Tíminn - 09.02.1960, Qupperneq 2
2
T í MI N N, þriðjudaginn 9. febrúar 196«.
Rithöfundi
boðin dvöl
á Vár Gárd
nú í vor
Rithöfundasambandi íslands hef
ur borizt bréf frá sænsku sam-
vinnufélögunum, þar sem þau
bjóða íslenzkum rithöfundi til
ókeypis dvalar á skólasetri sínu
VSr GSrd í þrjár vikur, dagana 21.
marz til 10. aprfl næstkomandi.
Mörg undanfarin ár hafa rithöf-
undafélögin íslenzku fengið sams
konar boð, og hafa nokkrir íslenzk-
ir rithöfundar dvalið um skeið á
Vár Gárd-
Stjórn Rithöfundasambands fs-
lands biður þá rithöfunda, sem á-
huga hafa á að taka þessu boði, að
hafa tal af formanni sambandsins,
Birni Th. Björnssyni, Reykjvík,
eða ritaranum, Stefáni Júlíussyni,
Hafnarfirði.
Heimskringla gefur
út: Efnahagsmál
TaliS frá vinstri, John Hare, ráðherra, og formaður félags fiskkaup-
manna i Grimsby.
Nýlega er út komin bók eftir
Harald Jóhannsson, hagfræð-
ing, sem nefnist efnahagsmál.
Eins og nafnið bendir til, er í
henni fjallað um efnahagsmál
þjóðarinnar, en Haraldur er
bæði formaður stjórnar Útflutn-
ingssjóðs og Hlutatryggingar-
sjóðs bátaútvegsins.
Haraldur Jóhannesson er
fæddur í Reykjavik 1926, en ólst
upp á Akranesi. Hann stundaði
nám við menntaskólann hér, og
lauk hagfræðiprófi við Háskól-
ann í London 1956. Frá þvi að
greinaflokkur hans, Línur frá
Lundúnum, birtist í Þjóðviljan-
um 1951—1952, hefur hann að
staðaldri skrifað blaðagreinar
um efnahags og stjórnmál, og er
bók þessi, efnahagsmál, þriðja
greinasafn hans. Hin fyrri eru
Utan lands og innan, (1953) og
Menn og málefni, (1957).
Brezkir togaraeigendur herða
áróðurinn í landhelgismálinu
Stjórnmálafund-
ur í Borgarnesi
Framsóknarfélag Mýra-
sýslo efnir til almenns stjórn
málafundar í Stúkuhúsinu í
Borgarnesi sunnudaginn 14.
febr. kl. 2 e.h. Rætt verður
um efnahagsmálatillögur rík
isstjórnarinnar og verða
framsögumenn alþingismenn
irnir Halldór E. SigurSsson
og Ásgeir Bjarnason.
Fulltrúaráðs-
fundur
Fulltrúaráðsfundur verður
haldinn miðvikudaginn 10.
febrúar n.k. kl. 8,30 síðd. í
Framsóknarhúsinu (efri sal-
ur). Varamenn eru boðaðir.
Framsóknar-
konur
Framsóknarkonur í Rvík.
Munið fundinn sem hefst í
kvöld klukkan 9 í Framsókn
arhúsinu uppi. Frú Steinunn
ingimundardóttir ráðunaut-
ur Kvenfélagasambands ís-
lands flytur erindi um holl-
ar fæðutegundir og sýnir
skuggamyndir.
Aðalfundur
í Kópavogi
Framsóknarfélag Kópa-
vogs heldur aðalfund í barna
skólanum miðvikudaginn kl.
8,30. Venjuleg aðalfundar-
störf.
Ákveðið að John Hare, landbúnaðar- og sjávarútvegsmálaráðherra, verði
formaður brezku sendinefndarinnar á hafréttarráðstefnunni í Gsrcf í marz
Brezka ríkisstjórnin hefur
nú ákveðið, að John Hare,
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ijhálaráðherra, verði formaður
brezku sendinefndarinnar á
hafréttarráðstefnunni í Genf
í marz næst komandi Þá hef-
ur stjórnin boðið aðilum að
brezkum sjávarútvegi að
senda tvo fulltrúa á ráðstefn-
una til ráðuneytis sendinefnd-
inni.
Emi hefur ekki verið gengið frá
útnefni'ngu þeirra tveggja fuU-
trúa, sem brezkum fiskiðnaði er
boðið að senda á ráðstefnuna, en
líkur eni taldar til að þeir verði
sir Farndale Pillhips, formaður
félags brezkra togaraeiganda og
varaformaður þess, Joseph R.
Ck>bley.
6+6-ý-ó
Samkvæmt brezkum blöðum
ætla Bretar að halda sig að
bandarisku tillögunni, þeirri sem
lögð var fram undir lok hafi'éttar
ráðstefnunnar í Genf árið 1958,
sem við kölium sex plús sex
mínus sex tillöguna. En sú tillaga
Bandaríkjamanna var þess efnis,
að landhelgin Skyldi vera sex
mílur og fiskveiðilögsagan aðrar
sex mílur, með þeim óaðgengilega
annmarka þó, að útlendingum yrði
leyfð veiði að sex mílna landhelg-
islínu. Leyfi þetta fengju
þær þjóðir, sem hefðu
,,sögulegan rétt“ til slíkra frið-
inda, vegna þess að þær hefðu
situndað veiðar það lengi á þess
um svæðum. Þetta myndi að sjálf-
sögðu þýða það, að tólf milna
fiskveiðiíandhelgi yrði ekki nema
nafnið tómt.
