Tíminn - 02.02.1960, Qupperneq 2

Tíminn - 02.02.1960, Qupperneq 2
2 T í MIN N, þri'ðjudaginn 2. febrúar 1960. Ávarp Eysteins Jónssonar, formanns blaðstjórnar Tímans: Með ærnum kostnaði og fyrirhöfn hefur verið aflað íullkomnari tækja til útgáfu blaðsins Tíminn kemur nú út í nýjum búningi og með nýju sniði. Með ærnum kostnaði og fyrirhöfn hefur verið aflað fullkomnari tækja til út- gáfu blaðsins en áður hef- ur veríð búið við. Meðan á þessari breyt- ingu stóð hefur blaðið orðið að vera á hrakhólum, og að sjálfsögðu goldið þess mjög að öllu yfir- bragði. Eins ’ og gengur hefur það tekið nokkuð lengri tíma en í upphafi var von- að, að íeysa þessi mál. En nú er langþráðu marki náð og gleymast þá erfiðleik- arnir skjótt. Framvegis verður mögu- legt að gera blaðið betur úr garði en nokkru sinni fyrr. Tíminn verður nú 16 síðu blað og er ætlunin að hann verði fjölbreyttari að efni en áður. Markmiðið er að gera blaðið þannig úr garði, að öllum finnist þeir hafa þangað nokkuð að sækja til skemmtunar eða fróðleiks. Nú um skeið hafa blöðin orðið enn þýðingarmeiri þáttur í þjóðlífinu en áður var. Sennilega heldur þessi þróun áfram. Af þessu leiðir, að meiri kröfur verður að gera til blaðanna, ef vel á að fara. Þeir, sem að útgáfu Tím- ans standa, vilja gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að eiga þátt í eðli- legum framförum í þessu efni, og þess vegna er ráð- izt í hinar víðtæku endur- bætur, sem verða nú á Tímanum. Tíminn hefur átt því láni að fagna frá upphafi að eiga mikinn fjölda einhuga vina og stuðningsmanna um land allt. Ekkert er jafn þýðingarmikið blaða- útgáfu og slílcur vakandi stuðningur áhugamanna. Ég vil nota þetta tæki- færi, til þess að þakka þessum mönnum allt það, sem þeir hafa fyrir blaðið gert og ég læt í ljós þá von, að þeim fari sífellt fjölgandi, sem styðja blað- ið með ráðum og dáð, t. d. með því að stuðla að út- breiðslu þess og láta það njóta frétta og annars efnis, sem þeir hafa fram að leggja. Það er von okkar, sem að blaðinu stöndum, að með þeim endurbótum, sem nú verða á Tímanum, fær- umst við nær því marki en nokkru sinni áður að gera blaðið þannig úr garði að mönnum finnist þeir þurfa að kaupa og lesa Tímann til þess að fylgjast með tímanum. Eysteinn Jónsson Sófinn olli honum bana Þriðja dauSsfalI af völdutn þessara sófa Fréttir frá landsbyggðinni í SvíþjóÖ Nýlega fannst þekktur finnskur stjórnmálamaður, Eero Atikainen, látinn í svefn- sófa á hóteli í Stokkhólmi. Hann hafði komið til Stokk- hólms til þess að vera þar á þingi stéttasamtaka og bjó á hóteli, sem er eign sænska fyrirtækisins Reso, sem á mörg hótel víðs vegar um Svíþjóð. Svefnsófatogund þessi er þannig gjör, ag sé sófinn búinn sem rúm, er bak hans lagt fram á setuna, en fyrir aftan það er hólf, sem rúmfötin falla inn í eftir að þau hafa verið spennt niður. Ekki er að fuTlu vitað hversu þetta ein- staka slys bar að höndum, en uppi eru tvær getgátur, að gesturinn hafi legið á setunni og ba’kig fallið yfr hann, eða þá að hann hafi í svefn komið við útbúnaðinn, eem skellir bakinu upp og rúmið hafi hvolfzt með hann inn í skúffuna, og hann hafi fcafnað af. Hann mun verða krufinn tii þess að komast frekar fyrir um dánarorsökina. Þótt framkvæmdastjórnir þeirra gistihúea, sem hafa slíka sófa í sínum fórum, telji þá fullkomlega örugga, er