Tíminn - 15.09.1959, Blaðsíða 5
l’ÍMINN, þriðjudaginu 15. september 1959.
5
Varðmenn þekktu ekki
búning íslenzkra fiugþjónustumanna
Þriðjudaginn 8. þ. m. bárust emb
œttinu í hendur boðsendar skýrslur
írá utanríkisráðuneytinu, ásamt fyr
jrmælum um dómsrannsókn út af
því, að tveir af starfsmönnum flug
inálastjórnar og tveir amerískir
í’lugmenn á þýzkri vél, er þá var
íiór stödd hefðu laust eftir mið-
nætti laugardagsins 6. þ. m. verið
ögrað af vopnuðum herlögreglu
imönnum við hið svonefnda B-36
flugskýli á flugvellinum, er þeir
voru að fara til hinnar þýzku flug
vélar, er .staðsett var hjá skýli
þessu.
Annar starfsmaður flugmála-
stjórnar var klæddur einkennisbún
ingi flugþjónustumanna í einkenn
isfrakka yztum fata og rneð ein
kennishusfu, sem í er gyllt merki
flugþjónustunnar. Var maður
þessi fyrir fjórmenningunum og ók
á mótorhjóli (vespu), er bar gulan
iit, en hinir þrír fylgdu á eftir í
þifreið (weapon carrier).
Er að flugskýlinu kom ætlaði ís
iendingurinn, er í einkennisbúning
u m var að hafa samband við her
vorð, er þar átti að vera staddur í
varðskýli, en þar var þá enginn.
vEtluðu þeir þá að halda för sinni
áfram, en þá var hrópað til þeirra
bö nema staðar, hvað þe'.r gerðu.
Segja hinir íslenzku starfsmenn
flugþjónustunnar, að þeim hafi ver
ið skipað af hinum vopnaða verði,
n"i istíga af ökutækjum sínum að
raða sér upp fyrir framan bifreið
ina (weapon carrier), en síðan var
þeim gefin fyrirskipun um að
leggjast á grúfu á jörðina og i’étta
út hendur og sundurglenna fingur.
ÖIIu þessu hlýddu mennirnir og
biðu í stellingum þessum, þar til
liðþjálfi kom frá herlögreglunni og
ínnti þá eftir skilríkjum, en menn
írnir kváðust aldrei hafa haft tæki
færi til þess að greina vörðunum
frá hverjir þeir væru og hvert
væri erindi þeirra.
Eftir að mennirnir höfðu gert
gert grein fyrir sér og erindi sínu
við liðþjálfann fóru þeir erinda
sinna.
Strax ogembættinu bárust skýrsl
ur þessar hófst dómsrannsókn, en
þá kom í Ijós, að hinir amerísku
flugmenn, er höfðu verið með
starfsmönnum flugmálastjórnar,
yoru farnir af landi hrotf. Her
iögreglumennirnir hafa greint svo
frá fyrir dómi, að þeim hafi ver
íð skipað á varðstöð við áðurnefnt
flugskýli kl. rúmlega ellefu s. 1.
laugardagskvöld. Voru þeir vopn
aðirbyssum (carabine cal. 30 M-l).
Þær voru óhlaðnar, en þeir með
íaus skot með sér. Herlögreglu-
mönnurn hafði verið greint svo
frá a£ yfirmönnum sínum, að
bannsvæði væri við flugskýlið og
liöfðu þeir undanfarna mánuði af
og til verið þar á verði.
Um miiðnæUi s.l. laugardags-
hvöld sáu verðirnir, hvar ók til
í'Iugskýlisins mótorhjól og bifreið
(weapgu carrier) fylgdi á eftir o
stefndu ökutækin í átt að er-
lendri ílugvél, er var við skýlið.
Hervörðurinn kveðst ekki hafa
vérið í skýli, en .er ökutækin óku
fram hjá honum hrópaði ha'nn
ts(;an? (halt) einum þrisvar sinn-
um og námu ökutækin þá staðar.
. Maður sá, er stýrði mótorhjólinu
vár kiæddur einkennisbúningi, en
ekki bar .vörðurinn kennsl á bún
fng þennan. Vörðurinn gáf mönn
unum skipan um að rétta upp
bendur og etíga úr ökutækjunum
og raða sér í ljósi bifreiðarinnar
tweapon carrier). Mæiti hann:
,.Get out in front. of thc. yehichle
íieadlights with your hands in
the air.”
Vörðurinn kvaðst hafa verið með
byssuna mundaða (port arms) og
óhlaðna. Kvaðst hann hafa sagt
þeim að hér væri bannsvæði og
spurðist fyrir um skilríki þeirra til
þess að fara inn á slíkt svæði
(restricted area badge), en þeir
höfðu engin.
