Tíminn - 03.05.1960, Qupperneq 12
12
TÍMINN, þriðjudaginn 3. maí 1965.
RITSTJÓRI: HALLUR SIMONARSON
Valur hafði yfirburði gegn KR
en náði samt aðeins jafntefli
Fyrsta fjórða
flokks mótið
— Hvort lið skoraði eitt mark — Leikur
KR-liðsiins mun síðri en í fyrrasumar
Þeir fjölmörgu áhorfendur,
sem lögðu leiS sína upp á
Melavöll á sunnudaginn, og
hjuggust við miklu af íslands-
og Reykjavíkurmeisturum KR
hafa sennilega orðið fyrir
miklum vonbrigðum. Að visu
var jafntefli í leiknum við
Val, eitt mark gegn einu, en
þó Valur hefði sigrað með eins
til tveggja marka mun, hefði
enginn getað sagt neitt við
þeim úrslitum, og KR-ingar
rrtega því vel við una, að ná
jafntefli í leik?ium.
Veður var hið fegursta, þegar
leikurinn for fram, og hefði því
niátt búast við góðum leik, en völl-
urinn er mjög slæmur og eyðilagði
flestar tilraunir til samleiks. Hins
vegar vantaði ekki spennu í leik-
inn og hancn var því allskemmtileg-
ur á að horfa. Valsmenn komu á
óvart með leik sínum, og hraði
þeirra og kraftur, einkum í síðari
hálfleik, kom KR-ingum úr jafn-
vægi. Valsmenn voru yfirleitt allt-
af einum fljótari á knöttinn og
harðari í flestum návígum. Náðu
þeir því oft hættulegum upphlaup-
um í leiknum, en vantaði illa
rnann til að reka endahnútinn á
þau.
1—0 í hálfleik fyrir KR
Leikurinn var mjög jafn lengi
íraman af — og hvorugt liðið náði
þá að komast í hættulegt færi,
enda varnir beggja liða þá traust-
ai. Þegar hálftími var af leik fór
hins vegar að færast fjör í leikinn
og einkum voru það þá KR-ingar,
sem voru ágengir. Þá bjargaði
Þorsteinn, vinstri bakvörður Vals',
á marklínu, og litlu síðar urðu
Björgvini, markmanni Vals á mis-
tök, sem kostuðu mark. Hann
rriissti knöttinn til Arnar Steinsen,
| sem gaf vel fyrir markið. Óskar
| Sigurðsson spyrnti frekar lausu
' skoti á markið — og Björgvin, sem
hafði ekki náð að staðsetja sig,
varð of seir.n að kasta sér, og
missti knöttinn undir sig í markið.
Mínútu síðar náði Valur snöggu
upphlaupi. Knötturinn var gefinn
fyrir markio og Gísli markvörður
KR — sem lék nú í stað Heimis,
sem er meiddur, greip knöttinn.
(.'unnlaugur fylgdi fast á eftir og
hijóp á Gísla, sem missti knöttinn.
Iíann rann í átt að markinu og
þar ætlaði Hreiðar bakvörður að
spyrna frá, en knötturinn lenti í
samherja og í mark. En Magnús
dómari dæmdi aukaspymu.
Fyrsta opinbera handknatt-
leiksmót í 4. aldursflokki fer
fram að Halogalandi í kvöld
11. 8 og verður um útsláttar-
keppni að ræða.
í fyrstu umferð fara fram eftir-
taldir leikir:
Fram — l.R.
Haukar — Keflavík
Ármann — Valur
Víkmgur — K.R.
í vetur hafa farið fram margir
æfingaleikir í 4. flokki og eru í
þessum aldurflokki margir
skemmtilegir og velleikandi leik-
menn. Verður því hér um
skemmtilega keppni að ræða og
fer vel á því, handknattleiksmenn
ljúki vetrartímabilinu með þessari
fyrstu keppni í 4. aldursflokki.
Fram og Víkingur sjá um keppn-
ina og er aögangur ókeypis.
— Eg var búinn að flauta, áð-
ur en knötturinn fór í markið,
sagði Magnús eftir leikinn. Brot
Gunnlaugs var mjög gróft, því
hann stjakaði við markmannin-
um með höndunum. Markið átti
því engan rétt á sér.
Nokkur hiti virtist hlaupa í
fylgjendur Vals, þegar markið var
dæmt af — en ég er ekki í nokkr-
um vafa um, að þar gerði Magnús
hið eina rétta.
Rétt fyrir hálfleikslok fékk Val-
ur aukapsyrnu rétt utan vítateigs,
sem Ámi Njálsson tók. Hann
spyrnti mjög glæsilegri spymu í
átt að markinu, en knötturinn
straukst rétt yfir þverslá.
