Tíminn - 30.04.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.04.1960, Blaðsíða 9
TÍMINN, laugardaginn 30. aprfl 1!> 9 Bcnedikt Thorarensen vi8 nýju flökunarvélasamstæSuna. I hefðu þeir mátt líta þessa dýrð. Þvi það er ekkert nýtt að róið sé frá Þorlákshöfn þótt aðstaðan sé önnur og á enn eftir 'að batna. Þar hefur verið verstöð frá því snemma á öldum. Biskups stóllinn i Skálholti rak þar útgerð á miðöldum og stað urinn ber einmitt nafn dýr- lingsins Þorláks helga, sem jafnan hefur þótt bregðast vel við áheitum. Dangt fram yfir síðustu aldamót var róið á opnum bátum frá Þorlákshöfn og þar var þrautalending Eyrarbakka- báta þegar ólendandi var eystra. Þótt lendingin j Þor lákshöfn væri sú bezta sunnanlands var ekki allt af auðvelt að leggjast þar að. Ur'Öu atí seila iiskíntíi Stundum urðu sjómenn að «taka þann kostinn að seila fiskinn til að koma honum í land úr bátunum. Voru þá fiskamir þræddir upp á snúru hver af öðrum, stungið í gegnum tálknin, og þannig dregnir á land en bátamir úti á legunni á Eftir Jökul Jakobsson meðan. Sllk vinnubrögð voru vitaskuld ærið tafsöm og seinleg og því hefði gömlu mðnnunum þótt það undur og stórmerki að sjá aflann tekinn beint upp úr lest á vélbátnum og flutt- an á færibandi inn í flök- unarvélar og roðflettingar- maskínur. — En frystihús- ið nýja er einmitt þannig staðsett að í framtíðinni verði hægt að skipa beint upp úr bátunum og inn í húsið. Það stendur fremst á sjávarklöppunum og verð ur bætt við álmu út i höfn ina þar sem fiskimóttakan er fyrirhuguð. Steinker i höfnina Úr skrifstofu sinni hefur Benedikt Thorarensen gott útsýni yfir höfnina og fylg ist með bátunum þegar þeir koma að- Hann býður okkur sæti og fellst á að rekja okk ur sögu fyrirtækisins. — Meitillinn er hlutafé- lag sem var stofnað í því skyni að koma á fót útgerð og öðrum, framkvæmdum hér í Þorlákshöfn, segir Benedikt, — það var árið 1950 að framkvæmdir hóf- ust hér. Þá var höfnin kom in skemur á veg en nú er. Þá var ekki hægt að leggja nema einum bát að bryggju þegar bezt var og bliðast. Síðan hafa verið steypt hér á staðnum allmörg steinker sem sett hafa verið niður í höfnina. Nú eru hér tvær bryggjur, Suðurvör og Norð urvör. Hentast litlum bátum — Það var lítið um bygfe ingar á staðnum, þegar við byrjuðum hér, hélt Bene- k dikt áfram, — þá var hér ekkert íbúðarhús, aðeins bæjarhús heimabóndans. Kaupfélag Árnesinga hafði hér aðgerðarhús áður fyrr en sá rekstur stöðvaðist í stríðsbyrjun þegar herinn hreiðraði um sig í Kaldaðar nesi og sogaði til sín allt vinnuafl. Nú eru gerðir hér út um 10 bátar en þegar við byrjuðum hér var einung- is einn bátur á okkar snær um. Bátarnir eru flestir heldur litlir, frá 20 upp í 50 lestir, einn stærri, Viktoría, sem er 103 lestir. Hún er hvort tveggja í senn land- róðrabátur og útilegubát- ur. Vegna stærðarinnar hefur útgerð hennar reynst hagkvæmari á þann hátt. Fiskisapld Útgerð héðan er hentust litlum bátum og ber þar margt til. Héðan er skammt að fara á miðin, ekki nema klukkutíma stím. Eg man ekki eftir nema einni