Tíminn - 11.05.1960, Page 4
4
T f MIN N, migvikudagmn 11. mai 1960.
TANNSKEMMDIR
í greimnn þeim sem Tann-
Tætoafélag íslands befur sent
diagblöSitnum í vetur, hefur
oft verið vildð að sambandi
sælgætis og tannskemmda. Til
þess að sýna fram á hve náið
þetta samhand er, skulu tilfærð
fáein dæmi. Þegar einhver
kemur til tannlæknis með sér-
staklega margar s'kemmdir,
sem komið hafa á skömmum
tima, að sögn viðkomandi, þá
er það fyrsta sem tannlæknin-
um dettur í hug: „Hér hefur
sælgætið verið að verki“. Þeg-
ar spurt er nánar um sælgætis-
neyzlu, þá er grunur tannlækn-
isins oftast staðfestur.
Ung stúlka, 15 ára, úr
Reykjavik, á að fara á skóla út
á land. Um haustið áður en hún
fer, lætur hún tannlækni skoða
teamur sínar. Segist vita um
3—4 hoiur, en þegar skoðað er,
eru 12 tennur skemmdar, en
amnars eru fáar tennur viðj
gerðar. Tannlæknirinn spyr
hvort hún borði mikið sælgæti.
„Ekki sérstaklega“, segir hún,
„ja í sumar hef ég borðað dá-
lítið, ég vann nefnilega við
sælgætisafgreiðslu“. Þetta var
þá orsökim
Faðir kemur með son sinn 16
ára til tamnlæknis, og biður
tamnlæknirinn að skoða tennur
drengsins og athuga hvað hægt
sé að gera fyrir hann. Tenn-
umar eru mjög illa farnar og
þeim feðgum báðum Ijóst, að
hér er komið á síðustu stundu.
Tannlæknirinn skoðar tennurn-
ar, næstum hver einasta er
skemmd, sumar svo að ekki er
hægt að gera við þær. Tann-
iæknirinn segir álit sitt, sem er
að viðgerð á tönnum dremgsins
taki langan tíma og verði kostn-
aðarsöm og að í raun og veru
bíði drengurimm þess aldrei
bætur, sem skeð hefur með
tennurnar. Þegar minnzt er á
sælgætisspursmálið, þá segir
faðirinm: „Ég held að þessar
skemmdir hafi byrjað fyrir al-
vöru þegar hann var sendill,
hann var tvö sumur sendi-
sveinn í matvörubúð".
Það er von að unglingur,
sem daglega hefur sælgæti í
hlöðum fyrir framan sig,
freistist.
En fullorðið fólk getur líka
freistast.
Maður nokkur um 40 ára
gamall kemur til tannlæknis
síns. Hann hafði góðar tennur
og alltaf l'átið skoða þær eim
sinni á ári. Skemdir höfðu
alltaf verið litlar, stundum emg-
ar. En nú bregður svo við að
það fimnast 7 skemmdir í tönn-
um hans. Maðurinn og tamn-
læknirinn eru báðir jafn undr-
andi yfir þessum skemmdum.
Tannlæknirinn spyr margs
um mataræði, sælgætisát og
lifmaðarháttu mannsmis. Þá
kemur það í ljós að maðurinn
hafði verið að reyna að venja
sig af að reykja sígarettur og
sér til afþreytingar hafði harnn
haft ýmsar smápillur. svartar
pillur, svokallaðar brennitöflur
og þess háttar. Þessar pillur og
töflur hafði hann látið renna í
munini sér og oft haft þær í
munninum tímunum saman.
Aðrar breytingar höfðu ekki
orðið á lífsvenjum þessa
manns, en þetta næði til þess
að auka tannskemmdirnar að
mun.
Það tekur bakteríur mumns-
ims aðeins nokkrar mínútur að
breyta sykri í sýru, sem getur
leyst upp yzta l'ag glerungsims
á tönnunum. Því lengur sem
sykur er í munninum þeim mun
lengri verður sýruverkunin.
Það verður aldrei brýnt um
of fyrir fólki að umgangast
sælgæti með varúð og hafa
hönd í bagga með sykur- og
sælgætisneyzlu barna og ung-
Iinga.
(Frá Tannlækmafélagi
íslands).
MINNING
Tómas J. Þórðarson
Þú bróðir ert kominn á frelsarans
fund
og fagnar þeim eilífu gæðum.
Nú ertu glaður og léttur í lumd
fg lifir með guði á hæðum.
