Tíminn - 19.03.1960, Page 11

Tíminn - 19.03.1960, Page 11
TlKINN, laugardaginn 19. marz 1960. 11 Ljóð ungrar stúlku Benedlkta Guðmundsdóttir, Barði, Fljótum f Skagafirði, hef- ur sýnt okkur þá vinsemd, að senda blaðinu nokkur undur- ^falleg ljóð, sem hún hefur gert, og birtum við hér eitt þeirra. Benedikta er aðeins fjórtán ára gömul, dóttir hjónanna Guðrún- ar Jónsdóttur, sem nú er látin, og Guðmundar Benediktssonar, prests á barði. Við hvetjum hið unga Ijóðskáld eindregið til að halda áfram á þessari braut. Og hér kemur ljóðið: Tónar hörpunnar Hrörlegur bogi strýkur hörpunnar strengi hjarðmannsins eins. Og andvarinn þýtur í eilífðar ljóði hins einmana sveins. Það hækkar, það lækkar, það hrynur, það stynur, og háifkvalið hlær, sem á harma míns hjarta, hálf brostnu strengi, leiki hrollkaldur blær. Og tónarnir óma þeir tryllast í gleði, sem tapi sér sál. Þeir hlæja í lágnætti, hrópa og stynja sitt hrynjandi mál. Og tónarnir verða svo blíðir sem bæn, er bölið úr heimi er máð. Þá mennirnir hætta að bölva, en biðja og bæta sitt ráð. Rokk er mjög skáSdiegt segir Sveinbjörn Beinteinsson, rímnaskáld Við höfum komið okkur fyrir á þægilegam stað inni í kaffi- stofunni á Laugavegi 11, ég og Sveinbjörn Beinteinsson, rímna- skáld og grúskari. Þegar við höf- um pantað á borðið, spyr ég hann um skeggið, en hann er • skeggprúður maður eins og mörg um er kunnugt: — Allir rembast við 'að safna einhverju Sumir safna pening- um, aðrir bókum eða frímerkj- um, jafnvel bitlingum Eitt ís- lenzkt skáld safnar giftingum. Ég læt mér nægja að safna skeggi. — Hefurðu ort lengi? — Já, alltaf. Ég yrki aðallega rímur, en einnig mikið af lausa- vísum. Nokkra danslagatexta hef ég líka gert. — Hafa þeir orðið vinsælir? — Ég veit það ekki; fylgist (Umsjón: Björn Bragi) TEXTI VIKUNNAR Oh, Carol, I am but a fool. Darling I love you, Though you treat me cruel. You hurt me and you make me cry. But if you leave me, I will surely dle. Þessa sjón bar fyrir augu fólks í Minneapolis í Banda ríkjunum einn góðan veðurdag eigi alls fyrir löngu. Forsagan var sú, að stór og föngulegur íijörtur birtist allt í einu á götum borgarinnar, hafði villzt inn í hringiðu hennar utan úr nálægum skógi. Hann hcntist um göturnar milli bfla og fólks og tókst að forðast alla árekstra lengi vel. En loks kom þar þó, að hann rakst á bifreið, sem kom á móti honum. Við það braut hjörturinn annan framfót sinn. Lögregluþjónar og fleiri nærstaddir hlupu þá til og tókst að handsama dýrið, bundu það síðan eins og myndin sýnir við næsta stöðumæli, meðan lög- reglumenn sóttu lögreglubfl og fluttu hann til dýralæknis. Darling, there will never be another, 'Cause I love you so. Don't ever leave me, Say you never go. I will always want you for my sweathea rt, No matter what you do. Oh, Carol. So in love with you. Verðlauna- keppn irnar Verðlaunasamkeppnunum er nú lokið. Okkur bárust tímanlega 117 rétt svör, en mörgum skeikaði i einhverju smáatriði — Úrslitin verða birt á taugardaginn kemur. Tíu vinsælustu lögin á íslandi 1. Komdu niður. 2. Einsi kaldi úr Eyjunum. 3. Lögin úr Deleríum Búbónis. 