Tíminn - 21.07.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.07.1959, Blaðsíða 6
T í M I N N, þriSjudaginn 21. júií 1939, 6 i—WhMiam-— Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Kitstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 305 og 18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn). Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13 948 ' ----------- Þjóðarviljinn fékk ekki að njóta sín í kosningunum í REYKJAVÍKURBRÉFI Mbl. á sunnudaginn var, er íjokkuð minnzt á störf auka- þingsins, sem byrjar fundi sína í dag. í ummælum Mbl. kemur það fram, að þingið eigi að vera stutt, enda liggi ekki annað fyrir en að stað- festa möglunarlaust stjórnar skrárbreytinguna, er sein- asta Alþingi samþykkti, því að % hlutar kjósenda hafi lýst fylgi sínu við hana í ný- loknum þingkosningum. fíér skal síður en svo vera mælt á móti því, að reynt sé að hafa þinghaldið stutt. Hitt er hins vegar fjarri lagi, að kosningarnar hafi leitt í ljós nokkurn glöggan þjóðar vilja, er réttlæti tafarlausa samþykkt stjórnarskrárbreyt ingarinnar. MEÐAN á kosningabar- áttunni stóð, lögðu Fram- sóknarmenn réttilega á það höfuðáherzlu, að fyrst og fremst ætti að kjósa um stjórnarskrárbreytinguna, — enda þingið rofið og efnt til kosninganna vegna hennar, samkvæmt beinum fyrirmæl um stjórnarskrárinnar. — Af hálfu ailra hinna flokkanna fjögurra var hins vegar lagt höfuðkapp á að andmæla þessum málflutningi Fram- söknarmanna og því haldið hiklaust fram, að hér væri aðeins um venjulegar kosn- ingar að ræða og því ætti ekki síður að kjósa um önn- ur mál en kjördæmamálið. Það var ekki heldur látið við þetta sitja, heldur búin til ýmis vigorð til þess að reyna að draga athyglina frá kjör- dæmamálinu að öðurm mál- um. Þannig var t.d. aðalher- óp Sjálfstæðismanna í kosn ingabaráttunni: Aldrei aftur vinstri stjórn. Af hálfu Al- þýðubandalagsins var lögð megináherzla á að kjósa ætti um landhelgismálið og kaup- lækkunarlögin. Alþýðuflokk urinn lagði mikla áherzlu á að auglýsa störf ríkisstjórn- arinnar og reyna þannig að draga athyglina frá kjör- dætnamálinu. Þjóðvarnar- flokkurinn ræddi einkum um hermálin og svo flest mál önnur en kjördæmamálið. TIL þess að varpa nokkru Ijósi á það, hvernig mál- flutningi andstöðuflokka Framsóknarflokksins var hag að, þykir rétt að birta hér ummæli úr forystugrein Mbl. 16. júní s,I. Þau eru á þessa leið: )VKjördæmabreytingin er mikið mál, en þó aðeins eitt af því, sem nú er kosið um ... Allir, ekki síöur Framsóknar menn en aðrir, gera sér og grein fyrir því, að vonlaust er, að Framsókn fái nægt þingfyigi til að stöðva mál- ið. Þeir, sem greiða Fram- sókn atkvæði,. gera þaö því ekki vegna kjördæmamálsins heidur af þv'í, að þeir kjósa yfir sig á ný sams konar stjórnarfar og hér ríktl á v-stj órnarárunum". Á þessa leið var yfirleitt allur- áróður Sjálfstæðis- manna og annarra stuðnings manna stjórnarskrárbreyt- ingarinnar. Það var reynt að draga athyglina að öðrum málum meira en stjórnar- skrárbreytingunni. Það var reynt að láta líta svo út, að raunverulega væri hún út- rætt og afgreitt mál. Þegar þessi málflutningur dugði forkólfum Sjálfstæðisflokks- ins ekki, var gripið til þess’ ráðs að beita ýmist sérstök- um blíðmælum eða hótunum við þá fylgismenn flokksins, er álitnir voru eitthvað veik- ir í trúnni. AF ÞEIM ástæðum, sem hér eru greindar, skiptu þeir kjósendur áreiðanlega mörg um þúsundum, sem kusu þrí flokkana, þótt þeir væru and vígir stj órnarskrárbreyting- unni. Þeir létu blekkjast af þessum mikla, samhljóða á- róðri