Tíminn - 25.08.1959, Side 6

Tíminn - 25.08.1959, Side 6
6 T í !W 1 N N, þriðjudaginn 25. ágúst 1959. Útgofandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóiri og ábm.: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18305 og 18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn). Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 32S Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13 948 „Fyrsta skref í réttlætisátt“ ÞÓTT ekki sé gerandi stór munur á málflutningi Vísis og Mbl., má Visir eiga það, að hann er stundum öeroröari og hreinskilnari. Þetta átti sér t.d. stað síðastl.- fimmtudag, en þá flutti Vísir forystugrein, er bar fyrir- sögnina: „Fyrsta skref í rétt 3ætisátt“. Upphaf greinarinn ar var á þessa leið: „Framsóknarmenn ættu aö gera sér grein fyrir einu. Méð kjördæmabreytingunni hefur verið stigið mikilvægt skref í þá átt, að jafnrétti veröi milli landsmanna inn- byrðis. Baráttan fyrir jafn- rétti er engan veginn á enda með því — enn er eftir að berjast fyrir jafnrétti á öðr- um sviöum, til dæmis verzl- unar, skatta og þar íram eftir götunum. Næsta skref verður að gera alla landsmenn jafn-réttháa að þessu leyti. Það er krafa manna um allt land, þar sem skaupfélagsokrið hefur komið í stað kúgunar dönsku sel- stöðukaupmanna og er beitt til þéss, að fita fáeina Fram sóknarforingja og skyldulið þeirra, en ekki til að rétta hag einstakra bænda, þótt slíkt sé vitanlega látið í veðri vaka.“ á þann hátt. Næst á svo að leggja samvinnuhreyfinguna að velli að mestu eöa öllu. Stórgróðamenn eiga að taka við þeirri starfsemi, sem kaupfélögin hafa haft með höndum, a.m.k. þeim, sem ábatamest kunna að reynast. Um hitt skal ekki hirt, þótt annað leggist niður. Gömul og ný reynsla sann ar, hvaða afleiðingar þetta myndi hafa fyrir strjálbýlið. Þess eru ekki fá dæmi, að gróðamenn, sem um skeið hafa verið athafnasamir á einstökum stöðum, hafa allt í einu kippt að sér hendi, lagt reksturinn niður og flutt gróðan burtu. Fólkið hef ur staðið atvinnulaust eftir, svipt atvinnutækjum sínum, og hefur þurft að leggja hart að sér til að byggja atvinnu- lífið upp á ný. Oft hafa kaup félögin reynzt bezt í þessu uppbyggingarstarfi. En þau skulu nú víkja fyrir gróða- mönnunum. Þessu til viðbótar á svo að draga stórlega úr opinberum framlögum til uppbyggingar í strjálbýlinu, svo að gróða- menn hafi betri aögang að fjármagninu til braskstarf- semi sinnar. MENN geta bezt dæmt af þessum ummælum, hver hefur verið tilgangur auð- stéttarinnar, sem ræður Sjálf stæðisflokknum og gefur út blöð hans, með kjördæma- byltingunni. Hún á aðeins aö vera „fyrsta skrefið í rétt- lætisátt“, eins og réttlætið horfir við frá sjónarhæð auð stéttarinnar. Næsta skrefið er að veikja kaupfélögin og draga þá starfsemi og það fjármagn, sem þau hafa með höndum, í hendur auðstétt- arinnar. Þetta á að gera eins og annað í nafni „réttlætis og jafnréttis“. Þriðja skrefið er „réttlæti i skattamálum“, þ.e. að leggja ekki neina sér staka skatta á auðstéttina, eins og stóreignaskattinn eða stighækkandi skatta, heldur að láta álögurnar leggjast jafnt á alla, án tillits til af- komu og efnahags. Fjórða skrefiö er að draga stórlega úr framkvæmdum í strjál- býlinu