Tíminn - 15.09.1959, Side 6
6
T í M I N N, þriðjudaginn 15. scptember 195ft
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINR
Ritstjóri og ábm.: Þórarinn ÞórarinwM.
Skrifstofur i Edduhúsinu við Lindargðts
Símar: 18 300, 18 301, 18 302,18 303, 1830« og
18 306 (skrifst., ritstjómln og blaSamen*).
Augiýsingasimi 19 523. - AfgreiBslan 12 SSS
Prentsm. Edda hf. Simi eftir U. 18: 13948
Samvinnustefnan
ÞEIR tímar eru ekki langt
aö baki, þegar samvinnuhug
sjónin var ekki 'annað en
draumur nokkurra fátækra
og umkomulítilla bænda
norður 1 landi. En þótt hinn
veraldlegi. auöur væri þeim
ekki þungur í vasa, áttu þeir
annaö, sem bæöi reyndist
þeim sjálfum og eftirkom-
endum þeirra meira virði.
Þeir áttu óbilandi trú á hug-
sjón sína og þrek til aö íram
kvæma hana þrát tfyrir hin-
ar erfiðustu aöstæður. Þessir
merkilegu frumherjar eru nú
horfnir af sviöinu. Umbun
þeirra er hin venjulegu laun
fórnfúsra hugsjónamanna:
að hafa viljað vel og unnið í
samræmi viö það.
En tærkin lifa mennina.
Kaupfélagið, sem stofnað
var norður við Skjálfanda-
fíóa, xnitt í einum mesta harö
indakafla næstliðinnar ald-
ar hefur leitt af sér volduga
félagsmálahreyfingu, sem
sett hefur svipmót sitt á þró
unar- og framfarasögu þessa
lands í meira mæli en nokk-
uð annað. Samvinnuhreyf-
ingin barst úr einu héraðinu
í annað, og er nú svo komið,
að víðast hvar úti um land
er verzlunin að miklu leyti í
hennar höndum.
En baráttan gegn sam-
vinnuhreyfingunni er ná-
kvæmlega jafn gömul og
fyrsta kaupfélagið. Þegar
Þórður Guðjohnsen reyndi
að koma tvöfalda skattinum
á Kaupfélag Þingeyinga og
leitaðist viö að koma í veg
fyrir að það fengi nokkurs
staðar lóöarblett, þá taldi
hann sig vera að berjast fyr-
ir iífshagsmunum sínum. Og
sú barátta, sem Guðjohnsen
hóf fyrir þremur aldarfjórð-
ungum, hefur staöið fram á
þennan dag. Samvinnumenn
unnu hina fyrstu orrustu.
er tveggja heima
Og þeir hafa borið hærri hlut
í öllum meiri háttar átökum
við andstæðinga sína fram
til þessa. Mbl.-menn tala af
mikilli vandlætingu og ótta-
blandinni öfund um stórhýsi
samvinnumanna. Þeir skilja
það ekki og vilja ekki skilja,
að samtök fólksins eru sterk
ari en nokkur einstaklingur.
Eins og alþýða þarf ekki
lengur að líta upp til neinna
„heldri manna" svo eru þeir
tímar einnig úti að bygging-
ar kaupmanna beri af um
stærð og glæsileik. Menn
geta harmað þessa horfnu
tíma, en það er tilgangslaust,
þeir koma ekki aftur.
S AMVINNUHREYFIN GIN
er alþjóðahreyfing með
hundruð milljóna meðlima
innan sinna vébanda. Um
allan heim^ vinna þessir
menn að því að skapa sann-
virði vinnunnar og efla far-
sæld, bróðurkærleik og frið
meðal manna. Hér á landi
grípur samvinnan inn á
flesta þætti þjóðlífsins. Æ
fleiri mönnum skilst, að eft-
ir hennar leiðum er auðveld-
ast og hagkvæmast að leysa
hin margvíslegu félagslegu
vandamál. En samvinnustefn
an er ekki aðeins bundin
viðfangsefnum hins áþreif-
anlega veruleika. Hún mið-
ar einnig að því, að þroska
hina andlegu hæfileika ein-
staklinganna. Þess vegna m.
a. reka samvinnumenn
skóla, sem eru viöurkenndir
að vera meðal hinna beztu
stofnana í hverju landi.
