Tíminn - 02.02.1960, Blaðsíða 14

Tíminn - 02.02.1960, Blaðsíða 14
14 TÍMINN, þriðjudaginn 2. febrúar 1960. — Mér kom til hugar að fara til Moreworth-klausturs ins, og snæða morgunverð í rústunum þar, sagð: hann stillilega, — en ef þið getið ekki failist á þetta pá Hann horfði beint framan í Rósamundu, svo að hún komst ekkl undan að svara honum. — Jú, það væri fyrirtak, eða hvað segið þér til þess, Marteinn? Tom lá við að hreyta úr sér ónotum, en gætti sín í tíma. — Það er þitt að skera úr þessu, Rósamunda, sagði hann áður en Marteinn gat svarað spurningu hennar. Þetta tók Rósamunda sem nýja móðgun, því að hún var nú I því skapi, að henni þótti sér storkað, ef Marteini var ekki sýnd tilhlýðileg kurteisi. Charlotta tók eftir þessu öllu, og undraðist hve allt virtist ganga sér að óskum. Þó fann Rósamunda það ein hvern veginn með sjálfri sér, að hún var eitthvað ósann- gjörn, en gat samt ekki feng- ið si'g til að ahga sér öðru vísi. Henni var uppsigað í hvert skifti sem Tom opnaði varirn ar til þess að segja eitthvað en reyndi þó að bæla það niður og svara honum eins og hún var vön. — Já, það væri ljómandi skemmtilegt. Ættum við þá að fara á morgun? — Já, og viljið þér ekki slást í förina, ungfrú Sheldon? spurði Tom. — Jú, með mestu ánægju, svaraði hún þegar. — En þér, Dungal? Marteinn leit á Rósamundu til þess að sjá hvort hún ætl- aðist til að hann væri með þeim, því að honum gat ekki fundist betur en að hann hefði orðið þeim hjónaleys- unum að ágreiningsefni, hvernig sem á því stóð. Hann sá það nú á augnaráði Rósa- mundu, að hún óskaði þess að hann færi með þeirn, og tók hann þá boðinu með þökk um. Var svo ráð fyrir gert, að hann kæmi heim þangað nokkru fyrir hádegi daginn eftir, og þá ætlaði Tom að vera til staðar með vagn sinn, og aka þeim öllum til More- worth. Að svo búnu kvaddi Mar- teinn þau, en varð áður að lofa Sir Ralph því að borða þar morgunverð einhvern daginn áður en langt um liði. Ekkert var minnst á hina löngu burtveru hans, eða vandræði þau er hann hafði ratað i, og þóttist Marteinn þegar vita að Rósamunda myndi hafa séð svo til, að það var látið afskiptalaust, og var henni þakklátur fyrlr þá hugulsemi með sjálfum sér. Þó var hann ekki að hugsa um hana á leiðinni heim til sín, heldur um tíðindi þau er Guy Fielding hafði sagt frá þá um daginn. — Hún Della, sagði hann við sjálfan sig. — Já, það var ekki við öðru að búast af henni, en mér þætti fróðlegt eftir hvað valda myndi. Henni duldist það, að þessi geðbreyting var sprottin af því, að hún var ekki fullkom 25 lega ánægð með hlutskipti sitt, og henni duldist það líka, að hún hafði fellt hug til annars manns en þess, sem hún var heitin. Henni voru ekki ennþá kunnir allir leynd ardómar hjarta síns, og hún vissi það eitt, að lífið var eitt hvað mótdrægt, og að allt yíir höfuð virtist stefna I hjá sér hálfsmánaðar tima. Eg veit ekki hvort þig langar til að fara þangað, en mér er það ómögulegt eins og þú veizt. — Eg ætla að skrifa henni og afþakka boðið, svaraði Rósamunda. — Það er bezt að ég geri það þegar við er- um búin að borða, af því að ég verð að heiman allan dag inn á morgun, og get þá alveg gleymt því ef ég dreg það lengur. — Það er nýtt að sjá yður setjast við skriftir, sagði Char lotta og leit ekki upp, til þess að ekki skyldi verða tekið eft ir ánægjunni, sem ljómaði í F ramhaldssagan Charles Garvice: ÖLL , ÉL BIRTIR UPF m /L SÍÐIR að vita, hvort hún ætlar nú lika að segja til mln. Og skyldu nú þessir seinustu við burðir breyta í nokkru því ástandi sem var? Það má guð einn vita, en ég á einskis ann ars úrkostar en að láta hér fyrirberast og búa yfir harmi minum, og lofa guð fyrir að ég ligg ekki einhvers staðar steindauður með morðkut- ann milli herðanna. Honum varð ósjálfrátt reik að að beykitrjánum, þar sem þau Rósamunda höfðu setið saman, og kannaðist hann nú við staðinn þegar hann leit i kringum sig, og stundi við. — Vesalings Rósamunda litla, mælti hann í hálfum hljóðum. — Hvers vegna þarf allt að koma eftir dúk og disk í þessari veröld? Hins vegar hafði Rósa- munda dregið sig út úr og gengið upp í herbergi sitt og sezt þar við vinnu sína, því að hún var sér þess meðvit- andi að geðsmunir hennar voru óeðlilega æstir þennan dag. Henni var þetta svo nýtt, að hún fór þegar að grafast öfuga átt, en þó einkum og sér í lagi hún sjálf. Hvers vegna hafði hún allt út á Tom að setja þennan