og losa fjármagn handa auðstéttinni á þann hátt. Á þessu var þegar byrj að nokkuð við afgreiðslu fjár laganna síðastl. vor, en því verður fyígt betur eftir að haustkosningum loknum, ef auðstéttin fær aðstöðu til. Þetta eru „réttlætisskref- in“, sem eiga að fylgja eftir fyrsta skrefinu, kjördæma- byltingunni, samkvæmt skipu legri áætlun aúðstéttarinn- ar, er gefur út Mbl. og Vísi. FÓLKIÐ í strjálbýlinu á nú að geta séð Ijósara en áður, hvert er takmarkið með kjördæmabyltingunni. Það er byrjað á því að leggja nið- ur héraðakjördæmin og veikja aðstöðu þess og áhrif HÉR sér fólkið í strjál- býlinu glöggt, hvert á að verða annað, þriðja og fjórða skrefið, sem fylgir í kjölfar kjördæmabyltingarinnar, ef Sjálfstæðisflokkurinn fær að ráða. Gegn slíkum fyrirætl- unum er ekki nema eitt ráð. Fólkið í strjálbýlinu verður að fylkja sér um þann flokk, sem bezt hefur unnið fyrir hag þess og er öflugasti and stæðingur framangreindra á- ætlana auðstéttarinnar, — Framsóknarflokkinn. Með þeim eina hætti getur þaö bezt unnið upp það réttinda- tap, sem leiðir af kjördæma- byltingunni, og hindrað fyrir ætlanir auðstéttarinnar. Þetta gildir jafnframt það fólk í þéttbýlinu, sem ekki vill láta leggja átthaga sína í eyði og skilur til hlítar nauþsyn þess að jafnvægi haldist í byggð landsins. Það á að nota fjármagnið í þágu landsmanna allra, en ekki til þess að skapa fáum auð- jöfrum hættulega mikil völd í þjóðfélaginu. í NÆSTU kosningum mun alveg sérstaklega kosið um það, hvort auðjöfrunum, sem verðbólgan hefur skapað, á að haldast uppi að stíga annað, þriðja og fjórða skref- ið, sem samkv. áætlun þeirra eiga að fylgja kjördæma- byltingunni eftir. — Það verður kosið um þaö, hvort haldið skuli áfram uppbygg- ingu landsbyggðarinnar til hagsbóta fyrir landsmenn alla eöa hvort tiltölulega fá- mennri auðstétt á að auðgast á því, að byggðin dragist sam an og samtök fólksins verði lögð að velli. ERLENT YFIRLIT: 111■11111111■11111■1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II111111111111111111111111111111111111111111111II1 a >11111^ Eisenhower ræöir við Adenauer Þær munu einkum snúast um viíJhorfi'S til de Gaulles | Á MORGUN leggur Eisen- | hower upp í ferð sína til I Evrópu til viðræðna við þá Ad I enauer, Macmillan og de Gaulle. 1 Fyrst er för hans heitið til | Bonn, síðan til London og að | lokum íil Parísar. Þessara fyr- H irhuguðu viðræðna Eisenhow- i ers við forystumenn aðalríkj- | anna í Vestur-Evrópu er beðið | með talsverðri eftirvæntingu, | enda getur það farið verulega 1 eftir þeim, hvernig viðtölum i þeirra Eisenhowers og Krust- i joffs reiðir af. | Tilgangur Eisenhowers með | þessari ferð er að kynrta sér | viðhorf umræddra ríkisleiðloga | áður en hann ræðir við Krust | joff. í viðtölum við Krustjoff | mun Eiscnhower ekki tala í i nafni vesturveldanna ailra, held i ur eingöngu í nafni Bandaríkj i anna. Eigi að síður er það nauð | synlegt fyrir hann, að hann viti I svo vel um afstöðu umræddra = bandalagsríkja, að hann geri í ekki og segi ekki neitt í við- 1 ræðunum við Krustjoff, er Í gæti veikt einingu þeirra. Ella | gætu viðræður þeirra Krust- | joffs gert meira gagn en ógagn. 