Þannig mun hin hagkvæma
lausn samvinnumanna á fé-
lagslegum vandamálum, og
andleg og menningarleg
mannbótastefna þeirra fylgj
ast að á vegferð þjóðarinnar
inn í framtíðina.
„01! þjóSin veit“
SJÁLFSÁLIT er án alls
efa nytstamlegur eiginleiki,
en þó mun bezt hæfa, að
hann sér ekki verulega áber
andi. Alþýðubl. hefur sjálf-
sagt ráð á að berast allmjög
á í þessum efnum, en þó þyk
ir velunnurum þess ýmsum
sem yí'irlætið mætti vera hóf
samlegra.
„Alþýðubl. segir“, stendur
þar rétt eins og líta beri á
orð þess sem einhverja sér-
staka véfrétt eða Salomons-
dóm, sem ekki þýði lengur
um að þrátta. Það talar um
Alþýðubl.-myndir eins og
þær séu eitthvert einstakt
og frábært fyrirbæri Ijós-
myndatækninnar. Og s.l.
laugardag segir blaðið:
„Þetta skyldu menn hafa í
huga í sambandi við Kefla-
víkurmálið: í varnarmálun-
um er Tíminn pólitísk skopp
arakringla.“ Þarna vantaði
ekkert annað til þess að full
komna sköpunarverkið, en
að yfir þessari speki stæði:
Aiþýðublaðsráðlegging.
Og í framhaldi af þessu
segir blaðið:
„Öll þjóðin veit nú að stefna
Framsóknarfl. er þessi: Þeg-
ar Framsókn er í stjórnar-
andstöðu, þá er hún á móti
vörnum íslands. Þegar Fram-
sókn er í stjórn, þá er hún
fylgjandi vörnum landsins.
Þegar utanríkisráðherra er
framsóknarmaður, þá getur
enginn flokkur stjórnað her
í landi með slíkum ágætum
sem Framsókn.“
„ÖLL þjóðin veit“, að hér
fer Alþbl. með tómt rugl,
sem betra væri fyrir það
sjálft að væri ósagt. Hver eru
rök Alþbl. fyrir því, að Fram-
sóknarfl. hafi verið -,,á móti
vörnum íslands“ þá 8V2 mán
uð, sem hann hefur verið í
stjórnarandstöðu? Er það að
vera „á móti vörnum ís-
lands“ að gagnrýna yf-
irtroðslur og ofbeldisverk
erlendra hermanna gegn ís-
lenzkum borgurum? Hvers
konar þrælslundarhugarfar
VÍÐSJÁ:
iiiiuMmmmmmmmmmmmimiimmiimimimmiimiiimmmmimiiimmiimi miiitiiiiiiiiiiiiimmiiiiiMimiiimciiiiiiiii^
örlagadaiur SA-Asíu ]
Ræíst framtíí SA Asíu í Sam Neua í Laos?
| HINN KUNNI bandaríski
i blaðamaður Joseph Alsop er nú
| staddur í Laos. Alsop er mjög
= vel kunnugur málefnum o,g
| ástandi í Asíu. Alsop var í Indó-
I kína er orrustan um Dien Bien
i Phu vnr háð og nú er hann kom
| inn í eldlínuna aftur, að þessu
| sinni í smáríkinu Laos, sem
i hefur verið vettvangur stórfrétt
I anna að undanförnu, og frá Sam
i Neua héraði í Laos skrifar Al-
| sop eftirfarandi grein, sem birt-
| ist í New York Herald Tribune
| 7. sept. síðastliðinn.
