Tíminn - 13.09.1959, Blaðsíða 1
ISnstefnuna á Akureyri,
bls. 5
13. árgangur.
Ungfrú Reykjavík, bls. 3.
Frá Stéttarsambandsfundi,
bænda, bls. 6.
Skrifað og skrafað, bls. 7.
íþróttir, bls. 10.
Reykjavík, smumdaginn 13. september 1959.
196. blað.
Óttinn við eigin afglöp í varnarmáhinum rekur
íhaidið til lítilmannlegra árása á undirmenn
r
Abyrgð æðstu stjórn-
ar þessara mála velt
yfir á starfsmenn
varnarmáiadeildar, -
án þess að bent sé á
að þeir hafi í nokkru
brotið gegn fyrirmæl
um yfirboðara sinna.
Þessi mynd var teKin í gær af
hinum bandarísku gestum á fundi
með framkvæmdastjórum inn-
flutnings- og iðnaðardeildar SÍS.
Á myndinni eru talið frá vinstri:
Helgi Pétursson, framkvæmdastj.
innfiutningsdeildar, Dallas Snow-
den, Bjarni Magnússon, Robertus
Shoemaker og Harry Frederiksen
framkvæmdastj. iðnaðardeildar.
est af útfluttri ull lands-
manna selt til Bandaríkjanna
IVIjólk í pappa-
húsumí vlkunrsi
Uppsetningu véla og reynslupökkun lokitS
í þessari viku eiga Revkvík-
ingar og nágrannar þeirra
von á nokkurri nýlundu. Ein-
hvern daginn er þeir koma í
mjólkurbúð að morgunlagi,
má búast við, að mjólkin verði
til sölu í snotrum pappaöskj-
um eins og pýramídar í lag-
inu.
Þetta mál er búið að vera all-
iengi á döfinni, og fvrir nokkru
fókk Mjólkursamsalan vélar til
þess að búa um mjólkina í slík-
um pappahylkjum. Nú er lokið
uppsetningu þeirra og öllum und-
irbúningi að þessari breytingu.
Vélarnar hafa verið reyndar og
eru nú tilbúnar. Mun Mjólkursam
salan hafa í hyggju að setja mjólk
ina á markað í þessum umbúðum
í vikunni, hvort sem þær leysa
flöskurnar alveg af hólmi strax
eða ekki.
Ýmsar þjóðir hafa tekið þetta
upp fyrir nokkru, og eru Svíar
þar einna fremstir í flokki. Ýmsir
liafa fyrir alllöngu bent á, að
þetta væri heppilegt hér. T.d. rit-
aði Kári Guðmundsson, mjólkur-
eftirlitsmaður ríkisins ýtarlega
grein í Tímann 17. okt. 1953 um
þetta og lýsti þar hinum sænsku
mjólkurpökkunarvélum, sem kall-
ast Tetra Pak, en það eru einmitt
vélar af þeirri gerð, sem hér liafa
verið settar upp, og hann hefur
síðar ritað nokkrum sinnum um
málið.
Rætt við tvo bandaríska kaupsýslu
menn5 sem flytja inn íslenzka ull og
fisk í stórum stíl
Hér á íandi eru nú staddir
tveir bandarískir kaupsýslu-
menn, sem báðir hafa átt mik-
il viðskipti við íslendinga und
anfarið. Þeir hafa dvalizt hér
að nokkru leyti á vegum Sam
bands íslenzkra samvinnufé-
laga, en þeir eru báðir við-
skiptavinir Sambandsins. í
fylgd með þeim er Bjarni
iVíagnússon. forstjóri Ice-
land Products, sölufyrirtækis
SÍS í Bandaríkjunum.
(Framhaid á 2. síðu).
Fjórar umferðir hafa verið
tefldar á áskorendamótinu í Bled,
en staðan er nokkuð óráðin vegna
þess að mikið hefur hlaðist upp
af biðskákum. Fjórir keppenda:
Petrosjan, Benkö, Tal og Fischer
hafa hlotið 2 vinninga hver Petro
sjan á tvær biðskákir hinir þrír
eina hver. Smislov hefur IV2 vinn
ing og eina biðskák. Keres 1 vinn-
ing og tvær biðskákir. Gligoric V2
vinning og eina biðskák. Friðrik
hefur engan vinning og eina bið-
skák. — Biðskákir voru tefldar í
gær en úrslit voru ekki kunn er
blaðið fór í prentun. — Þetta póst
kort hefur verið gefið út í til-
efni mótsins.
Morgunblaðið gerði sig í
gær bert að aumingjalegustu
viðbrögðum, sem lengi bafa
sézt í íslenzkum stjórnmálum,
og lýsa betur en flest annað
uppgjöf og skefjalausum ótta
við eigin afglöp. Blaðið gríp-
ur til þess ráðs að skjóta
Sjálfstæðisflokknum og
þeirri ríkisstjórn, sem hann
ber ábyrgð á, undan áb.vrgð
á yfirstjórn varnarmálanna
með því að kenna starfs-
mönnum varnarmáladeildar
utanríkisráðuneytisins með
dylgjum og beinum ásökun-
um um það, sem aflaga hefur
farið í stjórn varnarmálanna
undanfarið.
Þó fylgja ekki, og ekki heldur
vitað um neinar ásakanir, röksiudd
ar eða órökstuddar, um það að
þessir undirmenn hafi í nökkru
vikið frá fyrirmælum ráðherra eða
æðstu stjórnar þessara mála hér
á landi. Alþýðublaðið hegguv í
sama knérum en þó ekki eins dólgs
lega og Morgunblaðið.
Hiff helzta, sem Mbl. færir fram
til áfellis er þaff, aff lögreglustjór
inn á Keflavíkurvelli sé „tengda-
(Fiamhald á 2. síffu).
Þögn - dauðaþögn
Þögn, þögn og ekkert nema
þögn, er eina svar Morgunblaðs-
ins við upplýsingum þriggja blaða
um undarleg útsvarsfríðindi nokk
urra helztu forkólfa Sjálfstæðis-
flokksins. Mbi. hefur aðeins
minnzt einu sinni á málið í smá-
klausu, þar sem sagt er, að full-
trúi kommúnista í niðurjöfnunar
nefndinni hafi samþykkt þessi
fríðindi með fulltrúum Sjálfstæðis
flokksins. Og menn spyrja, livað
bætir það úr skák?
En hinn óbreylti útsvarsgreið-
andi í Reykjavík, sem greiðir fullt
útsvar og vel það, útsvar sem ætíð
er miklu hærra en tekjuskattur-
inn, hann bíður eftir svari við
spurningunni:
Getur það verið, að ég þurfi að
greiða 7200 kr. fyrir Ólaf Thors;
ÍFramhald á 2 sífful