Tíminn - 17.03.1960, Page 5
T f MIN N, fimmtudaginn 17. marz 1960.
5
Útgetsndi: FRAMSOKNARFLOKKURINN
Kitstjóri og ábm. Þórarmn Þórarinsson
Skrifstofur i Edduhúsinu vtð Ltndargötu
Símar 18 300. 18 301 18 302 18 303 18305 og
18 306 (skrifst ritstjórmn og blaðamenn)
Auglýsmgasimi 19 523 Afgreiðslan 12 323
Prentsm Edda hf
Óskar Jónsson, Vík:
Landsfimdarræða Ölaís Thors
í liósi staðreyndanna
Gylfi og söluskatturinn
í umræðunum um söluskattinn í efri deild, flutti
Ólafur Jóhannesson ýtar’ega ræðu og vék meðal annars
að aðild Alþýðuflokksins að hinum nýja almenna sölu-
skatti. Ólafur sagði m.a.:
„Ég verð að segja það, að ég er nú dálítið hissa á
því, að þessi samstarfsstjórn Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins skuli beita sér fyrir setningu þessa sölu-
skatts. Ég er að vísu ekki hissa á því, að Sjálfstæðisfl.
skuli beita sér fyrir þessari skattlagningaraðferð. því að
það var Sjálfstæðisfl., sem á’ sínum tíma beitti sér fyrir
veltuskattinum illræmda, en með þeim skatti var í raun
og veru þessi asni leiddur í herbúðirnar hér á landi,
svoleiðis að það er ekkert einkennilegt við það, þó að
Sjálfstæðisfl. beiti sér fyrir þessari skattlagningaraðferð.
Hitt verður að teljast alveg furðulegt, að Alþýðuflokkur-
inn skuli taka þátt í því að setja slíkan skatt og með
leyfi hæstv. forseta vildi ég því til sönnunar vitna í um-
mæli núv. hæstv. viðskiptamálaráðherra, Gylfa Þ Gísla-
sonar á Alþingi 1953, en þá voru umræður um sölu-
skattinn. Honum fórust orð á þessa leið:
„Við þetta allt saman bætist svo. að söluskatturinn
er í eðli sínu ranglátur. Það er einhver ranglátasti skatt-
ur, sem lagður hefur verið á af íslenzka löggjafanum
og það er ekki nóg með það, að hann sé ranglátur í eðli
sínu. Framkvæmdin á söluskattsinnheimtunni hefur og
verið þannig, að á því er enginn vafi, að enginn skattur
hefur verið jafn stórkostlega svikinn og söluskatturinn.
Það er ekki aðeins ríkissjóður, sem tekur inn mikið fé
í skjóli þessara lagaákvæða um söluskattinn, heldur taka
ýmiss konar atvinnurekendur einnig inn stórfé í skjóli
þessara ákvæða. Það er auðvelt að svíkja tekjuskatt fyrir
þá, sem hafa stórfelldan atvinnurekstur með höndum.
En það er margfalt auðveldara að svíkja söluskatt. Það
er jafn opinbert leyndarmál og skattsvikin í tekjuskatt-
inum, að þau eru gífurleg i söluskattinum.“
Þetta voru orð hæstv viðskiptamálaráðherra á Al-
þingi 1953. Það er alveg augljóst mál að þegar hann
nú tekur þátt í því að flytja frv. um söluskatt miklu
stórkostlegri og á allan hátt þungbærari heldur en allir
þeir söluskattar, sem hér hafa verið fyrr, að hann virð-
ist hafa skipt um skoðun í þessu efm. En mennirnir skipta
um skoðun, en eðli hlutanna helzt óbreytt og þó að hæstv.