þríflokkanna, er yfir- gnæfði málflutning Fram- sóknarflokksins. Þess vegna er varla hægt a‘ð hugsa sér meiri rangtúlkun eða ljótari meðferð á kjósendum en þeg ar verið er að telja þessa kjós endur sem stuöningsmenn kjördæmabyltingairnnar. Það fer þess vegna fjarri því, að kosningarnar hafi leitt í ljós hver þjóðarviljinn er í kjördæmamálinu. Fjórir flokkar sameinuðust um að koma í veg fyrir, að kosning- arnar snerust um kjördæma- byltinguna og þeim heppnað ist það alltof vel. Það er þó nokkur vísbending um við- horf almennings, að þrátt fyrir þennan mikla áróður, jók sá flokkur, er var and- vígur breytingunni, fylgi sitt verulega, einn allra flokk- anna. ÞETTA er forystumönn- um þríflokkanna áreiðanlega vel ljóst. Þeir eru ekki að fara eftir neinum ákveðnum þjóðarvilja, ef þeir knýja kjördæmabreytinguna nú fram með ofriki og aflsmun- um. Ef þeir trúa raunveru- lega, að þeir hafi þjóðarvilj- ann með sér, eiga þeir að sýna það í verki, með því að fallast á, að betur verði geng- ið eftir því, hver hann raun- verulega er. Það á að vera auðvelt, án þess að því fylgi nein óeðlileg tímatöf. Illu heilli höguðu þríflokk- arnir þannig áróðri sínum í kosningabaráttunni, að þús- undir kjósenda létu blekkj- ast og kusu því fremur um önnur mál en kjördæma- breytinguna. Forystumenn þríflokkanna hafa enn tæki- færi til að bæta fyrir það brot, sem þeir gerðu sig seka um með hinum ranga áröðri sínum. Það tækifæri eiga þeir að grípa á aukaþinginu. Þá myndi hlutur þeirra batna aö verðleikum. iiiiimiiiiiimmiiiiiiimmiiiiimiiiiiiiiiiMiMiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiimmimiiiiiMimmiiiiiiitiiiiimiiiiiiiiiiiiiMiimiiimiiMiiiiii# VIÐSJA: Rússar vinna stórvirki í Asíu segir Harriman eftir f er'ðalag sitt BANDARÍKJAMENN hafa ekki einu sinni heyrt minnzt á lýðveldið okkar, sagði Dodok- hudoev forsætisráðherra Tad- zhikistans við mig í kvörtunar- tón. Tadzhik- ríki er eitt bezta dæmið um það hvernig einræð- isstjórn Sovétríkjanna hefur tekizt með hjálp áætlananna að koma á skjótri, féla.gslegri og efnahagslegri þróun í afskekktu landi. ÞAÐ HLÝTUR að vekja hrifningu fólksins í hinum van- þróuðu löndum Suður-Asíu, hve vel hér hefur tek^zt til. Fólkið í þessum hluta heims bíður óþolinmótt eftir betri kjörum og aðbúð. Mönnum verður því skiljanlegt hve lýðræðið á skæðan keppinaut í þessum hluta heims. Höfuðborg Tadzþikistans var fyrir rúmum þrjátíu árum síð- an lítill bær með nokkur þús- und íbúa, sem bjuggu í leirkof- um, skorti vatn, sjúkrahús og skóla og stóðu á lágkúrulegu menningarstigi. Eftir að léns- veldinu hafði verið steypt og hinir gömlu siðir og venjur lögð niður, hóf sovétstjórnin stórfellda fjárfestingu í land- inu, byggði skóla, sjúkrahús, endurbætti iðnað og landbúnað og flutti inn stórvirk tæki. STALINABAD er nú blómleg borg með 200 þús. íbúa, og Do- dokhudoev forsætisráðherra fullyrðir að lýðveldið, sem hef- ur tvær miljónir íbúa, standi vel efnahagslega, og sé jafnvel aflögufært. Efnahagsferði Tadzhihistans grundvallast aðallega á bómull og bómullarvörum. Áður fyrr var aðeins ræktuð snögghærð bómull, sem aðeins gaf af sér nokkur þúsund tonn á ári, en nú hafa menn hafið framleiðslu á síðhærðri bómull og fram- leiðslan er nú sambærileg við Kaliforníu o.g gefur ríkinu tvö hundruð millj. dollara tekjur á ári. NÝIR STÍFLUGARÐAR og áveituskurðir hafa verið byggð ir, og stór flæmi af áður órækt- anlegu landi hafa verið brotin til ræktunar. Vísindamenn landsins tala hlýlega um banda- ríska verkfræðinga, sem hjálp- uðu þeim við byggingu