Tíminn - 30.04.1960, Blaðsíða 12
12
T í MIN N, laugardaginn 30. apdl WW.
'ví
rj.t *
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
Reykjavíkurmeistarar keppa
á Akureyri og Húsavík
■ ■■
EinvígitS um heimsmeistaratitilinn í skák:
Nú er fariö að halla
vinnik í viðskiptunum vi
Nú er tekið að síga á seinni!
hlutann í einvígi þeirra Bot-
vinniks og Tals um heims-
meistaratitilinn í skák. Fáum
blandast orðið hugur um, að
Botvinnik hefur hitt fyrir of-
jarl sinn að þessu sinni, þótt
hitt megi af skákunum ráða, j
að Botvinnik teflir nú naum-
ast af þeirri skerpu sem hon-
um er gefin, þegar hann er
upp á sitt bezta.
Botvinnik hefur þó teflf ílestar
skákirnar vel framanaf, en hann
notar mun meiri umhuigsunartima
en andstæðingurinn, lendir svo í'j
tímaþröng og leikur þá oft af sér.:
Það er einmitt þessi gangur skák-
anna — góð uppbygging hjá Bot-:
vinnitk og afleikir í tímaþröng, sem i
vafalaust munu válda því, að ýms-'
ir skákmenn, sem ekki kunna vel
að meta stkákstíl Tais, svo sem tii
dæmis Smýsloff, munu ekki vilja
viðurkenna yfirburði Tals, þótt
hann fari með sigur af hólmi, ogj
munu að líkindum hvetja Bot-
vinnik til hefnda að ári, 1 þeirri
von að hann verði þá betur fyrir-
kailaður. En einviginu er nú enn
ekki lokið — ennþá getur heims-
meistarinn orðið harður í horn að
taka.
Fréttir af einvíginu hafa ekki
verið eins góðar að undanförnu
eins og þær voru í fyrstu. Einkum
var það skarð fyrir skildi, þegar
aðstoðarmaður Tals, Koblenz, sá
sem ekki lengur fært að senda
tréttabréf frá einvíginu. Alls hafði
hann þá sent átta bréf og tekið
fyrir jafn margar skákir. Blaðið
mun væntanlega geta birt síðustu
skákir einvígisins tiltölulega
skömmu eftir að þær verða tefld-
ar, en bilið á miiii greina aðstoð-
armannsins og skáka þeirra, sem
birtar verða nýjar, ætla ég að brúa
nokkuð með því að rekja gang bax-
áttunnar um mikbik einvígisins.
Eins og lesendur minnast, hafði
aðstoðarmaðurinn lýst því í sxð-
ustu grein sinni, hvernig Tal fékk
verri stöðu með svörtu í áttundu
skákinni, en tóbst sem oftar að
grugga vatnið með peðsfórn og ná
sterkri gagnsókn. Hefði sú gagn-
sókn getað orðið Botvinnik skeinu
hætt, ef svo hefði ekki brugðið
við, að einnig Tal komst í ofsalega
tímaþröng, og þótt hann sé álitinn
vera bezti hraðskákmaður heims-
ins, varð honum þá á að leika
röngum hrók um einn reit, og réði
sú ytfir.sjón úrslitum skákarinnar,
eins og fyrst kom í ljós, þegar öll
lætin voru um garð gengin, og
menn gátu iitið yfir baráttuvöilinn
í ró og næði. Þannig varð fyrsti
sigur Botvinniks í einvíginu næsta
tiiviljunankenndur, og staðan í
einvíginu hefði næstum alveg eins
getað verið 6:2, eins og 5:3, sem
hún var í reyndinni.
Þá er að segja lítillega frá ní-
undu skákinni. Að því sinni kom
Tal með heimatiibúna
sprengju gegn Caro-Kann
vörninni, sem Botvinnik hafði sett
traust sitt á. Nýjung þessi var ali-
glæfraieg mannsfórn í 11. leik,;
sem þó hefði sennilega verið bás-
únuð sem nothaef og glæsileg, ef
Botvinnik hefði ekki einmitt ratað
á réttu vörnina og þannig sýnt
fram á, að hér var um púðurskot
að ræða. Botvinnik hrundi sókn-
inni, hélt manni yfir gegn þrem
heldur lítilfjörlegum peðum, og
vann svo endataflið með ná-
kværnni fagmannsins í 58. leik.
Þetta var mikill móralskur sigur
fyrir Botvinnik, en þungt áfail
fyrir Tai, sem ekki átti í taili nein-
ar nothæfar sprengjur í fórum
sínum gegn hinu trausta virki
Caro-Kann varnarinnar. Þá var
staðan í einvíginu líka orðin
Lkyggilega jöfn, 5:4 fyrir Tal.
í 10. skákinni beitti Tal kóngs-
indverskri vörn og með nokkuð
óvenjulegri leikjaröð kom upp
þekbt staða í 11. leik, sem Bot-
vinnik virtist þó efcki vei'a vel
kunnugur. Að minnsta kosti brá
hann útaf aifaraleið með þeim
miður góða árangri, að tapa strax
peði án nokkurra teljandi sóknar-
færa. Það varð þó heimsmeistar-
anum til happs, að einnig Tal
tefldi skákina gloppótt, og þegar
báðir höfðu misst af beztu leið
nokkrum sinnum til skiptis, end-
aði sfcákin friðsamlega í 60. leik,
og staðan var orðin 5V2:4%.
