Tíminn - 12.02.1960, Síða 16

Tíminn - 12.02.1960, Síða 16
5 í'stórhýsi ByggingaísaVhvirinufélags prentara við Kleppsveg búa um 300 maní« í 48 íbúðum. Upp á^efstu og áttundu hseð ligg[a 128 tröppur. Þetta er fyrsta húsið, sem rís í skriðmótum hér á landi. íbúarnir njóta allra kosta einbýlishúsa. í gær voru þrjár lyftur téknar í notkun í hús- inu. T. v. er frámkvæmdastjóri byggingarsam- vinnufélagsins, Guðbjörn Guðmundsson prentari. Föstudaginn 12. febrúar 1960. 34. blaff. Áskriftarverð kr. 35.00. Hún var sú fyrsta til að flytja á 8. hæðina Guðfinna Júlíusdóttir Hefur alltaf búið í kjallara fram að jiessu og er nú bráðum 74 ára Lyftur teknar í notkun i átta hæða húsi Byggingarsam- vinnufélags prentara, Kleppsvegi 6. 10 slík hús gætu kom- ið í staðinn fyrir allt smáíbúðahverfið Það var mikið um dýrðir á Kleppsvegi 6 í gær. íbúarnir komu saman til að fagna því að nýjar lyftur eru komnar í húsið. Enda ekki vanþörf á lyftum í átta hæða stór- hýsi þar sem búa um 300 manns í 48 íbúðum. Þeir sem búa á 8. hæð þurfa að ganga hvorki meira né minna en 128 tröppur! Þrjár lyftur leysa þær af hólmi. Guðbjörn Guðmundsson prent- ari skýrði blaðamönnum frá því að þetta stórhýsi væri fyrsta húsið sem reist væri með skriðmótum hér á landi. Byggingarsamvinnu- félag prentara hefði ráðizt í bygg- ingu þess fyrir nokkrum árum án þess að njóta stuðnings frá ein- um eða nsinum. 10 hús fyrir heilt hverfi En síðan hefði hvert stórhýsið á fætur öðru risið af grunni í skrið mótum. Guðbjörn sagði að þessi fjölbýlishús hefðu alla kosti og þægindi einbýlishúsa en auk þess væru íbúarnir lausir við allar á- liyggjur sem einbýlishúsum fylgja. Sérstakur húsvörður er ráðinn til að sjá um allt er viðkemur við- haldi og óðru slíku. Hann sagði einnig að 10 slík hús gætu komið í staðinn fyrir allt smáíbúða- hverfið. Mæögur á áttundu hæð Fréttamenn Timans brugðu sér upp á 8. hæð til að hafa tal af þeim íbúa hússins sem næst býr himnum og ætti því að vera lyft- unni fegnastur. Við knýjum dyra og innan skamms kemur húsráð- andi til dyra, myndarleg kona á áttræðisaldrí. Við berum upp er- iudið og okkur er tafarlaust boðið inn í sólríka stofuna, þaðan blasir við fjallahringurinn víður og fag- ur. — Eg held bara þið hafið sótt að mér, segir Guðfinna Júlíus- dóttir, það seig á mig svefn. — Hvað hefur þú búið hér lengi, Guðfinna? — Eg flutti inn síðast liðið vor, hef búið hér ásamt dóttur minni, svarar Guðfinna, það er nú eigin- lega hún sem er að brjótast í þessu. Það er versti gallinn að ekki skuli vera hægt að leigja út eitthvað af þessum herbergjum — Þykja þér ekki mikil við brigði að því að fá lyftuna? — Mikil iifandis skelfing, svar- ar gamla konan og slær sér á lær, áður þurfti ég að keifa þetta upp alla stigana, tvisvar, þrisvar á dag. Það var Ijóta baslið. Nú er maður eins og ör- skot upp og niður. — Og hvernig kanntu við þig ppi á 8. hæð? — Aldeilis ljómandi. Hérna hef ég alla Mosfellssveitina næstum í fanginu, sjaið þið bara: Og Reykja nesfjallgarðinn eins og hann legg- ur sig, Hengilinn og Vífilfell. Það er einhver munur frá því sem áð- ur var. Eg hef alltaf búið í kjall- ara fram að þessu, orðin bráðum 74 ára. Síðast á Laugavegi og þar áður við Hverfisgötu og svo er ég bara komin upp á 8. hæð! Það könnuðust margir við hann Krist- ján bróður minn. Og svo er ég náskyld honum Bíó-Bjarna, fædd í Grímsnesinu en hef alla tíð verið í Reykjavík. — Og þú ert ekki vitund loft- hrædd að búa svona hátt uppi, spurðum við og það var rétt með herkjum að við þorðum út á svalir. Ósköp fegin Gamla konan hlær við og vipp- ar sér léttilega upp á handriðið því ljósmyndarinn hafði beðið um eina mynd á svölunum. — Nei, ég er ekki hrædd, ég er svo sterk, segir hún, og sumt fólk þolir ckki að vera svona hátt uppi því það segir að loftið sé svo þunnt. Aldrei hef ég fundið fyrir því, en það er ekkert að marka því ég þoli allt. En Guðfmna varð samt ósköp og skelfing fegin eins og aðrir í- búar hússins þegar sá langþráði dagur rann upp að hægt var að skjótast með undrahraða upp og mður. Og iyftan kemur Guðfinnu að góðum notum, því þrátt fyrir háan aldur er langt frá því að hún sé setzt um kyrrt! Á daginn þarf hún að fara margvíslegra erinda og á kvöldin lætur hún sig hafa það að vinna við skúringar úti í bæ. Hún segir að ellistyrk- urinn hrökkvi hvergi nærri til. Áfta manna lyftur Stórhýsið við Kleppsveg mun vera með fyrstu íbúðarhúsum sem búin eru lyftum hér á landi. Þær eru smíðaðar í Vestur-Þvzkalandi af fyrirtækinu Havemeier & Sand- er í Hannover sem er þekkt fyrir- tæki hér á landi og setti upp f.vrstu lyftuna í Reykjavík árið 1925. Seljendur hér eru Bræðurn- Guöfinna í lyftudyrunum ásamt lyftuvörðunum tveimur, Guðmundi og Þorsteini Helgasonum, 8 og 10 ára snáðum. í gær vár stríður straumur unglinga upp og niður í lyftunni. ir Orirtsson hf. Burðarþol lyftunn- ar er 600 kg, 8 manns. Þær eru útbúnar öllum öryggistækjum sem völ er á og eru rúmgóðar svo hægt er að koma fyrir sjjúkra- körfu í þeirn. Verðið á lyftunum þvemur uppsettum er kr. 215 þús- und. Jökull Guðfinna á svölunum á íbúð sinni á 8. hæð. Hún er 73 ára að u*Wri og hefur búið í kjallara fram að þessu. Ljósm: KM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.