í þessu bar að hinn herlögreglu
manninn. Gaf þá herlögreglumaður
sá, seni fyrr hafði stanzað fjór
menningana þeim skipan um að
leggjast' á grúfu á jörðina (ramp-
Skýrsla Björns Ini>varssonar, lögreRÍustióra á
Keflavíkurflugvelli um vopnamálit)
inn) hverju þeir hlýddu. Orðrétt á
ensku: „Lie flat on the ramp and
your arms and legs extended to
their fullest extend”. i
Lágu mennirnir þannig í fimm
-— fimmtán mínútur eða á meðau
að annar herlögreglumannanna
hringdi til aðalstöðvar herlögreglu
unnar að tilkynna atburð þennan,
en á meðan gætti hinn herlögreglu
maðurinn fjórmenninganna með
mundaða byssu. Liðþjálfi kom síð
an frá herlögreglunni á vettvang
og átti tal við hinn einkennis-
klædda íslending og er hann gerði
grein fyrir sér og fylgdarmönnum
sínum var þeim íeyít að fara leið
ar sinnar.
Herlögreglumennirnir hafa bor
ið, að þeir þekki eigi einkennis-
búning íslenzkra flugþjónustu-
manna og að þeim hafi aldrei verið
greint frá búningi þessum af ýfir
boðurum sínum.
Varðandi bannsvæði herstjórnar
innar á flugvellinum skal tekið
fram, að þau eru auglýst með skilt
um á staðnum og hefur svo verið
frá því að her kom hér. Fjögur
skilti eru við vegi að nefndu flug
skýli og segir þar á íslenzku og
ensku:
Aðvörun
Þetta er samningssvæði Norður
Atlantshafsbandalagsins NATO. —
Þess er gætt af vopnuðum vörðitm
— Óviðkontandi stranglega bannað
ur aðgangur.
Warning
This is a NATO installation sec
ured by armed guards of limits to
unauthorized persons.
Þessi heimild herstjórnar bygg
ist á 5. grein viðbætis um réttar
stöðu iiðs Bandaríkjanna og eignir
þeirra, fylgiskjal með varnarsamn-
ingnuni lög nr. 110/1951 sbr. og
lög nr. 60 frá 29. apríl 1943 um
refsingu fyrir óheimilaða för inn á
bannsvæði herstjórnar og óheimila
dvöl þar.
Það skal tekið frarn, að þar
sem alvik þetta gerðist við flug
skýlið er nokkuð langt frá aug
lýsingu um bannsvæði.
Ástæðan fyrir því, að lögreglu-
rannsókn hófst ekki í málinu fyrr
en síðastl. þriðjudag er sú, að
málið var ekki kært til lögreglunn
ar eða utanríkisráðuneytisins fyrr.
Starfsmenn flugmálastjórnarinnar
er hér áttu hlut að máli munu
þó þegar hafa greint yfirmönnum
sínum og þeir síðan flugmálastjóra
frá málavöxtum sunnudaginn 6. þ.
m.
Flugmálastjóri mun hafa rætt
við yfirmann flugliðsins um at-
vik þetta, en embættið og utanrík
isráðuneytið fengu ekkert um mál
ið að vita fyrr en utanríkisráðherra
las um það í blöðum á þriðjudags
morgun. Varnarmálanefnd var þá
að hefja fund á Keflavíkurflug-
velli. Lagði ráðherra fyrir íslenzku
nefndarmennina að hverfa af
fundi og afla þegar í stað skýrslu
flugmálastjórnar um atvikið og af
henda málið embættinu til ra-nn
sóknar og hófst rannsókn þá þegar
í málinu, sem fyrr greinir.
Mál þetta hefur nú verið sent
utanríkisráðuneytinu til þóknan-
legrar fyrirsagnar.
Keflavíkurflugvelli 12. sept. 1959.
Björn Ingvarsson.
W.V.V.V.W.V,
I ■ H
TÍMANN vantar ungling til blaðburSar um
Kársnes.
Dagblaðið TÍMINN.
V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.VAV.V.W.V.V.V.VWWAW.W
Iðnskólinn í Reykjavík
Námskeið í uppsetningu og meðferð olíukyndiní
artækja hefst mánudaginn 5. október n. k. —
kl. 8 síðdegis.
Innritun fer fram frá 21. september til 25. septenv
ber þ. m. í skrifstofu skólans á venjulegum skri:-
stofutíma.
Námskeiðsgjöld kr. 200.00 greiðist við innritux
Skólastjóri.
!■■■■■■■!
!■■■■■■■■■■■
Fimmtugur:
Jón Hjörtur Finnbjarnarson, prentari
Fimmtugur er í dag Jón Hjörtur
Finnbjarnarson, vélsetjari í Eddu-
prentsmiðju, til heimilis að Bald-
ursgötu 3. Hann byrjar afmælis-
daginn með því að taka sér far
með áætlunarbíl vestur til ísa-
fjarðardjúps og þaðan með bát til
ísafjarðar, — fæðingarbæjar síns.