vertíð sem bátar urðu að sækja á Vestmannaeyjamið. Þótt vertíðirnar hafi verið mis- jafnar eins og gengur er fiskisældin míkil. Vertíðin í vetur hefur verið sú bezta sem af er. Hér hefur minnsti báturinn, ísleifur, sem er ekki nema 22 lestir, aflað um 700 lestir. Og hin- ir bátarnir hafa aflað á við hæstu Vestmannaeyjabáta, um 900 lestir. Fram til febrúarloka er róið með línu og yfirleitt ekki byrjað fyrr en eftir ára mót. Vertíðin stendur því ekki nema 4 mánuði á ári en vonandi að það breytist þegar hafriarskilyrði batna og frystihúsið tekur til starfa. Bátarnir hafa verið aðgerðarlitlir aðra mánuði ársins. Einn og tvo höfum við sent norður á síld en hin ir hafa haft lítil verkefni, sumir þó róið frá nærliggj- andi höfnum en slík útgerð er örðugleikum bundin. Það hefur til dæmis reynst illt að manna bátana með þeim hætti. 13 milljónir — Það er staðnum lífs- nauðsynlegt að útgerð geti verið hér sem lengst og mest, segir Benedikt enn- fremur, — þess vegna höf- um við líka ráðist í aö byggja þetta frystihús. Fjár festingarleyfi fékkst sumar ið 1958 og hefur verið starf að nær óslitið síðan. Nú er verið að leggja síðustu hönd á verkið. Kostnaður var á- ætlaður 12—13 milljónir kr. og fer ekki mikið fram úr þeirri upphæð. Á efstu hæð eru íbúðir fyrir 88 manns en við verð um mikið að byggja á að- komufólki. Verksmiðjan get ur unniö úr 100 lestum af hráefni á 10 klukkustund- um. Við höfum fengið Baader-vélasamstæðu til að vinna úr fiskinum, full- komnustu vélar og ærið harðvirkar. Þar eru flökun ar-, afhausunar- og roð- flettingarvélar. Auk þess er 30—40 manna handflökun arkerfi fyrir karfann. Hér hefur verið vandað til alls. Vélsmiðjan Héðinn h.f. sá um kæli- og frystikerfi en Hamar h.f. setti upp færi- böndin. Yfirsmiður við hús- ið hefur verið Óskar Eyjólfs son, en Kaupfélag Árnes- inga á Selfossi séð um vatns hita- og raflagnir Þaklð á húsinu er með nokkuð ný- stárlegum hætti. Steyptar hafa verið vikurplötur sem síðan er raðað á stálgrind og bikað á milli. Þessar plötur voru settar fyrir fiór um árum á risastóra vöru- skemmu hér og hafa reynst svo vel að ekki hefur þurft að halda þeim við að neinu leyti. Ven.iulegt járnplötu- þak hefði ekki þolað siávar seltuna hér. Þessar vikur- plötur hefur Reginn h.f. framleitt. Brimsósrur otr áffiöf Benedikt rís á fætur og skyggnir hönd fyrir auga. Þarna kemur fyrsti bátur- inn að, segir hann, — þeir koma venjulega snemma, eiga svo skammt að róa. Þessi bátur er byrjaður á línuveiðum aftur. Það verð ur gaman að sjá hvað þeir hafa fengið. Við röltum áleiðis niður að höfninni og fylgjumst með bátnum sem fikar sig upp með ströndinni og þarf ekki að krækja fyrir grynn ingarnar né sker á leið sinni. — Hér er góð höfn frá náttúrunnar hendi, segir Benedikt okkur, — báta- lægið hefur batnað við (FramhaJd á 13. síðu). í framtiSinni munu fiskibátarnir leggja afiann beint upp í nýja frystihúsið, sem sést hér á myndlnnl Myndin sýnir vb. Þoriák leggja aS komin úr fyrsta línuróðrinum á vorinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.