Tíminn - 30.09.1959, Side 1

Tíminn - 30.09.1959, Side 1
fX E51D U M j Sf jómmálaviðhorfiS — Ræða Eysteins Jónssonar bls. 6—7 13. árgangur. Reykjavík, miðvikudaginn 30. september 1959. Hann fann líka Ameríku, bis. 3. íþróttir, bls. 10. 210. blað. Fjölmennið í Framsóknarhúsið á fyrsta kjósendafundinn í kvöld ♦ í kvöld kl. 8,30 halda stuðningsmenn B-listans í Reykjavík fyrsta kjósendafund sinn fyrir þessar kosningar í Fram- sóknarhúsinu. Allir eru velkomnir á fundinn og stuðningsmenn B-listans eru beðnir að fjölmenna og hefja kosninga- baráttuna með glæsilegum fundi. Þar flytja átta menn stuttar ræður, og eru þeir þessir: Þórarinn Þórarinsson Frú Unnur Kolbeinsdóttir Kristján Friðriksson Séra Björn H. Jónsson Einar Ágústsson Kristján Thorlacius Einar Birnir Hermann Jónasson Þórarinn Þórarinsson Kristján Friðriksson Unnur Kolbeinsdóttir Einar Birnir Hermann Jónasson Björn H. Jónsson Einar Ágústsson Kristján Thorlacius Gat opnaðist i Fnjoskarbru Akureyri í gær. — í gær bar svo við að gat opnaðist skyndilega á brúna yfir Fnjóská. Gatið er stórt, um það bil fermetri að stærð, og hefur verið lagður hleri yfir það til bráðabirgða svo að umferð geti haldizt um brúna. Gat þetta er á brúnni austan- verðri, og er ekki vitaS með hvaða hætti það kom til. Hins vegar var vitað um sprungu í brúna þarna, og hefur trúlega molnað og hrun- ið út frá henni. erkfræðingur mun vera væntanlegur á næstunni til að athuga skemmdirnar og allt ástand brúarinnar um leið. — Fnjóskárbrú er nú orðin 50 ára gömul, en hún var á sínum tíma stærsta steinbogabrú í Evrópu, og er trúlega enn stærsta bogabrú landsins. E.D. Kommar tapa HfcL. í Noregi Bæjar- og' sveitastjórnarkosn- ingar voru háðar í Noregi í gær. Fréttir liöfðu ekki borizt um loka niðurstöður í kosningunum, en búið var að telja í öllum bæjum og flestum sveitum, er blaðið hafði síðast fregnir af atkvæða- talningu seint í gærkveldi. Frá- vik frá fyrri kosningum virðast lítil og styrkleikahlutföll flokk- anna svipuð og við síðustu bæjar- og sveitastjórnarkosningar. Kommúnistar töpuðu þó verulcgu fylgi — og var fylgishrun þeirra allt að hehning í mörgum bæjum. Meira olnboganím fyrir hina ríku en minni siuðningur vio efnalífið fólk er kjarni þeirrar sfefnu um samdráff o^inberrar fjárfesf- ingar, sem þríflokkarnir boóa i kjölfar kjör- dæmabyltingarinnar Eldhafið stóð upp úr heyinu Eldur í hlööu í Reykjahverfi „Það er glöggt að hverju stefnt er. Þau öfl, sem stóðu að kjördæmabyltingunni vilja draga úr fjárfestingu hins op- inbera og þar með stuðningi hins opinbera við hina efna- minni 1 þjóðfélaginu, en hinir ríku eiga að hafa nægilegt olnbogarúm. Nú er hins vegar eftir að vita, hvort þjóðin vill styðja þessa nýju stefnu. Það er augljóst, að fái kjördæma- flokkarnir nú sæmilega út- komu í kosningunum, verður ótrautt haldið áfram. Eflist Framsóknarflokkurinn hins vegar enn, mun það afstýra miklu, því að þessir flokkar munu þá hugsa ráð sitt betur og' hika“; sagði Eysteinn Jóns- son, fyrrverandi ráðherra m. a. í ýtarlegri ræðu um stjórn- málaviðhorfið á mjög fjöl- mennum fundi Framsóknar- manna í Keflavík í fyrrakvöld. Ilann ræddi þar um a'ðfarir og klæki þríflokkanna við að koma kjördæmabyltingunni á og það sem mun á eftir fylgja í næstu áföngum, fái kjördæmaflokk- arnir bolmagn til að loknum næstu kosningum. Hann ræddi um samdráttinn, sem IjDðaður er í fjárfestingunni og blekk- ingaskrum stjórnarflokkanna um „stöðvun verðbólgunnar“ og „ráðstafanir“ í efnahagsmálum. Ilann ræddi einnig um gerræðis- ráðstafanir hinna nýsettu bráða- birgðalaga, og' síðast en ekki sízt um það stóraukna fylgi, sem Framsóknarflokkurinn á nú að fagna með þjóðinni, þar sem æ fleiri umbótasinnaðir menn skilja, að hann er liöfuðandstæð- ingur íhaldsaflanna í þjóðfélag- inu og honum einuni er trúandi til þeirrar andstöðu og' baráttu fyrir alliliða, frjálslyndri um- bótastefnu. Nánari útdráttur úr ræðu Ey- steins Jónssonar er á sjöttu og' sjöundu síðu blaösins í dag. - Sjá bls, 6 og 7* Valdimar Björns- son á Akureyri Valdimar Björnsson fjármálaráð herra í Minnesota er væntanleg- ur til Akureyrar á föstudag. Mun hann þá um kvöldið flytja fyrir lestur að Hótel KEA á vegum fs- lenzk-ameríska félagsins og Sfúd- entafélags Akuréyrar. í fyrrinótt kom upp eldur í hlöðu að Skógum í Reykja- hverfi, og var eldurinn orð- inn allmagnaður er hans varð vart. Fyrir rösklega fram- göngu heimafólks og slökkvi- liðs tókst að ráða niðurlögum hans, en talsverðar skemmdir munu hafa orðið á heyi. Tvíbýli er að Skógum, og búa þar Gunnlaugur Sveinbjarnarson og Helgi Pálsson. Kom eldurinn upp í hlöðu Gunnlaugs, en það var sambýlismaður hans sem fyrstur varg eldsins var kl. 2,30 um nótt- ina. Slóö eldhaf upp úr heyinu þegar að var komið, en 400—500 hestar voru í hlöðunni. Rauk enn í gær Þegar var sent eftir slökkvilið inu á Húsavík, en heimafólk bar vatn á eldinn og tókst að halda honum niðri tfnz aðstoð barst. Slökkviliðið kom á vettvang klukk an 6,30 um morguninn, og klukk an 10 hafði eldurinn verið kæfð- ur að mestu. Var þá hafizt handa um ag rífa upp heyið, en því starfi var ekki lokið síðdegis í gær, og rauk þá enn úr heyinu. Talsvert tjón mun hafa orðið á heyinu bæði af eldi og vatni, en ekki var vitað í gær hversu mikið. Aftur á móti er hlaðan >sjálf furðu lítið skennnd. Sjálfíkviknun mun hafa orðið í heyinu, en mikill hiti var í hlöðúnni. Þ.J. ók brott í skyndi Um kl. 17,20 í gær, ók bifreiðin Ö-478 utan í R-9895, sem stóð fyrir utan Brautarholt 20, en skeytti því engu og ók þegar hrott. — Hafði Ö-478 ekki náðst, þegar blað ið fréfcti síðast til í gærkveldi. — Nokkrar skðmmdir urðu á R-9895 vig áreksturinn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.