Tíminn - 27.05.1959, Qupperneq 5

Tíminn - 27.05.1959, Qupperneq 5
T f MIN N, miðvikudaginn 27. maí 1959. 5 Þórarinn Þorleifsson, Skúfi: SVIK SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Gpið bréf fi! Jóns á Reynistaö Hartnær ellefu hundruð ár eru liðin síðan fyrsti norrærii maður- inn festi bú á íslandi. Meiri hluta þess tíma hefur þjóðin búið við er. lenda yfirdrottnun og áþján, sem Varð að lokum svo ill og ömurleg, að til orða kom að flytja leifar þjóðarinnar burt af landinu ‘og setja þær niður á óbyggilegar heið ar framandi lands. Það hefur marg Binnis verið sagt, að ísland væri á mörkum hins byggilega heims og Ketill flatnefur, forfaðir margra íslendinga, kvaðst ekki mundu fara í þá veiðistöð á gamals aldri sínum. Það er og satt, að landið er vandsetið í nábýii við is og eld. Þó hefur bændamenning þrifizt á ís_ landi um alla sögu þess, þrátt fyrir erlenda áþján. Því áþjánin er ekki landinu að kenna. II. Skyldu margir núlifandi íslend. íngar gera sér Ijóst, að fullu, hversu djúpt þjóðin var sokkin í fátælvit og volæði vegna áþjánar þeirrar, er „Kaupmannslundin“ leiddi yfir hana? Og gera menn sér Ijósa grein fyrir því, hvílíkt átak það var, að draga til sín sjálf- etæðið á ný úr hrömmum kúgar- ítnna? Gera menn sér fulla grein fyrir því hver stoð þjóðinni var, á þeim tímum, í því skipulagi, sem hún byggði sitt endurreista Alþingi á? Ég er ekki alveg viss um að anenn hugsi þetta sem vert væri. . Það hafa meira að segja heyrzt raddir, nú á síðustu dögum, að sú skipan hafi verið runnin undan rifjum sjálfra • drottnaranna. En þeir menn, sem það segja, virðast gleyma mörgu. Meðal annars því, íið „jafnvel úr hlekkjunum sjóða aná svorð í sannleiks og frelsisins þjónustugeir3.“ Og elkki héld ég að danskir kentn arar eða þeirra uppalningar hafi foúið til nöfnin: Húnaþing, Hegra. nesþing, Vaðlaþing, Þingeyrar- þing, Múlaþing o. s. frv., allt í ikringum landið. Nei!, skipulagið var fornt og gott. — Að það var gott, sannast á því, að með því ■vamnst þjóðLnni frelsið. Þeir, sem vilja halda öðru fram, eru ekki öfundsverðir eða margra orða í rökleysi sínu. III.- Um það leyti, sem þjóðin var að ná írelsi sínu úr harðgreipum erlenda valdsins, mynduðust nýir flokkar í landinu, sem snéru huga sínum að innanlandsmálunum, meira en áður hafði verið, meðan sjálfstæðisbaráttan tók upp orku og hugi manna að mestum hluta. Sá tími liggur svo nærri, að mið. aldra mönnum eða þó eldri, er liann enn í minni. Yngri kynslóð. inni er hann ekki nærri svo kunn- ugur, sem vera ætti, að ég held, þrátt fyrir alla skólagöngu. Væri það mál út af fyrir sig, að athuga, ‘hverju sætir tómlæti það, sern þjóðin hefur sýnt þeim merku minningum. Elzti flokkurinn frá þeim tíma er Framsóknarflokkur- inn. Hann var fyrst og fremst flokkur bænda og samvinnumanna. Hann var og heíur alla tíð verið fullkomlega þjóðlegur flokkur, með engri erlendri íblöndun af neinu tagi. — Hugsun Framsókn. armanna, eins og samvinnumanna, var :sú, eins og Snorri Sturluson segir um Erling á Sóla „að koma hverjum manni til no/.