Tíminn - 30.04.1960, Síða 12

Tíminn - 30.04.1960, Síða 12
12 T í MIN N, laugardaginn 30. apdl WW. 'ví rj.t * RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON Reykjavíkurmeistarar keppa á Akureyri og Húsavík ■ ■■ EinvígitS um heimsmeistaratitilinn í skák: Nú er fariö að halla vinnik í viðskiptunum vi Nú er tekið að síga á seinni! hlutann í einvígi þeirra Bot- vinniks og Tals um heims- meistaratitilinn í skák. Fáum blandast orðið hugur um, að Botvinnik hefur hitt fyrir of- jarl sinn að þessu sinni, þótt hitt megi af skákunum ráða, j að Botvinnik teflir nú naum- ast af þeirri skerpu sem hon- um er gefin, þegar hann er upp á sitt bezta. Botvinnik hefur þó teflf ílestar skákirnar vel framanaf, en hann notar mun meiri umhuigsunartima en andstæðingurinn, lendir svo í'j tímaþröng og leikur þá oft af sér.: Það er einmitt þessi gangur skák- anna — góð uppbygging hjá Bot-: vinnitk og afleikir í tímaþröng, sem i vafalaust munu válda því, að ýms-' ir skákmenn, sem ekki kunna vel að meta stkákstíl Tais, svo sem tii dæmis Smýsloff, munu ekki vilja viðurkenna yfirburði Tals, þótt hann fari með sigur af hólmi, ogj munu að líkindum hvetja Bot- vinnik til hefnda að ári, 1 þeirri von að hann verði þá betur fyrir- kailaður. En einviginu er nú enn ekki lokið — ennþá getur heims- meistarinn orðið harður í horn að taka. Fréttir af einvíginu hafa ekki verið eins góðar að undanförnu eins og þær voru í fyrstu. Einkum var það skarð fyrir skildi, þegar aðstoðarmaður Tals, Koblenz, sá sem ekki lengur fært að senda tréttabréf frá einvíginu. Alls hafði hann þá sent átta bréf og tekið fyrir jafn margar skákir. Blaðið mun væntanlega geta birt síðustu skákir einvígisins tiltölulega skömmu eftir að þær verða tefld- ar, en bilið á miiii greina aðstoð- armannsins og skáka þeirra, sem birtar verða nýjar, ætla ég að brúa nokkuð með því að rekja gang bax- áttunnar um mikbik einvígisins. Eins og lesendur minnast, hafði aðstoðarmaðurinn lýst því í sxð- ustu grein sinni, hvernig Tal fékk verri stöðu með svörtu í áttundu skákinni, en tóbst sem oftar að grugga vatnið með peðsfórn og ná sterkri gagnsókn. Hefði sú gagn- sókn getað orðið Botvinnik skeinu hætt, ef svo hefði ekki brugðið við, að einnig Tal komst í ofsalega tímaþröng, og þótt hann sé álitinn vera bezti hraðskákmaður heims- ins, varð honum þá á að leika röngum hrók um einn reit, og réði sú ytfir.sjón úrslitum skákarinnar, eins og fyrst kom í ljós, þegar öll lætin voru um garð gengin, og menn gátu iitið yfir baráttuvöilinn í ró og næði. Þannig varð fyrsti sigur Botvinniks í einvíginu næsta tiiviljunankenndur, og staðan í einvíginu hefði næstum alveg eins getað verið 6:2, eins og 5:3, sem hún var í reyndinni. Þá er að segja lítillega frá ní- undu skákinni. Að því sinni kom Tal með heimatiibúna sprengju gegn Caro-Kann vörninni, sem Botvinnik hafði sett traust sitt á. Nýjung þessi var ali- glæfraieg mannsfórn í 11. leik,; sem þó hefði sennilega verið bás- únuð sem nothaef og glæsileg, ef Botvinnik hefði ekki einmitt ratað á réttu vörnina og þannig sýnt fram á, að hér var um púðurskot að ræða. Botvinnik hrundi sókn- inni, hélt manni yfir gegn þrem heldur lítilfjörlegum peðum, og vann svo endataflið með ná- kværnni fagmannsins í 58. leik. Þetta var mikill móralskur sigur fyrir Botvinnik, en þungt áfail fyrir Tai, sem ekki átti í taili nein- ar nothæfar sprengjur í fórum sínum gegn hinu trausta virki Caro-Kann varnarinnar. Þá var staðan í einvíginu líka orðin Lkyggilega jöfn, 5:4 fyrir Tal. í 10. skákinni beitti Tal kóngs- indverskri vörn og með nokkuð óvenjulegri leikjaröð kom upp þekbt staða í 11. leik, sem