Tíminn - 24.04.1960, Síða 9

Tíminn - 24.04.1960, Síða 9
TfMHtN, sanBMdaghm S4. aprfl 1969, 9 0477 wm a Magnús H. Gíslason: Kórmennirnir geta ekki verið án söngsins, og sveitin ekki án kórsins t---------------------------------■'v Hér eru sýnishorn úr handrit- uðu afmæiisbókinni. — A3 of- an kórinn og nöfn kórfélaga undir. Að neðan sýnishorn af hinni fögru nótnaskrift. s__________________________________J Haustnótt eina 1924 voru gangna menn staddir við Ströngukvísl. Þar mun lagið hafa verið tekið ótæpt eins og jafnan hefur þótt sjálfsagt bæði fyrr og síðar, er góðir félagar hittast í göngum. Og þama í húml haustnætur- innar uppi undir heiðríkju Hofs jökuls, var það fastmælum bund ið með fáeinum mönnu'm úr Bólstaðarhlíðarhreppi í Húna- vatnssýslu að stofna karlakór í sveitinni. Af framkvæmdum varð þó ekki fyrr-en um næstu ára- mót. Þá komu nokkrir menn sam an á Norðurloftinu í Bólstaðar- hlíð og gengu frá myndun söng- félagsins. Mun Gísli heitinn Jóns son á Eyvindarstöðum hafa verið aðalhvatamaðurinn að kórstofn- uninni og var hann ráðinn söng- stjóri. Fyrstu opinberu söng- skemmtunina hélt kórinn íyrsta sunnudag í sumri 1925. Og nú í dag minnist kórinn 35 ára afmælis síns með hófi í Húna- veri. Forystumenn kórsins. Fyrsti söngstjóri kórsins var, eins og fyrr segir, Gisli heitinn Jónsson á Eyvindarstöðum. Hann var afburða söngstjóri og elsku- legur félagi, en féll frá á bezta aldri, öllum harmdauði er af hon um höfðu einhver kynni. Aðrir söngstjórar kórsins hafa verið: Þorsteinn heitinn Jónsson frá Ey vindarstöðum, bróðir Gísla, Gísli heitinn Pálmason á Bergsstöð- um, og svo þeir Finnstungubræð ur, Jónas og Jón Tryggvasynir. Er Jón stjórnandi kórsins nú Fyrsti formaðurinn var Tryggvi heitinn Jónasson í Finnstungu, frábær félagsmálamaður og einstakur unnandi sönglistar en núverandi formaður er Guð- mundur Halldórsson á Bergs- stöðum. Færir út kvíar Lengst af hefur þátttaka í kórnum verið bundinn við Ból- staðarhlíðarhrepp einan, en nú hefur hann, með batnandi sam göngum, fært út kvíarnar, og standa nú einnig að honum söng menn úr Svínavatnshreppi. Kór- inn hefur að sjálfsögðu mjög oft sungið opinberlega á þessu tíma- bili og hvarvetna þótt aufúsu- gestur, enda hefur það farið sam an, að hann hefur jafnan átt ágætum söngmönnum á að skipa og prýðilegum söngstjórum. Einstakt rit. 1 tilefni af afmælinu hefur kór inn gefið út rit, Tónar í tóm- stundum, framúrskarandi vand að og smekklegt að frágangi. Er það allt handskrifað af einum kórfélaganum, Guðm. Tryggva- syni, bónda í Finnstungu, og síð an Ijósprentað. I ritinu er rak- in saga kórsins, saman af sr. Gunnari Ámasyni frá Æsustöð- um og aftast í því eru birt 15 karlakórslög samin af söngstjór unum Gísla og Þorsteini Jónsson um og Jónasi Tryggvasyni. Á rit inu er snilldarskrift eins og þær myndir sýna er hér fylgja með. Sagart bak við söguna Hér hefur nú, í stuttu máli, ver ið drepið á örfá atriði merkrar sögu. Flest er þó ósagt, eftir er sagan bak við söguna. Sjálfsagt þykir ýmsum það ekki