Ég sá þig í anda, er sigldir þú
heim
til saelu- guðs eilífu -landa
Þú sveifst þar á vængjum um
sólbjartan geim
með sigri til himneskra stranda.
Ég veit það, minn vinur, að sorgin
var sár
er síðastan festir þú blundinn.
En drottinn það græðir um eilífðar
ár,
er upp rennur dýrlega stundin.
Nú kveð ég þig, bróðir, í síðasta
sinn,
en sé þig þó aftur að vonum.
Því Faðirinn býður oss öllum þar
inn
í eilífa sælu með honum.
Helgi Þ. Steinberg,
Bændur! - Bændur!
Nú eru sumarstörfin að hefjast og tími til að athuga
vélakostinn. Við munum sem áður aðstoða yður við
kaup og sölu á öllum tækjum sem við koma búskapnum:
TIL SÖLU:
Dráttarvélar:
Farmal dísel ’58
Hanomag ’59 R-14
•Zetor dísel 59
Ferguson ’57 dísel
Ferguson ’55 dísel
Ferguson ’52—55, benzín
Farmal Cub ’50—’52
John Deere ’50.
Massey Pony ca’ 48
Hafið samband við okkur ef þið þuríið á aðstoð að halda
við kaup og sölu á landbúnaðartækjum.
Bíla- & búvélasalan
Ingólfsstræti 11 (Áður Baldursgötu 8)
Símar 2 31-36 — 1-50-14.
Sveinn Jónasson.
Rafstöðvar
Heyvagnar 2 og 4 hjóla.
Traktorskerra
Múgavélar
Mjaltavél
Sláttuvélar
Heyhieðsluvélar
Kartöfluupptakari
Ámoksturstæki á Fergu-
son
Tilboö óskast
í 800 teningsmetra af ofaníburðarmöl í veg að
væntanlegum Goifskála við Grafarholt. í tilboðinu
skal vera allur kostnaður við efnið komið á stað-
inn. Línurit, gert af Atvinnudeild Háskólans, er
sýni dreifingu á kornastærð efnisins skal fyigja
tilboðinu.
Tilboðinu skal skila í skrifstofu bæjarverkfræðings
í Reykjavík ekki síðar en kl. 11.00, miðvikudaginn
18. maí n. k.
Bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík.
Aðalfundur
Vinnuveitendasambands íslands
verður haldinn í Kaupþingssalnum í Eimskipafé-
lagshúsinu, og hefst kl. 14,30 fimmtudaginn 12.
þ. m. og stendur til laugardagsins 14. maí.
DAGSKRÁ:
1. Fimmtudaginn kl. 14.30:
A. Fundur settur.
B. Skýrsla framkvæmdastjóra.
C. Lagðir fram reikningar ársins 1959.
D. Kosning stjórnar.
E. Nefndir kosnar.
2. Föstudaginn kl. 10.30:
A. Nefndir skila áliti.
B. Umræður um félagsmál.
C. Síðdegisboð félagsmálaráðherra í ráðherra-
bústaðnum kl. 17—19.
3. Laugardaginn kl. 10.30:
A. Ræða: Emil Jónsson, félagsmaiaiauncna.
B. Framhaldsumræður um nefndaálit
C. Önnur mál
D. Fundinum lýkur með hádegisverði í Lídó.
Öllum félagsmönnum er heimill aðgangui
að fundinum.
VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS.
•V‘‘V*V‘V‘,V‘V*V‘*V‘V‘V‘V*V‘V‘V‘V‘V‘V‘X‘V‘‘V*V‘-\.‘V‘VV‘V‘X‘'V-
ÞAKKARAVORP
Hugheilar þakkir færi ég ættingjum og vinum, er
neiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum
og skeytum á 70 ára afmæli mínu, 30. apríl s. 1.
Einnig þakka ég þann heiður er Múrarafélag
Reykjavíkur sýndi mér.
Þorfinnur Guðbrandsson.
Bifreiðaeigendur
ÞaS lækkar reksturskostnað bifreið-
ariimar að láta okkur
sóla hjólbarðana.
Margra ára reynsla í starfi tryggir
yður góða þjónustu.
Gúmbarðinn h.f.
Brautarholti 8. Sími 17984.
Álfur Helgason,
bifreiðarstjóri, Barónsstíg 25,
lézt á Landakotsspítala mánud. 9. þ. m.
Jarðarförin ákveðin siðar.
Vandaipenn.
Við þökkum innilega öllum þeim, sem hafa vottað okkur samúð
og vináttu við andlát og jarðarför
Arnleifar Lýðsdóttur,
Brautarhóii, Biskupstungum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.