Bot- vinnik virtist þó efcki vei'a vel kunnugur. Að minnsta kosti brá hann útaf aifaraleið með þeim miður góða árangri, að tapa strax peði án nokkurra teljandi sóknar- færa. Það varð þó heimsmeistar- anum til happs, að einnig Tal tefldi skákina gloppótt, og þegar báðir höfðu misst af beztu leið nokkrum sinnum til skiptis, end- aði sfcákin friðsamlega í 60. leik, og staðan var orðin 5V2:4%. í 11. skákinni gerðust þau tíð- indi, að Tal lék í fyrsta skipti ekki kóngspeðinu fram i fyrsta leik, en lét sér naígja hina rólegu Réti- byrjun; 1. Rf3. Lesendur muna ef til viM, að aðstoðarmaður hans hafði látið svo um mælt í einni greina sinna, að ef svo sterkt vopn yrði slegið úr hendi Tals, sem kóngspeðsbyrjunin er, þá væri einvígið að hálfu unnið fyrir Bot- vinnik. Svo miklir atburðir höfðu Körfuknattleiksfél. Reykja- víkur fer um helgina í keppn- isför til Akureyrar og Húsa- víkur í boði norðanmanna og mun K.A annast alla fyrir- f fyrrakvöld sigruðu íslands- meistarar ÍR í körfuknattleik úrvalslið úr öðrum Reykjavík- urfélögunum með 74 stigum gegn 42, sem er glæsilegur ár- angur fyrir ÍR-inga. Mynd þessa tók Sveinn Þormóðsson af ÍR-ingunum eftir leikinn. Á henni miðri er Albert Guð- |jnundsson, formaður ÍR. — staðan var orðin 6'/2 : 4% Tal í hag. f 12. skákinni beitti Tal Tarr- asch vörn og sýndi vel sinn skæða árásarstíl. Þannig tefla aðeins menn, sem þora að gefa nokkurn höggstað á sér. Botvinnik tefldi hins vegar traustlega að vanda — skipti upp á hættulegustu árás- armönnum andstæðingsins og stefndi út í hagstætt endatafl. Hinar djarflegu áætlanir Tals höfðu kostað mikinn umhugsunar- tíma og komu'St nú báðir keppend- ur snemma í tímaþröng. Missti þá Botvinnik oftar en einu sinni af beztu leiðum, sem hefðu fært hon um góðar vinningsvonir og loks rændi hann peði, sem hefði getað kostað hann skákina, en þá var röðin komin að Tal að missa af ör uggri vinningsleið. Eins og skákin tefldist, tókst Botvinnik ekki ein- ungis að fcoma fyrir sig vörnum, heldur fcomst hann út í endatafl með peð yfir. Biðskákina tefldi Tal af mikilli náfcvæmni, og varð Botvinni'k efckert ágengt með peð sitt í drottningarendataflinu. Jafn tefli var samið eftir 72. leik. Stað- an að hálfnuðu einvígi var því 7:5 ásborandanum í hag. MICHAEL TAL — næsti heimsmeistari? þó efcki gerzt. Eins og síðar kom í ljós, var hinn nýi byrjunarleik- ur aðeins tímabundin tilraun, ætl-‘ uð tiil þess að drepa tímann á meðan nýjum skotfærum var safn að gegn Caro-Kann virkinu. „Til- raunin bar þó óvæntan árangur. Ýmsir höfðu búizt við, að Bot- vinnik myndi kunna vel við sig í hinni rólegu Rétibyrjun, en með snilldarlegri taf'lmennsku tókst Tal að ná betra tafli út úr byrjun- inni og það var ekki fyrr en í mið- taflinu, sem Botvinnik tókst með viðlíka snil'li að rétta hlut sinn. Þá barði hins vegar víðkunnur vá- gestur — tímaþröngin að dyrum hjá Botvinnik og varð honum þá á að hrasa lítillega út af braut ná-! kvæmninnar. Ekfcert slíkt fór fram hjá hvössum arnaraugum andstæðingsins. Tal herti sóknina. að nýju og tókst að ná sigri í 72. leik eftir vel teflda sfcák af beggja hálfu. Bilið hafði nú aftur aukizt 13. skákin varð áhorfendum til j vonbrigða. Eftir aðeins stundar- baráttu og .16 leiki, sömdu fcepp-1 endur jafntefli. Virtist svo sem báðir vænx dasaðir eftir hin löngu endatöfl dagana áður, og! kysu því heldur að safna kröftum fyrir lokaihríðina. Báðir gátu líka að 'vissu leyti verið ánægðir með úrslitin, Botvinnik vegna þess að hann náði jöfnu með svörtu mönn- unum, en Tal af því að hann hélt hinu góða forskoti sínu. Tal er í síðara helmingi einvígisins kom- inn í þá aðstöðu að @eta teflt upp á j'afntefli og látið Botviniiik sækja á. f 'Sbákinni urðu skjót upp, skipti á drottningum og ffleiri mönnum, svo ekki var orðið mikið til að tefía upp á er samið var. Nokkru áður hafði Botvinnik hafn að tækifæri til að flækja tafflið sér í hag. Staðan var nú 7% : 5%. j í 14. einvígissfcákinni valdi Bot- vinnik skarpt framhald gegn Nimzo-indverskri vörn Tals, en á- skorandinn svaraði með skjótri r'iddaraárás, sem nýtur lítiis stuðn- ings skákfræðinnar. Vera kann, að Botvinnik hafi óttazt leyni- vopn hjá Tal í þessu afbri'gði, svo j mikið er víst, að hann nbtfærði sér1 efcki uppskrift skáfcfræðinnar gegn leiknum, heldur teffldi ó- venjulega leið, sem gaf Tal færi á að skipta upp í endataffl. Þrátf fyrir sinn unga aldur sýndi Tal; mitola leikni í endataflinu. Bot-| greiðslu í sambandi við keppn isferð þessa. Á laugardag 30. apríl fer fram kappleikur á Akureyri í íþrótta- liusl Menntaskólans kl. 17,00 milli K.A., sem eru Akureyrarmeistarar í þessari íþróft og K.F.R., sem eru niiverandi Reykjavíkurmeistarar. Um kvöldið verður efnt til fagn- aðar á Hó’.ei KEA. Á sunnudag 1. maí fer fram fcappleifcur á Húsavík, en þar ríkir talsverður ahugi fyrir körfuknatt- leik. Keppnin fer fram í hinum nýja veglega íþróttasal, sem rúm- ar um 300 áhorfendur. Keppir K. F.R. við únalslið frá íþróttabanda lagi Akureyrar. Leikurinn fer fraarn kl. 17,00. vinnik komst ekkert á'leiðis, og var það aðdáendum hans til von- brigða, að hann skyldi engu fá áorkað með hvítu mönnunum. Jafntefli var samið eftir 22. leik, og staðan var orðin 8:6 áskorand- anum í hag. í 15. skákinni lék Tal aftur kóngspeöinu fram í fyrsta leik. Virðast þeir félaga,, hann og Kob lenz, aftur hafa verið búnir að- safna skotfærum gegn Caro-Kann vörninni. Með hinni nýju leið sinni tókst Tal að halda betra tafli allt fram að biðtíma, en Botvinnik aí rði rnestu hættunni með upp- skip'tum, og þótt hann hefði -peði minna í biðstöðunni, var samið um jafntefli án frekari baráttu, þegar heimarannsóknir höfðu leitt í ljós, að Botvinnik gat haldið skákinni. Stðan að loknum 15 skák um var því sú, að Tal hafði 81-2 vinning, en Botvinnik 6%. Verður nú baráttan ekki rakin lengur að sinni, en lesendum sjálf- um leyft að líta á 16. skákina, sem birt er nær skýringalaus rúmsins vegna. 17. skákin verðúr svo vænt- an'lega birt í blaðinu eftir helgina og síðan þær skákir, sem eftir eru af einvíginu. — Freysteinn. 16. skákin: Hvítt: Botvinnik. — Svart: Tal. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. a3 Bxc3 5. bxc3 Re4 6. Dc2 (í 14 sfcákinni lék Botvinnik hér 6. Rh3. en varð ekfcert ágengt eftir 6. — c5 7. e3 Da5 8. Bd2 cxd4 9. cxd4 Rxd2 10. Dxd2 Dxd2f 11. Kxd2 b6 o. s. frv. f þessari skák fer Botv. rneira að ráðum skákfræðinnar.) 6. — f5 7. Rh3 d6 8. f3 Rf6 9. e4 fxe4 10. fxe4 e5 11. Rf2 0—0 12. Be2 c5 13. dxe5 (Botvinnik stefn- ir að því að koma riddara sínum á reitinn d5, þar sem hann verður að stórveldi, svartur á ekki sam- svarandi reit á d4) 13. — dxe5 14. 0—0 Rc6 15. Bg5 De8 16. Rdl Dg6 17. Bxf6 IIxf6 18. Re3 Hxflv 19. Hxfl Be6 20. Dd3 Hd8 21. Rd5 Hf8 22. Rc7 Hxflf 23. Bxfl Df7 24. Dd6 Bc8 (Tal verst vel. Ekki mátti leika 24. —Bxc4? sökum 25. Bxc4 Dxc4 26. Re6 og hvítur mát- ar eða vinnur drottninguna.) 25. Ra6 Df4 26. Dd5f Kh8 27. Dxc5 Be6 28. Rc7 Bg8 29. Df2 Dxe4 30. Re8 Dg6 31. Df8 e4 32. Rd6 Re5 33. c5 Rd3 34. Rf5 Re5 35. Re7 Df7 36. Dxf7 Bxf7 37. Kf2 Bc4 38. Bxc4 Rxc4 39. c6 bxc6 40. Rxc6 a5/ Hér fór skákin í bið, en keppend- ur sömdu síðan jafntefli án fram halds, og staðan í einvíginu var' 9:7 áskoramdanum í hag.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.