Tíminn - 12.02.1960, Blaðsíða 2
2
i
TÍMINN, föstudaginn 12. febrúar 1960.
Hafdfs á sigllngu inn f höfnina f Vestmannaeyjum.
Fréttir frá landsbyggðinni
Er þaft friSunin ?
Hólmavík, 8. febr. — ViB Hólm-
vikingar teljum okkur mega vera
ánægða meg aflabrögðin hér í
vetur, þó að þau þyki kannske
ekki stórkostleg miðað við það
sem bezt geiizt annars' staðar. En
hér hafa þau ek'ki verið jafn góð
um mörg undanfarin ár. Hafa bát-
. arnir komizt upp í 14 þús. pund í
róðri. Vera má ag áhrifa friðunar-
innar sé farið að gæta og verður
það þá vonandi í auknum mæli
eftirleiðis. Atvinna er af þessum
sökum með mesta móti og fátt
fólk hefur leitað burtu.
H.S.
Kirkjukóramót
Miðfelli, 8. febr. — Töluvert fé-
ekki hvað sízt þakka það ung-
ekki hva ðsízt þakka þag ung-
mennafélaginu. Nýlega er afstað-
ið á vegum þess grímuball, sem
haldið var í félagsheLmilinu á
Flúðum. Var það ágæt skemmtun
og verðlaun veitt fyiir beztu bún-
inga. Þá eru og haldnir taflfundir
og spilakvöld.
Kirkjukórar hér austan fjalls
hafa í undirbúningi að halda söng
mót seinnipartinn í maiz. For-
göngu um þag hafa að þessu sinni
kórar úr uppsveitum Árnessýslu.
Eru æfingar undir mótig að ein-
hverju leyti byrjaðar og mun Sig
urður Ágústsson í Birtingaholti
sjá um þær að nokkru, a.m.k. —
Fjórtán kórar eru nú í samband-
inu. S.G.
Símabilanir
Blönduósi, 9. febr. — Ofsalegt flóð
hljóp í Blöndu um síðustu helgi.
Ruddist hún upp á bakkana hjá
Æsustöðum og braut þar í for-
dæðuskap sínum 8 símastaura. Þá
brotnuðu 3 símastaurar vestan
Hnausahvíslar í Þingi og 1 vestan
við Miðbjarðarbrú.
Hér er auð jörð og ágætis veð
ur. Reytingsafli er á Skagaströnd.
Fá bátarnir 5—8 tonn í róðri.
S.A.
Nýtt bifreitSaverkstaeSi
Selfos'si, 8. febr. — Bifreiðaverk-
stæðið Stefnir á Selfossi hefur
flutt í ný húsakynni við Austur-
veg. Meiningin er ag reka þar bif-
reiðaviðgerðir, viðgerðir á drátt-
arvélum og öðium landbúnaðar-
verkfærum, ásamt verzlun með
varahluti í vélar. Hið nýja verk-
stæðishús er 240 fermetrar að
stærð og hið vistlegasta. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins er
Haraldur Bachmann en stjórnar-
formaður Snorri Árnason. T.G.
Ágætar gæftir
Þorlákshöfn, 8. febr. — Afli hefur
verið sæmilegur hér að undan-
förnu og gæftir ágætar oftastnær
í vetur, þó að landlega sé að
sönnu í dag. Héðan róa 8 bátar.
Aflahæstur er nú Friðrik Sigurðs
son með 132 tonn, Þorlákur ann
ar með 116 tonn og Páll Jónsson
með 107 tonn. Á.B.
Allir vegir færir
nema Oddsskarft
Eskifirði, 5. febr. — Indælisveð-
ur er hér og alautt. Allir vegir
eru færir nema Oddsskarð. Tveir
bátar róa héðan og eru í útilegu.
Þeir öfluðu 6'æmilega í janúar en
nokkur fiskitregða er upp á síð-
kastið. Aflinn er frystur og salt-
aður. Atvinna má ekki minni vera.
Nokkuð veiddist af síld hér í sum
ar. Töluvert af henni fór út í
haust, en við hitt, um 600 tunnur,
er verið að vinna núna. Á.J.
