Tíminn - 25.08.1959, Qupperneq 10
10
T í !VI IN N, þriðjudaginu 25. ágúst 19591,
Islenzk knattspyrna hefur stórvaxið
í áliti erlendis eftir landsleikina
— Islenzku landsliísmennirnir komu heim á
sunnudaginn eítir vel heppna^a keppnisför
Aidrei tyrr hefur íslenzkt
landsliS í knattspyrnu gert
betri för til útlanda en það,
sem keppti í Danmörku og
Noregi í síðustu viku, og kom
heim á sunnudaginn. íslenzk
knattspyrna og knattspyrnu-
menn hafa stórvaxið í áliti er-
lendis eftir þessa leiki, og
knattspyrnumennirnir eru nú
fyllilega taldir samkeppnis-
færir við landslið á Norður-
löndum, en hingað til hefur!
verið nokkur misbrestur á því
að knattspyrnumenn okkar
hafi hlotið viðurkenningu á
Norðurlöndum.
LeikurÍnn í Kaupmannahöfn,
sem e'r einn skemmtilegasti leik-
t;r og sá mest spennandi, sem
undirritaður hefur nokkurn tíma
séð, á mestan þátt i þessu. ís-
lenzka liðið kom þar mjög á ó-
vart, og þótt dönsku knattspyrnu-
mennirnir sýndu betri knatt-
spyrnu, munaði þó litlu að ís-
lenzka liðinu tækist að sigra —
og jafnteflið 1—1 var raunveru-
legur sigur, þrátt fyrir allt.
Það var einnig merkilegt, hvað
áhorfendur að leiknum voru marg-
ir, eða 26.400 með Friðrik Dana-
konung í broddi fylkingar, þegar
tekið er tillit til þess, að heims-
meistarinn ' þungavigt, Svíinn
Ingemar Johansson, keppti í Kaup
mannahöfn gegn bróður sínum á
sama tíma og landsieikurinn fór
fram. Þetta er mesti áhorfenda-
fjöldi, sem horfl hefur á lands-
leik, þar sem ísland er annars
vegar.
Alit dómararma
Hollenzki dómarinn, sem dæmdi
leikinn í Kaupmlannahöfn, sagði
icftir hann. — „Mér kom geta
íslenzka liðsins mjög á óvarl. Ég
hafði ekki búizt við miklu af því,
cg svo var það nærri hirð að
Helgi markvöröur faðmar Hreiðar
Ársælsson, eftir að Hreiðar hafði
bjargað á marklínu í leiknum i
Kaupmannahöfn.
.sigra jafn rótgróna 'knattspyrnu-
þjóð sem Danmörku. Danir sýndu
meiri leikni og höfðu betra út-
liald, en leikur þeirra var ekki
érangursríkur."
Annar dómari — einnig alþjóða-
dómari — Carl Fr Jörgensen
tagði eftir leikinn: „Því skal ég
lofa, að ég skal endurskoða álit
mitt á íslenzkri knattspyrnu.
Geta leikmanna var svo miklu
meiri en ég hafði búizt við ...
Og þannig var talað lofsamlega
um íslenzka liðið af rnörgum, þótt
einn og einn danskur blaðamaður
(einkum Julle, sem skrifaði um
táspörk íslenzku leikmannanna
eftir leikinn hér heima) vildi
meina annað og líkti þessum leik
•vlð' tanle'kinn mivin «—0. við
Svía í Kaupmannahöfn fyrr í sum
ar. Julle sagði t.d. „það sem skc-ði
hér í kvöld var eins og á móti
Svíum. Ekki vitund betra....
Frábærir leikmenn
ísienzka liðið i heiíd sýndi góð-
r.n leik — en tveir leikmannanna,
Helgi Daníelsson í marki og Hörð-
ur Felixson sem miðvörður, hafa
aldrei leikið betur. Helgi varði
hina ótrúlegustu knetti á auðveld-
asta hátt — og Hörður átti létt
með alla háa knetti, sem komu
fyrir markið, auk þess, sem hann
hafði mjög góð tök á miðjunni.