viðskiptamálaráðherra hafi skipt um skoðun á söluskatt-
inum, þá er eðli söluskattsins samt alveg óbreytt. frá því
það var 1953. Hann er alveg jafn ranglátur nú eins og
hann var þá. Hann er alveg jafri ósanngjarn nú eins og
hann var þá. Og það er alveg jafn mikil hætta á því, að
hann komizt ekki til skila nú eins og þá.“
Eigi að víkja
í dag hefst hafréttarráðstefnan í Genf. Allar fréttir,
sem hafa borizt að undanförnu, benda eindregið til þess,
að reglan um óskerta tólf mílna fisKveiðilandhelgi muni
ia tilskilinn meirihluta. Það eina, sem gæti breytt þeirri
niðurstöðu, væri undanlát einhverra þeirra ríkja, sem nú
eru þessari reglu fylgjandi.
Þessi ráðstefna er að því leyti sérstök, að miklu meira
tillit mun þar tekið til afstöðu íslands en á öðrum alþjóð-
legum ráðstefnum. Því veldur sérstaða okkar og deilan
við Breta. Vel getur því svo farið, að afstaða íslands geti
ráðið úrslitum á ráðstefnunni. Nú gildir það því fyrir ís-
lendinga að fylgja kjörorðinu: Eigi að víkja.
Rétt ár er nú liðið síðan for-
maður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur
Thors, kvaddi saman forystulið
sitt til landsfundar í Reykjavík
ti! undirbúnings að átökunum um
væntanlega kjördæmabreytingu,
og að tvennum kosningum á því
herrans ári 1959.
í setningrrræðu sinni sagði for-
maður Sjálfstæðisflokksins þetta
meðal annars, og var það höfuð-
inntak í ræðu hans, sbr. IV.
kafla bls. 49 í blárri bók, er Sjálf
stæðisflokkurinn gaf út um kjör-
dæmamálið:
„Takist okkur nú að bera fram
til sigurs kjördæmabreytinguna.
er stórum steini úr götunni rutt.
Ranglætið hefur legið eins og
farg á þjóðinni. Það er rót margs
hins versta í stjórnarfari undan
farandi ara. Þaðan er runnið
öngþveitið, glundroðinn, stjórn-
leysið, klíkuvaldið og spillingin
Eftir að öld þingræðis og lýð
ræðis hef'st hér að nýju, skap
ast ný viðhorf. Þjóðin getur þá
beitt sér ?f alefli að lausn hinna
miklu viðfangsefna, sem fram
undan bíða. og leyst þau með
skynsemd og réttsýni."
í Ijósi þr-irra atburða. er gerzt
liafa í íslenzkum stjórnmálum síð
an þessi vf'i'lýsing og stefnuskrf
var birt, er fróðlegt til skilnings
auka á eðli innsta kjarna Sjálf
stæðisflokks’ns, að taka þessi um-
mæli, þótt ársgömul séu til rann-
sóknar og bera þau saman við
þær staðreyndir. er nú blasa við
íverjum hugsandi manni og at-
huga, hvermg hlutirnir koma heim
v.ð boðskap íormannsins
Ber þá ívrst að athuga: Lá hin
eldri kjördæmaskipan eins og
farg á þjóðinni? „Var hún rót
margs hins yersta f stjórnarfari
undanfarand’ ára, og var þaðan
runnið öngþveitið, glundroðinn,
stjórnleysið. klíkuvaldið og spill-
ingin?“
Ég hika eKki við að svara: þetta
ei ein sú mesta þjóðlýgi, sem
sogð hefui verið og er auðvelt
það að s'anna.
j Það veit hver íslendingur, að
! v.ndir því kjördæmaskipulagi hef-
; ur þjóðin íifað hið glæsilegasta
tímabil sögu sinnar. Sjálfstæði
þjóðarinnar endurheimt. — fjár-
hagsleg endurreisn og uppbygg-
| ing á öllum sviðum, — menntun,
vísindi og listir blómguðust með
ótrúlegum nraða, — og jöfnuður
i iifskjara mciri og betri en þekk-
íst, þó vítt «é leitað.
