Tíminn - 29.11.1959, Qupperneq 8
8
rÍMINN, sunnudaginn 29. nóvember 1959.
Sogsvirkjunarbréf 1959
Rafmagnsvísitöiubréf
sem verða ti) sölu hjá bönkum, flestum spnrisjóðum og nokkrum verðbréfa-
sölum frá og með 1. desember n. k.
Útboð
fyrir 30 milljóna króna Sogsvirkjunarláni 1959 vegna virkjunar Efra-Falls,
sem tekið er samkvæmt lögum nr. 35 23. maí 1959, um viðauka við lög nr.
23 23. apríl 1946, um virkjun Sogsins.
1. gr. — Höfuðstóll lánsins er kr. 30 000.000,00. Útgefin eru skulda-
bréf fyrir samtals kr. 36.075.000,00, og er mismunurinn vextir, sem allir
eru greiddir fyrirfram til eigenda béfanna þannig, að þeir eru dregnir frá
nafnveröi hvers bréfs við sölu.
2. gr — Lánið er í fimm flokkum, sem skiptast þannig:
Litra A að nafnverði kr. 4.220.000,00, þar af höfuðstóll
kr. 4.000.000,00 með 5V2% ársvöxtum, gjalddagi 1. nóv. 1960.
Kaupverð 5.000 kr. bréfs hinn 1/12 1959 er kr. 4.761,07
— 1.000 kr. — — — —----------- 952,21
Litra B að nafnverði kr. 7.828.000,00, þar af höfuðstóll
kr. 7.000.000,00 með 5%% ársvöxtum, gjalddagi 1. nóv. 1961.
Kaupverð 5.000 kr. bréfs hinn 1/12 1959 er kr. 4.492,47
— 1.000 — — — — —------------ 898,49
Litra C að nafnverði kr. 9.528.000,00, bar af höfuðstóll
kr. 8.000.000,00 með 6% ársvöxtum, gjalddagi 1. nóv. 1962.
Kaupverð 5.000 kr. bréfs hinn 1/12 1959 er kr. 4.219,09
_ 1.000 — — — — —------------ 843,82
Litra D að nafnverði kr. 10.292.000,00, þar af höfuðstóll
kr. 8.000,000,00 með 6V2% ársvöxtum, gjalddagi 1. nóv. 1963.
Kaupverð 5.000 kr. bréfs hinn 1/12 1959 er kr. 3 907,65
— 1.000 — — — — -----------781,53
Litra E að nafnverði kr. 4.207.000,00, þar af höfuðstóll
kr. 3.000.000,00 með 7% ársvöxtum, gjalddagi 1. nóv. 1964.
kaupverð 5.000 kr. bréfs hinn 3 /12 1959 er kr. 3 585,70
— 1.000 — _ _ _ -----------717,14
3. gr. — Öll skuldabréfin eru útgefin til handhafa. Þau eru í töluröð
eins og segir í aðalskuldabréfi. Bréfin eru útgefin að nafnverði kr. 5.000,00
og kr. 1.000,00.
4. gr. — Við innlausn hvers skuldabréfs skal greiða verðlagsuppbót á
nafnverð þess í hlutfalli við hækkun rafmagnsverðs í Reykjavík frá því,
sem var í októher—nóvember 1959, til gjalddaga þess, 1. nóvember hvert
áranna 1960—1964. Skal hér miða við það raímagnsverð, sem greitt er
fvrr rafmagnsnotkun 1. nóember ár hverí 1960—1964. Lækki rafmagns-
verð í Reykjavík frá því, sem var í október—nóvember 1959 tii gjaldaaga
bréfanna, verða skuldabréfin innleyst á nafnverði.
Rísi ágreiningur um framkvæmd verðtryggingar þessarar, skal málinu
vísað til nefndar þriggja manna. Hagstofustjóri er oddamaður, en hinir
tilnefndir af stjórn Sogsvirkjunarinnar og Seðlabankanum.
0- gv. — Innlausn bréfanna fer fram í Landsbanka íslands, Seðla-
bankanum. Eftir gjalddaga greiðast ekki vextir af gjaidföllnum skulda-
bréfum, og engin verðlagsuppbót er greidd á nafnverð skuldabréfa vegna
hækkunar á rafmagnstöxtum, sem kann að eiga sér stað eftir gjalddaga
bréfanna.
6. gr. — Skuldabréf fyrnist, ef því er ekki framvísað innan 10 ára
frá þeim degi, sem það féll í gjalddaga.
