Tíminn - 12.02.1960, Blaðsíða 1
BlaStnu bætast stöðugt
nýir kaupendur á degi
hverjum.
u
44. árgangur — 34. tbl.
Fylglit meS breytlngunnl
á bleðlnu, hringlð i sima
1 23 23 og gerizt áskrif.
endur. :
Föstudagur 12. febrúar 1960.
Andmæla að-
gerðum ríkis-
stjórnarinnar
í gær barst blaðinu eftirfarandi
fundar'samþykikt:
Almennur sveitarfundur í Skútu
staðahreppi, haldinn í Skjól-
brekku 4. febr. 1960, mótmælir
harðlega fyrirhuguðum efnahags-
aðgerðum rikiss'tjórnarinnar, en í
þeim felst yfir 100% gengislækk-
un, aukinn söluskattur svo skipt-
ir hundruðum milljóna, hækkun
vaxta o.s.frv. Fundurinn lítur svo
á, að þar sem framleiðsla þjóðar
innar hefur aldrei verið meiri,
sem er afleiðing aukinnar tækni
og framfara, hefði ha-gur bænda,
verkamanna, sjómanna og alls
vinnandi fólks átt að geta batnað
ertórlega. Með þessum fyrirhuguðu
efnahagsaðgerðum verða kjör al-
mennings hins vegar svo freklega
skert, að varla eru dæmi til. Fund
urinn álítur enn fremur að sú
'skerðing á kaupgetu almennings
í bæjunum, sem af aðgerðum þess
um leiðir, muni óhjákvæmilega
draga verulega ur kaupum land-
búnaðarframleiðsiu, og bitna ráð
stafanir þessar því margfaldlega
á stétt bænda.
(Framháld á 3. síðu).
Þessi mynd var tekin í gær í flokksherbergi Framsóknarflokksins í Alþingishúsinu. Sýnir hún hluta af þingflokknum
sem þar hefur komið saman til skrafs og ráðagerða um þau afdrifaríku mál, sem nú liggja fyrir Alþingi. Ljósm: KM.
Afstaða Framsóknarflokksins:
Efnahagsmálafrumvarp ríkisstjórnarinnar
verði fellt með rökstuddri dagskrá
I staðinn verði neínd, skipuð fulltrúum allra bing-
flokka, látin vinna að réttlátari lausn
Efnahagsmálafrumvarp ríkisstjórnarinnar var til 2. umr. í neðri deild Alþingis í gær.
Fram komu þrjú nefndarálit frá fjárhagsnefnd. Framsóknarmenn skiluðu sér nefndaráliti
og hafði Skúli Guðmundsson framsögu.
Deildi hann harðlega á stefnu ríkisstjórnarinnar og er birtur útdx-áttur úr ræðu hans á bls. 7. —
Skúli taldi að unnt væri að leysa þann vanda, sem nú er við að glíma og minni væri en oftast áður,
á réttlátari og hagkvæmari hátt. Las Skúli síðan upp dagskrártillögu þá er Framsóknarmenn flytja
og er hún svohlióðandi:
„Þar sem deildin lítur svo á, að þjóðarnauðsyn sé, að unnið verði að skipan efna-
hagsmálanna með sem víðtækustu samstarfi, álvktar hún að beina bví til ríkisstjórnar-
innar að skipa nú þegar átta manna nefnd — tvo frá hverjum þingflokki eftir tilnefn-
ingu þeirra — og verð? verkefni nefndarinnar:
1. Að gera tillögur og leggja þær fram á þessu þingi — innan þriggja vikna — um
ráðstafanir, er miðist við að halda verðbólgunni í skefjum og atvinnulífinu í
fullum gangi.
2. Að starfa milli þinga á þessu ári og hafa tilbúnar fyrir næsta reglulegt alþingi
heildartillögur um skipan efnahagsmálanna.
Og með skírskotun til þess, er að framan segir, tekur deildin fyrir næsta mál.
r- r
Fyrirspurn LIU til færeysku sendi-
nefndarinnar ber engan árangur
Skeytinu ekki
svarað enn þá
Hinn 5 febr. hafði Tíminn
það eftir Friðrik Hansen,
landsþingsmanni Færeyja er
var einn þerra þriggja nefrxd-
armanna. sem hingað komu
frá Færeyium til þess að
reyna að komast að samkomu-
lagi um kaup og kjör fær-
eyskra sjómanna í íslenzka
ílotanum. að markmið nefnd-
arinnar hsfði verið að tryggja
færeyskum sjómönnum sömu
kjör og þeir nytu i heima-
(Framhald á 3. síðu).