! Hvað va” það þá, sem formað-
ur Sjálfstæðisflokksins meinti með
stóru orðunum: „Glundroðinn,
stjórnleysið. klíkuvaldið og spill-
ingin“? Var það ef til vill það, að
hvarvetna um landið. var hin
frjálsa félagslega uppbygging, með
stuðningi ’-ík’Evaldsins', að efla trú
fólksins, við sjó og í sveit, á sjálft
sig og sína átthaga og var með
hröðum sk’-eíum að gera landið
j og auðlindir þess sér undirgefið,
i t:l bættrar lifs'afkomu fyrir alla?
En jafnframi var fólkið að fjar-
lægjast hina einu illræmdu klíku
T landinu, kliku Sjálfstæðisflokks-
I ins í Reykiavík og víðar Þessar
'staðreyndir komu aftur á móti
nokkrum .giundroða" og „stjórn-
leysi“ á hugi Sjálfstæðisklíkunnar,
sem glögg* kom fram í viðbrögð-
um hennar gegn viturlegum og
hóflegum aðgerðum vinstri sfjórn-
arinnar í efnahagsmálunum vorið
1958
I Þá trylltisi íhaldströllið, — og
byrjaði að bergnema þá, er helzt
skyldu halda vöku sinni og hugð-
ist nota' þá til óhappaverka.
Tilræðið "tókst. Óhappaverkið
hefur verið unnið, það eyðir vor-
og sóknarhug alls þorra þjóðarinn-
ar, sem stóð i miðri önn uppbygg-
ingar og framfara hvarvetna um
landið, og það sem verra er,
stöðvar framtak og framfarir og
lirindir öllum almenningi til baka,
t.l vonleysis og hausthugar, til
harðæris lífskjara, svo stappa mun
rærri hruni.
Óskar Jónsson
Þegar ég var á Alþingi í sumar,
varpaði ég þoirri spurningu til for-
ystumanna verkalýðsflokkanna,
hvort þeir héldu að stuðningur
þeirra við ihaldið um kjördæma-
byltinguna, mundi vera vegurinn
ti! lífsins Vitanlega fékkst þá ekk-
ert svar. — En hvað hefur gerzt?,
Sýnist þjóðmni nú lífværyiegt um
að litast (’ið aðgerðir íhaldsins í
dag, „eftir að öld þingræðis og
lýðræðis helur hafizt að nýju, ný
viðhorf sköpuð og þjóðin getur
beitt sér af alefli við lausn hinna
miklu viðfangsefna, sem framund-
an bíða og :eysa þau með skyn-
semd og réttsýni", eins og formað-
ur Sjálfstæðisflokksins orðaði
það í landsfundarræðunni í marz
1959.
Athugum þetta nánar. Hefur
þingræði og lýðræði aukizt við
kjördæmabvitinguna? Hvað gerð- j
ist, er Alþmgi var kvatt saman að
afloknum kosningum, á öndverð-
uro vetri? Alþingismenn sendir
híð snarasta heim. Af hverju?
Þeir gerðu ekki annað en flækj-
ast fyrir og torvelda ríkisstjórn-
inni „löggjafarstörfin“, að hennar
eigin dómi. Hverjum hefur þjóðin
falið löggjafurvaldið? Samkvæmt
síjórnarskránni hefur þjóðin kjör-
:ð alþingismenn til þeirra verka.
En nú bregður svo við, að svo
virðist, að það séu einhverjir
,ffðrir“ sein móta eiga og skapa
hin stærri og þýðingarmestu mál-
ni Þegar sve hinn nýi boðskapur
loks er lagður fyrir Alþingi, má
það þar engu um þoka. Aðeins
leggja blessun sína yfir hversu
íaránlegar, sem þessar tillögur
eru.
Hver hefur gefið þessum mönn-
uro þetta loggjafar umboð og
hvað veldur þessum aðförum?
