Tíminn - 31.05.1960, Page 4
4
TÍMINN, þriðjudaginn 3L mai 1960.
300 ár liðin frá fæðingu
höfundar Robinson Crusoe
Kannske verður lítið ritað1
um 300 ára afmæli Daniel
Defoe. Það stendur enginn
ævintýraljómi um persónu
hans eins og um svo mörg
önnur skáld. Samtíma-
maður hans Jonathan Swift,
sagði að hann væri „analfabet,
sem ég man ekki hvað heitir".1
Fæddur 1660 j
Menn hefur' grein-t á um fæð- j
ingarár hans, en sennilega er hann
fæddur 1660, sama ár og Stuartar
komust til valda á nýjan leik í
Englandi.
Faðir Defoe var kei'tasmiður í
London og fjölskyldan komst ó-j
sködduð í gegnum tvær stærstu
pláguir, sem herjuðu London í
þann tíð: Svarta dauða og brun-
ann mikla.
Fangelsaíur
Defoe gerðist kaupmaður eins
og faðir hans, en var kannske ekki
eins duglegur né jafn heppinm.
Hann rak t. d. eitt sinn kvenfata-
vei'zlun, sem varð gjaldþrota.
Defoe átti sér ýmis önnur áhuga-
mál en kaupmennskuna, t. d. barð- í
ist hann ötullega fyrir aufonum
réttinduim kvenna. Það var engin
tilviljun að hann var handtefoinn
árið 1703 og settur í fangelsi fyrir
snmsæri gegn kirkjupólitífo stjóm-
arinnar.
Bla^aútgefandi
Er honum var sleppt úr haldi
nofckrum mánuðum síðar var það
með því skilyrði að hann gengi í
flokfo andstæðinga sinna, íhalds-
flokkinn. Kannsfoe sagði heilbrigt
fjármálavit hans honum það, að
hagemunum hans væri bezt borg-
ið, ef hann gengi valdhöfunum á
hönd.
Á árunum 1704 til 1713 gaf hann
út blað sem nefndist A Review of
the Affairs of France and of all
Europe. Þetta var fyrsta blaðið
!’■ ■■ ; .
sem nokkuð kvað að í Englandi.
Spánska erfðastríðið geysaði á
meginlandinu og Defoe fylgdist
vel með atburðum og ritaði um þá
í blað sitt.
Framkvæmdi sko'ðana-
könnun
Auk þess ferðaðist hann u-m
lanidið og framkvæmdi skoðana-
könnun um stjómmála-skoðanir
fólks fyrir íhaldsráðherrann Har-
ley.
Þegar Whiggar komust til valda
eftir dauða Önnu drottnin-gar árið
1714 reyndi hann að vinna hylli
þeirrá, en það mistókst, hlutverki
hans í stjórnmálum var lokið.
Tákn upplýsingatímans
Næstum sextugur að aldri gerð-
ist ha-nn rithöfundur. Árið 1719
gaf hann út þrjár skál-dsögur og
þeiirra á meðal var hi-n fræga
Robinson Crusoe.
Ótölule-gur fjöldi barna og full-
orðinna hefur Iifað hina ævintýra-
ríku dvöl Robinson Crusoe með
bonum á eyjunni.
Alv-eg eins og Faust er tákn-
rænn fyrir mannshugsjón róman-
tíkurinnar, er Robinson Crusoe
táfen upplýsin-gatímans. Guð hans
er heilbrigð skyn-semi og siða-
skoðun hans er skoðun hins púrí-
tanska kaupmanns nægjusemi,
iðni og varkárni.
Fyrirmynd Defoe að Ciúsoe er
sliozki kaupmaðurinn Alexander
Selkirk, sem eyddi ævinni einsam-
all á eyjunni Juan Fernandez.
Bæði rithöfundurinn og' blaða-
maðurinn komu auga á að hér var
gott efni á ferðinni: Hann gerði
langa og nákvæma frásögn um
skipbrotið og lét Robinson Crusoe
lifa í 28 ár einan í hinum litla
heimi sínum.
Á sama hátt skrifáði hann s-einni
bækur sínar. Moll Flanders er t. d.
kyrnn-t s-em ævisaga vasaþjófs o-g
götustúiku. Aðalpersónurnar eru
teknar úr London samtíðarinnar.
Það er táknrænt, að Defoe skrif-
aði heila bók um veikindaárið
1665, í fyrstu persónu.
Forgönguma’ður
Defoe var kannske ekki mikið
skáld og han-n gerði ekki kröfu til
að vera það. Hann seldi pólitíska
þjónustu sí-na og hann seldi sögur
sín-ar lesendum, hvers smekk han-n
þekkti lítið. En á sviði verzlunar,
félagsmála, blaðamennsku og bók-
mennta var hann slíkur forgöngu-
maður, að hann færi sæti œ.eðal
M»ifcitoei?>na fwttóSasésBisr.
Aöalfundur
H. f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í fund-
arsalnum í húsi félagsins föstudaginn 3. júní kl
I, 30 e.h. — Dagskrá samkvæmt samhykktum fé-
lagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðla
verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnun
hluthafa á skrifstofu félagsins (3iu hæð) dagan-
31. maí til 2. júní kl. 1—5 e.h.
Stjórnin
ERU LÍF OG
BRUNATRYGGINGAR
YÐAR NÆGILEGA HÁAR?
Ef svo er ekki, þá vinsamlegast snúið yður til
umboðsmanna vorra, eða skrífstofunnar, Lækjar-
götu 2, sími 1-3171.
Vátryggingaskrifsfofa
Sigfúsar Sighvatssonar hFf.
ÍG KAVPI ALLTAF
PBRLU ~ ÞVOTTADUFT.
ÞAÐ SPARAR TÍMA,
FRFIÐf OG PFNINGA,
ÞVOTTURINN VBRDUR
resmiðir
óskast til starfa hjá Sambandi íslenzkra samvinnu-
félaga.
Upplýsingar í síma 16706 kl. 7—8 næstu kvöld.
Hjartans þakklæti færi ég öllum þeim, sem heim-
sóttu mig á 70 ára afmæli mínu og glöddu mig með
gjöfum, skeytum og hlýjum óskum.
Guð blessi ykkur öll.
Ingveldur Þóra Jónsdótrir,
Leifsgötu 5.
Innilegustu þakkir til S.Í.S. og K.B. fyrir ánægju-
lega dvöl á fræðslu- og hvíldarvikunni í Bifröst.
Konur á vegum Kaupfélags Borgfirðinga.
Hjartanlegar þakkir til ykkar allra, sem glödduð
mig á einn eða arman hátt á sjötugsafmæli mínu
)25. maí. Ég bið ykkur öllum guðs blessunar.
Kristín Halldórsdóttir
frá Öndverðarnesi
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir.
Jens E. Níelsson
kennari,
sem andaðist 26. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 2. júní kl. 10,30 árdegis.
Afþökkum vinsamlegast blóm og kransa.
Athöfninni verður útvarpað.
Elín Guðmundsdóttlr,
synir og tengdadætur.