um. 80 mönnum tókst íljótlega að i
b.jarga, en einn fórst þegar er
jarðskjálflinn varð, af grjóthruni.
Gas hefur safnast fyrir á nókkrum
stöðum neðanjarðar. og gerir það
enn erfiðara fvrir.
Stalskuldaiista
Þrjú innbrot voru framin hér
í bænum í íyrrinótt og fáu einu
stolið utan skuldakladda úr ein-
um stað, þar sem þjófurinn virð-
ist hafa verið á blaði og þannig
viljað f’irra sig áfallandi greiðsl-
um.
Venjulega er brotizt inn á ó-
líkleguslu stöðum hér í bæ og
virðist handahóf eitt ráða. Einn
slíkra staða er Dýptarmæla- og
ratsjárverkstæðið, Geirsgötu 14.
Þar var farið inn í fvrrinótt og
gengið um öll híbýli, en ekki
hægt að sjá að neinu hafi verið
stolið.
Þá var farið inn í ballskákslof-
una í Einholti 2 og stolið litlum
peningakassa með skiptimynt og
töluverðu magni af vindlingum.
Ekki varð sóð að þjófurinn eða
þjofarnir hafi tekið „partí“ sem
kallað er. Aftur á móli virðast
þeir hafa verið á blaði hjá stofn-
uninni, því skuldakladdi fyrir-
tækisins freis'taði þeirra og var
hann horfinn í gærmorgun.
Þriðja innbrotið var í frystihús
hér í bænum, en þar var engu
slolið.
Tilboð De Gaulle setur
útlagast jórnina í vanda
Bourguiba ánægíur og býtSur málamiblun
NTB—París, Kairó og Túnis. — Franska ríkisstjórnin
var í dag í sambandi við útlagastjórn Alsírmanna í Kairó
fyrir tilstilli útsendai'a og milligöngumanna, en enn hafa
uppreisnarmenn í engu svarað tilboði de Gaulle um að
koma til Parísar til að ræða vopnahlé.
í París er talið, að nú ríki hin
mesta upplausn, að ekki sé meira
sagt, í herbúðum uppreisnar-
stjórnarinnar, því að hún hafi
alls ekki búizt við ajy de Gaulle
myndi taka þá á orðinu og stinga
upp á viðræðum í París.
Fyrr um daginn skýrði Ferhat
Abbas, forsælisráðherra uppreisn-
arstjórnarinnar, svo frá, að verið
væri að hugleiða tilboð de Gaulle,
og vildi hann ekkert um það segja
að svo komnu máli. Talsmaður
I upplýsingaþjónustu uppreisnar-
' manna hóll því fram, að útlaga-
I stjórnin væri að sönnu reiðubúbi
til viðræðna við frönsku stjórnina,
en myndi hins vegar leggja til, að
þær yrðu ekki í París, heldm’ í
ihlutlausu landi.
i
: Bourgiba ánægður.
í Bourgiba Túnisforseti tót í dag
í ijósi ánægju sína vegna ti.boðs '
de Gaulle. Kvað hann þetta í fyrsía
skipti síðan Alsírstyrjöldin braust
út, sem franskur stjórnmálamaður
hefði tjáð sig fúsafi til að taka
upp stjórnmálalegt samband við
uppreisnarmennina. Tjáði hann
Túnisa enn sem fyrr fúsa til að
hafa á hendi málamiðlun milii
Frakka og bræðra sinna í Alsír. —
Moskvuútvarpijy flutti í dag erindi
um tilboð de Gaulle. Var þar einlc
um vakin athygli á, að hann hefði
forðast sem hcitan eld að minnast
á skilyrði þess, að deilan yrði Jeyst
á stjórnmálalegum grundvelli.
Tveir kostir.
De Gaulle liefur mcfi þessu til-
boði tekið frumkvæðið af úilaga-
stjórninni í Kairó, og ef þeir neúa
að koma lil Parisar er hætt við, aö
almenningsálitið brennimerki þá
sem ófriðarmenn, er vilji, að strið-
ið í Alsír haldi áfram. Ef þe'.r
hins vegar fallast á boðið, er það
merki þess, að þeir haí'a fallizt á
lýðræðislega málameðferð sem
einu færu lausnina og þá einnig
látið af skilyrðislausri kröúi um
fullt sjálfstæði.
Af sumum er talið, aö útlaga-
sjórnin sé klofin í málinu.