Tíminn - 17.02.1959, Síða 6

Tíminn - 17.02.1959, Síða 6
6 TÍMINN, þri'öjudaginn IT. fcbrúar 1959. IERLENT YFIRLIT, Úfgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Óhappasæll stjórnmálamaður Vaxandi andsta'Sa gegn Guy Mollet í franska jafnaíSarmannaílokknum Hvernig á að hátta útreikningi hlutfallskosninga? BLAÐ annars stjórnar- flokksins, Alþýðublaðið, ger- if að umtajlsefni 13. þ.m. kosningafyrirkomulagið á Norðurlöndum og segir, að frá þessum löndum hafi hing að til borizt flestir straumar í félags- og menningarmál- um og íslendingum muni ör ugglega reynast vel að halda áfram að leita þangað að reynslu og fyrirmyndum. — Stór kjördæmi með hlutfalls kosningu eiga að vera til fyrirmyndar, að dómi Al- þýðublaðsins. • En blaðið bendir jafnframt á aðra fyrirmynd í sambandi við' kosningar á Norðurlönd um, og er vert að veita henni eftirtekt. Sú fyrirmynd sýn- ir afar vel, hve hlutfalls- kosningar eru viðsjáll grund völlur stjórnskipunar. ALÞÝÐUBL. tekur það fram sem rétt er, að í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð sé farið eftir annarri reglu við útreikning þingsæta samkv. hlujfcfallskosningum en hér hefur verið gert til þessa. — Þar eru úrslit reiknuð út með þvi að deila í heildar- atkvæðatölu lista með 1.4- 3-4-5-7 o.s.frv. Hér er hins vegar deilt með 2-3-4-5 eða efti'r hinni svokölluðu d’Hont aðferð. Úrslitin verða veru- lega ólík eftir því, hvorri aðferðinni er heldur fylgt. Hér kemur einmitt fram einn aðalmunurinn á kosn- ingum í einmenningskjör- Uæmum og hjutfallskosn- ingum. Þegar kosið er í einmenn- ingskjördæmum, ræður at- kvæðafjöldi vali fulltrúans án annarra útreikninga. Val kjósendanna er frjálst og dómur þeirra skýr og óhagg- anlegur. Þegar kosið er hlutfalls- kosningu þarf útreikninga til að ákveða, hve margir ná kosningu af hverjum lista. E?igin ein allsherjarregla er til um þessa útreikninga, sem allir viðurkenni hina einu réttu, fremur en allir skólar hafa sama einkuna- stiga. Reglur um útreikn- inga samkvœmt hlutfalls- kosnincfum er efcki í stjórn arskrám þeirra þjóða, sem komið hafa á hlutfallskosn. ingum tU löggjafarþing- anna, heldur er þeim regl- um breytt með einföldum lögum. ÞRÓUNIN hefur orðið sú á Norðurlöndum, eftir að hlutfallskosningum var kom ið á í stórum kjördæmum, að það hefur orðið baráttumál þingflokka að breyta laga- ákváeðum um útreikninga samkvæmt hlutfallskosning um. Hefur það þá verið talið „réttlætismál“ og í samræmi við tilgang hlutfallskosn- inga að búa þannig í haginn fyrir hina minni flokka, en draga að sama skapi úr á- hrifum stærstu flokkanna. Af þeim ástæðum hafa verið teknir upp þeir útreikningar í Noregi, Danmörku og Sví- þjóð, sem Alþýðublaðið segir- frá. Við siðustu bœjarstjórn- arkosningar hlaut Sjálf- stœðisflokkurinn 10 bœjar- fulltrúa af 15 í Reykjavík, samkvœmt gildandi kosn- ingalögum um útreikning hlutfallskosninga. Ef sömu ákvæði og eru i gildandi kosningalögum Danmerkur Noregs og Svíþjóðar um út reikninga samkvœmt hlut- fallskosningum, hefðu þá gilt hér, hefði Sjálfstœðis flokkurinn að atkvœðatöl- um óbreyttum fengið 7 bœj arfulltrúa, en minni flokk- arnir samtals 8 bœjarfull- trúa. Minnihlutavaldi Sjálf- stœðisflokksins