Bátur væmtanlegur
frá Danmörku
Stykkis'hólmi, 8. febr. — Héðan
róa 4 bátar en afli er fremur treg
ur. Hefur hann yfirleitt verið 4—
6 lestir í róðri miðað við fisk upp
úr sjó. Má því segja að fremur
sé dauft yfir atvinnulífinu og hef-
ur ríkt hálfg'ert vandræðaástand í
þeim efnum síðan um áramót. Ef
fiskirí verður sæmilegt má búast
við að betur horfi þegar kemur
fram á vetrarvertíðina, því von er
þá á tveimur bátum hingað til við
bótar. Annar þeirra er raunar
héðan en er haldið út frá Grund
arfirði nú á vetraivertíðinni
Hinn er nýr, smíðaður í Danm.,
70 lestir að stærð og er eigandi
hans Þórsnes h.f., en kaupfélagið
er hluthafi í því félagi. KBG
Góíur sumarauki
Stykkishólmi, 8. febr. — Jarðýta
er nú að vinna hér í Helgafells-
sveitinni og hefur svo verið síðan
um áramót. Mun það vera sjald-
gæft á þessum_ tíma ái's ef ekki
einsdæmi hér. Ýtan hefur verið að
ryðja út uppmokstri úr 6'kurðum.
Þegar því er lokið hefur jarðýtu-
stjórinn, sem er Ingólfur Hannes
son, hugsað sér að hefja plæging-
ar, ef ekki spillist tíð. Klaki er
s'áralítill í jörð, aðeins þunn skel.
Þykir mönnum það að vonum góð-
ur gumarauki að geta unnið að
jarðýtustörfum á þorra. KBG
Námsstyrkur
Borgarstjórinn í Kiel mun veita
íslenzkum stúdent styrk til náms-
dvalar við háskólann þar í borg
næsta vetur.
Um þennan styrk geta sótt all
ir stúdentar, sem hafa stundað
hásikó'Ianám a.m.k. tvö miss'eri i
guðfræði, lögfræði, hagfræði,
iæknisfræði, málvísindum, nátt-
úruvísindum, heimspeki, sagn-
fræði og landbúnaðarvísindum. —
Tekið er fram, að vegna þrengsla
er aðgangur takmarkaður að
námi í lyfjafræði, 6ýklafræði og
efnafræði. Umsækj endur verða að
hafa nægilega kunnáttu í þýzkri
tungu.
Styrkurinn nemur 2500 mör'k-
um til dvalar í Kiel frá 1. okt.
1960 til 31. júlí 1961, auk þess
sem kennslugjöld eru gefin eftir.
Ef styrkhafi óskar eftir því með
nægum fyrirvara, verður honum
komið fyrir í stúdentagarði, þar
sem greidd eru um 130 mörk
mánuði fyrir faéði og húsnæði.
Styrkhafi s'kal vera kominn ti'l
háskólans ekki síðar en 15. okt.
1960, til undirbúnings undir nám
ið, en kennsla hefst 1. nóv.
Umsóknir um 6'tyrk þennan skal
senda skrifstofu Háskóla fslands
eigi síðar en 1. maí n.k. — Æs'ki
legt er ag nám.svottorð og með-
mæli fylgi umsóknum.
Hafdís sprakk og
sökk i gærmorgun
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, brann m.b. Haf-
dís, eign Helga Benónýssonar,
útgerðarmanns í Vestmanna-
eyjum, í Grindavíkursjó í
fyrradag, eftir að eldur kom
upp í vélarúmi bátsins. Varð
engum vörnum við komið og
yfirgá'fu skipverjar bátinn,
sex að tölu.
Þeir biðu í gúmmíbát eftir að
Flóakiettur kæmi á vettvang og
komu með honum til Grindavíkur
seint í fyrrakvöld.
Báturinn stóð svo í björtu báli
í fyrrinótt, og sögðu sjómenn á
þessum s'lóðum, ag lýst hefði af
honum eins og logandi kyndli.
Þegar leið á nóttina varð Hafdís
alelda stafna á milli. Skipverjar
á Hilmi voru þá í námunda við
skipið. Allt í einu kvað við mikil
sprenging í Hafdísi og skömmu
síðar seig báturinn í djúpið.
Hafdis var nýkomin frá Noi'egi,
þar sem fram höfðu farig gagn-
gerðar endurbætur á bátnum. Var
báturinn endurbyggður að mestu.
