Tíminn - 25.08.1959, Page 9

Tíminn - 25.08.1959, Page 9
X í M1N N, þriðjudagiun 25. ágúst 1959. 9 MARY ROBERTS RINEHARL .^JJuaröhk 4 iúhrunarLona 60. dró ýsur, meðan Paula sagSi sögu sína, og seinna, þegar tl ö gr egl/u f oringin n ók m;ér heim svaf ég alla leiðina, eft Jr því sem hann segir. En brottförin var ekki gerð strax pg hann haífði lokið samræð’um viö Paulu. Þess í stað reis hann á fætur, gekk til dyra og benti einhverjum, sem frammi var, aö koma inn. í næstu andrá hallaöíst Charlie yfir rúm Paulu. — Ástin mín, sagði liann loðmæltur. — Veslings stúlk an mín! — Það sló mig einhver ntð ur, Charlie. — Eg veit það. En hefði ég átt von á ást arsenu hjá þeim, fyrirvara laust, varð ég svo sannarlega fyrir vonbrigðum. Að vísu höfðu þau öruggt tak hvort á ööru, og leit ekki út fyrir að því yrði sleppt í bráðina. En æskan nú á dögum felur tilfinningar sínar og allt sem hún sagði var þetta: — Þú ert órakaður. — Hvað gerðirðu annars? Náðirðu í sprengiefni til þess að brjót ast út með? Hann leit til lögreglufor- ingjans, sem gaf þeim nánar gætur. — Félagarnir þarna niðri á stöðinni sögðust glaðir bo'rga mig út eftir viðkynning una. — Mig undrar það ekkert. Eg býst við að þú hafir reynt að vera fyndinn. — Reynt að vera! Eg var þ/aði. Sptvrðu lögTegluforingj ann, hann veit það. Segðu lienni söguna sem ég sagði ykkur um sjóliðann og kúna, lögregluforingi. Allt var þetta yfirskin, og á næsta andartaki glotti hann við tönn og veifaði til dyranna. — Við erum oröin sex mán uðum á eftir tímanum með faðmlög og kossa, sagði hann. — Og ég er gamaldags í hugsun og framkvæmd meö þannig lagað. Eg er á móti á horfendum. — Þegar ég kom til baka tíu mínútum seinna, lá hann á hnjá við rúmið með hand legginn utan um Paulu. Og liún hafði grátið. En ég var hætt að vita nokk uð í þennan heim. Einhvern veginn kom lögregiuforing- inn mér út í bíl, og eins og ég sagði áðan, svaf ég alla leiðina. Eg minist þess aö hafa farið út úr bilnum og klöngrazt upp í setustofuna. Sömuieiðis hef ég óljósa end urminningu um ao Dick hafi hamast í búri sínu sem óður yæri.. Svo fleygði ég mér á legubekkinn og heimurinn hvarf með öllu. Þegar hann þrengdi sér inn i vitund mína á ný, yar það í formi diska og hnífapara- glamurs. Eg leit upp og sá að frú Merwin hafði iagt á borð fyr’r tvo. ■ ! — Hér er norgunverður lianda þér, gæzka, sagði hún, — og eitthvað handa herra- manninum. Ósköp er að sjá þig, bætti hún svo við, stóð álengdar og virti mig fyrir sér. —Þetta hlýtur að hafa tekið á þig. Þá fór ég að hlæja. Eg hló viðstöðulaust þar til lögreglu foringinn hélt kaffiboHa upp að nefi mínu og skipaði mér ákveðinn að drekka úr hon- um og hætta þessum fíflalát- um. — Hætta, sagði ég móður- sýkislega. — Eg er hætt! Alveg búinn að vera! Hann lét sem hann tæki ekki eftir orðum mínum, og meðan ég sötraði kaffið gekk hann yfir herbergið og ræddi við kanaríafuglinn Dick. — Sæll, Dick, sagði hann. Húsmóðir þín er illa upplögð sem stendur, og við fáum hvorugur neinn blíðskap frá henni fyrsta kastið. Og mig furðar það svo sem ekkert. En þegar hún er í góðu skapi er hún indælis manneskja, og mér þykir vænt um hana. Já, jþað er satt, mér þykir mjög jvænt um hana. j — Hættu þessu kjaftæði, sagið ég hvasst. — Og skýrðu heldur atburði næturinnar fyrir mér. — Það er löng saga. Eg verð að fá eitthvað að éta fyrst. — Oh, ef byssan sem þú lézt mig fá væri ekki í blóma- pottinum .... — í blómapottinum! GuÖ minn almáttugur! Svo hóf hann söguna, og fékk sér bita af morgunverö- inum inn á milíi: — Til að byrja með verð ég að þakka þér verðmæta .aðstoð við upp ljóstrun þessara tveggja — kannske þriggja — glæpa. — Þótt þú hafir ekki haft hug- mynd um, þá geröir þú mikiö þarfaþing með því að kyrr- setja strákagréyin úti á þak- inu í gær. Og ég galt þér með því að láta nærri drepa þig. En mér til afsökunar vil ég geta þess, aö við stóðum vörð utan við húsið, en