Áurs þroska“. Framsóknarmenn vildu að einstaklingarnir þroskuðust til sjálfstæðs ananndóms með sam- vinnu. Lærðu að vinna saman og færa sér samstarfið í nyt, bæði fyfir einstaklinginn og heildina. Ég hefi alltaf litið svo á, að þetta væri innsti kjarninn í hugsun Éramsóknarflokksins og — full. gildur starfsgrundvöllur, sem ekki þýrfti eða ætti að haggast. •— í upphafi var þörfin á þessu starfi afar brýn. Þjóðin var lang. kúguð, og það hefur jafnan verið háttur allra kúgara, að sundra en ekki sameina. Svo auðveldast náði ljónið bráðinni að nautin gengju ekki saman á haglendinu. Um þá sögu ætti ekki að þurfa mörg orð. Fyrirætlanir hans í kjördæma- málinu mega ekki heppnast IV. Þá reis líka upp íhaldsflokkur. Já!, hann hét íhaldsflokkur! Nú kunna máski ungir menn og konur að spyrja sem svo: En hvernig gat orðið til íhaldsflokkur hjá lang. kúgaðri þjóð, með nýfengið frelsi. Þjóð, sem hafði allt að vinna á nýddu landi, en fá verðmæti að verja, utan tungu og þjóðerni, og náttúrlega þá skipan Alþingis, sem svo vel hafði gefizt í sjálfstæðis- baráttunni? Til glöggvunar gagnvart verð- mætunum, tungu og þjóðerni, má strax taka fram, að innan vébanda íhaldsflokksins, voru allar leifar hins danslea „Skildinganess“. Það er, dreggjar og leifar danskrar seL stöðuverzíunar, bæði andlega og efnalega séð, með meðfylgjandi yfirdrottnunar anda og eltandi þý- lyndi. Það liggur nærri að ætla, að þetta hafi verið sá raunveru. legi kjarni, sem annað hlóðst um í veltunni. Það voru fleiri en Jósep bóndi á Hjallalandi, sem litu með nokkurri ást og virðingu til „Skild. inganess" og brennivínstunnunniar á „stokkunum“. En íhaldsflokkur. inn hét íhaidsflokleiu- þangað til nafnið var orðið til óp.ýði. Þá var skipt um nafn, og lá þá fyrir að taka upp gott nafn, sem fýsti menn til þess að nema land í flokknum. Sjálfstæði var hug- þekkt nafn og átti góðar minjar hjá þjóðinni. Það var valið. Sjálf- stæðisbaráttunni var að vísu lokið, en ,nú var það sjálfstæði einstakl. ingsins, sem þurfti að vcrja, gegn margháttuðum samtökum, sem mjög virtust miða að því að jafna kjör manna og gera sem flesta menn þess megnuga að láta ekki ganga á sér: Að vernda sjálfstæða hugsun og frelsi manna til sjálf- stæðra athafna innan löglegra tak. markana, hét það á stefnuskrá flokksins. Flokkurinn var frá önd. verðu í andstöðu við samvinnu. stefnuna, eins og íhaldsflokkurinn hafði verið. En reynt var með ýms um hætti að leyna þeirn óþokka- hug, sem „sjá’lífstæðisme-nn“ höfðu á samvinnu almennings. Sem mest sjálfstæði einstaklinga og minni fé lagseinda, var það einkunnar hug. tak, sem flesta dró að flokknum, enda hefur hann frá stofnun haft mikið fylgi. Hann hefur liaft mik- inn blaðakost, og fjárráð hefur ekki virzt skorta. Mörgum hefur þó jafnan fundizt þetta sjálfstæðistal vera blekking eins og mest við það miðað að a-L menningur áliti það sjálfstæði mest, að togast á í hverju máli en vinna aldrei saman, nema þá undir stjórn. Öfugt við raunverulegt sjálfstæði. „Sjálfstæðisflokkurinn“ hefur nokkrum sinnum á sinni leikaraævi misst af sér gervi skeggið, en sjaldan hefur hið eig- inle.ga