1 EISENHOWER hefur kosið i að tala fyrst við Adenauer, en Í upphaflega ætlaði hann þó ekki | að fara til Bonn. Síðar breytti | hann ferðaáætluninni og ákvað I að fara til Bonn áður en hann i færi til London og Parísar. Á i stæðan til þess, að Eisenhower i ætlaði í fyrslu ekki til Bonn, Í mun hafa verið sú, að hann | taldi ekki ástæðu til þess að Í ræða sérstaklega við Adenauer, | þar scm viðhorf þeirra er talið 1 nokkuð svipað. Orsök þess, að | hann breytti svo til, er yfirleitt | talin tvíþætt. í fyrsta lagi vildi i hann sýna Adenaeuer sömu i virðingu og Macmilian og de | Gaulle. í öðru lagi telur hann I sig þurfa liðveizlu Adenauers I til þess að hafa heppileg áhrif | á de Gaulle. i ÝMIS blöð hafa lálið í ljós i það álit, að einhver skoðana- Í munur sé milli þeirra Eisen- 1 howers og Adenauers. Þeir, | sem kunnugastir eru, telja þetta i hins vegar ekki rélt. Viðhorf Í þeirra Eisenhowers og Aden- Í auers til viðræðnanna við i Rússa, séu mjög svipuð. Báðir | álít: að engar tilslakanir komi i til greina, nema Rússar láti eitt I hvað í móti. Báðir líti þannig i á, að litlu eða engu verði þok i að áleiðis í Þýzkalandsmálun- i um að sinni, en frekar sé von i um einhvert samkomulag á sviði afvopnunarmálanna. Eis- enhower eigi sem allra mest að beina viðtölum við Krustjoff inn á þá braut. í samstarfi vesturveidanna að undanförnu, hefur það oftast komið í Ijós, að stefna stjórna Bandarikjanna og Vestur-Þýzka lands færi saman, stjórn Bret lands væri hins vegar fúsuvt til samninga við Sovétríkin, en stjórn Frakklands trcgust. Líklegt er, að viðtöl Eisenhow ers og Adenauers leiði samstöðu Bandarikjanna og Vestur-Þýzka lands enn betur í ljós. KUNNUGIR blaðamenn á- líta samkvæmt framansögðu, að viðræður þeirra Adenauers og Eisenhowers muni því ekki nema að litlu leyti snúast um fyrirhugaðar viðræður þeirra Eisenhowers og Krustjoffs, heldur fyrst og fremst um fyrirhugðar viðræður de Gaulles og Eisenhowers. De Gaulle hefur sýnt þess mörg merki að undanförnu, að hann teldi hlut Frakka gerðan of lítinn í samstarfi vesturveld- anna og Frakkar yrðu því að taka upp óháða stefnu í vax andi mæli. Hann er sagður und ir niðri óánægður yfir fyrirhug uðum fundum Eisenhmvers og Krustjoffs, því að þeir bendi ■til þess, að Bandaríkin og Sovét ríkin ætli sér stærri hlut en þeim ber. Margir ' telja þa'ð draum de Gulles að koma fót- um undir nýtt stórveldi í Vest ur-Evrópu undir forystu Frakka og aétli hann hinu nýja mark aðsbandalagi ríkjanna ,sex að mynda grundvöll þess. Þett.a vesturevrópíska stórveldi verði hvorki í tcngslum við Bandarík in eða Sovétríkin, heldur star.di sem mest eitt sér. Það er talið ýta undir ó- ánægju de Gaulles og styðja hann í umræddum fyrirætluu- um, að hann telur hin vestur veldin ekki veita Frökkum næg' an stuðning í Alsírmálinu. SÁ maður, sem nú er öðrum fremur talinn geta haft heppi- le.g áhrif á de Gauile, er Ad- enauer. Adenauer hefur jafn an verið mikill fylgismaður fransk-þýzkrar samvinnu, en hins vegar er talið fjarri því, að honum geðjist að umrædd- um stórveldisdraúmi de Gaulles sem yrði að byggjast á fransk- þýzkri samvinnu, ef hann ætti að verða að veruleika. Talið er, að Adenauer vilji umfram allt halda áfram samstarfinu innan Atlantshafsbandalagsins