Áróðursherferð í fullum
gangi
Fishing News skýrir frá því að
brezkir togaraeig reki nú áróður
sinn af fullum krafti. Bjóða þeir
tll sín ýmsum aðilum beggja meg
in Atiantshafsins með það fyrir
augum að afla málstað sínum fylg
is áður en ráðstefnan hefst. Þá
hefur áður verið skýrt frá þvi hér
í Tímanum, að brezkir togaraeig-
endur kaupa nú heilsíðu auglýs-
ingar í ýmsum helztu stórblöðum
í Evrópu, undir áróður sinn. Sam-
kv. Fishing News verður nú enn
hert á þessum áróðri.
Sslenzk þögn
Á sama tíma heyrist efckert héð
an frá ÍSlandi á erlendum vett-
vangi til a<5 vega upp á móti
áróðri brezkra togaraeigenda. Síð-
an núv. ríkisstjórn kom til valda,
hefur ekkert verið aðhafzt í þá
átt. Núna er þýðingarmesti tíminn
runninnn upp fyrir okkur íslend
inga i landhelgismlinu, og dugir
ekki að sofa á verðinum fram að
þeim tíma að ráðstefnan hefst.
Tíminn er þegar orðinn naumur,
og brezkir togaraeigendur ætla
sýnilega ekki að láta sitt eftir
Uggja, hvað áróðurinn snertir
fi'am að þeim tíma að ráðstefnan
hefst.
„Musica Nova”
Sjö ungir tónlistarmenn
hafa stofnað samtök er þeir
nefna Musica nova Ætla þeir
að, halda 4 tónleika á ári og
verða 2 þeirra helgaðir nú-
tima tónlist eftir ung íslenzk
tónskáld.
Stofnendur samtafcanna eru
eins og fyrr segir þeir Einar
Sveinbjörnsson fiðluleikari, Fjöln
ir Stefánsson, tónsfcáld, Gunnai'
Egilsson, ldarenettleikari, Ingvar
Jónasson, fiðluleifcari, Jón Norð-
dal, tónskáld, Magnús Bl. Jóhanns
son, tónskáld og Sigurður Markús
son, fagottleifcari.
Fyrstu tónleikarnir verða haldn
ir í Þjóðleikhúskjallarunum ann
að kvöld (miðvifcudag) kl. 8,30
e.h. og verður flutt tónlist eftir
Beethopven, Hugo Wolf, Proko-
fieff og Ibert.
Næstu tónleikar vei'ða í marz
n.k. og mun þá eingöngu verða
flutt verk eftir íslenzk tónskáld,
þá: Fjölni Stefánsson, Leif Þórar
insson og Magnús Bl. Jóhannsson.
Tónleikar Musica nova verða
með öðru sniði en verig hefur hér
á landi Verða þeir haldnir í Þjóð
leikhúskjallaranum eins og fyn
var sagt og geta menn í'engið sér
veitingar á undan tónleikunum
og í hléi.
Þannig fyrirkomu'lag tónleika
hefur notið miikilla vinsælda er-
lends, en er óreynt hér á landi
til þessa, en hlutaðeigendur
vænta sér þess að svo muni
einnig verða hér.
Innihald
Of langt mál yrði að rekja efnl
bókarinnar hér að nokkru gagni,
og verður því að nægja að segja
frá aðalfyrirsögnum kafla í
henni, en með því móti fæst
nokkur hugmynd um innihaldið,
sem er að vonum fróðlegt og at-
hyglisvert: Fyrsti kafli fjallar
um útflutninginn og þjóðarbúið,
annar um tekjur, hinn þriðji um
fjárfestinguna, fjórði um stefn-
una í efnahagsmálum, og hinn
fimmti og síðasti umríkið og
efnahagsmálin. Bókin er 200
blaðsíður að stærð prentuð í
prentsmiðju Jóns Helgasonar, en
Heimskringla gefur bókina út.
IVIarklausir
útreikningar
Við 1. umræðu um efnahags-
máiafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar. nefndi Þórarinn Þórarins-
son eitt dæmi þess, hvílík
markleysa þeir útreikningar
væru, sem gerðir eru af svo-
kölluðum sérfræðingum rikis-
stjórnarinnar.
Þegar gengið var frá lög-
gjöf um tekjuöflun Útflutnings
sjóðs í fyrravetur, lágu fyrir
yfirlýsingar frá sérfræðingum
ríkisstjórnarinnar um það, að
mjög sæmilega væri séð fyrir
tekjuöflun sjóðsins á árinu
1959. Þáv. forsætisráðherra
lýsti svo yfir því bæði fyrir
kosningarnar í júní og október,
að afkoma og afkomuhorfur
sjóðsins væru góðar á árinu, og
hefur hann vafalaust gert það
í samráði vif sérfræðinga sína.
f greinargerðinni fyrir efna-
hagsmálafrumvarpinu segir
svo, að hallinn á rekstri Út-
flutningssjóðs 1959 verði senni-
lega 180 millj. kr.
Þórarinn sagði, að þetta
sýndi vel, að ekkert væri hægt
að byggja á áætlunum og út-
reikningum þeirra svokölluðu
sérfræðinga ríkisstjórnarinnar.
Á síðastl. vetri, vildi stjórnin
komast hjá nýrri tekjuöflun fyr
ir kosningarnar, og þá búa sér
fræðingarnir til mjög óvarlega
áætlun. Nú vildi stjórnin hins
vegar leggja á sem mestar
álögur, og þá rembast sérfræð-
ingarnir við að reikna hallan
sem mestan!
Ingvar Jónsson og Einar Sveinbjörnsson koma fram á tónleikum Musica
Nova, sem haldnir verSa næstkomandi miSvikudagskvöld kl. 20:30 í ÞjóS-
lelkhúskjallaranum.