Tíminn - 31.05.1960, Blaðsíða 1
Ókleift aö
koma fyrir
þá vitinu
Ríkisstjórnin virðist ákveð-
in í að koma í veg fyrir að;
nokkrar breytingar til bóta
verði gerðar á efnahagslög-
gjjöf hennar, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir stjórnarandstöð
unna í þá átt. Nú hafa m.a.
verið felldar af stjórnarliðinu
eftirfarandi tillögur Fram-
sóknarmanna um breytingar
á efnahagslöggjöfinni:
★★ Lánsvextir verði aftur
lækkaðir í það, sem þeir
áður voru.
★★ Lögbannað verði að draga j
fé úr innlánsdeildum og
sparisjóðum inn í banka-
Frairthald á 3. síðu.
/ ■' -------------------- 1
Kl/vn SkW1 llt v'tið bið, hvaS það þýðir að kunna
liyril CI I Ul sér ekki læti? Já, áreiðanlega ef
þíð hafið séð kýr koma út að vori eftir veturlanga innistöðu. Þá
missa þær hreint aila sína kúaskynsemi og æða til og frá í villtum
nautadansi, með haiann upp í loftið og lappirnar sína í hverja átt.
Stundum detta þær um þveran hrygg, velta og verða fyrir alls konar
skakkaföllum, en gleðin yfir þvf, að vera komnar undir heiðan himin
er mejri en svo, að þær megi vera að því að setja slíka smámuni
fyrir sig. Ljósmyndari blaðsins brá sér í gær upp að Hulduhólum í
Mosfellssveit, en þar var verið að hleypa kúnum út I fyrsta sinn á
vorinu, og tók þar þessar myndir, sem birtast á síðunni. Það var
| Óhjákvæmilegt er fyrir verka-
lýðsfélögin að láta til skar-
ar skríða og hækka kaupgjald
gaman að sjá kýrnar skvetta úr klaufunum, og kálfana, sem komu
nú í fyrsta sinn undir beran himin, og vissu alls ekki fótum sínum
forráð; þekktu ekki annað en básinn, sem þeir voru settir á við fæð-
ingu. — En — það var ekki síður gaman að sjá Ijósmyndarann hoppa
kringum kýrnar en þær kringum hann. — (Ljósmynd: Tíminn K.M.).
Eins og frá hefur verið
skýrt 1 fréttum, kom ráðstefna
sú, sem stjórn Alþýðusam-
bandsins kallaði saman til að
ræða um kjaramál verkalýðs-
félaganna, saman til fundar á
laugardaginn var og lauk
henni á sunnudag. Ráðstefn-
una sátu fulltrúar frá flestöll-
um verkalýðsfélögum lands-
ins. Samþykkt var með sam-
hljóða atkvæðum, eftirfarandi
jályktun:
„Ráðstefna Alþýðusambands
ins um kjaramál, lialdin í Reykja
vík 28. og 29. maí 1960, ályktar
eftirfarandi:
Frá því að verkalýðsfélögin
hækkuðu almennt kauptaxta sína
á árinu 1958 hafa kaupgjaldsá-
kvæði í samningum þeirra tví-
vegis verið skert með lagaboði,
og nú síðast með því að afncma
með öllu rétt launþega til að fá
kauphækkanir eftír lagaboði
með vaxandi dýrtíð. Ráðstefnan
telur, að með þessum ráðstöfun-
um hafi samningsbundinn rétt-
ur verkalýðsfélaganna verið frek
lega skertur og mótmælir því
harðlega.
Afleiðinc eencisfellinear og
annarra ráðstafana eru þær, að
nýju dýrtíðarflóði hefur verið
hleypt af stað. Verðhækkanir á
flestum sviðum eru nú meiri en
dæmi eru til að komið hafi í
einu, og þegar sjáanlegt, að þær
verða meiri en gert var ráð fyrir
í byrjun.
AUt launafólk hefur því þeg-
ar orðið fyrir mikUli kjaraskerð
ingu og augljóst, að sú skerðing
muni enn aukast mikið. Hætta
cr á, að ríkjandi stefna muni, á-
samt minnkandi kaupmætti, leiða
til samdráttar í framleiðslu og
framkvæmdum og þar af Ieið-
andi til minnkandi atvinnu og
jafnvel atvinnuleysis, verði ekki
að gert í tíma.
Launakjör verkafólks hafa um
langt skeið verið með þeim
hætti, að ókleift hefur verið að
Iifa af 8 stunda vinnudegi og er
kaupgjald íslenzkra verkamanna
orðið mun lægra en stéttar-
bræðra þeirra á Norðurlöndum.
Ráðstefnan álítur, að kjara-
málum verkafólks sé nú svo kom
ið, að óhjákvæmUegt sé fyrfr
(íramhald á 15. síðu).
uiikiwíiwim™—^tfrwrini ii iiiwwTTinBiiHl