7. gr. — Lánið er tryggt með sjálísskuldaráþyrgð ríkissjóðs og þæjar-
sjóðs Reykjavíkur.
Aðalskuldaþréf iánsins með áritaðri ábyrgðaryfirlýsingu fjármálaráðu-
nevtisins er geymt hjá Landsbanka íslands, Seðlabankanum, Reykjavík.
Hver sá, er sannar, að hann sé löglegur eígandi sérskuldabréfs samkvæmt
aðaiskuldabréfinu, getur fengið eftirmynd af því hjá bankanum gegn
hæíilegri bóknun.
Nóvember 1959,
LANDSBANKI ÍSLANDS
SEÐLABANKINN
Gerizt áskrifendur að TÍMANliM
Áskríftarsími 1-23-23
x> i '4-1 fémt -1
1
Þáttur kirkjunnar
iiiii
Hann
„SJÁ KONUNGUR ÞINN
kemur til þín.“
Enn hefst nýtt kirkjuár. Að-
ventan heilsar með sögninni
fögru um konung friðarins,
sem kemur hógvær á fáki
■starfs og auðmýktar, andstæðu
stríðsfáka úr 'sigurförum hers-
höfðingjanna.
Rökkur skammdegisnætur
vefst þéttar og þéttar að fót-
um og seitlar inn i hjörtun með
kulda og vonleysi. Gamla árið
þokast brott dag frá degi og
skilur eftir angurbliðan söknuð
á viðkvæmustu strengjum vit-
undar. Styttir hver um ei'nn og
einn áfanga til grafar.
En í ríki hins komandi kon-
ungs >er nú þegar vor og nýárs-
dagur. Hér hljómar „hósíanna"1
— dýrð sé Guði fyrir allar gjaf
ir hans bæði í gleði og sorg.
Hann er vort einasta skjól, vor
himingjöf vort helga jólaljós —
ljós heknsins.
Við fætur hans, sem kemur,
hlýðum vér á vizku lífsins, horf
um í trú og von til hinnar
miklu sólaruppkomu, þess
morguns, sem sigrar öll myrk-
ur allra jarðneskra skammdeg-
isnótta með geislaflóði sínu.
Margir rnundu fullyrða, að á
slíkum degi ætti kirkjan og
þjónar hennar að flytja nýjan
boðskap, eitthvað óvenjulegt,
sérstakt og frumlegt. Það liæfði
bezt nýársdegi hennar, gæfi
unv'i ' = ‘j !
kemur
morgunroða hins eilífa iífs
svip og lit, líf og dýrð.
Með nýjum hugsunum og orð
um skal fagnað nýjum áfanga á
guðsríkisbraut.
Það er nú svo. En hvað er
hér óg hvað er gamalt. Við
snertingu og í nálægð hins ei-
lífa, missa þau hugtök rnát't
sinn og gildi að vissu marki.
Það er til ýmislegt í okkar ver-
öld, sem er í eðli sinu óendan-
■leg-a gamalt, og þó alltaf nýtt.
Þannig er sólskinið. Þannig er
dýrð himingeimsins. Hvert vor
sem hrumar, hver morgun, sem
opnar augun út í ómæli aust-
ursins, hvert barn sem fæðist,
allt er þetta svo dásamlega nýtt
hverju óspilltu hjarta, ekki sízt
þeim, sem hafa beðið í myrkri
og kulda.
Og einnig hið hversdagsleg-
asta, hver matarbiti, hver sval-
andi vatnsdrykkur — er þetta
©kki.nýtt og dásamlegt hverju
sinni þeim sem hungrar og
þyrstir, þótt hann áður hafi
bragðað það þúsund sinnum.
Þannig er og með hinn forna
boðskap konungsins mikla, sem
ikemur í dag og ber að dyrum
hjarta þín. Hann flytur þér
samt ljós og líf, vor og svölun,
dýrð og kraft, sem aldrei dvin,
heldur verður þér uppspretta
eilífs lífs. „SJÁ KONUNGUR
ÞINN kemur til þín.“
Árelíus Níelsson."
ÍÍÍsÍ
4&
, -
4*
SNJOBILAR
Það hefur sýnt sig að til vetrarflutninga duga
Bombardier snjóbílarnir bezt. Fáanlegir af ýms-
um gerðum.
...j
15 farþega snjóbíll.
Aíbeltabíil til farþega og vöruflutninga.
2ja manna vélknúinn snjósleoi.
Leitið upplýsinga um þessi hentugu vetrar-
flutningatæki.
C11H4W
Sími 17450