í 11. skákinni gerðust þau tíð-
indi, að Tal lék í fyrsta skipti ekki
kóngspeðinu fram i fyrsta leik, en
lét sér naígja hina rólegu Réti-
byrjun; 1. Rf3. Lesendur muna ef
til viM, að aðstoðarmaður hans
hafði látið svo um mælt í einni
greina sinna, að ef svo sterkt vopn
yrði slegið úr hendi Tals, sem
kóngspeðsbyrjunin er, þá væri
einvígið að hálfu unnið fyrir Bot-
vinnik. Svo miklir atburðir höfðu
Körfuknattleiksfél. Reykja-
víkur fer um helgina í keppn-
isför til Akureyrar og Húsa-
víkur í boði norðanmanna og
mun K.A annast alla fyrir-
f fyrrakvöld sigruðu íslands-
meistarar ÍR í körfuknattleik
úrvalslið úr öðrum Reykjavík-
urfélögunum með 74 stigum
gegn 42, sem er glæsilegur ár-
angur fyrir ÍR-inga. Mynd
þessa tók Sveinn Þormóðsson
af ÍR-ingunum eftir leikinn. Á
henni miðri er Albert Guð-
|jnundsson, formaður ÍR.
— staðan var orðin 6'/2 : 4% Tal
í hag.
f 12. skákinni beitti Tal Tarr-
asch vörn og sýndi vel sinn skæða
árásarstíl. Þannig tefla aðeins
menn, sem þora að gefa nokkurn
höggstað á sér. Botvinnik tefldi
hins vegar traustlega að vanda —
skipti upp á hættulegustu árás-
armönnum andstæðingsins og
stefndi út í hagstætt endatafl.
Hinar djarflegu áætlanir Tals
höfðu kostað mikinn umhugsunar-
tíma og komu'St nú báðir keppend-
ur snemma í tímaþröng. Missti þá
Botvinnik oftar en einu sinni af
beztu leiðum, sem hefðu fært hon
um góðar vinningsvonir og loks
rændi hann peði, sem hefði getað
kostað hann skákina, en þá var
röðin komin að Tal að missa af ör
uggri vinningsleið. Eins og skákin
tefldist, tókst Botvinnik ekki ein-
ungis að fcoma fyrir sig vörnum,
heldur fcomst hann út í endatafl
með peð yfir. Biðskákina tefldi
Tal af mikilli náfcvæmni, og varð
Botvinni'k efckert ágengt með peð
sitt í drottningarendataflinu. Jafn
tefli var samið eftir 72. leik. Stað-
an að hálfnuðu einvígi var því 7:5
ásborandanum í hag.
MICHAEL TAL
— næsti heimsmeistari?
þó efcki gerzt. Eins og síðar kom
í ljós, var hinn nýi byrjunarleik-
ur aðeins tímabundin tilraun, ætl-‘
uð tiil þess að drepa tímann á
meðan nýjum skotfærum var safn
að gegn Caro-Kann virkinu. „Til-
raunin bar þó óvæntan árangur.
Ýmsir höfðu búizt við, að Bot-
vinnik myndi kunna vel við sig í
hinni rólegu Rétibyrjun, en með
snilldarlegri taf'lmennsku tókst
Tal að ná betra tafli út úr byrjun-
inni og það var ekki fyrr en í mið-
taflinu, sem Botvinnik tókst með
viðlíka snil'li að rétta hlut sinn. Þá
barði hins vegar víðkunnur vá-
gestur — tímaþröngin að dyrum
hjá Botvinnik og varð honum þá
á að hrasa lítillega út af braut ná-!
kvæmninnar. Ekfcert slíkt fór
fram hjá hvössum arnaraugum
andstæðingsins. Tal herti sóknina.
að nýju og tókst að ná sigri í 72.
leik eftir vel teflda sfcák af beggja
hálfu. Bilið hafði nú aftur aukizt
13. skákin varð áhorfendum til j
vonbrigða. Eftir aðeins stundar-
baráttu og .16 leiki, sömdu fcepp-1
endur jafntefli. Virtist svo sem
báðir vænx dasaðir eftir hin
löngu endatöfl dagana áður, og!
kysu því heldur að safna kröftum
fyrir lokaihríðina. Báðir gátu líka
að 'vissu leyti verið ánægðir með
úrslitin, Botvinnik vegna þess að
hann náði jöfnu með svörtu mönn-
unum, en Tal af því að hann hélt
hinu góða forskoti sínu. Tal er í
síðara helmingi einvígisins kom-
inn í þá aðstöðu að @eta teflt upp
á j'afntefli og látið Botviniiik
sækja á. f 'Sbákinni urðu skjót upp,
skipti á drottningum og ffleiri
mönnum, svo ekki var orðið mikið
til að tefía upp á er samið var.
