Tíminn - 21.07.1959, Síða 1
teiknistofu
landbúnaðarins,
bls. 7
13 árgangur.
Reykjavík, þriðjudaginn 21. júlí 1959.
Með bílhlass af ís yfir
Sahara, bls. 3
Flórgoðar í ríkisfyrirtæki, bls. 5
Víðsjá, bls. 6
íþrótir, bls. 10
151. blað.
Nót Hiimfs
náðistupp,en
Raufarhöfn í gæ'rkveldi.
Eins og sagt hefur verið frá
í fréttum sökk nól og nótabát
ur hjá Hilmi KE á dögunum,
er verið var að háfa stórt
kast, og fóru sjö menn í sjó-
inn en björguðust. Skeði
þetta sunnan Langaness.
Þetta var ný nælonnót, sem
kostar um 300 þús. kr. í
fyrrinótt fann Hilmir nótina
og reyndi að ná henni upp,
en tókst ekki. Náðist svo til
varðskipsins Alberts, og náði
hann nótinni upp í gær og
er kominn með hana til
Raufarhafnar.
Bretar skutu
bátinn í kaf
Hilmir fann nótabátinn
hins vegar ekki, en í gær
sást nótabátur á reki skammt
frá þessum slóðum og var
talið, að þar væri bátur Ililm
is. Þegar betur skyldi að
gáð var liann liorfinn, og
hafði það sézt til brezks her-
skips á þessum slóðum, að
það var að leika sér að því
að hafa bátinn að skotmarki
og skaut hann í kaf. Er þetta
nýjasta. iafreksverk Breta á
íslandsmiðum.
Um helgina og fram eftir
dgei í gær var mjög mikil
síldveiði fyrir Norðurlandi,
og virðist þar um að ræða
mjög mikla síldargöngu og
meiri en orðið hefur vart hin
síðari ár. Veiði tregðaðist
austan Sléttu á laugardaginn,
en þann dag varð vart mikill-
ar síldar á Hólnum milli Kol-
beinseyjar og Grímseyjar
eða iainvel nær landi Á
sunnudagsnóttina kom svo
upp geysimikil síld á öllu
Skagagrunni. Fengu nær öll
skip, er á þessu svæði voru,
afla og mörg fullfermi. t gær
var enn töluverð síld uppi
hér og hvar á þessum slóðum,
en þoka og nokkur kaldi tafði
veiði. Gott veður var komið
í gærkveldi en þoka var til
I tafa.
í gær var sólskinsdagur í
Reykjavík, og þótt veður hafi
verið milt að undanförnu, þótti
öllum gott, að sólin skyldi skína,
en hún hefur ekki geit mikið
að því að undanförnu. Fólkið
safnjðiít á grasflatir og bekki
víðsvegar í bænum, og naut
þess að láta sólina baka sig.
síldargöngur
allt frá Skagagrunni
fyrir Norðurlandi
austur um Sléttu
j Allur flotinn að veið-
um á vestursvæðinu
síðustu daga
urðu lítil
áminning
í gær barst blaðinu fréttatilkynning frá dómsmálaráðu-
neytinu, þar sem tilkynnt er niðurstaða rannsóknar þeirr-
ar, sem undanfarið hefur átt sér stað í Austur-Húnavotns-
sýslu vegna kæruatriða út af kosningu til Alþingis þar í
sýslunni. Kæra þessi var höfð að gamanmáli meðal kjós-
enda í sýslunni og nú hafa þessi ósköp öll éndað með á-
minningu, eins og segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytis-
ins, sem hér fer á eftir:
„Ilinn 3. þ.m. barst sýslumann-
inum í Húnavatnssýslu brcf. dags.
sama dag, undirritað f.h. sjálf-
slæðisfélaganna í Austur-Húna-
vatnssýslu af Páli Kolka héraðs-
lækni, Blönduósi, Guðmundi Magn
úsi Klemenssyni, kennara, Ból-
staðarhlíð, og Steingrími Davíðs-
syni, skólastjóra, Blönduósi, þar
sem kært var yfir misferli við
framkvæmd kosninga til Alþingis
28. júní s.l. í Bergstaðakjördeild
í Bólstaðarhlíðarhreppi og í Svína
vatnshreppi í Húnavatnssýslu.
Voru kæruatriði þau, að í hvor-
ugri þessara kjördeilda hefðu
verið tilkvaddir sérstakir dyra-
verðir, eins og fyrir er mælt í
lögum um kosningar til Alþingis,
og að fleiri hefðu verið innd í
kjörfundarstofum en kosningalög
heimila. Þá var kært yfir því, að
eigi hafi verið gengið frá kjör-
klefa í Bergstaðiakjördeild, eins
og til er ætlazt í kosningalögum,
enda hafi kjósendur verið látnir
greiða atkvæði bak við lágan skil-
vegg í 'kjörfundarstofu, sem auð-
velt hafi verið að sjá yfir.