og treysta grundvöll þess. Hann álítur það samstarf eitt nógu öflugt til að hamla gegn komm únismanum. Eisenhower ar sagður sömu skoðunar. STAÐA Vestur-Þjóðverja er nú sú, að þeir virðast vera að fá meiri og meiri lykilaðstöðu í samstarfi vestrænna þjóða. Þeír geta nú bersýnilega ráðið miklu um það, hvort samstarf á grund velli Atlaníshafsbandalagsins eflist eða ekki, eða hvort horf ið verður að þvi að framkvæma hugmyndir de Gaulles. Öll þró- un mála bendir til þess, að Vestur-Þjóðverjar séu að verða annað mesta áhrifaríkið meðal vestrænna þjóða, næst eftir Bandaríkjunum. Þess vegna skiptir miklu, að Eisenhower fái fulltingi Adenauers til aö hafa heppileg áhrif á de Gaulle. Ef til vill hefur Adenauer nú einingu vestrænna þjóða meira í hendi sinni en nokkur maður annar. Þess vegna geta viðræð ur hans og Eisenhowers orðið hinar þýðingamestu og það fari mjög eftir þeim, hvernig þehn Eisenhower og de Gaulle tefcst að koma sér saman. ÞÞ iiiiimiiiiiiiiiimiiiiiimiiiimiiiimiimiiiiiiimmiiiiiiiiiiimimiiiiiiimiimiiuiiiiiiiii' .................iiiimmmi Frá byggðasafnimi á Akrane Unnið er að því að koma upp j ntyndasafni í byggðasafninu. Er leitað til fólks um vinsamlega fyr- irgreiðslu. Æskilegt er að safniðj varðveiti m. a. mýndir af opinber- um embættismönnum, er skipa rúm í byggðasögunni þ. e. byggð- arinnar, sem safnið í Görðum nær| yfir. Er í ráði að koma þessum myndum fyrir á veg.g í safninu í réttri röð, þ. e. eftir embættisár- um. Að, þessu sinni er leitað til fólfcs urn aðstoð við útvegun mynda af læknum, alþingismönnum og sýslumönnum og þá einkum til af- fcomenda þessara manna og ætt- ingja. Þeir embættismenn, sem um er að ræða, eru: Læknar: Þorgrímur Þórðarson, læknir á Akranesi 1885—’86, síðar héraðs- læknir í Keflavík. Ólafur Guðmundsson læknir á Akranesi 1886—90, síðar héraðs- læknir á Stórólfshvoli. Björn Ólafsson, læknir á Akra- nesi 1890—’94, síðar augnlæknir í Reykjavík. Alþingismenn Borgarfjarðarsýslu: Hannes Stephensen, prófastur á Ytra Hólmi. Sveinbjörn Hallgrímsson prestur og ritstjóri Þjóðólfs. Kolbeinn Árnason, bóndi á Ifofs- stöðum í Hálsa^veit. Arnljótur Ólafsson prestur á Bægisá og Sauðanesi. Hallgrímur Jónsson, hreppstjóri í Guðrúnarkoti á Akranesi. Guðmundur Ólafsson, bóndi á Fitjum. Grimur Thomsen, skáld. Björn Bjarnarson, bóndi í Graf- arholti. Þórhallur Bjarnarson, síðar bisk up. Kristján Jónsson, dómsstjóri og ráðherra. Hjörtur Snorrason, skólastjóri og þóndi í Arnarholti. Sýslumenn: Jón Thoroddsen, skáld á Leirá. Eggert Theodór Jónasson í Hjarð arholti, síðar amtmaður. Guðmundur Pálsson í Arnar- holti. Sigurður Þórðarson í Arnarholti. Sigurður Eggerz, ráðherra. Kristján Linnet, síðar bæjarfó- geti í Vestmannaeyjum. Guðmundur Björnsson í Borgar- nesi. Stærð myndanna er ákveðin 12x17 cm. (Þ. e. myndin sjálf, karton ekki meðialinn). Það eru vinsamleg tilmæli, að afkomendur framangreindra manna láti byggðasafninu í té mynd af þeim s. s. komi mynd til ljósmyndara til eftirtöku og biðji hann að senda myndina (eftirmynd ina) í pó'Stkröfu. Sé hins vegar sá vilji fyrir hendi að gefa byggða- safninu myndirnar, sem eðlilegra (Framhald á 8. siðu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.