Tíminn - 30.04.1960, Blaðsíða 8
8
TfMlNN, laugardaginn 30. aprfl 1960,
Úr lofti getur að líta eyði-
lega strandlengjuna, flat-
neskjuleg hraun og svarta
sandfláka. Mórautt vatnið
úr Ölfusá blandast grágræn-
um sjónum á breiðu svæði.
Á einum stað við ströndina
má þó sjá iðgrænan gróður-
teig, óendanlega lítinn og
umkomulausan kringdan
dökkum sandi og hrjóstrugu
hrauni eins langt og augað
eygir. Þarna er vin í eyði-
mörkinni, dyr Suðurlands að
hafinu, Þorlákshöfn .
Ósjálfrátt leitar augað
að þessu eina lífsmarki
auðnarinnar. í tveimur
skipulegum röðum má sjá
snotur íbúðarhúsin og nær
sjónum þyrpingu stórhýsa.
Tveir hafnargarðar teygj a
sig lítinn spöl út frá fjör-
unni eins og sterklegir arm
ar reiðubúnir að taka á móti
fiskibátunum utan af mið-
unum.
Gró'Sur og mannlíf
Það verður ekki komizt til
Þorlákshafnar úr lofti enda
oftast greiðar leiðir á landi
og sjó. Bíllinn hristist og
skekst á ójöfnum veginum.
Þegar hrauninu sleppir taka
við sandöldur og hólar þar
sem melgrasskúfurinn harði
berst hatrammri baráttu
fyrir tilveru sinni. Víða
stendur nakin klöppin upp
úr sandinum á stórum svæð
um. Áður en varir erum
við komnir inn í þorpið og
hér er grasi gróið milli ný-
reistra húsa. Gróður og
mannlíf hefur haslað sér
völl mitt í auðninni.
Hafna/borg framtíftar
Fyrir 10 árum töldust 5—
6 menn heimilisfastir í Þor
lákshöfn. Nú eru þar nær
200 íbúar og á vertíðinni
var aðkomufólk allt að því
jafn margt heimamönnum.
Nýtt frystihús fullbúið hrað
virkjum tækjum gefur fyrir
heit um enn örari fólks-
fjölgun á næstu árum. Og
fyrirhuguð hafnarmann-
virki munu breyta staðn-
um í einhverja stærstu og
umsvifamestu verstöð lands
ins í náinni framtíð. Brú
yfir Ölfusárósa mun gera
litið þorp að hafnarborg
Suðurlands.
Me'Salaldur 16 ár
Það er táknrænt fyrir
þennan framtíðarstað að
þar hefur enginn dáið i 11
ár. Og meðalaldur þorps-
búa mun vera nærri 16 ár-
um. Það er unga fólkið sem
ræður ríkjum og stórhugur
þess sem svífur yfir vötn-
unum. Meitillinn h.f. heitir
fyrirtækið, sem rekur út-
gerð, söltunatstöðvar og
skreiðarframleiðslu í Þor-
lákshöfn og hefur nú reist
nýtízku frystihús sem getur
framleitt úr 100 lestum af
hráefni á 10 klukkustund-
um. Framkvæmdastj. þessa
umsvifamikla fyrirtækis er
ekki bagaður af ellihrum-
leika fremur en annað í
þorpinu. Þar situr í hús-
bóndastóli hár og grannur
maður, kvikur á fæti og
fylgist með öllu vökulu
auga. Benedikt Thoraren-
sen er einungis 34 ára að
aldri en hefur þó stjórnað
framkvæmdum í Þorláks-
höfn um áratug.
Allt nema kjólklæddir
þjónar
Okkur verður fyrst geng-
ið'að frystihúsinu sem gnæf
ir hæst yfir staðinn, og hitt
þar sem enginn hefur dáið í 11 ár og fiskinum er
mokað á land, þótt höfnin sé suður í Þýzkalandi
um þar fyrir Áma Bene-
diktsson fulltrúa á bjartri
og vistlegri skrifstofunni.
Hann sýnir okkur efstu hæð
hússins en þar eru íbúðir
starfsfólks og kaffisalur.
Herbergin eru stór og rúm-
góð, hátt til lofts og birt-
an rennur óhindrað inn
um víða glugga. í matsaln
um er búið að le.ggja á borð
fyrir 100 manns, þar er set
ið við sex manna borð. Þessi
t matsalur hefði sómt sér á
fyrsta flokks veitingahúsi,
það vantar ekkert annað en
kjólklædda þjóna og himin
háa reikninga. Hæðin öll
var líkari sumarhóteli fyrir
túrista en verbúðum.
Biskupsútger'ð
Þeir hefðu glennt upp
skj áina gömlu mennirnir
sem reru kýttum höndum á
opnum teinæringum frá
Þorlákshöfn fyrr á tímum.
Um 40 flutningaskip leggiast að bryggiu i Þorlákshöfn á ári.