Tíminn - 19.03.1960, Síða 3
TÍMINN, laugardaginn 19. marz 1960.
3
Gera þarf hið fyrsta fullnaðaráætl-
un um virkjun Jökulsár á Fjöllum
— Og athuga jafnframt um möguleika til að koma upp framieiðslu á útflutnings-
vöru í sambandi við virkjunina
Þessl einsspora vagn vakti mikla athygii i Hamborg nýlega, er hann var
sýndur í fyrsta sinn. Þykir hann mikiS hentugri en tveggja spora — léttari
í meSförum og ódýrari.
68 ára prestur dæmd-
t . . ..
ur í 20 ára fangelsi
Sagður stjórna bandarískum njósnahring
Gísli Guðmundsson, Karl
Kristjánsson og Garðar Hall-
dórsson, þingmenn Framsókn-
arflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, flytja tillögu til
þingsályktunar um fullnaðar-
éætlun um virkjun Jökulsár á
Fjöllum og um athugun fram-
leiðslumöguleika í sambandi
við virkjunina.
Ályktunin er í tveimur lið-
um: 1. A5 hlutast til um, að
gerð verði fullnaðaráætlun um
virkjun Jökulsár á Fjöllum og
í 2. lagi, að láta athuga mögu-
leika til þess að koma upp
framleiðslu á útflutningsvöru
í sambandi við virkjunina.
í greinargerð með ályktuninni
segir:
Jökulsá á Fjöllum, öðru nafni
Jökulsá í Öxarfirði, er eitt' af
Iengstu og mestu vatnsföllum
landsins. Hún á upptök sín í norð-
anverðum Vatnajökli og fellur til
sævar í Öxarfirði. Langt er síðan
byrjað var að mæla vatnsmagn ár-
innar á ýmsum tímum árs, og á
grundvelli þeirra mælinga voru
einnig fyrir löngu gerðir lauslegir
útreikningar um fallorku hennar.
Fyrr nokkrum árum var á vegum
raforkumálastjórnarinnar hafin ýt-
arleg rannsókn virkjunarskilyrða,
og hefur henni verið haldið áfram.
Af upplýsingum, sem fyrir liggjá,
mun mega ráða, að hagkvæmt sé
og hlutfallslega ódýrt að virkja
ána í tveim orkuverum, öðru við
Dettifoss og hinu við Vígabergs-
foss, a. m. k. 300—400 þús kw.
samtals.
Til samanburðar má geta þess,
að hér er um að ræða 4—5 sinn-
um meiri orku en fást mun úr
Soginu fullvirkjuðu. Líkur benda
til, að varla muni annars staðar
á landinu hægt að framleiða svo
mikið orkumagn á lægra verði.
Útf lutningsframleiðsla
Flutningsmenn þes'sarar tillögu
telja, að nú sé tímabært að hefjast
handa um að gera fullnaðaráætlun
um orkuver við Jökulsá og stofn-
kostnað þeirra. Framkvæmd þeirr-
ar stórvirkjunar, sem hér er um að
ræða, tekur langan tíma. Ekki mun
vcrða í hana ráðizt fyrst um sinn,
nema fyrir liggi, að hægt sé að
koma raforkunni í verð, um leið
og hún verður til staðar. Af þessu
leiðir, að þegar til virkjunarfram-
kvæmda kemur, þarf jafnframt að
stofna til útflutningsvörufram-
leiðslu í stórum stíl, sem rekin yrði
í sambandi við orkuvinnsluna, og
tryggja þeirri framleiðslu markað.
Athugun á möguleikum í þessu
sambandi þarf að fara fram, og
æs'kilegt er, að niðurstaða þeirrar
athugunar liggi fyrir samtímis
fullnaðaráætlun um virkjunina •—
ef unnt er — eða sem allra fyrst að
henni lokinni.