Þáttur Sveins Teitsson.ar var einn-
ig mjög góður og ótrúlegt livað
iiann vann, sem bezt sést á því,
rð hann skoraði mark okkar í
leiknum — og aðeins broti úr
sekúndu munaði, að hann kæm-
ist i veg fyrir Enoksen og bjarg-
aði markinu, sem Danir fengu
jafnað úr. En sem sagt: Allir leik-
mennirnir stóðu sig vel, og það
! kom því mjög á óvart og vakti
talsverða óánægju að gerð skyldi
ein breyting á liðinu, sem leika
átti gegn Noregi.
Óheppnir í Noregi
Leikurinn í Noregi jafnaðist á
tngan hátt við fyrri leikinn. ís-
lenzka liðið var óheppið og kom
þar einkum tvennt til. að það’
s'graði ekki í leiknum. í fyrsta
lagi tapaði Ríkarður Jónsson hlut
kestinu fyrir Þorbirni Sveins-
syni, sem varð til þess, að ís-
Jenzka liðið varð að hafa mjög
sterka sól í augun fyrri hálfleik-
mn — en sólarinnar gætti hins
vegar ekki í síðari hálfleiknum.
Og í öðru lagi urðu leikmenn fyrir
meiðslum. Fýrir leikinn var samið
i:m það, að skipta mætti um
einn leikmann í fyrri hálflejik
frammi á vellinum, en markmann
allan tímann. Og strax í byrjun
leiks meiddist Þórólfur Beck,
bezti sóknarleikmaðurinn frá
leiknum í Kaupmannahöfn.
Sveinn Jónsson kom í hans stað
og lék miðherja — en það er
staða, sem hann hefur ekki leikið
áður. Hörður Felixson meiddist
einnig lítilsháttar í fyrri hálfleik
Vel heppmsð Færeyjaför handknatt-
leiksflokka úr Knattspyrnufél. Val
Tveir flokkar úr handknattleiks
deild Vals, 12 stúlkur og 15 piltar,
undir fararstjórn Jóns Kristjáns-
sonar og Vals Benediktssonar,
fóru með Dr Alexandrinc til Fær-
eyja 7. ágúst s.l. í boði Tveroyri
Boltfelag, sem er elzta íþróttafélag
Færeyja, stofnað 1883
í 15 leikjum flokkanna, sigraði
Valur í 14, e neinn varð jafntefli
(kvennakeppni).
Fyrst var keppt í Þórshöfn, en
þangað komu flokkarnir snemma
á sunnudagsmorguninn 9. ágúst.
Keppnin fór fram um kl. 3 um
daginn.
Frá Þórshöfn var haldið daginn
eftir til Vestmanna á Norður-
Straumey og dvalið þar í hálfan-
annan sólarhring og keppt þar. Það
an var svo aftur haldið til Þórs-
hafnar og þar keppt þá aftur. En
13. ágúst var Þórshöfn kvödd og
lagt af stað til Þvereyrar, þar sem
gestgjafarnir voru. Til Þvereyr-
ar er um 7 stunda sjóferð. Þver-
eyri, sem er á iSuðurey, er næst-
stærsti bær Færeyja. Daginn eftir
komuna þangað, fóru fyrstu leik-
irnir fram. Lauk þeirn með sigri
Vals, fyrir karlaklokkinn með 14:4
en kevnnaflokkinn 5:1. Daginn eft-
ir var aftur keppt þarna, og enn
isijlfuðu1 Valf menn. Að.sókn að
1 leikjunum var mjög góð, en talið
var að nær 600 .manna hafi horft
á þá. Veður var óhagstætt, mikil
rigning og nokkur stormur. Völl-
urinn, sem var sá sami og B-lands
liðið okkar tapaði á í sumar, var
mjög erfiður. Hinn 17. ágúst var
enn leikið, og voru það síðustu
leikir Vals í þessari för, var það
hraðkeppni, og .sendi Valur fram
2 karlaflokka, annan þeirra II. fl„
og enn voru allir flokkarnir sigur
sælir,
Hinn 18. ágúst var svo Þvereyri
kvödd, og haldið til Vogs, en þang
að er klukkustundar akstur í bíl,
í veg fyrir Dr. Alexandrine og
stigið þar á skipsfjöl og haldið
heim til íslands, og gekk förin
að ó.skum.