Valur nær yfirtökunum
í byrjun síðári hálfleiks náðu
KR-ingar skemmtilegu upphlaupi
og Ós'kar komst í gegn, en hörku-
skot hans fór rétt fram hjá. En
eftir þetta má segja, að Valsmenn
hafi náð alveg yfirhöndinni í
leiknum og knötturinn var mest
aJlan hálfleíkinn á vallarhelmingi,
KR.
Og þegar aðeins 5 mín. voru !
liðnar höfðu Valsmenn jafnað.
Þá var dæmd aukaspyrna á KR á
vinstra vallarhelmingi. Knöttur-
inn var gefinn fyrir markið.1
Gunnar Gunnarsson náði knett-'
inum og sparkaði aftur fyrir sig
nær marki, og eftir miklar
stimpingar þar tókst Björgvin
Daníelssyni að „stanga“ knöttinn
í mark. Jafntefli 1—1.
En þó Valsmenn hefðu mikla
yfirburði og alger yfirráð á miðj-
unni tókst heim e'kki að nýta ágæt
tækifæri — og einkum var það þó
B.iörgvin, sem fór illa að ráði sínu. |
Gunnar Gunnarsson átti ágæt t,
skot — en fram hjá. Valsmenn
I leikhlei var nokkrum dreng,um ur Val veiH afreksmerki KSl fyrir knatt- að þeir sigruðu e]dri | leiknum.
þrautir. Hér sést Ragnar Lárusson, varaformaður KSÍ, afhenda hinum
Markmaðurinn naer oftast hæst — og það sýnir Björgvin Hermannsson,
markmaður Vals, vel á þessari mynd, þegar hann grípur knöttinn örugg-
um höndum. KR-ingarnir, sem sækja að honum, eru: Ellert Schram og
Óskar Sigurðsson. — Ljósmynd: Guðjón Einarsson.
HraSkeppni í handknattieik:
FH og Ármann sigruðu
í hraðkeppnimótinu í hand-
knattleik. sem fram fór aS
Hálogalandi og háð var til
styrktar utanför kvennalands-
liðsins, báru FH og Ármann
sigur úr býtum, FH í karla-
minnsta í hópnum merkið. Hann er ekki hár í ioftinu drengurinn sá, þótt
hann sé snjall með knöttinn.
Valsmenn komu á óvart
Segja ma, að Valsmenn hafi
komið mjög á óvart með þessum
leik sínum. Að vísu var leikur liðs-
ins ekki áferðarfallegur — en eins
og völlurinn var þýddi ekki að
vera með nein fínheit. Tveir leik-
menn vöktu mesta athygli í liðinu,
miðvörðuriJirj Björn Júlíusson og
hægri framvörðurinn. Ormar
Skeggjason, en þeu léku báðir
mjög vel. Björn er nýliði í stöðu
miðvarðar — en það var á< engan
hált hægt að greina. Hraði og yfir-
fprð Ormars var mikill og það er
leikmaður, sem vert er að gefa
meiri gaum. Vörn Vals var mjög
trausí, Árni Njálsson ekkert nema
öryggið, ;)g Þorsteinn í mikilli
framför, í framlínunni átti Berg-
steinn Magnússon ágætan leik og
er einn skemmtilegasti „tekniker“
hér. Gunnar sýndi af og til gömul
(Framhald á 15. síðu)
flokki, en Ármann í kvenna-
flokki. Motið var heldur svip-
iaust og læst liðanna, sem
stilltu upp sínu bezta fólki.
Á laugardagskvöldið fóru fram
fimm leikir i meistaraflokki karla,
og kom þa langmest á óvart, að
Vjkingur s';graðí fyrst Val með níu
mörkum gegn sjö, og vann síðan
KR með átta mörkpm gegn sjö.
Aðalleikur kvöldsins var þó milli
Frani og ÍR og sigraði ÍR með 11
rrörkum gegn 10. í öðrum leikjum
betta kvölu urðu úrslit þau, að
A-lið FH sigraði Aftureldingu með
13— 8, og B-lið FH vann Þrótt með
14— 5.
Á sunnudagskvöldið fóru fyrst
íram undariúrsiit í karla- og
KvennaflokKi B-lið FH vann Vík-
ing þá með 10—8 í nokkuð
skemmtilegum leik, og A-lið FH
vann Fram með 11—7 Komust því
hæði FH '.,ðin í úrslit í meistara-
tlokki karia, og vann A-liðið með
iO gegn 5.
í meistaraflokki kvenna vann
Ármann KR með 7—3. og FH vann
Val með 4—1. í úrslitaleiknum
sigrað’ Ár.nanr FH með 4—2.