Jóni Hirti kynntist ég fyrst í
hinni svonefndu Hólaför, er Prent
arafélagið gekkst fyrir árið 1940,
af tilefni 500 ára afmælis prentlist
arinnar í heiminum. Jón bættist í
hópinn, ásamt öðrum Vestfjarðar
prenturum, á norðurleið. Jókst þá
til rnuna söngkraftur í bílnum sem
ég var í og hélzt óslitinn til Hóla
staðar. Að þeirri för lokinni' hóf-
ust bréfaskipti með okkur Jóni,
sem enduðu með því, að mér tókst
að draga hann frá fæðingarbæ sín
um til prentstarfa I Edduprent-
smiðju frá því í apríl 1946. Þar
höfum við unnið saman í full 13
ár og oftast á sömu setjaravél. Ég
get mætavel skilið, að fsfirðingum
hafi verið eftirsjá að Jóni, því við
brotthvarf hans þaðan misstu söng
kórarnir þar sinn helzta sólósöngv
ara. Jafnhliða prentstörfum hér
syðra hefur Jón nokkuð verið við-
riðinn söng og söngkóra, og á
margá aðdáendur á því sviði.
Jón Hjörtur kvæntist 31. marz
1934 Jensínu Sveinsdóttur bónda
að Gillastöðum í Heykhólasveit.
Börn þeirra, fjórir synir og þrjár
dæíur, eru nú öll uppkomin, en
einn son misstu þau ungan.
| Mér hefur líkað prýðilega við
flesta félaga mína, sem ég' he'fi'
unnið með á lífsleiðinni, en að
öðrum ólöstuöum hefur mér fall
ið einna bezt við Jón Hjört. Hann
hefur verið með afbrigðum sam-
vinnuþýður maður, geðgóður og
prúðmenni hið mesta.
j Á þessum merku tímamótum í
ævi hans flyt ég honum beztu árn
aðaróskir frá vinnufélögum hans
í prentsmiðjunni og vænti þess, að
, við munum eiga eftir að st-árfa enn
' saman um nokkurt skeið.
Persónulega óska ég honum til
hamingju með að hafa náð þessum
áfánga á lífsleiðinni.
Konu hans og börnum flyt ég
einnig' beztu hamingjuóskir af til
efni dagsins.
Jón Þórðarson.
Öxlar
með hjólum
fyrir aftanívagn og kerrur,
bæSi vörubíla- og fólksbfla-
hjól á öxlum. Einnig beizl
fyrir heygrind og kassa. Til
sölu hjá Kristjáni Júlíus-
syni, Vesturgötu 22, Reykja
vík, e. u. Sími 22724.
Póstkröfusendi.
Orðsending
frá Húsmæðraskófanum á Löngumýri í Skagafirði„
Kennsla hefst í Húsmæðraskólanum á Löngumýri
í Skagafirði 1. okt. n. k. Hægt er að bæta við
nokkrum nemendum vegna forfalla. Meðal náms-
og dvalarkostnaður á nemanda varð s. 1. vetur
kr. 5.400 00. Æskilegt er að fyrrverandi nemencl-
ur og aðrir, sem ætía að stunda þar verknám í vet-
ur, mæti 15. okt. vegna hagnýtra og skemmtilegra
námskeiða, sem verða í skólanum fyrir áramó'.
Bóklegt og verklegt nám fyrir unglingsstúikv.r
hefst að Löngumýri 15. okt.
Umsóknum fylgi afrit af fullnaðarprófsvottorðum.
Skólastjóri.
.’.V.W.V.V.W.W.V.V.W.W.W.V.V.V.V.’.V;
Framboöslistar
við Alþingiskosningarnar í Reykjaneskjördænú
sem fram eiga að fara 25. og 26. október næst
komandi, skulu afhentir oddvita yfirkjörstjórnai,
Guðjóni Steingrímssyni héraðsdómslögmanni,
Hafnarfirði, eigi síðar en miðvikudaginn 23.
september 1959. Aðsetur yfirkiörstjórnar veiöi
í Hafnarfirði.
í yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis:
Guðjón Steingrímsson,
Árni Halidórsson,
Ásgeir Einarsson, '\
Björn Ingvarsson,
Þórarinn Ólafsson.
WWAVAVW.V.’.WAWAVA’.WAV.VWW.WAWJ
Framboðsiistar
við alþingiskosningar í Suðurlandskjördæmi, sera
hefjast eiga 25. okt. 1959. skuln afhentir í skrif-
stofu bæjarfógetans í Vestmannaeyjum eða í skrif
stofu sýslumannsins í Árnessýsiu í síðasta lagí
miðvikudaginn 23. sept. 1959.
Yfirkjörstjórnin í Suðurlandskiördæmi,
14. sept. 1959.
Torfi Jóhannsson, 1
Páll Hallgrímsson,
Guðmundur Daníelsson,
Gunnar Benediktsson, r
ísak Eiríksson.
WW.W.’A^W.V.W.V.VAVAVAW.VAV.VAWA'AU
Þökkur innilega auðsýnda samúö við andlát og jarðarför,
Ólafs Ólafssonar,
Ólafsvöllum, V-Landeyjum.
Þorgerður Guömundsdóttir, Signý Ólafsdóttir,
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigurgeir Guðjónsson.
Maðurinn minn,
Stefán Ó. Stephensen,
andaðist aöfaranótt 13. þ. m. að heimili okkar.
Sigríður Arnósdóftir.
!*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦««■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦**♦-*(
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦**♦*««♦**♦«♦♦♦♦♦♦«*♦♦♦♦♦♦♦♦**«♦'• J