Tíminn - 08.11.1959, Side 8

Tíminn - 08.11.1959, Side 8
8 T f M I N N, sunnudaginn 8. nóvember 1959t Engin nýjung Engin nýjung Er komið viðskiptastríð? Að gefnu tilefni vill Þvottahúsið EIMIR taka fram, að það er engin nýjung að festa tölur á skyrtur. Þá sjálfsögðu þjónustu höfum við veitt viðskiptavinum vorum endurgjaldslaust 1 8 ár. Hér eftir sem hingað til munum við hafa forustuna með fljóta og góða þjónustu. Skyrtur, sem koma um hádegi, eru tilbúnar að kvöldi Kaupmenn og kaupfélög Látið okkur þvo sloppana. — Gerum við ef óskað er. MJÖG FLJÓT AFGREIÐSLA. Verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn Látið okkur þvo vinnufötin. — Við gerum við þau ef óskað er. vottaliúsi Bröttugötu 3 a - Sími 1-24-28 rr.y.-'rsög" Hin t?ðu og alvarlegu umferðarslys hljófa að minna ökumenn á að aka var- lega. Hægið ferðina þegar þér mætio bíl með sterkum Ijósum, einkuin ef vegir eru blautir. Jafnve! gæfnustu ökumenn geta valdið slysi ef Ijós biinda þa. Biíreiðarnar hér á myndinni sýna hvernig bifreið ýðar getur litið út efrir árekstur. ER EIFREÍD YÐAR VEL TRYGGÐ? SÁMVINNUTRYGGINGAR VEITA YÐUR BEZTU FÁAMLEGA ÞJÓNU5TU. Þáttur kirkjunnar Einkavinur — trúnaðartraust S Einn þeirra sálma, sem náð hafa mestum vinsældum ís- lenzku þjóðarinnar er nr. 207 í sálmabókinni eða nánar til- tekið: Ó, þá náð að eiga Jes- úm.“ Þar syngur fólkið um. þann irúnað, sem alör þrá meira eða minna að njóta í sinni margháítuðu lífsbaráttu, þá einlægni og vináttu, sem verð- ur stöðugt fátíðari í ysi og giaumi atómaldar, en samt þeim mun mikilsverðari sem hraðinn og hávaðinn tætir fleiri sálir í sundur. Trúnaður er eitt hinna sterk ustu og Ijúfustu banda, sem tengja sál við sál. Það er ham- ingja og styrkur hverri mann- eskju að geta komið eins' og hún er í gleði sinni eða sorg til þess, sem hún trevstir og opna hjarta sitt í einlægni fyr- ir honum. Samt hefur trúnaður alltaf verið vandamál. Þörfin fyrir slíkt traust er mikil hiá flest- um, en svo er hitt, er þorandi að tjá sig og segia það sem í hug og hjarta býr. Aldarhátturinn gefur fáar stundir til híns hljóðláta trausts sem friður og einangr- un sveitaiífsins skóp í svo rík- um mæli, og glaumurinn mót- ar grynnri hugðir og rænir fólkið þeirri dýpt skilnings og yl samúðar, sem gjörði hinar tryggu og hlýju manneskjur, sem var svo indælt að flýja til í garnla daga. Þess vegna vakna spurning- ar eins og þessar. Ætli hann skilji mig? Get ég treyst þag- mælsku hennar og grandvar- Jeika. Trúnaðarþörfin setur verið svo sterk, að maður afhjúpi sjálfan sig gjörsamlega nær ósjálfrátt, og þá er nú heppi- legra, að sá eigi trúnaðinn skilið, sem maður skriftar fyrir. Stundum er einkamálum annarra blandað inn í leyndar- málin, sem þarf að segja, frá og það eykur enn á vandann. En samt er oftast erfiðast að bera einn það sem mestur vandi er að tjá fyrir öðrum, og bví treyst á tæpasta vaðið í þeim atvikum. Til trúnaðarmála þarf trú, trú á mennina, hið göfugasta í vitund þeirra og vild. Það er því ábyrgð mikil að eignast annarra