andlit komið eins glöggt í ljós og nú á síðustu tímum. V. Og víkuj nú að alburðum síð. ustu tima. 1956 gengu Framsókn- arflokkurinn og Alþýðufl. til kosn. ingasamstarfs og gerðu. með sér samning um stefnu og s’tarf á næsta kjörtímabili, ef þeir næðu meiri hluta við kosningar. Horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar voru svo ís'kyggilegar að varla hittust svo tveir menn, að þeir spyrðu ekki hvor annan, sem svo: Hvernig fer þetta?; eða: Hvar lendir "þetta allt saman? Þótti Framsóknar. mönnum nauðsyn að spyrna við fótum og töldu líklegast að við- námsstarfið yrði helzt unnið í samvinnu við Alþýðuflokkinn. Al- þýðuflokkurinn var fús til sam. starfsins af ýmsum ástæðum. And stæðin.garnir nefndu þetta „Hræðslubandalag“. Mér hefur alltaf þótt það nafn gott. Því ef menn kunna ekki að óttast um hag þjóðar sinnar, þótt illa horfi, eru ekki miklar líkur til að mcnn snú. ist til varnar gegn háskanum. „Sjálfstæðismenn'* snérust sem allra versl við þessari bandalags- mynd. Var ekki trútt um að kenna þætti hræðslu í viðbrögðunum. Meðal anrrarra tiltekta þeirra var það, að þeir gáfu út bækling, þar sem til voru tínd öll skammaryrði,' sem farið höfðu rnilli Framsóknar. flokksins ög Alþýðuflokksins í kosningaerjum á undanförnum tímum. Hefur þetta vist þótt góð latína á því heimili og það gleymzt, eða aldrei verið lært, að „sælir eru þeir, sem friðinn semja“. Þetta er nú raunar aðeins ein kosningaútgáfa „Sjálfslæðisfl.“ af mörgum og þykjast sumir sjá, að slíkur herkostnaður horfi til ein- hvers ávinnings. Framskvæmd bandalagsins töldu þeir stjórnar. skrárbrot. Höfðu þó sjálfir reynt áður mjög svipaða aðferð. Þó fór það svo, að yfirkjörstjórn, skipuð að meiri hluta mönnum úr þeirra hóp, gat ekki staðið að slíkum dóm, þó að allar leiðir væru reynd- ar. Eftir kosningar var mynduð stjórn þriggja flokka, og voru nú „Sjálfstæðismenn“ í stjórnarand. slöðu. Það fórst þeim áþekkast því, sem sagt er frá athöfnum Kölska þegar Sæmundur fróði var að messa í Odda. Skrattinn bar, sem sagt, fjóshauginn fyrir kirkjudyrn. ar meðan á messunni stóð. Þessa tilburði kannast allir við í útgáf! unni. Stjórnarandstaða „Sjálfstæð- isflokksins.“ VI. Sjálfstæðisflokknum hefur nú tekizt að slita skottið af „Hræðslu- bandalaginu“, og þykist nota það til þess að sópa með óþrifin frá kirkjudyrunum, eða ;svo er það látið heita. Margir munu þó efast um hvernig að verður unnið um það er lýkur, og fer þeim íjölg. andi. En þó að skott sé ekki mjög virðulegur limur, vildi það samt hafa nokkuð fyrir snúð sinn. Skyldi nú Sjálfstæðisflokikurinn takast það á hendur að leggja nið- ur hin fornu kjördæmi, öll nema Reykjavík og hundsa þar með öll sín fyrri orð og heit um stefnu og innræti, um ást á frelsi einstakl. inga og smærri félagseinda? S'kyldi nú 'aftur höggvið í hinn sama kné. runn og gert var 1942 og óumdeil. anlega hefir síðan aukið vanda þjóðarinnai-. Skyldi nú með sam- einuðu sundrungarvaldi þéttbýlis- ins ráðstafa landsbyggðinni án hennar tilmæla og móti hennar vilja, ef aðeins væri hægt að bol. ast áfrani mcð ósómann? Kommún