Tíminn - 03.05.1960, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.05.1960, Blaðsíða 3
Jt. jmgí „ 1^60. Samvinnutryggingar endurgreiða tryggjendum 4,3 milljónir króna Aðalfundur Samvinnutrygginga var haldinn á Akurevri 29. apríl. Heildariðgjaldatekjur s. 1. ár námu 65 millj. kr. en greidd tjón nær 55 millj. Samþykkt var að endurgreiða þeim, sem tryggt höfðu hjá félaginu, nær 4,3 millj kr. í tekju- afgang. Alls hefur félagið endurgreitt tryggjendum tekjuaf- gang, sem nemur nær 22 millj. kr. Er það ljós vottur um hinn glæsilega samvinnuárangur þessara samtaka. f upphafi fundarins minntist formaður félagsins, Erlendur Ein- arsson, forstjóri, Þórhalls Sig- tryggssonar, fyirv. kaupfélags- stjóra, som lézt 11. sept. s. 1., en Þórhallur hafði átt sæti í fulltrúa- ráði Samvinnutrygginga og verið endurskoðandi félagsins frá árinu 1953 til dauðadags'. ‘ Fundars'tjóri var kjörinn Jakob Fiímannsson, framkvæmdastjóri, Abureyri, og fundarritarar Óskar Jónsson, fyrrv. alþm., Vík í Mýr- dal, og Steinþór Guðmundsson, kennari, Reykjavík. Formaður félagsins, Erlendur ELnarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjórnarinnar, en framkvæmda- stjórinn Ásgeir Magnússon skýrði reikninga félagsins og flutti skýrslu um starfsemina á árinu 1959, sem var 13. reikningsár fé- lagsins. Heildariðgjaldatekjur félags- ins á árinu námu tæplega 63,5 r.illjónum króna og höfðu aukizf um 3,5 milljónir frá fynra ári. Tjónin námu röskum 54,3 milljón- um og höfðu aukizt um 14 milljón- ir. Stærsta tjónið nam kr. 14.150. 000.— og mun það vera stærsta tjónaupphæð, sem ísienzkt trygg- ingarféiag hefur inint af hendi. Samþykkt var a3 endur- greiða þeim, sem tryggt höfðu hjá félaginu kr. 4,255.426.00 í tekjuafgang, m. a. af brunatryggingum 10%, dráttarvélatryggingum 25% og skipatryggingum 6% af iðgjöldum af þessum trygg- ingum árið 1959. Með þessari endurgreiðslu tekjuafgangs til hinna tryggðu hefur félagið endurgreitt samtals til trygg- ingartakanna frá því byrjað var að úthluta tekjuafgangi árið 1949, kr. 21.990.034.—. Iðgjalda- og tjónasjóðir félags- i'iis námu í árs'lok kr. 85.125.600.— og höfðu aukizt um rúrnar 11,4 milljónir á árinu. Útlán féiagsins í árslok námu tæpri 51 milljón króna. Jafnframt var haidinn aðalfund- ur Líftryggingafélagsins Andvöku. A árinu gaf félagið út 274 ný líf- tryggingaskirteini, samtals að upp- hæð kr. 7.578.000.—. Iðgjaldatekj- ur félagsins námu tæplega 2,6 milljónum. Samþykkt var að leggja kr. 255. 000,— í bónussjóð og kr. 2.185.000. — í tryggingasjóð, og nemur hann þá kr. 16.575.000.—. í ár'slok voru í gildi 88860 líf- tryggingaskirteini og nam trygg- ingastofninn þá rösklega 100 millj- ónum króna. Að loknum aðalfundi félaganna hélt stjóriiin fulltrúunum og nokkrum gestum hóf að Hótel KEA. Stjórn félaganna skipa þeir Er- iendur Einarsson, formaður, ís- ieifur Högnason, Jakob Frímanns- son, Karvel Ögmundsson og Kjart- an Ólafsson frá Hafnarfirði. Framkvæmdastjóri félaganna er Ásgeir Magnússon, en auk hans eru í framkvæmdastjórn Björn Vilmundarson og Jón Rafn Guð- raundsson. Gjörningaveður af mannavöldum A’kureyri, 2. maí. 1. maí hátíðahöldin hér hóf- rst kl. 2, með útifundi. Þar lék Lúðrasveit Akureyrar, og ræður fluttu þeir Jón Sigurðs- son frá Yztafelli, Guðmundur .1. Guðmundsson og Björn Jónsson alþingismaður. Síðan var farin kröfuganga, fjöl- mennari en nokkru sinni fyrr hér á Akureyri, og um kvöldið var dansað í samkomuhúsum bæjarins. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem bóndi talar á úti- fundi við 1. maí hátíðahöld. Jón Sigurðsson ræddi um verkamanninn og fcóndann, og lýsti því hvernig nú á að undiroka þá, og rökstuddi nauðsyn þeirra á að snúa bök um saman og hrinda árás- inni. Hann minnti á það, að nú eru liðin 40 ár frá því að stjórnarsamtök bænda og verkamanna hófust, en 33 ár Þeir í Vestmannaeyium fleygja ekki gömium netadræsum, heldur gera úr þeim kaðla og tóg. Ekki kunnum við að lýsa þeirri aðferð út í æsar, en svo mikið vitum við, að tógefnið er dregið með bfl yfir grindurnar, sem myndin sýnir, og síðan er strokið um vafningana með áhaldinu, sem maður- inn hefur í herdinnl. Að sögn eru tóg þessi níðsterk. (Ljósm.: Tíminn KM). Nato-fundur undir hervernd síðan þéir komust til valda. Allt til 1950 voru samtök þeirra voldugasta stjórnar- aflið í landinu, aflið sem stóð fyrir hinni miklu sókn til bættra lífskjara. Gjörnmgaveður Þá minntist Jón á veðrið á síðasta þjóðhátíðadegi 17. júní 1959. Þá gerði gjörninga veður með kulda og hörku.' Nú er gjörningaveður af mannavöldum. Þeir, sem þjóðin treysti, hafa brugðist, og vilja nú lama allt at- vinnulíf og framþróun. Allar efnahagsaðgerðir núverandi ríkisstjórnar miða að því að hverfa aftur til þess sem var fyrir 40 árum. Bændur og verkamenn verða að vinna saman til þess að standast þetta gjörningaveður. ED —s —í NTB—Miklagarði, 2. maí. Ráðherrafundur Natos var settur í hinu nýja ráðhúsi Miklagarðs í morgun, en á meðan réSst lögreglan meS táragasi og kylfum á 2 þús. manna hóp, sem hélt í áttina wl ráShússins. SlagorS kröfu- göngumanna var: Frelsi, frelsi. Margir voru handtekn- ir. Öll umferS var bönnuð á stóru svæSi umhverfis ráS- húsið. Ekki 'hefur heyrzt af óeirðum annars staðar i landinu. Zorlu ut- anríkisráðherra flutti kveðju Men- deres for.sætisráð’herra, sem kvaðst ek'ki geta farið frá Ankara vegna óeirðann-a í landinu. Zorlu; sagði, að ekki mætti líta á upp-1 þotin sem andúðarvott við Nato. | Hér væri aðeins um að ræða sam-’ blástur smásmuglegra stjórnmála- manna, sem notuðu sér barnaskap reynslulausra unglinga. Ekki vænta of mikils Lange uta-nri-kisráðherra Noregs far í forsæti. Hann bað menn ekki vera of bjartsýna um áran-gur af fundi æðs-tu manna í þessum mán- uði. Yissulega hefði sambúð stór- veldanna batn-að, en lan-gan tírna -myndi taka að semja um ágrein- ingsm-álin. Yfirleitt ko-m það mjög greinilega fram í öl-lum ræðum, að ekki mætti búast við neinum stórtíðindu-m af fundi æðstu manna. Eisen-hower sendi sérstakan boð sk-ap og lagði áherzlu á þetta atr- iði. Bandaríkin g-engu með einlæg- um hu-ga til fundarins, en það bezta sem af honnm vætti vænta væri að þokaðist í áttina. Væntan- lega væru fra-mundan margir