trúnað. Ábyrgð, sem þarf að efla sem mest í sálum barna við uppeldi þeirra. Öll einlægni felur í sér bæn um þögn, en ekki er þess alltaf krafizt með orðum að þagað sé. En hver góð os göfug manneskja -finnur það ósjálf rátt, að hún má ekki tala. Það sem freistar fólks til að misnota trúnað annarra er oft öfund, iöngun til að vera liiiliiiiill’liiiiiii'silillii!' skemmtilegur eða þörf til að svala forvitni annarra, stund- um mont og hégómaskapur. Stundum bregðast menn trún- aði vegna skorts á sjálfstjórn, en aJlt slíkt er ódrengilegt og getur valdið bæði óþægindum og ógæfu, bæði fyrir sjálfan mann og aðra. Gagnrýni og sleggjudómar gagnvart öðrum og trímaðar- málum þeirra er algengt bæði hjá konum og körlum. Gagn- rýnið og dómsjúkt fólk er oft- ast kalt og harðlynt. og lítils virði að leita trúnaðar þess, jafnvel þót það þykist og sýn- ist „trúað“ eins og sagt er um strangheiðarlegar manneskjur. Það er því miður svo algengt að sjá flísina í augum annarra en gleyma bjálkanum í eigin auga. Gætið því trúnaðarmála ann- arra bæði talaðra og þá ekki síður ritaðra. fið ykkur í þeim dyggðum, sem gera ykkur að sönnum trúnaðarvinum. Það er fátt, sem þjakaðar sálir undir oki hraða og glaums þurfa fremur og þrá heitar. Sjálfsagt eru prestar og lækncp opin- berir skriftafeður fjöldans, ef svo mæti segja, en sannur. góð- ur vinur, getur verið öllum embættistmönnum betri. Og embættismaðurinn þarf að verða vinur, ef hann á að geta gleyml þessu starfi til fulls. Þvd meira, sem hann á af mann- legum skilningi, hlýju og sam- úð ásamt þekkingu á hinum ýmsu vandamálum mannssálna því fremur getur hann gjört; gagn og leyst úr voða og vanda. Því meira, sem skriftafaðirinn á af kærleiksþeli og ástúð meistarans, sem var vinur toll- heimtumanna og syndara og skrifaði skuld hinnar dæmdu konu í sandinn, þvi fremur og aðeins þá getur hann tekið trúnaðarmálum rétt og lyít undir byrðar samferðafólks'ns. Aðeins þannig verður trún- aður til sannrar blessunar fyrir þessa örþreyttu kynslóð. Það er anai Iírists í mönnunum. sem einn gerir þá að einka- vinum í hverri þraut. svo gott verður að halla sér að barmi vinar, finna það hjarta slá, sem gefur kraft, og þrek t:l að sefa æstar tilfinningar og sigra raunir heimsins. Einlægni og trúnaður eru vébönd þe:rra samskipta, sem skapa samfélag heilagra milli foreldra og barna. manns og konu, systkina og vina. Þess vegna er trúnaður eitt hið helgasta og göfugasta i samfélagi kristinna manna. ,,En vilji bregðas't vmir þínir verðirðu einn á kaldri braut. flýt þér þá að halln og hneigia höfuð þreytt í Drottins skaut.“ Árelíus Níelsson. a •• •_; 4>§í| ssaismsiSiSMSiSiiSiSMSsssmMtis^^ HeitiS er á ykkur að styrkja duglega hlutaveltu þá, sem haldin verður til styrktar kirkjubyggingunni, sunnudaginn 22 þ. m. í hinu nýja íelagsheimili safnaðarins við Sólheima. Safnið munum og látið vita í síma 34962 —• 34502 — 34915 — 34958 og verða munirnir sóttir til yðar fyrir 15. nóverr.ber. UNDIRBÚNINGSNEFNDIN. ít-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.