Tíminn - 11.08.1959, Blaðsíða 1
Þríflokkarnir árétta enn hræðslu sína
við vilja þjóðarinnar í kjördæmamálinu
Eíns c-g skvr-t var frá í blaðinu á sunnudaginn, var líkan eða mynd Andersons. skip-
herra. brennd á stórum bálkesti á Fjósakletti í Vestmannaeyjum á föstudagskvöld. —
Brenna þessi Var einn liðurinn í skemmtan fólks á þjóðhátíð eyjaskeggja og var mvndin
tekin skömmu eftir að kveikt hafði verið í
kestinum. Þrjár vísur voru fluttar meðan
myndin brann. Ein þeirra er svona: Er þú
Anderson á bálinu
ryjnir ísiandsmið ekki er kveðjan þvegin.
um megin. Eyjaskeg'gjar eru vanir að fást við sjóræningja frá fyrri tíð og auðhevrt
að þeir vita hvert þeir lenda. Sjáið grein um þjóðhátíðina í blaðinu á morgun.
Þér mun hollt að venjast við varmann hin-
er
Þingmenn þeirra í efri deild feUa
till. um þjóðaratkvæðagreiðsluna
Kjördæmamálið var til annarrar umræðu í efri deild í
gær. Stjórnarskrárnefnd deildarinnar klofnaði um málið.
Þriflokkarnir leggja til að frumvarpið verði samþykkt ó-
breytt, en fulltrúar Framsóknarmanna í nefndinni, þeir
Karl Kristjánsson og Hermann Jónasson, lögðu til að þaS
yrði afgreitt með rökstuddri dagskrá. Þríflokkarnir felMu
þá tillögu og sönnuðu þar með enn einu sinni ótta sinn viS
vilja þjóðarinnar í kjördæmamálinu. Hin rökstudda dagskrá
Framsóknármanna hljóðar svo:
Þar sem afstaða kjósenda til
annarra niála en þeirrar breyt-
ingar á kjördæmaskipuninni,
sem frumvarp þetta fjaliur um,
réð miklu um Viðliorf þeirra í
síðustu alþingiskósningum og
úrslit kosninganna veita þar af
leiðandi ófullnæg'jandi upplýs-
ingar um vilja manna í því efni,
beinir deildin því til ríkisstjórn-
arinnar að láta fram fara eigi
síðar en 30. þ.m. í öllum kjör-
dæmum, hverju fyrir sig, al-
menna, Ieynilega atkvæða-
greiðslu kjósenda, er svari með
jái eða neii, hvort þeir vilja, að
niður skuli lögð ÖU núverandi
27 kjördæmi, utan Reykjavíkur,
og stofnuð' í þeirra stað 7 stór
hlutfallskosningakjördæmi. Jafn-
framt leggur deildin til. að auka
þingi því, er nú situr, verði
frestað og afgreiðslu frumvarps-
ins, þar til úrslit atkvæðagreiðsl
unnar eru kunn, og tekur því
fyrir að sinni samkvæmt framan-
sögðu næsta mál á dagskrá.
ÞjóðaratkvæSagreiðsla
Aðalmálsgrein 79. gr. stjórnar-
skrár lýðveldisins íslands frá 17.
júní 1944 hljóðar svo orðrétt:
„Tillögur, hvort sem eru til
breytinga eða viðauka á stjórnar-
skrá þessari, má bera upp bæði
á reglulegu Alþingi og auka Al-
þingi. Nái tillagan samþykki
(Framhald á 2. síðu).
/---------------------—-x
Mikil síld
í Húnaflóa
Nú eru heldur daufir dagar á
Siglufirði, síldarleysi og athafna
leysi. Eitt skip landaði þó á
Siglufirði í gær, — en sú síld
hafði að sjálfsögðu veiðzt á aust
ursvæðinu. Heldur glaðnaði þó
yfir í fyrrakvöld, en þá fréttist
af síld á Húnaflóa. Þar eru
nokkrir bátar að reknetaveiðum
og sáu þeir mikla síld vaða í
botni Reykjarfjarðaráls. Álitið
er að síld hafi verið stöðugt í
flóanum síðan gangan var þar
á dögunum, en átuskilyrði eru
orðin mjög léleg og eftir að
vita hvort síldin næst í nætur.
Afli reknetabáta í Húnaflóa er
nú mjög góður, allt að þremur
tunnum í net.