Nokkru áður hafði Botvinnik hafn
að tækifæri til að flækja tafflið sér
í hag. Staðan var nú 7% : 5%. j
í 14. einvígissfcákinni valdi Bot-
vinnik skarpt framhald gegn
Nimzo-indverskri vörn Tals, en á-
skorandinn svaraði með skjótri
r'iddaraárás, sem nýtur lítiis stuðn-
ings skákfræðinnar. Vera kann,
að Botvinnik hafi óttazt leyni-
vopn hjá Tal í þessu afbri'gði, svo j
mikið er víst, að hann nbtfærði sér1
efcki uppskrift skáfcfræðinnar
gegn leiknum, heldur teffldi ó-
venjulega leið, sem gaf Tal færi
á að skipta upp í endataffl. Þrátf
fyrir sinn unga aldur sýndi Tal;
mitola leikni í endataflinu. Bot-|
greiðslu í sambandi við keppn
isferð þessa.
Á laugardag 30. apríl fer fram
kappleikur á Akureyri í íþrótta-
liusl Menntaskólans kl. 17,00 milli
K.A., sem eru Akureyrarmeistarar
í þessari íþróft og K.F.R., sem eru
niiverandi Reykjavíkurmeistarar.
Um kvöldið verður efnt til fagn-
aðar á Hó’.ei KEA.
Á sunnudag 1. maí fer fram
fcappleifcur á Húsavík, en þar ríkir
talsverður ahugi fyrir körfuknatt-
leik. Keppnin fer fram í hinum
nýja veglega íþróttasal, sem rúm-
ar um 300 áhorfendur. Keppir K.
F.R. við únalslið frá íþróttabanda
lagi Akureyrar. Leikurinn fer
fraarn kl. 17,00.
vinnik komst ekkert á'leiðis, og var
það aðdáendum hans til von-
brigða, að hann skyldi engu fá
áorkað með hvítu mönnunum.
Jafntefli var samið eftir 22. leik,
og staðan var orðin 8:6 áskorand-
anum í hag.
í 15. skákinni lék Tal aftur
kóngspeöinu fram í fyrsta leik.
Virðast þeir félaga,, hann og Kob
lenz, aftur hafa verið búnir að-
safna skotfærum gegn Caro-Kann
vörninni. Með hinni nýju leið
sinni tókst Tal að halda betra tafli
allt fram að biðtíma, en Botvinnik
aí rði rnestu hættunni með upp-
skip'tum, og þótt hann hefði -peði
minna í biðstöðunni, var samið
um jafntefli án frekari baráttu,
þegar heimarannsóknir höfðu leitt
í ljós, að Botvinnik gat haldið
skákinni. Stðan að loknum 15 skák
um var því sú, að Tal hafði 81-2
vinning, en Botvinnik 6%.
Verður nú baráttan ekki rakin
lengur að sinni, en lesendum sjálf-
um leyft að líta á 16. skákina, sem
birt er nær skýringalaus rúmsins
vegna. 17. skákin verðúr svo vænt-
an'lega birt í blaðinu eftir helgina
og síðan þær skákir, sem eftir eru
af einvíginu. — Freysteinn.
16. skákin:
Hvítt: Botvinnik. — Svart: Tal.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
a3 Bxc3 5. bxc3 Re4 6. Dc2 (í 14
sfcákinni lék Botvinnik hér 6. Rh3.
en varð ekfcert ágengt eftir 6. —
c5 7. e3 Da5 8. Bd2 cxd4 9. cxd4
Rxd2 10. Dxd2 Dxd2f 11. Kxd2 b6
o. s. frv. f þessari skák fer Botv.
rneira að ráðum skákfræðinnar.)
6. — f5 7. Rh3 d6 8. f3 Rf6 9. e4
fxe4 10. fxe4 e5 11. Rf2 0—0 12.
Be2 c5 13. dxe5 (Botvinnik stefn-
ir að því að koma riddara sínum
á reitinn d5, þar sem hann verður
að stórveldi, svartur á ekki sam-
svarandi reit á d4) 13. — dxe5 14.
0—0 Rc6 15. Bg5 De8 16. Rdl
Dg6 17. Bxf6 IIxf6 18. Re3 Hxflv
19. Hxfl Be6 20. Dd3 Hd8 21. Rd5
Hf8 22. Rc7 Hxflf 23. Bxfl Df7
24. Dd6 Bc8 (Tal verst vel. Ekki
mátti leika 24. —Bxc4? sökum 25.
Bxc4 Dxc4 26. Re6 og hvítur mát-
ar eða vinnur drottninguna.) 25.
Ra6 Df4 26. Dd5f Kh8 27. Dxc5
Be6 28. Rc7 Bg8 29. Df2 Dxe4 30.
Re8 Dg6 31. Df8 e4 32. Rd6 Re5
33. c5 Rd3 34. Rf5 Re5 35. Re7
Df7 36. Dxf7 Bxf7 37. Kf2 Bc4 38.
Bxc4 Rxc4 39. c6 bxc6 40. Rxc6 a5/
Hér fór skákin í bið, en keppend-
ur sömdu síðan jafntefli án fram
halds, og staðan í einvíginu var'
9:7 áskoramdanum í hag.