áveitu- kerfisins. VEFNAÐARVERKSMIÐJA í Stalinabad framleiðir nú 40— 50 þús. metra af dúk á ári, og það er reiknað með að búið verði að tvöfalda framleiðsluna árið 1964. Hve það gefur mikið í aðra hönd, sést glögglega af því, að framleiðslukostnaður hvers metra er um 20 cent en söluverð 70 cent. Þeir menn, sem hafa byggt upp efnahag landsins, hafa átt við marga erfiðleika að etja. Vísindamenn sögðu að stór hluti áveitulandsins hefði verið ónothæfur vegna þess hve jarð- vegur var mengaður salti. Þeim tókst þó að finna aðferð til að skola saltið burt. Forstjóri vefn- aðarverksmiðjunnar sagði mér, að hann hefði þurft að mennta 3 þús. verkamenn til þess að þeir gætu stjórnað spunavélum og vefstólum verksmiðjunnar. FYRIR ÞRJÁTÍU ÁRUM var tæplega hægt að finna nokkurn læk.ni í landinu, en nú er einn læknir fyrir hverja 870 íbúa og hjúkrunarkona fyrir hverja 242. r----------------------------•>. W. AVERELL HARRIMAN, fyrrv. sendiherra i Moksvu og London, og ríkisstjóri í New York ríki, skrifar þessa grein, sem hér birtist í lauslegri þýð- ingu. Segir hann þar frá hinni geysilegu tækni, iðnaðarlegu, efnahagslegu og stjórnarfars- legu framþróun, sem orðið hef ur undir sovétstjórn í ríkjum Mið-Asíu. Hann tekur alþýðu- lýðveldið Tadzhikistan, sem daemi um þetta, og telur að þessi árangur Rússa hafi mjög mikið áróðursgildi fyrir þá gagnvart hinum vanþróuðu löndum og getl það orðið vest rænum lýðræðisríkjum óþæg- ur Ijár í þúfu í baráttunni um hylli þessara þjóða. v-----------—________________i Eg heimsótti annað barnasjúkra húsið í Stalinabad. Það var mjög fullkomið og hreinlegt og læknar og hjúkrunarkonur voru án efa mjög dugleg og vel slarfi sínu vaxin. Malaría og trakóma (augn- sjúkdómur) hafa herjað i Mið- Asíu í aldaraðir og hafa verið landlægar plágur í Tadzhikist- an. Ef malarían hefði ekki verið til staðar, þá hefði fjöldi fólks dáið úr hungri vegna mann- fjölgunar, sagði embættismaður einn við mig. En nú er búið að hefta malaríuna og trakómuna og auk þess sjá fólkinu fyrir lífs viðurværi. Stalinabad er ný- tízku borg með breiðum stræt- um og trjágörðum, og það sem skilur hana frá flestum öðrum borgum Mið-Asíu er það, hve hreinleg hún er o.g þokkaleg. Ryk og sót þýðir það sama hér í þessu hálfhitabeltisloftslagi og sjúkdómar, þess vegna verð- um við að halda borginni heinni, sagði embættismaður einn við mig. NÁMSÞORSTINN er mikill í Sovétríkjunum, og hann hefur breytt Tarzhikistan úr landi, þar sem allir voru ólæsir og óskrifandi, í lrmd þar 'sem að- eins elzta kynslóðin er ekki læs og skrifandi. 1929 voru þrír skól ar í landinu, en nú eru 2600 skólar starfræktir þar. Þessi ákafa leit eftir þekk- ingu hefur borið ríkulegan á- vöxt. Þegar ég var sendiherra í Rússlandi, minntist ég oft á það við Stalin marskálk, hvern- ig hann hygðist leysa „minni- um Mií-Asíu hlutavandamálið “ í Sovétríkj- = unum. Mér skildist á honum, = að hann teldi heppilegast að | skapa hinum einstöku ríkjum | skilyrði til að þroska hina isér- | stöku þjóðmennin,gu sína og | arfleifð, þó svo að þeim yrðu \ settar allþröngar skorður til að i skera sig um of úr. Þetta hefur = rætz,t að miklu leyti. Þegar ég . = heimsótti ballettinn . í Stalin- = abad, furðaði mig á hinni sér- f stöku og þjóðlegu túlkun þeirra . f á ballettum og þjóðdönskum, f svo og hinni sérstæðu tónlist f þeirra. Við háskólana er haldið f uppi víðtækum sögurannsókn- | um um uppruna og sögu þjóð- = arinnar. Margt fleira mætti tína | til um hina sérstöku þjóðmenn- f ingu, sem ríkir í landinu. ÞAÐ TÓK EKKI nema þrjár I kynslóðir fyrir