í bœjarstj. Reykjavíkur hefði þá verið vikið til hliðar. MÁLGAGN þess stjórnar flokksins, sem lagt hefur til menn í ráðherrastólanna, segir um leið og það greinir frá kjördæmaskipun og kosningareglum á Norður- löndjim, að íslendángum muni örugglega reynast vel að halda áfram að leita þangað að reynslu og fyrir- myndum, Nú er spurt: Er það vilji stjórnarflokk anna og fyrirœtlun að koma á hér á landi reglum um kosningar til Alþingis og sveitastjórna, er áð öllu leyti séu hliðstœðar þeim reglum, sem í gildi eru ann ars staðar á Norðurlönd- um? Þjóðin bíður eftir svari. Auðveld skipting I Reykjavíkurbréfi Mbl. á sunnudaginn er það höfuð rökin gegn því að nota sýslu skipunina sem grundvöll fyrir kjördæmaskipunina, að Gullbriingu- og Kjósar- sýsla hafi nú ekki nema einn þingmann, en eigi rétt til að hafa fleiri þingmenn. Úr þessu er hinsvegar mjög auðvelt að bæta á grundvelli sýslu- og kaup- staðaskipunarinnar. Það er hægt á grundvelli hennar að skipta Gullbringu- og Kjós arsýslu í 4 kjördæmi, Kópa vog, Keflavík, Gullbringu- sýslu og Kjósarsýslu. Dæmi sem Mbl. nefnir hér. sýnir það þannig mjög vel, að auðvelt er að bæta hlut þéttbýlisins, hvað þingsæta tölu snertir, með því að byggja í höfuðatriðum á SÁ atburður gerðist í Frakk- landi í seinustu viku, að Vincent j Auriol, sem var forseti Frakk- j lands á árunum 1947—54, lýsti j yfir því, að faann væri gengin úr jafnaðarmannaflokknum, en Auriol var lengi einn áfarifamesti og beztmetni leiðtogi hans. — Auriol færði 'þau rök fyrir brotlför sinni úr flokknum, að faann væri óánægður með forustu Guy Mollets og myndi hann sennilega ganga í flokkinn að nýju, ef Mollet léti af forustunni. Hann lýsti því jafnframt yfir, að hann myndi veita þeim lið, sem ynnu að því að svipta Mollet flokksforustunni. í bréfi, sem Auriol skrifaði stjórn flokksfélagsins, sem hann var í, komst hann m.a. svo að orði, að framundan væru tímar, þegar vinna þurfi að því að byggja upp og sameina, en ekki að sundra frjálslyndum mönnum meira í ó- samstarfhæfa smáhópa. Hann kvað Mollet ekki hafa neina hæfileika til að vinna að sliku samstarfi á breiðum grundvelli. ANNAR atburður gerðist einnig í Frakklandi í seinustu viku, sem er engu síður sögulegur. Hann var sá, að Mendes-France var rekinn úr Radikaiaflokknum eftir að hafa neitað að fallast á þau skilyrði flokksstjórnarinnar, að meðlimir flokksins mættu ekki taka þátt í nýrri hreyfingu, er vinna að sam- einingu vinstri aflanna á breiðum grundvelli. Yfirleitt er talið, að Mendes-France hafi ekki verið það óljúft að vera rekinn úr flokkn- um, eins og nú er komið. Flokk- urinn er nú marg-klofinn og þykja litlar líkur til, að hann eigi sér j viðreisnarvon í núverandi mynd í sinni fremur en jafnaðarmanna- flokkurinn undir forustu Mollets. i Fyrir Mendes-France vakir eins og j Auriol að koma upp nýju.n víð- j tækum samtökum vinstri manna í stað gömlu flokkanna, sem fólk hefir bersýnilega ekki trú á. Ekk- ert annað en fasismi virðist fram undan í Frakklandi þegar de Gaulle fellur frá, ef vinstri menn hafi ekki fylgt saman liði áður. MARGIR fleiri af mikilhæfustu leiðtogum franskra jafnaðarmanna en Auriol láta nú í ljós óánægju yfir forustu