I ALLT í EINU hafa örlög og
i framtíð Suðaustur-Asíu bundizt
i þessum stað. Hvað er þessi Sam
i Neua þá, þar sem harmleikur-
jj inn um Dien Bien Phu er að
| endurtaka sig í smækkaðri
| mynd, en ef til vill með viðtæk-
s ari áhrifum? Fyrir blaðamann,
k sem kemur á umrótstímum til
| Suðaustur-Asiu i annað sinn, er
| Sam Neua margir óskildir hlut-
| ir í senn. Það er til að byrja
| með slórfenglega fallegt lands-
I lag, sem hvergi getur að líta
| nema í Suðaustur-Asíu.
| Sam Neua liggur í þröngum
i dal umkringdum snarbröttum
| fjöllum o.g klettóttum hæðum.
| Á þessari árstíð meðan regntím
| inn stendur yfir svellur áin eft-
| ir dalnum, brún og þykk af aur.
I Hrisgrjónaekrurnar eru smar-
| agðsgrænar. Hin stóru tré frum
| skógarins blandast saman við
| hávaxinn bambusreyrinn í fjalls
| hlíðunum. Jafnvel landslagið cr
| mikilvægt, því að Sam Neua er
1 mjög háð flugsamgöngum en
I fjöllin rísa snarbrött við báða
| enda flugbrautarinnar. Hið erf-
| iða aðflug til Sam Neua gerir
| flugsamgöngur ókleifar nema
| með minni flugvélum.
| Sam Neua hérað er mjög þétt
| býlt. Prinsinn af Sam Neua átti
| hér eitt sinn embættisbústað
| sinn, en hin fyrrverandi höfuð-
! borg prinsins er aðeins smá-
| þorp. Kofarnir, sem eru byggð-
§ ir af leir og með stráþökum,
| byrjuðu við bjálkabrúna yfir
| ána og lágu í óreglulegri, slitr-
| óttri röð um hálfrar mílu vega-
| lengd meðfram rykugum vegin-
I um. Fyrir neðan brúna svamla
| börnin í ánni, en fyrir . ofan
■IIIIIIIIIIIIIIIIIIIiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii* “
er það, sem að baki slíkum 1
stað hæfingum byr? „Öll þjóð |
in veit“, að þegar dr. Krist- 1
inn Guð'mundsson tók viö f
varnarmálunum úr höndum |
íhaldsins, þá voru þau í hinu s
megnasta ólagi. Meðan hann
var utanríkisráðherra gjör-
breyttist ástandið til hins
betra. Það hefur Bjarni Ben.
aldrei getað fyrirgefið dr.
Kristni. Hitt vissu menn ekki
fyrr en nú, að svo virðist sem
Alþbl. sé undir sömu sökina
selt í þessum efnum og
Bjarni.
Hvað hefur breytzt í sam-
bandi við’ yfirstjórn varn-
armálanna frá íslendinga
hálfu siðan Framsóknar-
menn hættu aö fara með ut- j
anríkísmáilin í ríkþsstjórn?
Jú, það hefur komið nýr ut-
anríkisráðherra. Jafnframt
hafa yfirtroðslur herliðsins
mjög aukizt. Sagt er að sömu
reglur gildi og áður. Það má
vel vera. En er framkvæmd
þeirra þá fylgt eftir eins og
fyrr? Um það efast margir.
Alþfl. er þetta mál að vonum
viðkvæmt vegna utanríkis-
ráðherrans. Um sekt hens
eða sakleysi skal hér ekkert
fullyrt. En þegar blaðið reyn
ir a'ð lauma ráðherranum á
baki við undirmenn hans, þá
er það bæði tortryggilegt og
auk þess ræfildómur, sem
erfitt er að afsaka.
brúna er baðstaður hinna full-
orðnu. Það má ætíð líta brons-
lita búka busla i ánni, sem er
eins og tóbakslögur að lit.