orðavert, þó að karlakór í norðlenzkri dala byggð nái 35 ára aldri. Þeir, sem til þekkja vita þó vel, að oft hef ur minna afreki verið haldið á loft. Heyrt hef ég þá, sem í þéttbýli búa, kvarta undan því erfiði, sem þátttaka i kórum þar hafi í för með sér. Hvað mundi því fólki finnast ef það væri kom ið upp í sveit og ætti, að enduð- um löngum og ströngum vinnu degi, að leggja á sig að fara fót gangandi eða á hesti margra km vegalengd, syngja 3—4 klst., koma heim undir morgun og hefja þá verk á ný? Sannleikur- inn er sá, að á bak við störf eins og það, sem unnið hefur ver ið af karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps og öðrum slíkum félög- um sem búa við svipaðar aðstæð ur, liggur óhemju erfiði, sjálfsaf- neitun og fórnfýsi. Eiga þar (Frauihald á 13. síðu). prjon vtíjáh *>on. ■tww íiii'ifeífjoiy ...... ÍSMpiiBÍi ■ HHi Jr"*—""""j : I tý. ? JiÍ- a y«i«i;mjpt " ...... • ....... Harpan mín í hylnum Þetta heiti gefur Jónas Tryggvason í Ártúnum í Aust ur-Húnavatnssýslu ljóðabók, sem hann sendi frá sér fyrir síðustu jól. Prentverk Odds Björnssonar á Akureyri hef ur annast ytri búninginn < og farist sitt hlutverk vel að venju. , Og mér var sjálfum í mun að reyna. Það mistókst þó alla stund. Eg kaus mér hörpu með háan streng, en hafði hennar lítil not. Hún flutti aðeins einróma tóna og undarlegt stefjarbrot. Eg las þessa bók núna um Þá gkipti ég um Qg lág. páskana mér til ánægju: Jónas Tryggvason gerir grein fyrir nafni bókarinnar og ljóðagerð sinni á eftirfar andi hátt í kvæðinu „Til þeirra, sem héldu að ég vœri skáld stemmd lög ég lék nú á streng minn einn. Þeim hæfði víst ekki að heyrast víða, enda heyrði þau sjaldnast neinn. Svo gafst ég upp, því Þið sögðuð ég ætti að yrkja engum er fært ljóð að ætla sér þyngra en hann jjg ávaxta svo mitt pund. ber. Eg kastaði hörpunni af hendi í dýpsta hylinn við fætur mér. Og harpan mín liggur í hylnum enn. Þó heyri ég stundum óm frá strengjum hennar sem hvíslað í eyra með hálfkæfðum sorgarróm. Þá verða mér löngum ljóð á vör og lauskveðnar hendingar. sem fæðast við störf mín í fjósi og hlöðu, — fæðast og deyja þar. Mitt ljóð er augnabliks- ævintýr i einsemd hins þögla manns Það geymist í dag, en er gleymt á morgun og grafið í vitund hans. sannar að hér er á ferð, bæði greindur maður og gott skáld, þó að hann vilji vera meira skáld. Þetta yfirlætislausa kýæði Jónas Tryggvason Bókin er ein af athyglis- verðari Ijóðabókum seinustu ára. Finna má galla í kvæð- um þar, en líka mikla kosti. Stuðlar þeirra flestir bjóða sig léttir og leikandi til söngs. Málfarið er yfirleitt vandvirknislegt og fágað. Þess vegna hrekkur maður við og þykir leiðinlegt að sjá þar orðið „sjönsum“, þó að í gamansömu kvæði sé, („Lýrísk ástavísa“). Langar til að strjúka það brott eins og fis af hreinu fati. „FLÚÐADRANGUR" er kvæði, sem reynir á frá- sagnarmátt. Þar eru þessi erindi: Þú stóðst hér um aldir og enginn kann upphafs þíns sögu og fortíðar skil. (Framhaid á 13. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.