dag? Hún vissi það ekki, og gat ekki fundið neitt svar við þeirri spumingu. — Kannske það sé af þvl að ég er farin að eldast? sagði hún við sjálfa sig út úr vand ræðum. — Eg er farih að eld- ast og breytast eitthvað, þó að ég viti ekki að hvaða leyti. Henni flaug snöggvast í hug að bara þetta allt undir Tom, en hvarf frá því jafn- skjótt, þvi að henni fannst það synd að raska ró hans eða draga að nokkru leyti úr ánægju þeirri, sem skein út úr honum í hvert skifti sem hann virti hana fyrir sér. Charlotta var lika að hugsa um Tom Gregson um sama leyti, og var að brugga ráð sín til þess áð koma honum i snöru þá, sem hún ætlaði að leggja fyrir hann. — Meðal annarra orða, Rósamunda, sagði faðir henn ar við kvöldverðlnn. — Eg hef fengið bréf frá frú Ulster, og hún er að bjóða okkur að vera augum hennar, þegar hún að setjast við bréfaskriftir heyrði að Rósamunda ætlaði eftir kvöldverðinn. — Mér lætur það nú ekki rétt vel, sagði Rósamunda hlæjandi. — Eg veit aldrei um hvað ég á að skrifa. Er það eins með yður? — Nei, ég er aldrei í vand- ræðum með bréfsefni, svaraði hún þegar. — Charlotta er fyrirtaks skrifari, sagði nú frú Blair. — Kannske hún vildi hjálpa yður, ef þér bæðuð hana. — Ó, haldið þér að þér vild uð gera það? spurði Rósa- munda. — Já, það vil ég með mestu ánægju, svaraði Charlotta, og undraðist mjög, hversu allt var eins og lagt upp í hend- urnar á henni. — Eg held að ég fari þá úr þessu að tína saman öll bréf- in, sem ég þarf að svara, og biðja yður að hjálpa mér til þess, sagði' Rósamunda him- inlifandi, og varð guðs fegin að geta létt af sér þeirri byrði, að þurfa að annast öll bréfaviðskipti heimilisins. — Mig minnir að þér segð ust enga kunningja eiga, sagði Charlotta um leið og þær gengu upp í herbergi Rósamundu. — Við ættum að minnsta kosti ekki skilið að eiga neina. svaraði Rósamunda, — þvi að faðir minn er svo dæmalaust hirðulaus um þá. Það eru mest allt fjarskyldir ættingj- ar eða tengdafólk, og það er urmull af þeim, en við höfum annars lítið af þeim að segja, nema ef svo ber undir, sem þó er sjaldan, að einhver þeirra heimsækir okkur. Þetta eru allt samansaumaðir svíð ingar, ef maður þarf einhvers við, en svoleiðis eru víst allir ættingjar, eða er það ekki? Þeir vilja þó gjarnan látast sýna okkur ræktarsemi og eru að skrifa okkur við og við, og bjóða okkur að heim- sækja sig, en ég er viss um, að þeim er það ekki alvara, nema þá því aðeins, að þá vanti eitthvað I gestatöluna, enda er ég vön og afþakka þessi heimboð. Mig hefur raunar oft langað til að stríða þeim, en faðir minn héldi þá undir eins að mér leiddist hér heima, því að hann er mjög viðkvæmur fyrir öllu þess háttar. — Eruð þér búin að segja þeim frá trúlofun yðar? spurði Charlotta með ákafa. — Nei, svaraði Rósamunda, — og ætla mér ekki að gera það fyrr en ég má til. — Yður hlýtur að finnast hálf einmanalegt hér sbund- um, sagði Charlotta meðan Rósamunda var að ná bréf- unum úr skrifborði sinu, — en það er nú auðvitað allt öðru máli að gegna núna — síðan þér trúlofuðust — á ég við. — Já, svaraði Rósamunda blátt áfram. — Það hefur verið miklu líflegra héma síð an þið Tom komuð til sög- unnar. — Jæja, hvernig á ég nú að svara þessu? spurði hún og rétti Charlottu bréf eitt, en náði sér í penna og blek og bjóst til að skrifa eftir því sem hin læsi fyrir. — Þetta er heimboðið, sem íaðir minn var að tala um að hann gæti ekki þegið. Það er frá konu, sem er eitthvað tengd okkur langt fram i ættir, og við köll um hana alltaf „frú Ulster", en ekki veit ég hvemig á því stendur. Charlotta sagði henni nú hvernig hún skyldi afþakka EIRÍKUf víðförli Töfra- sverðið 50 Tsacha gcngur berserksgang með Töfrasverðið í hendi sér. Hermenn- imir falla eins og flugur fyrir hon- um. Bn ekki er hægt að segja að þeir aéu hræddir við dauðann, þeir gera allt er heir geta til að reyna að koma höggi á Tsacha. „Notið boga og örvar gegn þessum villimanni", hrópa,r Eiríkur. Tsacha veit að ef þeir fara að nota bogana gegn sér er úti um hann. Skyndi- lega rekur hann upp angistaróp. „Við hittum hann!-‘*hrópar einn hermaðurinn. En er þeir komu á staðinn þar sem Tsacha féll, er hann horfinn. Hann hefur skriðið hljóðlaust á brott inn í þéttan skógínn, og það er ógjörningur að ætla sér aS reyna að finna hann þar. Hann kemst áreiðanlega á bak hesti sínum, og er horfinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.