Tíminn - 20.11.1958, Page 6

Tíminn - 20.11.1958, Page 6
6 T í M I N N, fimmtudaginn 20. nóvembér 1958, Útgefandi : FRAMSOKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Réttindi og ábyrgð EFTIR tæpa viku sezt á rökstóla þing Alþýöusam- bands íslands, hið 26. í röð- inni. Fyrir því þingi koma til með að liggja mikil verk- efni og merkileg. Alþýðusam bandið er nú orðið það void- ugt og áhrif þess á mörgum sviðum svo sterk, að því er í lófa lagið að móta mjög þá stefnu, sem uppi er i atvinnu og efnahagsmálum þjóðfé- lagsins hverju sinni. Deila má um hversu heppilegt það er að áhrif einstakra stétta séu svo sterk, sem raun er á og er þá mikið undir því komið, að menn geri sér fulla grein fyrir þeirri ábyrgð, sem á þeim hvílir. P>að er því eðli- legt að menn bíði þess með nokkurri eftirvæntingu aö fá úr því skorið hvað ofan á verður á þinginu. Alþýðusambandskosning- arnar voru sóttar af mikilli hörku einkum í Reykjavík. Báru þær fullkomlega keim af venjulegum Alþingiskosn- ingum og má þaó út af fyrir sig vera nokkurt áhyggju- efni þeim, e£. telja hag sam- takanna svo bezt borgið, að pólitískir hákarlar hafi þar sem minnst um sig. Gert er ráö' fyrir að þingið sitji um 350 fulltrúar. Svo fjölmenn þing vilja vera svifasein og þung í vöfum. Er það áreioan lega mikið athugunarefni, hvort ekki væri skynsamlegt að breyta skipulagi Alþýðu- sambandsins þannig, að um væri að ræða fleiri sérsam- bönd, fremur en að steypa öllu í einn pott eins og nú er gert. ÞEGAR núverandi ríkis- stjórn var mynduð, ákvað hún að taka upp náið sam- starf við stéttasamtökin í landinu. Stjórnarflokkunum var það ljóst, að eins og efna hagsmálin voru útleikin, hlaut ríkisstj órninni að hvíla mikill og þungur vandi á höndum, Dýr reynsla var fyrir þvi, aö sá vandi yrði ekki leystur án þess að ein- læg samvinna tækist með stjórninni og alþýðusamtök- unum í sveit og við sjó. Slík samvinna ríkisvalds og stéttasamtaka var algjör ný lunda. Og á henni var byggfT von manna um það„ að þess- ari ríkisstjórn tækist að leiða til farsælla lykta þá erfið- leika, sem ofvaxnir höfðu reynzt fyrirrennurum henn- ar. Ekki orkar það tvímæiis, að rétt var stefnt hjá ríkis- stjórninni að þessu leyti. Og hún hefir af sinni hálfu al- gjörlega við það staðið, að hafa alþýðusamtökin meö í ráðum um allar aðgerðir í efnahagsmálunum. Svo er það að sjálfsögðu enn og þ/í hefir ríkisstjórnin og stuðn- ingsflokkar beðið með það að taka nýjar ákvarðanir, þar til þing Alþýðusambands ins vseri búið aö kveða upp úr með það, hvaða aðgeröir það telur affarasælastar. -- Nöldur Sjálfstæðismanna um að búið sé að afhenda stétta samtökunum það vald, sem eðli málsins samkvæmt eigi að vera hjá Alþingi, er lok- leysa. Megin kjarninn í liði stjórnarflokkanna er einnútt meðlimir þessara samtaka í bæ og byggð .Hvað er því eðli legra en að ríkisstjórnin bíði eftir úrskurði þessa fólks? Þess utan væri allt annað svik við þá stefnu, er stjórn- in tók í upphafi. í SAMBANDI viö lögin um Útflutningssjóð o.fl., sem afgreidd voru í lok síðasta þings, var jafnframt logfest 5% kauphækkun. Hins veg- ar var það mjög grehiilega tekið fram þá, að ef kaup- hækkanir færu fram úr því, yrði ekki komizt hjá að gera nýjar ráðstafanir með haust inu. Nú gerðist tvennt sam- tímis: Stjórnarandstaðan fann ríkisstjórninni það til foráttu, að hún hækkaði kaupgjald og ynni þannig með dýrtíðarskrúfunni og ól á hinn bóginn á því, að vegna aukinna álaga yrði kaup- gjald enn að hækka verulega. Árangurinn af þessari iðju er nú öllum ljós. Kaup hefir hækkað langt um fram þao, sem ráð var fyrir gert og mun væntanlega enn hækka á næstunni. Fyrir þessum hækkunum er enginn raun- hæfur grundvöllur. Það lá alveg Ijóst fyrir í vor, að með því að hækka um 5% var gengið eins langt og unnt var. Væri lengra farið var bara gengið niður fyrir