fund ir æðstu manna, þar sem reynt yrði -að finna leiðir ti-1 friðsamlegr- ar sambúðar. Banaslys Aðfaranótt s.l. sunnudass kom togarinn Fylkir til Reykjavikur og flutti lík eins háseta, Guðmundar M. Sigurgeirssonar, en hann hafði farið undir gils-vírinn á spilinu, þar sem togarinn var að vei&um 14 sjómílum undan Krýsuvikur’bjargi á laugardaginn. V erkalýð sleift toginn (Framh aí 1. síðu) Fyrsta maí fyrir tveim árum lýsti Guðjón þeirri hugsjón ihaldsins að fækka bændum um helming — og létu foringjarnir þá stefnuyfirlýsingu góða heita. Guðjón hefur því haldið, að óhætt væri að bergmála annan vísdóm ekki minni, er hann hafði heyrt klingja á æðstu stöðum í flokknum, og það gerir hann í hátíðagrein sinni í Morgunblað- inu s.l. sunnudag. í greininni ræðst -hann hressi 1-ega á komimúnista, og rekur ýms- ar syndir þeirra, en höfuðsynd þeirra telur hann þó vera að hoss-a bændastéttinni um of — og raunar virðist það vera hið helzta, sem ‘hann hefur út á kommúnist-a að setja. Þet-ta orðar Guðjón sköru- -l-ega á þessa leið: ,Kommúnistar hafa að yfir- lögðu ráði látið bændastéttina vaða uppi í þjóðfélaginu og draga til sín með frekju mun meiri skerf úr þjóðarbúinu en henni ber". Svo mörg eru þau orð og virðast koma ve-1 -heiim við stefnu íhalds- ins í framkvæmd, sbr. bráðabirgða lögin, þótt annað viðhorf sé venju lega haft í hámæli. En bændur vi-ta vel, að það er einmitt kjarni „bændavináttu" íhaldsins, sem Guðjón bergmál-ar, og þetta er sú 'stefna, sem framkvæmd verður, ef íhaldið þorir. Þetta er boðs'kapur flok-ksins, sem hefur kjörorðið „stétt m-eð stétt“. Bændur eru í hans augum „freka“ séttin í þjóðfélaginu, sem fær of mikið og nú ,skai hert að. Kommúnist-ar verða að vísu ekki taldir neinir forystu-menn í málum bænda — síður en svo, en „bænda- vin-átta“ íhaldsins ætti heidur ekki að fara að dy-lja-st mönnum lengur, né hvað það er, s-em bak við smjaðrið býr. Sýnd veiði en ekki gefin Akureyri, 2. maí. — Nú á dög unum fór maður nokkur í veiðiferð hér fram j sveit. Er hann kom til þess staðar, sem hann skyldi reyna fimi sín-a, bar fyrir sjónir hans eina , feita og fallega gæs. Með j munninn fullan af vatni brá 1 skyttan byssu og skaut í átt til fuglsins. Skotið hæfði, en gæsin féll ekki þegar dauð til jarðar, heldur breytti stefnu, og beitti síðustu kröft um á leið heim til nálægs bæjar. Brá þá veiðimaður fyrir sig betri fæti, elti fu-gl- inn og greip h-ann, er hon- um dapraðist flugið nægilega mikið. Brá hann síðan við sem skjótast, snaraðist inn í bif- reið sína og hvataði ferð til Akureyrar og heim. Ekki hafði hann lengi set- ið, varla að honum hafi unn izt tími til að reyta gæsina, er barið var dyra. Var þar komin löggæzla staðarins og vildi taka manninn í sina vörslu. Kom sem sé á dag- inn, að gæs þessi hafði verið lögleg eign bónda þess er byggði bæinn þann er gæsin stefndi til. Trúlega hefir þetta valdið veiðimanni nokkrum afföllum á glqðinnl yfir góðri veiði, þar sem mál hans fer nú undir lögregludóm, en ekki fara sögur af þvj hver éta muni gæsina góðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.