Tíminn - 09.02.1960, Side 10
10
TÍMINN, þriðjudaginn 9. febrúar 1960.
í dag er þriðjudagurinn
9. febrúar
Tungl er í suðri kl 21,43.
Árdegisflæði er kl. 3,40.
Síðdegisflæði er kl. 15,50.
MORGUN-
SPJALL
Apolloma kallast dagur þessi
og mun kenndur við Apollon
hinn gríska guð og son Seifs og
Letu, tvíburabróður Artemis.
Apolion var fæddur á eyjunni
Delos en hélt brátt til Delfi og
drap drekann Python og lagði
undir sig hina frægu véfrétt eða
spáhofið.
Slík er frægð dagsins að fornu,
en að nýju er það helzt að nefna
um þennan dag, að þá er Kambs-
ránið framið fyrir 133 árum og
þann dag dó Baldvin Einarsson
árið 1833.
Ef atburði þá, sem nú eru að
gerast hér, ætti að ættfæra til
einhvers þeirra söguatburða, er
nefndir voru, fer vart milli mála,
hvert þeim er í ætt skotið —
auðvitað til Kambsránsins.
Fékk 30« doll-
GLETTUR
ara styrk
I desember siðastliðnum aug-
lýsti menntamálaráðuneytið eftir
umsækjendum um styrk, að fjár-
hæð 300 dollarar, er íslendingar,
í San Francisco höfðu lagt fram fé1
til og ætlaður var íslenzkum stu-
dent til verkfræðináms í Banda-
ríkjunum.
Umsóknarfresturinn er nú 115-
inn, og hefur styrkurinn verið
veittur Oddi Benediktssyni frá
Beykjavík, en hann stundar nám í
vélaverkfræði við tækniháskóla í
borginni Troy í New York-riki.
Menntamálaráðuneytið,
8. febrúar 1960.
Pennavinur
Ungur íslandsvinur í Noregi hefur
sent blaðinu bréf og biður um að
fá nafn sitt birt ef ske kynni a3
einhver jafnaldri hans vildi skipta
á bréfum við hann. Hann er 15 ára,
safnar frimerkjum og skrifar auk
síns móðurmáls, dönsku, ensku og
þýzku. Heimilisfangið er: Björn
Myhre, Eklundveien 19, Fredrikstad,
Norge.
„Reykjafoss"
fer frá Reykjavik föstudaginn 12.
febrúar til Vestur- og Norður-
lands.
Viðkomustaðir:
ísafjörður
Siglufjörður
Akureyri
Svalbarðseyri
Húsavlk
á miðvikudag og
Vörumóttaka
fimmtudag
Hf. Eimskipafélag fslands
Kari: — Við höfum erft eina
frænku mína.
Ella: — Eg hetfði nú heldur
viljað að við hefðum erft pen
inga.
— Eg geri allt sjálfur til þess
að vera viss um, að það sé sæmi
lega gert.
— Jæja, mér sýnist líka, að
þú hefðir klippt þig sjálfur.
— Þarna ekur hættulegasta
kona bæjarins.
— Hvað segirðu maður. Bless
aður sýndu mér hana og kynntu
okkur.
— Hún fékk netfmilega ökuskír
teinið sitt í gær.
. Knattspyrnuleikur Eskimóa er
mjög vinsæll í Alaska. Leikurinn
er mjög harður, en leikr'eglur
emnig strangar. Morðtilraunir af
yfiríögðu ráði eru nefnilega bann
aðar í leknum.
Ég skal verja okkur hérna megin,
ef þú dugir og lætur Ijónin ekki
komast fram hjá þér.
Ja, þið kannizt við hið frábæra
lag og Ijóð:
— Kjærringa med staven.
— Það eru verkin en ekki orð
in, sem eitthvert verðgildi hafa
í þessum heimi.
— Jæja, hefurðu aldrei sent
símskeyti til Nýja Sjálamds?
— Kvænstu ekki til fjár, mundu
það drengur minn, sagði Ferdi
nand heimspekingur, vifí son
sinn. — Þú skalt kvænast vegna
ástarinnar einnar. En gættu þín
hins vegar vel að verða ekki ást
fanginn af fátækri stúlku.
Það hefur komið í ljós við at
hugun, að konur eldast fyrr en
karlmenn.
— Hvað er til márks um það?
— Konur fara venjulega að
missa minni um þítugt.
— Hvað segirðu, maður?
— Já, þá gleyma flestai konur
því, hvað þær eru orðnar gamlar.
— Hafa komið nokkur bréf til
mín, kona?
— Já, það eru þama nokkur
bréf, en þau eru öll nauðaómerki
leg.
DENNI
— Nel, þa3 er ekki bara drulla I
þessu kökum, ég fékk hjá þér kakó, _ __ . _ _ , . . . _ .
hveltl, smjör .... D/EMALAU5I
Úr kvölddagskránni
f kvöld ki. 21 er á dagskrá út-
varpsins þáttur sem ástæða er til
að vekja sér-
staka athygli á.
Hann heitir:
„Sortanum birta
bregður frí“ —
dagskrá um
Bjarna Thorar-
ensen. tekin
saman af dr.
Steingrími J.
Þorsteinssyni
prófessor.
Fer hér hvort tveggja saman, að
fjallað verður um verk og líf eins
bins snjailasta skálds íslendinga
og af manni. sem ekki mun fara
um efnið neinum óvitahöndum.
Þetta er útvarpsefni, sem fólk
ætti ekki að láta fram hjá sér
fara.
— Hvað kostar afcsturinn, bíl
stjóri.
— Hann kostar 30 krónur.
— Þá verðið þér að aika spöl
kom til baka. því ég hetf ekki
nema 20 krónur á mér.
K K
I A
D L
D D
I I
Jose L.
Saiinas
5
Pankó: Dýrið er mannskætt. Ættum
við ekki að snúa aftur, vinur?
Kiddi: Nei, alls ekki.
Kiddi: Við höfum hlaðnar byssur og
góða hesta Hvað skyldum við svo sem
þurfa að óttast?
Pankó: Ég óttast ekkert, en þetta
skrýmsli er ef til vill tíu feta Iangt.
Kiddi: Komdu. Við ættum ekki að
sleppa tækifærinu til að sjá þetta furðu-
verk.
D
R
E
K
!
Lee
Fc'
ú
Axel læknir: Ég hef aldrei séð neitt
'iessu líkt. hvernig þá gazt ráðið niður-
lögum þriggja vopnaðra bófa.
Dreki: Kanneske þeir gerðu næstum
út af við mig. Ég er með þrjár kúlur í
;krokknum. Farðu með mig inn í frum-
kóginn, Axel læknir.
Einhvern veginn tókst mér að lyfta
hinum þunga líkama upp á hestinn.
Dreki: Það þarf að fjarlægja kúlurnar,
Axel læknir.
Axel læknir: Ég hugsa að ég geti það
ekki. Ég er hræddur.
Dvergarnir horfa hjóðir á.