bakkann. ÞEIR fulltrúar, sem næstu daga mæta á þingi A1 þýðusamb. íslands standa frammi fyrir þessum stað- reyndum. Þeirra er að gera það upp við sig hvað nú skuli gert. Þeim ber að sjálfsögðu skylda til að gera sér ljósa grein fyrir því, hvernig mál- in raunverulega liggja fyrir, enda skal hér ekki dregið í efa, að þeir séu fullkomlega meðvitandi þeirrar ábyrðar, sem á þeim hvilir. Kjarni málsins er þessi: Þjóðin get- ur ekki skipt meiru með sér en því, sem framleiöslan gef ur af sér á hverjum tíma. Sé meira tekið verður að skila þvi aftur, ella dregst framleiðslan saman og hver græðir á því? í sumar hefir meira verið tekið en til er. Kauphækkanir, sem þannig eru til komnar geta aldrei leitt til kjarabóta heldur kjaraskerðingar. Að óreyndu skal ekki efast um, að full- trúar á Alþýðusambands- þingi dragi réttar ályktanir af þessum staðreyndum. Allt annað væru hrapaleg og ör- lagarík mistök. Savannah,fyrsta kjarnorkuknúna flutningaskipið. Gunnar Leistikow skrifar frá New York: Smíði fyrsta kjarnor skipsins að ljúka í ;u-flutninga- með brevtingum, sem kuuna að Talili, aí skipi« geti siglt 300.009 sjómilar án ^ . úts?lsln„ frá tjlrná0fn. þess, að eldsneytisbirgoir séu endurný.moar unum. Smíði hins fyrsta kjarn- orkuknúna skips er senn að ljúka. Þegar haí'a verið ráðnir menn á skipið og er byrjað að þjálfa þá í með- ferð kjarnorkuknúins hreyf- ils, en kennslan fer fram í Pittsburg, þar sem sams konar hreyfill er og sá, sem settur verður í hið nýja skip. Undirbúningur og kennslan er áætlað að íaki 15 mán- uði og er lögð mest áherzla á að þjálfa menn í að stjórna hreyfikerfi skipsins. Sav- annah heitir skipið og er nefnt. eftir fyrsta gufuskip- inu, sem fór yfir Atlantshaf árið 1819. Kjölur skipsins var lagður 22. maí í vor og er gert ráð fyrir að það hlaupi af stokkunum á kom- andi vori, en það verður af- hent árið 1960. I fyrstu verða hin kjarnorku- knúnu skip tiltölulega dýr í rekstri, þar sem einangrunarvegg irnir utan um hreyfilinn eða ofn- ir.n eru mjög þungir og taka því Uþp það burðarmagn, sem annars sparast vegna hins litla eldsneytis. Það er því líklegt að þessi skip verði aðeins notuð til olíuflutn- inga, en hin stóru olíuflutninga- skip. sem nú eru í notkun, nota 17% af burðarmagni sínu undir sitt eigið eldsneyti og á löngum ferðum eins og frá Persaflóa til Bandarík.ianna er það geysilegt rúm, sem myndi sparast með kjarnorkuknúnum olíuflulninga- skipum. — En Savannah verður ekki olíuflutningaskip heldur verður það bæði farþega- og vöruflutn- ingaskip,' sem mun taka 60 til 100 farþega. Tilraunaskip Skipið verður í náinni framtíð notað til tilrauna á orkugetu kjarnorkuknúinna skipa og verð- ur farþegarýmið notað fyrir atóm fræðinga, en ráðgert er að einnig verði í skipinu rannsóknarstofur. Margt er það, sem rannsaka þarf í sambandi við þetta kjarn- I orkuknúna skip. Auk hinna veriju | legu athugana á orkugetunni I verður leitazt við að finna málm- blöndur, sem hentugar geta orðið í einangrunarveggina, sem verja i áhöfnina fyrir geisluninni frá J kjarnaöfninum og einnig verður i unnið að þid að gera skipin ör- ugg vegna hinnar miklu hættu, sem að steðjar, þegar skipin verða fyrir áföllum. Savannah verður 21.840 brúttó- lestir, 595 fet á lengd og gang- hraði 20,25 sjómílur. Það er byggt eftir teikningu eftir George G. Shajrp, en að byggingunni standa ýmis félög í New York og New Jersey. Það er gert ráð fyrir, að skipið geti sigit 300.000 sjómilur án þess að* endurnýjaðar scu elds- neytisbirgðir þess. Áhöfn skips- ins verður um 125 menn. Hreyfillinn verður 74 mega- wött (milljón wött) og vegur 2.500 lestir með hinum marg- brotnu einjangrunarveggjum. Hreyfillinn er samansettur af 32 ofnum úr ryðfríu stáli, en þeir innihalda 9.600 kg af úranium- íldi. Skipið hefir dísil-hjálparhreyfil, sem ætlað er að nota í höfnum