gættum aöeins dyranna. Við vissum, að sá sem við vorum að leita að, hafði lykla að hliðardyr- unum, og eftir allri venjulegri sanngirni hefði hann átt aö nota þá. Við athuguöum hins vegar ekkert, að sá hinn sami hefði séð svo um, að gluggi væri opinn á húsinu til inngöngu. Þegar við fundum opna glugg ann var það of seint. Nú skulum við rekja þetta stig af stigi. Milli fjögur og fimm í gær vissir þú jafnmik- iö og ég. Þú vissir um trygg- inguna, og að Herbert hafði ekki fullkomnað áætlunina um tryggingarsvikin, svo sem ákveðið hafði veriö. Þú hafðir lesið játningu Júliu, og viss ir að hún skellti allri skuld á Elliot. Þú vissir einnig, aö henni hafði verið styttur ald ur af ásettu ráði. J Það gat Charlie Elliot ekki hafa gert. Og eins og þú sagð ir — eða sagði ég það? — minntist játningin ekkert á nokkur mikilvæg atriði, Hvað um dagblaöið? Hvers vegna sleppti hún þvi alveg? Þaö olli mér heilabrotum. Hvaða manngerð var Júlía Mitchell? Strangheiðarleg, var það ekki? Alla vikuna lá hún í rúminu og iðraðist gerða sinna. Að síðustu ákvaö hún að gera skýrslu og segja hvað hún sá um nóttina. Þegar María lét mig hafa blaðið í gærkveldi fékk ég vissu fyrir því, sem mig hafði grunað, að sú gamla hefði ekki sagt allt af létta. Hvers vegna minnt- ist hún aldrei á blaðið? Sleppum nú mánudeginum um sinn, og snúum okkur aft- ur aö gærdeginum. Júlíu var byrlað eitur, það varð ég viss um, þegar ég fann töfluna úti á grasflötinni, og efnafræð- ingar staðfesta það. Þeir fundu strykinleifar í maga líkisins. Ef morðinginn hefði getað setið á sér að drepa þá gömlu, hefði Charlie Elliot mjög sennilega farið sína leið í rafmagnsstólinn. Það er hryllilegt tilhugsunar, en svona er það samt. Eins dauði er annars brauð. Hún var veik. Hún gekk með hjartasjúkdöm. Og ég býst ekki við að hún hefði lifað nógu lengi til þess aö koma að gagni við yfirheyrsl urnar. Hér kemur hin sérstaka sál fræði varðandi vel gefna morð jngja tilhjálpar. Enginn morð ingi kann að hætta í tæka tíð, þegar hann á annað borö er byrjaður. Það er nokkurn veg inn öruggt, að hann leitar aft ur á ódæðisstað. Og okkar moröingi var illa haldinn, lá vakandi um nætur og velti því fyrir sér, hvort hann hefði máð spor sín nógu rækilega. Guö má vita, hvort helvíti er til eður ei. Svo mikið er víst, að morðingi þarf ekki að fara þangað. Hann hefur tekið sína helvítisdvöl út í þessu lífi. En sem sagt, Júlía minntist ekki á blaðið í játn- ingu sinni. Lítum nánar á tryggingar- svikin fyrirhuguöu. Eg býst við, að Herbert hafi átt uppá- stunguna. Hann átti að fá fimm þúsund út, og önnur fimm, þegar hann heföi „drekkt“ sér. AV.W/.V.V.W.VAV.V.V. Hnappagöt gerð tiillliiíiiiMriimillliifi og tölur festar á. Framnesvegi 20A .■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VA Ljósmyeidarar Til sölu er lítið notuð Crown Graphic íryndavél með Schneid er linsu (4.7—32.) — Vélinni fylgja bak fyrir 4x5 tommu plötufilmur ásamt filmusleð- um, einmg bak fvrir 6x6 roll film, flasslampi og stór Graphic taska. — Einnið er til sölu stækkari (Solar), stækkar allt að 4x5 tommu plötu filmur. Rétur áskilinn að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar i síma 34428, milli kl. 9 og 16 í kvöld og næstu kvöld. .■.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.w /Vskriftarsími TÍMANS er 1-23-23 ^VWV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'ANW.VWMMI úr\GEFJUNARGARNI 100 LITIR Lögregluþjónsstaða Lögregluþjónsstaða í Hafnarfirði er laus til WK-< sóknar. Laun samkvæmt launalögum Umsóknir um starfið sendist undirrituðum fyrir 15. septi ember n. k. Eyðublöð undir umsóknir fást hjá bæjarfógetUK og lögreglustjórum. :; Bæjarfógetinn í Hafnarfirði íbúð óskast Óska eftir 2—3 herbergja íbúð. — Upplýsing£» í síma 36137 í dag. V.V.V.V.V.V.V.VAV.VAW.V.VA’.V.W.VA'AVWUVM VW.’A%V.V.VA-AW.V.VAWAVAVAWAVAWAÍW»

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.