Baðgestirnir, fólkið úr litlu
sölubúðunum, konurnar af
markaðstorginu, sem vilja selja
þér ópíumskammta, sem eru
pakkaðir inn í laufblöð, þetta
fólk er allt óvenju rólegt og
glaðlynt, sé það haft í hu.ga, að
óvinahersveitirnar cru aðeins í
um fimm mílna fjarlægð frá
þorpinu. Þú sérð ekki bros á
vörum flóttafólksins frá ná-
grannahéruðunum, scm nú eru
á valdi innrásarherja kommún-
ista í Norður-Vietnam. Flótta-
fólkið skiptir nú mörgum hundr
uðum. Heilar varnarliðssveitir,
sem hafa flúið með vopn sín,
margar fjölskyldur, konur og
börn frá þorpum við víglínuna.
Samt sem áður verður maður
meðal þessa fólks ekki var við
hið dapurlega vonleysi, sem ein
kennir flóttafólk í öðrum hlut
um heims.
Þetta fólk er mjög mikilvægt,
þó að ekki væri nema fyrir það,
að ef einhver, sem ber ennþá
veikar vonir í brjósti um að
innrásin frá Norður-Vietnam sé
ekki hinn nakti raunveruleiki,
yrði til þess að ræða við flótta-
fólkið, þá gengi hann þess ekki
lengur dulinn hvað raunveru-
lega er á seyði. Það er auðvelt
að segja „að beinar sannanir
liggi ekki fyrir um innrásma“,
þegar menn eru í 5.000 mílna
fjarlægð frá atburðunum. En
sá, sem talar við þetta einfalda,
hrausta fólk, sem aldrei kvartar,
konur o,g karla, sem hafa verið
flæmd frá heimilum sínum af
innrásarherjum kommúnista,
hefur engin tök á'því lengur að
efast um að hér sé um beina
i-nnrás að ræða.
SAM NEUA geymir langa
sögu. Síðan fyrir meira en
tveimur öldum hefur þessi hluti
Suðaustur-Asíu verið himnaríki
fyrir duglega innflytjendur,
sem hafa hrökklazt frá Kina
vegna hinnar gifurlegu útþenslu
Kínverja. Þeir, sem síðast koma
hafa ætíð hrakið þá fyrrkomnu
lengra til fjalla. Árangurinn af
þessu hefur orðið rjómaterta á
hvolfi, allur rjóminn á botnin-
um.
Laosverjar og Thailendingar
voru fyrst hraktir af Kínverjum
frá hinu núkallaða Mið-Kína og
einni öld síðar voru þeir að fullu
Kennsla hafin í
kvöldskóla
KFUM
Hinn fyrsta septe.mber
hófst innritun nemenda í
Kvöldskóla K.F.U.M., og fer
hún fram í nýlenduvöruverzl-
uninni Vísi, Laugavegi 1.
Kvöldskoli K.F.U.M. er fyrst og
iremst ætlaður piltum og stúlkum,
er stunda vilja gagnlegt nám sam-
hliða atvinnu sinni, og eru þess-
ar námsgreinar kenndsr: íslenzka,
danska, enska. kristin fræði, reikn
ingur, bókfærsla og handavinna
tstúlkna), en auk þess upplestur
og íslenzk bókmenntasaga í fram-
haldsdeild.
Einskis inntökuprófs er krafizt,
en skólavist geta þeir hlotið, er
lokið hafa lögboðnu skyldunámi.
Einnig er þeim nemendum, er
lokið hafa námi 1. bekkjar gagn-
fræðastfgsins, heimilt að sækja
skólann. Að loknu burtfararprófi
úr Kvöldskólanum hafa þcir full-
nægt skyldunámi sínu
Skólinn starfar aðeins í tveimur
deildum, byrjenda- og framhalds-
deild. Er fólki eindregið ráðlagt
hraktir frá Suður-Kína. Það
voru þeir, sem síðastir kornu
hingað. Meosarnir og hinir
svörtu Thailendingar og skyldir
ættbálkar búa í miðjum fjalls-
hlíðunum. Hinn fátæki og frum
stæði Khas-ættbálkur, .sem upp
haflega byggði þennan dal,
berst nú erfiðri og þjáningar-
fullri lífsbaráttu á fjallstoppum
og hásléttum.