og skemmri siglingum. Varúðarráðstafanir Hreyfillinn er varinn af þrýsti- rúmi, sem umiukt er vatnsgeymi úr stáli og blýi, en í honum er létt vatn, sem sýgur í sig geislun- j ina að mestu leyti. Þessi geymir I er síðan varinn með gífurlegum geymi úr stálplötum, sem eru 17 m langar og þvermál geymisins er 12 m. Þessi hlíf tekur næstum alla þá útgeislun, sem eftir er, en þó er enn einangrunarveggur úr blýi, polyetylen og osment. Á þennan hátt er geislavirkum, á- hrifum eytt að langmcstu leyti í skipinu sjálfu, en í vélarúmi koma engir aðrir en áhöfnin, en þeir eru þá vandlega varðir af þar til gerðum klæðnaði. Til frekara öryggis er komið fyrir mælum víðs vegar í skipinu, þannig að hægt s'é að fylgjast Hugmyndin Hugmyndina um kjarnorkuknú- ið skip má rekja til ræðu Eisen- howers forseta, sem hann flutti í apríl árið 1955. Forsetinn talaði þá um, að flutningaskip yrðu knú- in hreyflum söniu gerðar og kaf- bátarnir, sem smíðaðir hafa verið í Bandaríkjunum og gefizt hafa mjög vel. Skip þetta átti að inn- rétta sem safn og átti það að fara um heiminn sem nokkurs konar „friðarskip1, en á safninu áttu að vera ýmiss konar tæki, sem notuð eru í sambandi við friðsamlega hagnýtingu kjarnorkunnar. Þessi hugmynd fékk þó ekki fylgi, þar sem taiað var um það í þinginu sem ..Leiksýningarskip“, „draumaskip" eða jafnvel „drauga skip“. Tæknisérfræðingunum f'annst þetta vera sóun á tíma, kröftum og fjáírmunum. (Það myndi kosta morð fjár að gera kjarnorkuknúið fiutningaskip úr garði. En hugríiýndin vakti menn til umhugsunar. Vaíraverziunatrmála- ráðherrann og skipamálaráðherr- ann tóku máiið að sér og fengu því íramgengt að byggt yrði til- raunaskip, sem knúið yrði með kjarnorku. Þessi breyting á hug- mynd forsetsns vakti athygli og hrifningu skipaíélaganna og þing- ið lýsti sig viljugt að gera nauð- synlegar ráðstafanir. Niðúrstaðan hefir nú fengizt. Fyrsta kjarnorkuknúna skipið mun fljóta innan tíðar, þar sem Savannah er. Skemmtilegar blaðagreinar dansks kennara eftir Islandsför Danskur kennari, Arne Stinus frá Vordingborg; íerðaðist um ísland í sumar. í haust hafa birzt eftir hann nokkrar greinar í dönskum blöðum, þar sem hann segir frá kynn- um sínum af landi og þjóð. í greinum sínum ræðir hann um einkenni okkar, vanda- mál og viðhorf og segir skemmtilega frá mörgu, en svo virðist sem hann hafi kynnzt furðuvel ástandinu hér. Stinus segir frá fegurð lands- ins, hinum almenna áhuga á bók- menntnm og listum, framförum og hinni miklu velmegun. Hann drepur á landhelgismálið og segir, að ísland sé eina landið í heiminum, þar sem afkoma allra er háð fiskveiðunum. Alrangt segir hann þá fullyrðingu margra, að út- færsla landhelginnar sé aðeins gerð til höfuðs Vesturveldunum, þar sem ísland sé -og verði vest- rænt ríki, en hafi enga samstöðu með járntjaldsrikjunum, auk þess, sem þetta sé knýjandi nauðsyn vegna allrar afkomu þjóðarinnar. Arne Stinus gerir handritamáiið einnig að umtalsefni og rekur eðli þess. Hann segir frá skilyrðis- lausri kröfu íslendinga um eigna- og ráðstöfunarrétt handritanna og getur rakanna, sem styðja þetta mál. Einnig getur hann um dansk- ar ástæður, sem hafi sitt a‘ð segja, en segir að Danir verði að fá tíma til að færa íslendingum handritin að gjöf og nefnir árið 1974, sem margra hluta vegna væri vel til fallið til afhendingarinnar. Greinar þessa danska kennara eru skemmtilegar aflestrar, enda tekur hann málin ekki of alvarlega og segir hlutlaust og sannfærandi frá. Hann hrífst af landinu og seg- ir í upphafi einnar greiriar sinnar. „Eg verð bergnuminn, þegar ég kem til landsins og það verður maður hvort sem siglt er til Reykjavíkur eða fiogið er inn yfir landið, þegar það er toaðaö í haust- sólinni. Maður verður bergnunv inn, áður en komið er til lands- ins“.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.