það eigi að síður stað reynd, að nú þegar hafa orðið þrjú dauðaslys af þeim í Svíþjóð einni saman og minnst jafnmörg- um siysum hefur verig afstýrt á siðustu stundu. Málið er í rannsókn. &gæt aíIabrögÖ Djúpavogi, 26. jan. — Héðan róa nú tveir bátar með línu og net og eru þeir gerðir út af kaupfé- laginu. Róðrarveður hefur verið óvenju hagstætt í janúarmánuði, enda hafa bátarnir faiið í 14—15 róðra. Aflinn er um 100 tonn til jafnaðar á bát og þykir ágætt hér um slóðir. Fiskurinn er frystur, og atvinnuástand gott enda hefur fátt manna leitað burtu í vetur. — Veðurfar er hér með ágætum og sumarfæri víðast á vegum. — Komast bílar með góðu móti til Hornafjarðar. Fiskúrgangi (bein- um), er ekið hingað til vinnslu frá Breiðdalsvík, 84 km. leik. Heilsufar er gott hér í þorp- inu. Þ.S. Margfalt meiri afli Hornafirði í gær. — Bátarnir byrjuðu ag róa fyrstu daga í jan úar og hafa aflað ágætlega, Gæft- inn hér á land meiri fiskur en ir hafa verið miklar og er kom allan janúar o£ febrúar saman lagt í fyrra. Aflahæstu bátarnir em með 200—250 skippund. AA Hingað kom hann Herjólfur Hornafirði í gær. — Strandferða- skipið Herjólfur kom hingað í fyrsta sinn í gær og var vel fagn að. Skoðaði margt manna skipið og þótti það hið friðasta. Binda Hornfirðingar miklar vonir við það, að ferðr Herjólfs hingag bæti mjög samgöngur þeirra. Öll mjólk á einn bíl HvolsveUi, 23. jan. — Einmuna veðurblíða hefur verið hér frá áramótum og vegir ágætir yfir- ferðar í allar áttir, jafnvel betri en um hásumarið. Um síðustu helgi snjóaði þó nokkuð hér um slóðir en ekki olli það neinum truflunum. Mjólkurílutningar hafa því gengið með eðlilegum hætti í vetur, en mjólk minni en undanfarið vegna hinna lélegu heyja. Telji margir, að mjólkin sé þriðjungi minni en í fyrra, t.d. mun það ekki hafa hent fyrr, að masmmmí mjólk úr al'lri Fljótshlíðinni kæm ist á einu bíl. PE Nýjar raflínur Hvolsvelli, 23. jan. — Dilkar voru rýrari í haust en í fyrra og mun aði einu til tveimur kílóum miðað við meðal kroppþunga. — Verið er að mæla fvrir nýrri raflínu frá Hvolsvelii austur að Selja- landi undir Eyjafjöllum. Raflín- urnar til Vestmannaeyja og Selja lands eiga að liggja samsíða frá Hvolsvelli austur fyrir Affall, en skiftast þar. Þegar Seljalandslln- an kemst upp fá 12 býli í Vestur- Eyjafjallahreppi Sogsrafmagn, en á nokkrum þessum býlum eru vaitnsaflstöðvar fyrir. Nú er verið að aka hingað staurum í þessar nýju línur, og vona Eyfellingar fastlega að ekki dragist lengi línu lögn verði svo fram haldig frá Seljalandi og áfram austur. PE Svífur yfir Esjunni „Svífur yfir Esjunni sólroðið ský,“ segir I kvæði, sem oft er sungið þar sem menn eru i kát- um og glöðum hóp. Skýin, sem svifa yfir Esjunni á þessari mynd, eru þó ekki sólroðin, enda fær sólin sjaldnast miklu ráðið á þorranum. Önnur veður og vájyndari en sólskin mega sín þá meira, og þótt ekki sé mikill snjór á jörðu ennþá, er stundmn æði kuldalegt um að litast. Hún er Iíka kuldaleg, þessi mynd, og táknræn fyrir þorraveðurstemmningu. Hún er einmitt ennþá harðneskjulegri fyrir það, að snjó sér ekki nema í giljum og drö^um, því sam- felld, mjallahvít snjóbreiða get ur oft verið hlýlegri til að sjá en harðfrosin jörð, skreytt hvítum fannaborðum hér og þar- — Ljósm.: Ólafur Sigur- jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.