------------------------/
| Viö sama heygaröshomið
1 Framsóknarmenn hafa haldið því fram, að kjördæmabyltingar-
| frumvarp þríflokkanna stuðlaði að því, meðal margs annars er
Vatnsveður olii skaða á
varnargarði—gróf veginn
Holtsá tók 80 metra úr varnargarði og
gróf veginn
Fleiri ár i vexti
Á sunnudaginn kom ’yfir
gífuiiegt. vatnsveður undir
Evjafjöllum. Stóð það í sólar-
hring, og kom mikill vöxtur
í ár. Var vatnsflóð í gær að
grafa sundur veginn skammt
frá Moldnúpi, en síðdegis var
fióðið í rénun.
Holtsá br&ut skarð í varnargarð,
svonefndan Iioltsárgarð, sem er
■tfl hlífðar veginum skammt frá
Moldnúpi. Ruddi flóðið um 80
metrum úr garðinum. Flæddi áin
þar yfi,. veginn, og var á góðri
leið að grafa hann í sundur.
Nokkru austí'r brautzt Marbælis
á út úr farvegi sínum og rann
suður yfi,- Lambafellsengjar og
austur með fram þjóðveginum.
Olli flóðið í henni spjöllum á
engjum og getur grafizt í veginn
og spillt honum. Kaldaklifsá hefur
með framburði fyllt upp farveg
inn nokkru sunnan við brúna og
rennur vestur yfir engjar, sem
kallaðar eru Hörðuskáli og Bákka
kot eftir býlum, sem þar voru
einu sinni.
Mikið tjón á heyjum
Fregnritari blaðsins í Austur-
(Framhald á 11. síðu)
Jörð skalf
á Selfossi
Rétt fyrir kl. 11 á laugardags-
kvöld urðu þrír jarðskjálftakipp-
ir á Selfossi með skömmu milli-
"bili. Var sá, fyrsti vægastur en
hinn þriðji langsnarpastur. Mátti
sjá húsvegg'i nötra og allt lauslegt
á veggjum fóv úr stað.
Laust eftir miðnætti urðu svo
aðrir tveir kippir, en þeir voru
mjög vægir. Einhverjar hræring
ar múnu einnig hafa orðið á
sunitUdagsmorgun.
Þessara jarðhræring'a varð
ckki vart annars staðar en á
Selfossi, enda nuinu upptök kipp
anna hafa verið' þar í námuuda.
miður væri, að draga valdið úr höndum fólksins úti í héruðun-
um og færa það til flokksstjórna í Reykjavík. Talsmenn þrí-
flokkanna liafa andmælt þessu en veriff tregt um rök. En hvað
gerist?
í kosningalagafrumvarpi því, sem nú liggur fyrir Alþingi og
samið er af hæstaréttardómurunum, segir svo:
„I kjördæniuin öðruni en Reykjavík, skipa yfirkjörstjórn þrír
sýslumenn eða bæjarfógetar, sem elztir eru að embættisaldri og
búsettir eru I kjördæmunum. Oddviti yfirkjörstjórnar skal sá
vera, sein elztur er að árum".
Almennt mun hafa verið við því búizt, að þetta ákvæði færi
óbreytt gegnum þingið. En á síðustu stundu lauma þrír þing-
menn, Einar Olgeirsson, Steindór Steindórsson og Jóhann Haf-
stein fram svohljóðandi breytingatill.:
„í hverju kjördæmi er yfirkjörstjórn. Skal hún skipuð 5 mönn-
um og jafnmörgum til vara, og eru þeir kosnir af sameinuðu
Alþingi á sama hátt og landkjörstjórn. Kýs hún sér sjálf for-
mann“.
Tillaga liæstaréttardómaranna má lieita cðlileg, eins og komið
er. En þær þykja ekki viðhlítandi. Það er ekki fyrr búið að af-
nema þær reglur, sem gilt hafa uin kosningu yfirkjörstjórnar-
manna úti um land, en flokkarnir fara að seilast þarna til
áhrifa og íhlutunar. Þeir skulu ráða vali kjörstjórnarmanna. Og
þeir skulu ekki einu sinni þurfa að vera búsettir í kjördæmun-
uin. Flokkarnir skulu hafa óbundnar hendur til þess að senda
Reykvíkinga út um land til þess að geg'na þar yfirkjörstjórnar-
É störfum.
\ „Hér skal ek at vinna“.
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIttlllllllllllllllllilUllltllllimi
........................lliliiilimtmiiiiimiii,ii,iiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiniiiiltMii!H,iii1,|il,,i"»,ii,ii,,»,,»,,<,><«l»Ö"',n"m,,,,»"""