Tíminn - 12.02.1960, Blaðsíða 14
14
T f MIN N, föstudaginn 12. febrúar 1960.
og fór 1 humátt á eftir hon-
um til þess a5 hlera, hvað
þeim færi á milli, Marteini
og þessari áfjáðu kvenper-
sónu, sem hafði hálf-ógnað
honum ti'l þess að leita uppi
húsbónda sinn og fá hann á
tal við sig. Stóð hann nú á
gægjum og sá, að Marteini
hnykkti mjög við þegar hann
sá, hver kvenmaðurinn var,
sem beið hans. Lagði hann
við hlustirnar sem bezt hann
mátti og heyrði' kveðju þeirra,
ef kveðju skyldi kalia.
— Guð minn góður! heyrði
hann að Marteinn sagði í und
arlega óskýrum málrómi eins
og hann sypi hveljur. — Ert
þú — lifandi?
Kvenmaðurinn hló lágt við
og sagði:
— Og þér þykir ekkert vænt
um að sjá mig? Þú hefur hald
ið að ég væri dauð — eða
hvað? — Og þú syrgir mig
þá svona!!
Hún brá hendihni bak við
eyrað, eins og hún væri að
hlusta eftir hljóðfæraslættin
um, sem ómaði um allt húsið.
—. Við getum ekki talazt
við hérna, heyrði Tómas
húsbónda sinn segja og sá,
að hann skimaði allt i kring
um sig og gekk um hliðardyr
nokkrar út úr húsinu með
þennan einkennilega gest
sér við hlið.
Tómas reikaði um anddyr-
ið og stigann í þrjá klukku-
tíma og það var komið.undir
dögun og allir gestirnir farn
ir þegar hann sá loks hvar
húsbóndi hans kom inn aftur
náföíur og illa til reika. Tóm
as veitti þessu eftirtekt og
festi það í huga sér ásamt
öðru fleiru, sem fyrir hann
hafði borið þetta kvöld, og
grunaði þá sízt, að þessir at
burðir gætu orðið til þess, a
koma húsbónda sínum allt að
fangelsisdyrunum.
Þegar Rósamunda varð vör
við fjarveru manns síns, hélt
hún fyrst að hann hefði geng
ið inn í borðsalinn með ein-
hverjum gesti sínum, en þeg
ar hún loks sá sér færi á að
komast þangað og fá sér hress
ingu, þá sá hún Martein
hvergi.
Eftir því sem lengra leið án
þess að hún kæmi auga á
hann, fór hún að hugsa hvort
honum mundi hafa orðið
snögglega i'llt, og ekki viljað
segja henni frá því, til þess
að spilla ekki' veizlugleðinni.
Guy sá að systir hans var að
skima allt í kring um sig, eins
og hún væri að leita að ein-
hverjum, og gekk til hennar
og spurði hana, hvort hann
gæti verið henni hjálplegur.
— á, ef þú vilt gera svo vel,
svaraði hún fegin. — Eg hef
hvergi komið auga á Martein
nú um langan tima, og hélt
að hann væri kannske í borð
salnum, en svo gekk ég þang
að og sá að hann var þar ekki.
Eg hélt þá, að hann hefði
gengið eitthvað annað, en ég
hef hvergi orðið hans vör.
Þó hef ég verið að svipast um
eftir honum.
Guy fór að stríða henni á
því, að hann sæti sjálfsagt í
gróðurhúsinu á tali við ein-
hverja blómarósina, og gerði
þessi' ertni hans ekki annað,
en auka angist Rósamundu.
En þegar Guy sá, að systir
hans tók sér þetta svo nærri
þá bjóst hann þegar að leita
að mági sínum.
Guy fann hann hvorki í
dans-salnum, borðsalnum eða
setustofunum. Gekk hann þá
til svefnherbergis hans, og
hélt að hann hefði kannske
orðið eitthvað lasinn, en
hvergi fann hann Martein.
Hann fór þá að ympra á
þessu við þjónana með mestu
hægð, en það virtist svo sem
enginn þeirra hefði séð hann
æði lengi', enda þagði Tómas
yfir komu hinnar ókunnu
konu. Guy sá nú samt sem áð
ur, að hann varð að hafa ein
hver ráð til að friða Rósa-
mundu, því að annars mundi
hún láta hugfallast, og þá
ekki geta gegnt húsmóður-
skyldum sínum. Hann sagði
henni' þá, eins og hann raun
ar sjálfur hélt að væri, að
Marteini hefði orðið ómótt
af hitasvækjunni, og hefðl
þess vegna gengið út sér ti'l
hressingar, en kæmi undir
eins aftur og þetta liði frá.
En loks leið að þeim tíma
að gestunum þótti' mál komið
að fara að búast til burtfar-
ar, og varð Sir Ralph þá að
34
kom í stað húsbóndans, og
kveðja þá ásamt dóttur sinni.
Hafði hann orð á því, að
tengdasonur sinn hefði ör-
magnast af hitanum og legið
við yfirliði, og bæði hann þá
innilega afsökunar á fjarveru
sinni.
Rósamunda harkaði aðdá-
unarlega af sér meðan gest-
irnir kvöddu, en jafnskjótt og
þeir voru allir farnir, vék hún
sér að föður sínum og spurði,
hverju þetta sætti um fjar-
veru manns síns, því að hún
sá glöggt, að hér var ekki allt
með feldu. Guy sagði henni
þá, að hann vissi ekkert
hvernig á þessu stæði, en
reyndi samt að draga úr ang
ist hennar eins og honum var
unnt, með því að segja henni
að Marteini hafi líklega orð
ið óglatt af hitanum og þess
vegna gengið út undir bert
loft, en dvalið þar lengur en
hann hafði ætlað sér.