istar eru með, það þarf engan að undra. Þeir vilja vestrænt þing. ræði feigt og þetta er glögglega spor í feigðaráttina. Kommúnistar vilja þá skipan, að fólkið megi að. eins segja já við því, sem því er sagt að gera og kjósa eins og því cr sagt fyrir. Afnám kjördæmanna og samsteypa í hlutfallskosninga. blakkir, er stórt spor í þá fyrir- skipunarátt. í stuttri grein verður ekki, svo sem skyldi, lýst giftuleysi „Sjólf- ,stæðisfiokksins“, sem hefur svikið og svívirt þau grundvallarsjónar. mið, sem hann taldi sig byggja til- verurétt sinn á. En þetta hefur alltaf verið blekking, en aðal.JþL gangur og hugsun, að þjóua pen. ingavaldi fésterkra manna á kostn- að fjöldans. Alþýðuflokkurinn er flokkur sitjandi embæltismanna, að mestu slitinn úr tengslum við hið raunverulega slarfandi fólk framleiðslunnar í landinu. Hann ■Iiefir hlutverk apans við skiptingu þeirra verðmæta, sem rii'in eru úr , skauti náttúrunnar, með hörðum , höndum starfandi manna. Hann á : ekki fylgi mcð fólkinu, en hyggst að nota sér þessa skipulagsbreyt- • ingu, til þess að sameina sína haga^ lagða svo hann geti ögn lengur fengið í eina pokafylli. (Framhald á 8. síðu). Herra Jó,n SigurSsson. Það er ekki oft, sem maður heyr ir rödd alþingismannsins á Reyni stað í viðtækinu sínu. .Sá atburður skeði þá nú fyrir nokkrum dögum i útvarpsumræðunum um kjör- dæmamálið. Eg hafði nú látið mér detta í hug, að þú hliðraðir þér hjá því að verja þetta óvinsæla mál í útvarpsumræðum, en ein hverjir verða æfinlega að vinna skítverkiyi og svo er líka annað — þegar farið er að íhuga málið — að þér hefur þótt viðeigandi að lofa kjósendum þínum að heyra þína raust, ef það mætti verða til þess að gera þá óánægðu ofurlítið rólegri, því það munt þú vita, að ekki eru þeir aliir hrifnii- af vænt anlegri kjördæmabreytingu. — Nei Skagfirðingar vilja hafa sitt gamla ikjördæmi útaf fyrir sig, en kæra ;sig ekki um að rugla r-eitum sín um saman við aðra, þetta veizt þú líka. Eg álí't því, að þú hafir eng a.n rétt til — með atkvæði þínu — að stuðla að því, að kjördæma- frumvarpið verði að lögum í þeirri mynd sem það er nú, enda hafa kjósendur þínir áreiðanlega ekki i gefið þér umboð til foess. Það ætti engum pólitískum flokki að leyfast sá yfirgangur, að hagræða kjördæmaskipun lands ins eftir því hvað bezt hentar, ■enda er slíkt fullkomið ofbeldi. Þú sagðir í ræðu þinni, aö þú hefði „undanfarin áx“ hugsað mik ið um þetta mál. Það mætti nú ætla að jafn greindur maður og þú ert á‘litinn vera, hefðir átt á þessum undanförnu árum, að vera búinn að finna betra ráð til að rétta hlut flokks þins, heldur en þaðð, að koma kjördæmi þínu fyr ir kattamef. Enginn þer á móti því, að rétt sé að fjöíga þingmönnum í þéttbýl inu, en það á bara ekki að fara svona að þvi að rétta hlut Sjálf stæðisflokksins hvað þingmanna- tölu snertir. Ekki varð ég var við röksemdir í ræðu þinni, enda ekki hægt að finna þær þessu máli til stuðnings en þú varst að reyna að tala með miklum fjá'lgleik um nauðsyin sam vinnu og hvað mikdll styrkieiki væri í því fólgiinn að standa sam- an og er það