hindúana að I gleypa molbúana, sagði ei-nn 1 þarlendur embættismaður við \ mig. Þannig mun fara fyrir öll- f um landvinningamönnum í | Asíu. Bros hans gaf til kynna, | að hann vonaðist til að sagan = myndi endurtaka sig með þá | frá Moskvu, svo að þjóðin fengi f meiri sjálfstjórn. f Gott dæmi um þessa þróun er f vísindaakademían. Þegar aka- f demían var sett á laggirnar fyr- f ir 10 árum, voru flestir með- f limirnir Rússar. Nú eru 70% | meðlimanna Tadzhikar. FORSETI AKADEMÍUNN- | AR, sem er prófessor í eðlis- f fræði, sagði mér stoltur frá því, f að hann væri ættaður frá litlu f þorpi í norðurhluta landsins og f hefði misst báða foreldra sína | sem drengstauli. Þegar hann = hafði lokið barnaskólanámi, var = hann svo heppinn að komast til = Thaskent, þar sem hann lauk f undirbúningsnámi sinu. Síðan f komst hann til Leningrad og I lauk námi sínu í eðlisfræði. f Nú telur akademían þrettán | stofnanir, sem rannsaka hag- | nýt verkefni fyrir landið. Jarð- = fræðistofnun heldur uppi víð- = tækum rannsóknum og leit I eftir málmum. Landbúnaðarsér- 1 fræðingar bæta búfjárstofninn, \ auka jarðabætur og áveitukerfi. f Með flu.gvélum er sáð fræi yfir f kleltana til að auka kvikfjár- f beit, en 90% landsins er klett- I ótt. = TADZHIKISTANS er aðeins | dæmi um þróunina í löndum \ Mið-Asíu. Þau stórvirki,. sem f sovétstjórnin hefur gert í hin- f um vanþróuðu löndum Asíu. f Rússar hafa unnið sér hylli f þessara þjóða með umbótum i sínum. Hin vestrænu lýðræðis- i ríki verða að gera sér ljóst, að i ,,styrjaldir“ framtíðarinnar = verða háðar á vettvangi efna- f hagsmála, og þá fyrst og fremst f efnahagsaðstoðar við vanþróuð f lönd. Lýðræðisríkin ættu að f auka til muna efnahagsaðstoð i sína við þjóðir Asíu og tryggja i þeim framfarir og velmegun — = og síðast en ekki sizt frelsi. 7iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.iiih;iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii> iimiiiiiiiiiiimiiniiiimiMiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiHiiiiniiiiiiiiiiimiiniimniiniiuii Ný bók um íslenzk íbúðarhús Út er komin hjá. Almenna bóka- félaginu bók mánaðarins fyrir júlí. Nefnist hún íslenzk íbú'ðar- hús og hafa þeir Hörður Bjarna- son, húsameistari ríkisins og Atli Már annazt útgáfuna að öllu leyti. íslenzk íbúðarhús er 168 bls. að stærð, en af því eru 110 mynda- síður. Eru þar sýnd 31 íbúðar- hús, frá smáíbúðarhúsum upp í fjölbýlishús, utan- og innanhúss- myndir ásamt teikningu af grunn- fleti húsanna og skýringum Enn fremur eru í bókinni tækni legar greinar og fylgja flestum þeirra nákvæmar skýringarmynd- ir. Þessir eru höfunda geinanna: Hörður Bjarnason, sem skrifar all langan formála, er hann nefnir Bókin og byggmgarnar. Fjallar sú g.rein m. a. allýtarlega um hlut- verk arkitektsins við byggingu hússins. Helgi Hallgrímsson, hús- gagnaarkitekt, skrifar um eldhús- innréttingar, Sveinn Torfi Sveins- son, verkfræðingur, um einangr- un og upphitun húsa, Jón Á. Bjarnason, verkfræðingur, um lýs ingu íbúða og dr. Jón Sigurðsson, borgarlæknir, um hollustuhætti í- búðanna. Loks er þýdd grein, er nefnist Litir og litaval. Ljósmyndirnar hafa þeir Pélur Thomsen og Andrés Kolbeinsson tekið, setningu leturs hefur ísa- íoldarprentsmiðja annazt, en að öðru leyti hefur Lithoprent unnið bókina, og er fráigiangur allur hinn smekklegasti. Bókin hefur verið send til um- boðsmanna Almenna bókafélags- ins um land allt, en félagsmenn í Reykjavík vitji hennar í af- greiðslu félagsins að Tjarnargötu 16.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.