Hafdís var 80 lestir að stærð. Hún
var gei'ð út frá Hafnarfirði i
vetur.
Breyttu skóla í
slysavarnaskýli
Eins og mörgum er kunn-
ugt hefur byggð dregizt mjög
saman á norðanverðum Vest-
fiörðum, Sléttuhreppur er
fyrir nokkrum árum allur í
auðn, og í haust fór Reykja-
fjörður á Ströndum 1 eyði.
Gamlir og ungir íbúar Sléttu-
hrepps hafa myndað með 6'ér átt-
hagafélag í Reykjavik, og koma
íbúar hreppsins sem búsettir eru
á í.safirði og Hnífsdal árlega sam
an til þorrabLóts á ísafiiði. —
Á þorrablóti í fyrra kom fram sú
tillaga, að gefa slysavarnadeildinni
á ísafirði minningargjöf um þá
mör'gu sjómenn sem fórust frá
Að'alvík 1915 og 1924.
SkólahúsiS
Átthagafélag Sléttuhrepps í Rvík
hafði fengið umráðarétt yfir barna
skólanum að Sæbóli, og var hafizt
handa um að útbúa skólann sem
slysavarnaskýli í Aðalvík. Leitað
var samskota meðal Sléttuhrepp-
inga á ísafirði og Hnífsdal, og
söfnuðust 6140 kr., og var því
varið til endurbóta á skólanum.
f sumar voru súðir settar á skól
ann, og smíðaðir hlerar fyrir
glugga, og skólinn málaður innan.
Á Þverdalsgrundum í Aðalvík
var gamallt og lítið skýli, sem var
alveg úr sér gengið, og nú voru
föt, matvæli og eidunaráhöld
flutt þaðan í skólann og bætt við
það sem á vantað'i.
Afhentu skólann
Forgöngu í málinu hér höfðu
frúrnar Steinunn Jakobsdóttir og
Guðný Sveinsdóttir. Vinnu við
skólann gáfu þeir Ingimar Guð-
mundsson frá Þverdal og Jón
Magnússon frá Stað og kona Jóns
Margrét Magnúsdóttir. Á fundi í
kvennadeild Slysavarnarfél. ísa-
fjarðar 29. jan., afhenti frú Stein
un Jakobsdóttir f.h. Átthagafélags
ins í Reykjaví'k og söfnunarnefnd
arinnar á ísafirði, slysavarnar-
deildinni skólann til afnota sem
s'lysavarnaskýli í Aðalvík, ásamt
peningagjöf sem var eftinsföðvar
af söfnuninni.
Átthagafélagið í Reykjavík mun
næsta sumar gefa fullkomna tal-
stöð í skýlið. — Önnur slysavarna
skýli í Sléttuhreppi eru að Sléttu
í Jokulfjörðum, Atlastöðum og
Höfn í Hornafirði. GS.
Framsóknarvist
Næsta Framsóknarvistarsam-
koma FramsóknarmaniM í Rvík
verður n.k. fimmtudagskvöld 18.
þ.m. í Framsóknarhúsinu. Þeir
Egill Bjarnason og Þráinn Valdi
marsson h.afa lofað að sjá um
að mikið verði sungið. Og Vigfús
hefur ennþá látið undan áskor
unum að stjórna þessari Fram-
sóknarvist.
Þag er varla að efa að þetta
verður fjörug og fjölsótt sam-
koma. Þátttakcndur ættu fremur
fyrr en seinna að tryggja sér
aðgöngumiða í sínia 16066 eða
19613.
Stjórnmála-
námskeiðið
Næsti fundur stjórnmála-
rámskeiðsíns verður í Fram-
sóknarhúsinu í kvöld kl. 8,30.
Umræðuefni:
Er þegnskylduvinna heppileg
leið til að leysa úr manneklu
islenzka fiskiskipaflotans?
Framsögumenn: Skúli Sigur-
grímsson og Guðmundur Þórð
arson.
Flokksstarfiö í bænum
Félagið Framherji heldur fund i Framsóknarhúsinu
uppi n.k. sunnudag kl. 2.
1. Þórarinn Þórarinsson alþm. ræðir um stjórnmála-
viðhorfið. —
2. Félagsmál.
Aljir Framsóknarmenn innan launþegasamtakanna eru
velkomnir á fundinn.