VarasjóSur
Rétt er að hafa það í huga, að
jafnframt því sem virkjun Jökulsár
gæti orðið undirstaða mikils vaxt-
ar í atvinnulífi, mundi með henni
skapast öflugur raforkuvarasjóður
fyrir núverandi og fyrirhugaðar
orkuveitur á Norður- og Austur-
landi, en rafmagnsnotkun á þessu
svæði er nú nálægt 20 þús. kw.
samtals og fer að sjálfsögðu vax-
andi.
Guinea valdi
heldur Bonn
NTB-Bonn, 18. marz. — Nabi
Youla, sendiherra Guineu í Bonn
lýsti yfir í dag, að stjórn sín myndi
ekki taka UPP stjórnmálasamband
við A-Þýzkaland, þar væri aðeins
um viðskiptasamband að ræða.
Sendiherrann gaf yfirlýsinguna
eftir að hafa rætt við fulltrúa í
utanríkisráðuneytinu í Bonn. Lét
hann vel yfir samtalinu og kwað
stjórnmálasamband ríkjanna vera
óbreytt.
Bjarna Pálssonar
landlæknis minnzt
Hinn 18. marz 1760 stofnaði
konungur með tilskipun landlækn
isembætti á íslandi og veitti emb
ættið saana dag Bjarna Pálssyni.
Af því tilefni mun prófessor Jón
Steffensen flytja fyrirlestur í há-
tíðasal háskólans sunnudaginn 20.
marz kl. 2 e. h.: Bjarni Pálsson og
samtíð hans. Öllum er heimill að-
gangur.
NTB—Hong-Kong, 18. marz.
Bandaríski biskupinn James E.
Walsh, sem er katólskur trú-
boði í Kína, var í dag dæmdur
í 20 ára fangelsi af alþýðu-
dómstól I Shanghai, Var hon-
um gefið að sök að hafa rekið
njósnir og stjórnað gagnbylt-
ingastarfsemi á vegum Banda-
ríkjastjórnar í kínverska al-
þýðulýðveldinu.
James E. Walsh biskup er 68
ára gamall. Hann var handteklnn
fyrir einu og hálfu ári síðan og
þá varpað í fangelsi. Það er frétta
stofan Nýja Kína, sem skýrði frá
dómnum í dag.
Ætlaði að steypa stjórninni
í fregninni er því haldið fram,
að Walsh biskup hafi viðurkennt
sekt sína. Hann sé gamall banda-
rískur njósnari og hafi rekið þá
starfsemi fyrir Bandaríkjatjórn
og með vitund Vatíkansins í Róm.
Hann haf verið einn af leiðtogum
gagnbyltingarklíku, sem stefndi
að því að kollvarpa kommúnista-
stjórninni. Æðsti yfirmaður henn
ar hafi verið kínverski biskupinn
Kung Png-Mei í Shanghai. Hann
var í gær dæmdur í ævilangt fang-
cisi fyrir föðurlandssvik og 13 aðr-
ir Kínverjar voru einnig dæmdir
fyrir sömu sakir í 5—20 ára fang-
elsi. Walsh var seinasti kaþóiski
trúboðinn með biskupstign, sem
starfaði í Kína.
Sjóréttarrá'bstefnan
(Framh. af 1. síðu).
á þá lund, að landhelgi skuli vera
6 sjómílur, þar fyrir utan ívö fisk-
veiðisvæði, hvort 3 sjómöur á
breidd. Á innra þriggja núina be.lt
inu skal aðeins viðkomandi strand
ríki heimilt ag fiska, en á yt.ra
beitinu einnig þeim þjóðum, sem
um langt skeið hafa sótt fiskimið
þessa ríkis.
Árekstur
fFramh af 1 síðu).
á fullri ferð er þeir rákust á. Ekki
er fuilkunnugt með hvaða hætti
árekstur varð, þar som Kristján er
enn ókominn. Skemrndir urðu þó
nokkrar á Þórsnesinu, t.d. brotn-
uðu 5 piankar, skammdekk, ein
stytta o fl. Ekki er vitað um
semmdir á Kristjáni, þar sem
hann hélt áfr«im í r-óðiuinn.