Ýmsir ætla að umboðið og hug-
myndirnar séu erlendis frá, og
ekki að áslæðulausu
Finnst þióðinni að með þess-
um aðförum sé verið að efla ís-
lenzkt þingræði og lýðræði. Ég
held varla Allt leiðir þetta frá
þingræði og lýðræði, til einræðis
og íhlutunar erlendra um íslenzk
málefni.
Þá kem ég að síðasta aðalinn-
taki í ræðu formanns Sjálfstæðis-
flokksins, sem sé því, að með
þessum „þingræðis“- og „lýðræð-
is“ aðgerðum verði ný viðhorf
sköpuð, svo þjóðin geti af alefli
beitt sér að lausn hinna miklu
viðfangsefna, sem framundan eru
| cg leyst þau með „skynsemd" og
,..réttsýni“.
Þessu er bezt að svara með
nokkrum spurningum.
Er það skynsemd og réttsýni að
fella gengi hinnar íslenzku krónu
svo sem ger> hefur verið og magna
með því dvrtíð í landinu um allt
aö 30%, að óþörfu að margra áliti?
Er það sxynsemd og réttsýni að
hækka svo ulmenna vexti, að svo
tii allt upnbyggingarstarf almenn-
■ngs í iandinu stöðvist?
Er það skynsemd og réttsýni að
draga fé frá sparisjóðum og inn-
lánsdeildum dreifbýlisins. til þess
rð torvelda því fólki, er þar býr,
lífsbaráttuna?
Er það skynsemd og réltsýni að
brengja svc kosti alls láglauna-
b’lks, sjómár.na og bænda. með
bessum ráðstöfunum og fleiri. og
bví unga t'óiki, sem lagt hefur af
iitlum efnurn út á menntabraut-
ina að viðbættum þeim ungmenn-
um, sém eru að hefja búskap,
hvort heldur er við sjó eða sveit.
að það fylhst vonleysi og kvíða
um framtiðma?
Og að lokum, er það skynsemd
og réttsýni að hafna umsvifalaust
viðtæku samstarfi allra stjórnmála-
ilekka um iausn efnahagsmálanna.
ff þau eru svo torleyst og kosta
:'!,o miklar fór-nir, sem af er látið?
Nei, það er ekki brot af skyn-
j semi eða réltsýni í þessum tiltekt-
um, svo sem margsinnis hefur ver-
ið sýnt fram á í ræðu og riti. Þess
i vegna eru þessar ráðstafanir dæmd
j ar til að mistakast. Er þá ver farið
| en heima setið.
Hin nýju viðhorf virðast fram-
kalla hreina landeyðingarstefnu, í
■stað félagslegrar uppbyggingar-
stefnu.
Hvað sannar svo allt þetta? Að
landfundar boðskapur formanns
Sjálfstæðisfloksins var skröksaga
ein.
I Undir hinu fyrra kjördæma-
skipulagi blómgvaðist sívaxandi
uppbygging og batnandi og jafnari
lífskjör.
Við tilkomu hins nýja kjördæma
fyrirkomulags, er snúið til baka,
til stöðvunar og versnandi lífs-
kjara.
Eflaust hafa margir trúað orð-
um formanns Sjálfstæðisflokks-
ins í landsfundarræðunni, en
hvernig stenzt hún í Ijósi stað-
reyndanna? Þar stendur ekkert
eftir, nema öfugmælin.
Hvarnig á nú að mæta þessari
hrunstefnu og hrinda henni af
höndum þjóðarinnar?
Við því er að minni hyggju að-
eins eitt svar. Allir andstæðingar
þeirrar öfugþróunar, er íhaldið
hefur nú steypt yfir þjóðina, verða
nú þegar að taka höndum saman
og mynda sterk samtök á grund-
velli uppbyggingar og félags-
hyggju. Skiptir engu í hvaða stjórn
(Framhald á 14. síðu).