ÞESSI SAGA er táknræn og
einnig mjög þýðingármikrl.
Sam Neua er nú í bráðri hættu
vegna innrásar kommúnista óg
það er vegna þess að kínversk
útþensla hefur hafizt að nýju og
það af tvíelfdu afli.
Sam Neua er höfuð hald og
Iraust stjórnarhersins í Laos og
þar veitir hann innrásarliði
kommúnista harðast viðnám.
En það verður að játast, að sem
hernaðarbækistöð er Sam Neua
ekki mikilvæg eða stórvægifeg.
í fyrstu er ekki hægt að sjá
að dalurinn hafi nokkra hernað
arlega þýðingu, nema ef vera
kynni á flugveilinum, þar sem
vopnum og vistum hefur verið
landað.
Stjórnarherinn hefur næstum
engin farartæki og allt starfs
lið Amkha hershöfðingja stjórn
arhersins kemst fullvel fyrir á
svölunum fyrir framan bústað
hans á hæð fyrir ofan þorpið.
Ef frá eru taldir verðirnir við
flóttamannabúðirnar í þorpinu,
þá er engan hermann að sjá
á götum þorpsins.
En líttu á toppa fjalla og
hæða, sem umlykja þorpið, þar
geturðu grillt í eitt eða tvö
tjöld. Það eru nálægustu varð
staðirnir. Hinum -sjö herfylkj-
um, sem eiga að annast varnir
Sam Neua er þannig dreift um
frumskóga fjallanna og það eru
erfiðar frumskógaferðir og
stran.gar, þegar flytja þarf þeim
vistir og vopn.
ÞANNIG er Sam Neua, falleg
ur Jítill dalur, afskekktur og
áður fyrr einkar friðsæll, en
hefur nú með skyndilegum
hætti komizt í brennipunkt
heimsfréttanna og á kannski eft
ir að verða vettvangur árhifa-
ríkra atburða. Það er c-rfitt að
trúa því, að örlög Suðaustur-
Asíu séu háð framvindu mála
í Sam Neua. samt .sem áður get
ur svo farið, — já það getur
vel farið svo.
að trvggja sér skólavist sem allra
fyrst, en umsækjendur eru teknir
í þeirri röð, sem þeir sækja um,
þar til bekkirnir eru fullskipaðir.
— Skólasetning fer fram fimmtu-
daginn 1. október kl. 7,30 síðdeg-
is í húsi K.F.U.M. og K. við Amt-
mannsstíg, og er mjög áríðandi,
að allir umsækjendur séu við-
staddir eða sendi einhvern fyrir
sig. Annars kann að tara svo, að
þeir missi af skólavjst, en fólk
af biðlista verði tekið í þeirra
stað.
Yerstu flóð í 40 ár
NTB—Peking, 11. sept. —
Verstu flóð, sem komið hafa í
40 ár, herja nú í héraðinu
Fukien í Kína.
Tilkynnti Pekingútvarpið þetta
í dag og kvað þúsundir iuanns-
lífa í hættu á fióðasvæðinu. Eigna
tjónið væri begar gífurlegt. Sein-
ustu daga hefur rignt mjög mikið
— hvað eftir annað orðið ský-
fall og því feiknavöxtur hlaupið
í árnar. Sums staðar hefur verið
byrjað að flytja brott fólk í stór-
um stíl. Varnargarðar með ánum
hafa víða brostið og vinna 30 þús.
opinberir starfsmenn og hermenn
að því að reyna að fylla I skörð-
in.
immilimiiiiiimiiiiimi mmmmmmmmmmmmmmmimmmmiimmmmimmmmmnmiimmmmiiiimi