4. Kom heim, vinur, kom hcim 5. Maja litla. □ 1. Oh, Carol 2. Be my guest 3. Marina 4. Running bear 5. Turn me loose Fimm vinsælustu lögin í USA 1. Teen angel 2. Running bear 3. Handyman 4. Theme from a summer place 5. Where or when ekki svo mikið með í þeim efn- um. — Þú hefur mikið gefið út? — Já, ég hef ort fimm kvæða- bækur, og auk þess gefið út sýn- isbók rímr.a: Hún heitir Rímnavaka. — Dómarnir um bækur þínar? — Mjög slæmir. — Hvernig fellur þér annars við ritdómara? — Hér á landi er það mjög lágkúruleg manntegund, sem skrifar ri:dóma. — Og ungu skáldin? — Ég mundi segja að þau væru far.n að verða dálítið úr- elt, þessi skáld hérna. Og ekki hvað sízt atómskáldin. — Hefurðu gaman að rokki? — Já. Rokk er mjög skáld- legt! Það er slæmt, að skáldin skuli ekki geta hagnýtt sér þá merkilegu tjáningu Atómskáld- in eiga nefnilega mjög erfitt með að nota höfuðið á réttan hátt. f þessu kemur Pétur Hoff- mann inn, og Sveinbjörn kaupir af honum ritling hans, „Smá- djöflar". Nafnið virðist minna hann á pólitík. — Það er yfirleitt engin póli- tík rekin hér á fslandi, aðeins skítslegar þrætur um peninga- mál og nefndasetu. — Hvað um kvenfólkið? Það er miklu hagsýnna en karlmennirnir' Þ’e’ss vegna snýr það alltaf á þá. — Þú segist hafa gert dans- lagatexta. Hvað segirðu um texta yfirteitt? — Það eru til sæmilegir, ís- lenzkir textar. en flestir eru þó hræðilegt bull, og auk þess eru mörg lögin ekki sniðin fvrir ís- lenzkt mál, íslenzkan framburð. — Og dægurlögin? — Þau eru mörg mjög falleg, en ég er hræddur um að hið ís- lenzka framlag sé heldur ómerki- legt, aðeins auvirðileg eftirlík- ing, enda ekki hátt á okkur risið í neins konar listum um þessar mundir. Við þökkum Sveinbirni Bein- teinssyni, hinu skeggprúða rímna skáldi, fyrir rabbið, og biðjum honum langra lífdaga við rímna- smíði — og rokk! B. Vígalegur trommuiemjari! Bréf frá lesendum Sveinn Jón, Reykjavík: Þú spyrð, hvort Little Richard sé I raun og veru ekki lítlll, elns og nafnlð bendir til. Nel, hann er það ekki, hann mun vera frem ur hávaxinn. En hann var yngsf- ur I stórum systkinahópi, og það- an er nafngiftin runnin. GEIRMUNDUR í Sæmundarhlíð, Skagafirði: Hljómsveit Svavars Gests er skip- uð eftirtöldum mönnum: Svavar Gests, trommur. Ragnar Jónasson, harmóníka og saxófónn. Eyþór Þor- láksson, gítar. Sigurður Guðmunds- son, pianó, og Gunnar Pálsson kontrabassi. Með hljómsveitinni syngur Sigurdór Sigurdórsson. Svav ar Gests er rúmlega 30 ára gamall. ANNA HÁKONAR: Þetta kemur allt með kalda vatn- inul j INGIBJÖRG MATTHÍASDÓTTIR, Vík í Mýrdal: Ég hef aldrei séð eins áferðar- fallega skrift eins og þína. Svei mér ef þú ætti ekkl að gerast skriftar. kennari í Læknaskólanum! GUÐM. GUÐM., Tryggvagötu 6, Rvík, hefur aldeilis komi upp um strák- inn Tuma! Lagið, sem við sögðum um daginn að væri eftir Lloyd Price, er sem sé ekki eftir hann, heldur HARALD LOGAN. Þökk fyr- ir uppl., Guðmundur. Mikið berst af bréfum, og skrifið nú af fullum kraftii MEIRA NÆSTl Frankie Vaughan (nær) og George Baker í atriði úr rokkmynd, sem Aust- urbæjarbíó hætti fyrir skömmu sýningum á. Við urðum því miður nokkuð seinir fyrir með birtingu á myndinni, — en það er nú alltaf gaman að sjá hann Frankie!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.