mikii framför og gleðiiegt að heyra þig taia þannig, en því miður, er ég hrædur um að þetta sé af litlum heilindum mælt því sennilegt þykir mér, að þú fiarir nærri um hvert stefnir x þessu máli og á hinn bóginn lít- ill samvinnumaður a. m. k. hvað snertir verzlunarmál Skagfirðinga. Það mun — því miður — sann ast þó siöar verði, að kjördæma foreyting sú, sem nú er fyrirhuguð, r'erður aflgjafi sunditrlyndis og ófarnaðar fyrir dreifbýlið, enda seniniliega til þess ætl’azt. Eg þykist nú vita að þið þir.g menn Skagfirðinga hafið oft haft samvinnu um að leysa hagsmur.: mál héraðsins og er það sízt ai lasta, en nú þykir þér- sjáanlegs nóg komið af svo góðu og metur nú meira flokkshagsmuni en vei- ferð kjördæmis þíns þar sem þú ætlar nú, með minni hluta kjós enda á ba'k við þig, að beita meiri- hlutan.n ofbeldi með tilstyrk auo manna í Reykjavík og fleiri góðr: manna. — Hvað skyldi það annar: kosta Sjálfstæðisfl. að þurfa aí fá aðstoð kommúnista til þess a'ð knýja fram þetta óhappamál? Þaí ikernur síðar í ljós. Einn kaflinn í ræðu þinni fja.' aði um framboð, niðurröðun ; lista og möguleika lítt reyndr:, stjómmálamanna til að ná kosr ingu og taldir þá fremur litla, vegna þess, að hinir æfðu stjórn- málamenn væru sjálfsagðir í efsir. sætin og sagðir Ioks, að þróunir. myndi verða þannig að leitað yrði til Reykjavíkur utan af landsbyggL inni til þess að fá menn til fi-aiB boðs. Á þessu sést, að það er ckl: alveg út í loftið, — sem oft hefu: verið drepið á síðan blaðaskrif hói ust um kjördæimamálið — ae sveitakjördæmin mundu litlu ráð: um framboð þegar kjördæmiu yrðu *stærri, heldur myndu flokk' stjórnir taka þau ráð í sínar henc ur. Lýðræðisleg stefna, er ekk.. svo? Formaður flok'ks þíns komsí: þannig að orði í sinni fátækieg- ræðu, —■ um kjördæmamálic, „'Það þarf alveg sérstakt ánaræt;. til að berjast á móti kjördæmamá inu.“ Ekki iskilgreindi hann þessa setningu nánar. Eg mundi iát. mér détta í hug að það þyrftí alveg sérstaklega vanþroskað inn ræti til þess að ganga fram fyri;. skjöldu hjá foringjum sínum og di' sarna ágæti þessa boðskapar, já, meira að segja halda því frair. að hag bænda sé bezt borgið me. því að leggja niður gömlu kjör dæmin. Og að lokum þetta: Þú ert meí afstöðu þinni til kjöi’dæmamálsiiu að vinna það mesta óhappaver. sem þú hefur unnið um daganna, Það var að vísu ekki drengilegt, — þegar þú við þiitt fyrsta franiboc í Skagafirði. þóttist vera á vegun: Framsóknarflokksins, en sveiksí: hann svo þegar á þing kom. Hit> er þó margfallt verra, að ætla nú að svíkja kjördæmi sitt. Eg skora nú á þig, Jón Sigurðs son, að snúa við áður en það er orðið um seinan og bjarga kjör- dæmi þínu frá þeirri niðurlæg- ingu, sem því er nú búin meli þessari kjördæmabreytingu. Guðm. Eiríksson. Rafgeymar 6 og 12 volt Raígeymasambönd Garðar Gísiason h.f. bifreiðaverzlun. <immwmnmnist«tmcnmnagnaai»n»mnnnmnaict Plastic — lakk I l fyrir PARKET, KORK og H GÓLFDÚK fyrirliggjandi H Egill Árnason Umb. og beildverzlun, Klapparstíg 26. ■— Sími 1-43-10 « H • • H H

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.