— Ekki finnst mér það trú
legt eða líkt Marteini, svar-
aði' hún efablandin. Buðust
þeir feðgar þá til að bíða hjá
henni þar til Marteinn kæmi
aftur, en ekki vildi hún þi'ggja
það.
— Þú ert orðinn dauðþreytt
ur, faðir minn, sagði hún svo
stillilega sem hún framast
gat, — og Guy verður að
fylgja þér heim þegar í stað.
Þetta er sjálfsagt allt í góðu
lagi með Martein, og líklegast
eins og Guy var að geta til.
Láttu mig vera eina, góði
minn, og þá jafna ég mig
strax aftur.
Þeir yfirgáfu hana þá að
þeir væru eki alls kostar á-
nægðir með það, en þeim duld
ist ekki, að hún vildi helzt
vera ein um að taka á móti'
Marteini, þegar hann kæmi
aftur.
En þegar hún var orðin ein,
og gat gefið tilfinningum sín
um lausan tauminn, þá varð
henni fyrst ljóst hversu ang-
istarfull hún var orðin. Hún
skildi ekki' hvers vegna Mar
teinn hafði þotið svona burtu
frá sér án þess að nefna það
við hana einu orði — henni
fannst það svo ólíkt honum.
Hvað gat hafa komið fyrir
hann? Hún var að hugsa um
þetta fram og aftur, og gera
sér alls konar ímyndanir þang
að til hana fór að verkja í höf
uðið af öllu saman.
Reis hún þá á fætur og dró
gluggatjöldin til hliðar, og sá
nú að dagur ljómaði í austri;
bjóst hún við, að það yrði ein
hver armæðudagur. Þá heyrði
hún barið var hægt og hik-
andi á dyrnar að svefnher-
bergi hennar, og bjóst hún til
að opna hurðina, þvi að hún
vi'ssi að það mundi vera mað
ur sinn og enginn annar — og
þar stóð Marteinn náfölur og
tekinn til augnanna.
Rósamunda horfði á hann,
og vissi um leið að nú voru
sæludagar þeirra á enda.
Hann horfði á hana aftur
um stund, og fannst honum
það vera hin þyngsta raun,
sem hann hafði orðið að þola
á allri sinni þyrnum stráðu
ævibraut. Því næst leit hann
af henni' og renndi augunum
um herbergið — Þetta indæla
og skrautlega herbergi, sem
henni enn var ætlað, prýtt og
fágað sem mest mátti verða,
henni til yndisauka og á-
nægju. Hann stundi þungt
greip höndunum fyrir andlit
sér, en ekki gekk þó Rósa-
munda ti'l hans, því að það
var eitthvað 1 svlp hans sem
aftraði henni frá því, þó að
henni væri ekki ljóst hvað
það var.
—Marteinn! sagði hún loks
ins, Marteinn!
Þegar hún nefndi nafn hans
þá datt þeim báðum í hug,
hvernig sem á því stóð, kvöld
ið sem hún fann hann al-
einan í húsinu, þegar hann
var nýkominn aftur frá ítal-
íu.
— Ó, Rósamunda! hrópaði
hann, ég vildi' að Guð gæfi að
ég hefði aldrei séð þig, svo að
ég hefði ekki þurft að leggja
þennan kross á þig.
Nú gekk Rósamunda til
hans og stóð við hliðina á
honum.
— Hvernig geturðu farið að
tala svona, Marteinn? spurði
hún, eftir allar þær sælustund
ir sem við höfum notið sam-
an.
Hann mændi' á hana hrygg
um eftirþráaraugum eins og
drukknandi maður mænir á
strönd þá sem hann ekki fær
náð.
— Ó.elskan mín! elskan
mín! veinaði hann og gekk
út að glugganum, þar sem
dagurinn sást færast á loft.
Rósamunda riðaði við, þar
sem hún stóð undir ofur-
þunga þessarar óþekktu óham
ingju, sem að þeim steðjaði.
Hann tók þó ekki eftir því,
en heyrði aðeins skrjáfa í
kjól hennar um leið og hún
hneig niður á stól hálf með
vitundarlaus.
— Segðu mér það Marbeinn
— segðu mér það, því henni
þótti allt betra en að vera í
þessari óvissu. Þá sá hún að
hann rétti úr sér eins og til
undirbúnings og hóf hann svo
mál sitt með lágum en þó
skýrum rómi.
— Eg verð að segja þér allt
eins og það er frá byrjun,
Rósamunda, mælti hann, og
munt þú þá fá skilið raunir
þær, sem ég hef bakað þér ó-
viljandi. Þú svarar mér því
.....gpöiió yöur Waup
á .miili œargra. •veralaual
OÖHUÖÖL
ÁÓllUM
oeuM!
-Ausburstiseö,
Framhaldssagan Charles Garvice:
ÖLL ÉL BIRTIR
UPP UM SÍÐIR
EiRIKUR
víðförli
Töfra-
sverðið
59
Winoah heyrir hófatak hests Eiríks
og fer úr að glugga. Ónei, sonur
hennar finnst ekki. Nvað með mirn-
ina og úlfana í skóginum?
Kuldinn mun gera út af við hann,
segir hún kjökrandi við mann sinn.
Reyndu aftur. Haltu áfram ferðinni
til lands Bor Khan, Eiríkur.
Hversu gjarna sem ég vildi, get ég
ekk frestað förinni, segir Eiríkur,
dapurlega. Konungur verður að
víkja til hliðar persónulegum mál-
efnum. Ef sverðið finnst ekki, mun
það kosta þúsundir landa okkar lífið.