Mjög róma þátttakendur allar
móttökur í Færeyjum. Gestrisni
Færeyinga á fáan sinn Kka og
áhugi þeirra fyri,. auknum sam-
skiptum færeyskra og íslenzkra
íþróttasamtaka er mjög mikill. —
í Færeyjum er mikill og vakndi
íþróttaáhugi. Þar er handnattleik-
urinn mjög í heiðri hafður t.d. er
þrjú félög í Þórshöfn sem ein-
göngu leggja stund á handknatt-
leik, og við eitt þeirra félaga varð
jafnteflisleikurinn, sem áður get-
ur.
— en lék þó allan leikinn og
stóð sig með mestu prýði.
En svo skeði það versta. í
tyrjun síðari hálfleiks meiddist
Sveinn Teitsson talsvert. Hann
var ekki með I tíu mínútur, en
kom þá inn á og lék á kantinum
það sem eftir var leiks. En vegna
meiðslanna gat Sveinn sama og
ekkert tekið þátt í leiknum. Það
er því mjög athyglisvert, að með
níu heilum leikmönnum og tveim-
ur meiddum, bar af annar mikið,
skyldi íslenzka liðið eiga meira í
Mynd þessa áttl að símsenda frá Osló s. 1. föstudag, en vegna slæmra skilyrða reyndist það ekki hægt. Dagbladet í Osló sendi Tímanum þá myndlna
flugleiðis en hún sýnir er Helgl Daníelsson er að grípa knöttlnn eftir hættulegt, norskt upphlaup. Á miðri myndinni er hægri útherji norska liðs
ins Björn Borgen, en Hörður Felixson er til hægrl.
leiknum síðari hálfleikinn, og það
sýnir, að það voru aðeins ytri að'-
stæður, sem orsökuðu það, að
liðið tapaði leiknum, og þó ekki
nema með eins marks mun.
í þessum leik stóð Helgi sig
aftur frábærlega í marki, og í
vörninni voru Árni Njálsson og
Hörður mjög traustir. f framlín-
unni var Ríkarður beztur, og fyrir
liði Norðmnna, Þorbjörn Sveins-
son, sagði eftir leikinn, að Rík
erður hefði verið bezti maðurinn
á vellinum. En það var þó einkum
einn leikmaður, Garðar Árnason,
sem kom á óvart í þessum leik,
og að öðrum ólöstuðum var hann
að margra áliti bezti maður is-
lenzka liðsins.
En þessir tveir leikir tilheyra
r.ú sögunni, cn eitt er víst, að ís-
lenzkir knattspyrnumenn hafa
með þeim sannað eftirminnilega,
að þeir star.da jafnlætis knatt-
spyrnumönnum á Norðurlöndum
og eftirleiðis verður reiknað með
þeim sem verðugum mótherjum.
—hsím.
Fara utan
til keppni
I dag fara fjórir íslenzkir
frjálsíþróttamenn utan til
keppni í Svíþjóð. Þeir eru Börð
ur Haraldsson, Hilmar Þor-
björnsson úr Ármanni, Val-
björn Þorláksson, ÍR og Þórö
ur B. Sigurðsson, KR. Farar-
stjóri verður Ingi Þorsteinsson.
í Svíþjóð munu þeir hitta KR
ingana Svavar Markússon og
Kristleif Guðbjörnsson og'
keppa með þeim á mörgum mót
um í ýmsum borguin i Sví
þjóð. Fyrsta keppni flokksins
verður í Málmey föstudaginn
28. ágúst. Síðan verður keppt í
Stokkhólmi, Gautaborg og við
ar, en heim aflur kemur flokk
urinn 11. septeinber.