Tíminn - 11.05.1960, Blaðsíða 13
rámmi*, ntWyflrndagittn 11. maí 1960.
Rafvírkjar - Múrarar
Revían Eitt Lauf verður sýnd á vegum félagsins
föstudaginn 13. maí n. k.
Miðar verða afgreiddir í skrifstofu félagsins n. k.
fimmtudag og föstudag kl. 5—7 síðdegis.
Félag ísl. rafvirkja
Múrarafélag Reykjavíkur
Orðsendin
frá Sandgræðslu íslands.
Frá og með deginum í dag, 9. maí, er öllum óheim-
ilt að taka sand innan girðingarinnar í Þorláks-
höfn, nema með leyfi Vörubílastöðvar Selfoss,
en það félag hefur fengið einkaumráð yfir sand-
tökunni til næstu fimm ára.
PÁLL SVEINSSON,
Gunnarsholti.
^•V'V*V*V«'V*X«V*'V»X*X*V*-V*
Skrifstofumannsstaða
Staða skrifstofumanns við bæiarfógetaembættið í
Hafnarfirði, er laus til umsóknar nú þegar. Laun
samkvæmt launalögum.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
^•V'V'V'V'V'W'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V^V'V'V'V
Sérleyfisferðir í
Rangárvallásýslu
Reykjavík — Múiakot.
10. máí—31. maí, þrjár ferðir í viku:
Frá Reykjavík — þriðjudaga, íimmtu<jaga og laug-
ardaga kl. 14.
Frá Múlakoti sömu daga kl. 9.
1. júní—31. ágúst fjórar ferðm í viku:
Frá Reykjavík — mánudaga, þriðjudaga, fimmtu-
daga og laugardaga kl. 14.
Frá Múlakoti — sunnudaga kl. 17, þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl. 9
1. sept.—31. okt. þrjár ferðir í viku:
Frá Reykjavík — mánudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 14.
Frá Múlakoti — sunnudaga kl. 17, fimmtudaga og
laugardaga kl. 9.
Reykjavík — Hvolsvöllur:
10. maí—31. okt. ein ferð í viku:
Frá Reykjavík föstudaga kl 19.30.
Frá. Hvolsvelli — mánudaga kl 10.
Reykjavík — Landeyiar:
Ein ferð í viku:
Frá Reykjavík þnðjudaga kl. 11
Frá Hallgeirsey — miðvikudaga kl. 8.30.
Reykjavík — Eyjafjöll.
Ein ferð í viku:
Frá Reykjavík — fimmtudaga kl. 11
Frá Skógum föstudaga kl. 8
KAUPFÉLAG RANGÆINGA
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. 6Íðu).
ið undir eftirliti sálfræðinga,
er ekki hafa undið neitt at-
hugavert við þá. Enginn þeirra
hefur gert hina minnstu flótta-
tilraun. Það hefur heldur ekki
neinn þeirra fanga gert, sem
áður hafa verið í ríkisstjóra-
bústaðnum. Það hefur ýtt und-
ir þá þróun, að fangar í Ohio
eru nú látnið í vaxandi mæli
vinna ýmis verkleg störf utan
fangelsanna, einkum þó í þágu
ríkisins. Þ.Þ.
Athugasemd
(Framhald af 9. síðu).
’felast í hinni þjóðlegu arfleifð.
Sumir segja: „ÖIl góð list er
iþjóðleg". Það má lengi rekja.
Myndlistin virðist í sumum lönd-
um þó vera fjarlægari hinum þjóð
legu rótum en skáldskapur og tón-
list, en tunga og' tónar eru ná-
tengdir. — En skapa ekki einmitt
OJjóshrigði, litir og línur lands-
lagsins líka þjóðlega myndlist?
Til hvers erum vér að halda fast
við að búa á þessari eyju, sem heit-
ir ísland? Er það ekki einmitt af
því — og eingöngu af því, að vér
viljum þroska þjóðlega menningu
og þjóðlega list, og er það ekki
einmitt listin, sem gefur lífinu
gildi, — svo mikið gildi, að lífið
væri einskis virði, ef listin vær
ekki til?
Reykjavík, 3. 5. 1960.
Jón Leifs.
Logsuðutæki
mjög ódýr.
S HÉÐINN ~
Vólaverzlun
simi 84260
Sundskýlur
Sundbolir
Æfingabúningar
Austurstræti 1
Kjörgarði Laugav. 59.
Fermingaföt
Drengjasumarföt frá 6—14
ára.
Stakir jakkar
Stakar buxur $ j
Matrosföt
Matroskjólar
Buxnaefni,
margir litir.
Nylonsokkar, margar teg.
GAMALT VERÐ
Sendum í póstkröfu.
13
AUGLÝSING
um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Kefla- I
víkurflugvallar.
Samkvæmt umferðarlögunum tilkynnist að aðal-
skoðun bifreiða fer fram, svo sem hér segir:
Föstudaginn 13. mai J- 1 — J- 50
Þriðjudaginn 17. mai J- 51 — J-100
Miðvikudaginn 18. maí J-101 — J-150
Bifreiðaskoðun fer fram við iögreglustöðina hér
ofangreinda daga frá kl. 9—12 og 13—16,30.
Við skoðun skal bifreiðaskattur greiddur, sbr. lög
nr. 3 frá 1956. Sýnd skulu skilríki fyrir því að iög-
boðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og
fullgild ðkuskírteini skulu löpð fram.
Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á
áður auglýstum tíma, verður hann látinn sæta
ábyrgð samkvæmt umferðalögum nr. 26 1958 og
bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Geti bifreiðaeigar.di eða umráðamaður bifreiðar
ekki fært hana til skoðunar á aður auglýstum tíma,
ber honum að tilkynna mér bað bréflega.
Athygli er vakin. á því, að umdæmismerki bifreiða
skulu vera vel læsileg og er bví beim, er burfa að
endurnýja númeraspjöld bifreiða sinna ráðlagt að
gera svo nú þegar.
Skoðunardagur fyrir bifreiðar skrásettar J-0 og
VL-É verða auglýstir síðar.
Athuga ber, að beir er hafa útvarpstæki í bifreið-
um sínum, skulu hafa greitt afnotagjöld þeirra,
áður en skoðun fer fram.
Þetta tilkynnist öllum, er hlut eiga að máh.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 9. maí 1960
Björn Ingvarsson.
Húsasmiður
óskast
Erum að byggja eitt stigahús (8 íbúðir) á góðum
stað í bænum. Okkur vantar húsasmið, sem gæti
tekið að sér verkstjórn að einnverju eða öllu leyti
við þessar íbúðir.
Það er skilyrði að viðkomandi eignist sjálfur eina
íbúð í blokkinni.
Lysthafendur sendi tilboð með nauðsynlegum upp-
lýsingum til blaðsms fyrir n. k. laugardagskvöld,
merkt „Húsasmiður“.
Byggingasamvinnufélag Reykjavíkur.
Bifreiöir til sölu
Olíufélagið h.f. hefur til sölu eftirtaldar bifreiðir.
3 Heinchel vörubifreiðir
1 Autocar vörubifreið
1 G.M.C. vörubifreið
1 Cadillac fólksbifreið, smíðaár 1955.
Bifreiðarnar verða til sýnis við verkstæði Olíu-
félagsins h.f. á Reykjavíkurflugvelli, fimmtud 12.
maí frá kl. 1—5 síðdegis.
Verðtilboðum sé skilað fyrir kl 5 sama dag.
Olíufélagið h.f.