Kristínu.
Var sprengja í flugvél-
inni, sem fórst í gær?
Líkin 63 eru öll óþekkj’aníeg
NTB—Tell City, 18. marz.
SérfræSingar frá flugöryggis-
stofnun Bandaríkjanna telja
ekki útilokað að skemmdar
verk hafi valdið því, er Lock-
heed Electra flugvél sprakk í
lofti yfir Indianafylki í nótt
sem leið. Með henni fórust 63,
þar af 57 farþegar.
Öruggt er, að flugvélin sprakk á
lofti. Hefur sprengingin verið
mjög öflug, því að brakið er dreift
Athugasemd
Vegna frásagnar af almennum
stúdentafundi, sem birtist í Tíman-
um s. 1. fimmtud., viljum við taka
cftirfarandi fram: Frásögnin er
mjög hlutaræg og höfundi lítt til
sóma, enda ber það málstaðnum
vrtni, að hann lætur ekki nafns
síns getið. Veigamiklum atriðum
er sleppt í frásögninni, eins og t. d.
er formælendur lagabreytinganna
(ig jafnvel gamlir stúdentaráðs-
n.enn stóðu fyrir því að hrópa
þann fundarstjórann niður, sem
reyndi að halda fundarsköp og
reglu á fundinum. Þá mætti benda
á meðferðma á breytingartillögum
o fl.
Höfundur lætur liggja að því, að
andstæðingar frumvarpsins séu
eingöngu öfgamenn til hægri og
vinstri. Þetta eru helber ósannindi,
því að stjórnmálaskoðanir ráða
engu um afstöðu manna til máls-
ins. Þá viljum við mótmæla því, að
við „eigum eina rót með kommún-
istum og Heimdellingum“, eins og
segir í greininni.
Stjórn Félags frjálslyndra stúd-
enta ber enga ábyrgð á áður-
nefndri grein og harmar birtingu'
hennar.
Með þökk fyrir birtinguna
f. h. stjórnar Félags frjáls'lyndra
stúdenta
Jón Óskarsson form. ,
Jón Einarsson ritari. |
yfir stórt svæði. Leituðu í dag 100
hermenn ásamt leynilögreglumönn
um á svæðinu þar sem brakið
liggur. Ekki mun reynast unnt að
þekkja neitt af líkunum, svo sund-
urtætt eru þau.
Sprengja í flugvél
Þetta er þriðja flugvélin af Lock
heed Eleetra gerð, sem ferst á
síðustu 13 mánuðunum. Þykir
'þetta grunsamlegt og gæti bent til
smíðagalla. í þessu tilfelli leikur
þó grunur á skemmdarverki af
einhverju tagi. Skömmu eftir að
vélin fór frá Chicago hringdi ein-
hver til lögreglunnar í borginni
og sagði að sprengju hefði verið
komið fyrir í flugvél. Sá sagði ekki
til nafns. Lögreglan fór út á flug-
völl, en fann ekkert grunsamlegt
og hélt að hér hefði aðeins verið
um gabb að ræða. Málið er nú í
ýtarlegri rannsókn. Meðal annars
fer fram nákvæm athugun á l£f-
tryggingum allra þeirra, sem með
vélinni voru.
Þingið til
óþæginda
NTB-París, 18. marz. — De Gaulle
hefur vísað á bug tilmælum um
að kveðja sarnan franska þingið
til aukafundar til að ræða land-
búnaðarmál. Meira en helmingur
þingmanna bar beiðnina fram. For
setinn kvað stjórnarskrána alls
ekki heimila aukafund og án tillits
til þess myndi umræða um málið
aðeins gera illt verra. Er talið að
afstaða forsetans muni hafa ýms
eftirköst. Foringi bændasamtak-
anna segir bændur muni gera rót-
tækar gagnráðstafanir og sumir
þingmenn segja að forsetinn hafi
sýnt þinginu augljósa fyrirlitn-
ingu.