Mollet og telja það nauðsyn fyrir flokkinn að losna við hann sem formann. Mollet bætti að vísu nokkuð aðstöðu sína í flokknum með þvi að hætta þátt- töku í stjórn de Gaulle, en vafa- samt er að það nægi honum til að halda velli. i Ef litið er yfir stjórnmálaferil Guy Mollet seinustu fjögur árin, verður varla sagt að annar stjórn- málamaður hafi öllu verr ávaxtað það pund, sem honum var falið, en Mollet faefur gert á þessum tíma. Árið 1955 unnu þeir Mollet og Mendes-France að því að koma upp frjálslyndri miðfylkingu í Frakklandi ;neð því að koma á kosningabandalagi jafnaðarmanna og radikala flokksins.Þelta tókst og gengu þessir flokkar nokkurn vegin sameinaðir til þingkosning- anna í janúar 1956. EFTIR kosningarnar 1956 mynd aði Mollet stjórn og sköpuðust með því miklir möguleikar til að ráða framvin-du franskra stjórn- mála. Ef Mollet faefði fylgt fast fram hinni róttæku, umbótasinn- uðu stefnu, er kosningabandalag jafnaðarmanna og radikala hafði lýst yfir í kosningabaráttunni, hefði faonum tekizt áfram að efla miðfylkinguna og styrkja hana í sessi. Þetta kostaði hins vegar Mollet það, að hann gat átt það þeim grundvelli, sem kjör- dæmaskipunin hvílir nú á, þ. e. sýslu- og kaupstaða- skipuninni. MOLLET Á hættu, að stjórn hans féili. Þeg- ar til úrslitanna kom valdi Mollet heldur þann kost að trvggja líf stjórnarinnar en að berjast fyrir framgar.gi stefnuniar. Hann vann það til samstarfs við íhaldsöflin að ganga t.d. alveg á móti þeirri stefnu, er lofað hafði verið í Alsír málinu. Þetta varð til þess að leiðir þeirra Mollets og Mendes- France skildu og bandalag mið- flokkanna leystist upp. Mollet varð alltaf meira og meira háður íhaldsöflunum og reyndi jafnvel að vinna sér fylgi með því að ganga enn lengra en þau. Þar.nig var hann einn helzti hvatamaður hinnar hörmulegu árásar Frakka og Breta á Egyptaland haustið 1956. ÞRÁTT fyrir undanlátssemi og sáttfýsi Mollet við íhaldsöflin, fór það samt svo, að stjórn hans varð að hrökklast frá völdum. Hún hafði haldið þannig á málum, að frjálslyndu og róttæku öflin í frönskum stjórnmálum voru ráð- viltari og- sundraðri en nokkru sinni fyrr. Tilraun Mendes-France með kosningabandalagi jafnaðar- manna og radikala hafði því full- komlega misheppnazt að sinni. — Mollet lét sér samt ekki segjast, heldur hélt áfram að daðra við íhaldsöflin og fylgja stefnu þeirra í Alsírmálinu. Endalokin urðu vax andi ring.ulreið og hálfgert stjórn- leysi. Vafasamt er, hvort nokkur maður annar hafi átt méiri þátt í hruni fjórða ijrðveldisins en Mollet með þeim verknaði sínum, þegar hann rauf bandalag faeirra Mendes-France. og eyðilagðí þahn ig möguleika fyrir samstarfi h:nna lýðræðissinnuðu umbótaafla. Á síðastliðnu v.ori var svo kom- ið, að ekki var um annað að velja en valdatöku de Gaulle eða upp- reisn hersins. Mollet Verður varla ásakaður fyrir það, þótt hann kysi að styrkja de Gauile undir þfeim kringumstæðum. Vor. faans var líka sú. að þetta gæti hj iípað honum til að bjarga jafnaðar- mannaflokknum. De Gaulle var jafnaðarmönium áreiðanlega held ur hliðfaollur og myndi vel faafa getað hugsað sér Moilet sem for- sætisráðherra. Úrslit þingkosning- anna í nóvember nrðu hin3 