Sýslumaður baðst undan því að
fara með mál þetta, þar eð hann
hafði verið þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins og óskaði eftir, að
- málið yrði falið sérstökum dóm-
a;ra til meðferðar. Ráðuneytið
skipaði síðan Loga Einarsson, lög-
fræðing, umboðsdómara til að
rannsaka kæruatriði. Fór sú rann-
sókn fram mánudaginn 13. og
þriðjudaginn 14. þ.m. Barst ráðu-
neytinu svo endurrit rannsóknar-
innar föstudaginn 17. þ.m.
Eftir að ráðuneytið hafði kynnt
sér rannsóknina vair lagt fyrir
sýslumanninn i Húnavatnssýslu að
ljúka framangreindum málum
með áminningum, veittum í dómi,
til 'kjörstjórna greindrai hreppja
sem hér segir:
„I. Kjörstjórn Bergstaðakjör-
deildar, Guðmund Sigfússon, for-
mann, Wónda að Eiríksstöðum,
Guðmund Halldórsson bónda a@
Bergstöðum, og Guðmund Sigurðs
son, bónda að Leifsstöðum, ber að
áminna fyrir:
1. Að skipa eigi ákveðinn mann
við dyravörzlu, 1. mgr. 83. gr.
(Framh. á 11. síðu)
Þá liafa skip einnig lóða:5 mik-
ið síldarmagn á svæðinu út af
Sléttu, og telja sjómenn þar nýja
og mikla göngu á ferð. Kemur
síldin þar ekki upp enn, en menn
gera 'sér vonir um að hún vaði
þar, þegar straumur stækkar síð
ar í vikunni. Af öllu virðis.t ljóst,
að nýjar og mjög stórór síldar-
igöngur séu komnar á svæðið fyr-
ir Norðurlandi, allt frá Skaga-
grunni austur um Sléttu, og gera
Framhald á 11. síðu.
Síðustu fréttir:
Þegar blaðið átti tal við síldar-
leitina á Siglufirði í gærkvöldi,
var þar svartaþoka og engar veiði-
fréttir. Var búizt við að sUdarinn-
innar yrði að vanda vart með
nóttinni. Allur flotinn var þá sam-
ankominn á Sléttugrunni, nema
fjögur eða fimm skip voru énn
austan Langaness.
Lík Axels fannst í
• ^
i gær
Alþingi veröur
sett í dag
Alþingi hið nýkjörna verður
sett í dag. Mun þingsetning hefj-
ast með guðsþjónustu í Dómkirkj
unni kl. 13,30. Því næst fer fram
þingsetning, og geguir aldursfor-
seti, PóII Zóphóníasson, forscta-
störfum. Fyrir liggur að kjósa for
seta og starfsmenn þingsins og
til efri dcildar, en óvíst mun, að
sú kosning fari fram á morgun.
Um klukkan hálfsjö í gær-
kveldi fannst lík Axels 'Helga-
sonar, forstjóra, í Heiðar-
vatni, en þess hafði verið leit
að í vatninu allt síðan á laug-
ardag. Fann froskmaður líkið.
I
• Fjölmennur hópur manna hef-
ur tekið þátt í leitinni, bæði menn
þar e.vstra og menn úr Reykja-
vík, meðal annars lögreglumenn
og bræðuir Axels Jóhannes G.
Ilelgiason og Krislinn Helgason.
Slætt var víða um vatnið með
góðum tækjúm, cn bað bar ekki
( árangur. Froskmaðnr leitaði
einnig á sunnudaginn, en skil-
yrði voru slæm, og bar leitin ekki
I árangur.
Austurtrog fannst
Veður var illt eystra á sunnu-
daginn, stárrigning og stormur,
'svo að skyggni í vatninu var illt,
, og þar er einnig mikill leir og
slýgróður. Froskmaðurinn hafði
einnig lítinn súrefnisforða, eða að-
eins til hálfrar stundar köfunar.
Þó fann hann síðdegis á sunnu-
daginn um 90 faðma frá landi á
3—4 faðma dýpi austurtrog úr
bátnum og dauðan silung á bota-
inum. Benti þetta til þess, að
þarna hefði bátnum hvolft.
Líkið finnst
í gær var veður gott, og flaug
þá fi-oskm)|ður enn austur með
fullkomnari útbúnað, og leitaði
Frambald á 11. gíðu.
> tr