vegar allt önnur en de Gaulle og Moliet höfðu vonazt eftir. Þjóðin vif orð in þreytt á ringulreiðinni, sem hafði verið tengd við nöfn hinna sundruðu miðflokka. Radikaiir og jafnaðarmenn, sem gerðu sér von- ir um að hagnast heldur á (hinu nýja kosningafyrirkomulagi, faiðu mikinn ósigur. Sigurinn féll faægri flokkunum í skaut. Vonsvikinn hrökklaðist Moll&t úr stjórn de Gauíle, þótt honum væri boðið sæti í hermi. FYRIR framsýna vinstri menn í Frakklandi er ekki hægt að<draga nema eina ályktun af þróuninni í Frakklandi seinustu árin. Ef sundrung frjálslyndu aflanna faeld ur áfram, sigra fasistarnir í Frakk landi, þegar de Gaulle lætirr af völdam, en til hans er yfirleitt borið jafnmikið iraust sem lýð- ræðiásinna og þeim Debre og Soustelle er lítið treyst í (seim efnum. Þess vegna vilja þeir Auriol og Mendes-Fránce nú vinna að því að skapa breiðfyikingu vinstri sinnaðra lýðræðissinna, er geti tekið upp baráttuna við flokk Soustelle og Debre. Ef stjórn de Gaulle tekst misjafnlega, getur slík vinstri sinnuð hreyfing fengið fljótt byr í seglin, ef fólk öðlast jafnframt þá trú, að hún iboði eitthvað nýtt, en stuðli ekki að endurtekningu þessa sem áður var. Jafnvel þótt Guy Mollet vilji styðja slíka hreyfingu, verður hann þar aldrei góður fánafaeri. Til þess er hann ofmikið blettaður af samstarfinu við ihaldsöflin á undanförnum ári>m. Þ.Þ. I 1 I „Háttvís“ blaðaskril Aðalritstjóri Mbl. skrifar mikið hól um sjálfan sig og' meðritstjóra sína í seir.asta Reykjavíkurbréfi blaðsins, Einkum leggur hann áherzlu á, hvað þeir og aðrir Sjálf- stæðismenn séu grandvarir í skrifum sínum um menn og málefni og sérstaklega háttvísir í öllum málflutn- ingi. Grandvarleika þeirra rit- stjóra Mbl. geta menn ann- ars nokkuð ráðið af því, að Mbl. hefir þrástagast á því undanfarin ár, að fyrrver- ,indi ríkisstjórn hafi fórnað landsréttiiidum fyrir lán, sem hún hafi fengið í Banda iíkjunum. Að dómi aðalrit- stjórans virðist það þannig heyra undir grandvarleik að ber,a landráð á nienn! Og auðvitað er það ekki per- sónuníð! Og' hvernig er svo háttað grandvarleik.og háttvísu orð b'agði Sjálfstæðismanna, þegar þeir skrifa í hin ó- æ'ðri málgögn sín, eins og t. d. Mánudagsblaðið. Þ,ar er víst ekki þjónað öðru en sannleiksásthnii og prúð- mennskunni? E5a finnst aðalritstjóra Mbl. þuð ekki? Og hvernig fundust honum ummælin um. forsætisráð- he ra, er nýlega birtust í Ilamri, blaði Sjálfstæðis- manna í Hafnaríirði? Voru þau ekki bæði sonn og kurt- eisleg? Og þá þarf víst ekki að spyrja um álit hans á skrifum unglinganna, sem eru aldir upp i „heiðríkju Sjálfstæðisstefnunnar“ og undir hinum „hollu áhrif- um“ hennar? Er ekki nýlega útkomið Stúdentablað, þar seni menntamáiaráðherfa er að nokkru getið, gott dæmi þess, hvað íhaldlsunglingarn ir læra rétVm og háttvísan málflutning af lærimeistur- um sínum? Og náttúrlega getur aðalritstjórinn ekki orðið annað en npp með sér þegar hann er minntur á Flugvallarb’aðið! Nei, aðalritstiórinn er áð sjálfsögðu ekki að hæla sér og sínum fyrir háttvís blaða skrif vegna þess, að l’nnn sé h"æddur um að aðrir hafi ekki veitt þeim eftirtckt. I 1 | I I I I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.