Tíminn - 31.05.1960, Page 11
TÍM.INN, þriðjudagíon 31. maí 1960.
11
— ÁKVENPALLI —
Ný skáldsaga eftir
bandaríska leikkonu
110' krónur
málið
BlaSmu hefur borizt eftirfarandi
tilkymtting, bæði frá Síldarverk-
smiðjum ríkisins og sjávarútvegs-
m álaráðumeytinu:
Sjávarútvegsmálaráðuneytið hef-
ur í dag ákveðið, að fengnum til-
lögum Síidarverksmiðja ríkisins,
að verð á sumarveiddri síld fyrir
Norðurlandi og Austurlandi til
bræðslu, verði á þessu sumri kr.
110.00 fyrir hvert mál síldar.
Reynist síld, sem afhent er síld-
aiverksmiðjumum til bræðslu,
óvanalega fituiLítil, hefur þeim
verið heimilað að ákveða lœgra
verð en að framan greinir fyrir þá
síld.
Þá hefur ráðuneytið enn fremur
heimilað að síldarverksmiðjurnar
taki síld til vinnslu af þeim, er
þess kynnu að ósfca og greiða þá 1
við mótttöku 85% af áætlunar-
verðinu, kr. 110.00, og eftirstöðv-
arnar, ef einhverjar verða, þegar
reikningar verksmiðjanna hafa
verið gerðir upp.
Elaine Dundy heitir banda-
rísk leikkona, sem gaf út
sína fyrstu skáldsögu fyrir
tveimur árum. Sagan hefur
verið þýdd á erlendar tung-
ur, m. a. dönsku og er köll-
uð „Jomfru i Paris" í
þeirri þýðingu. Á enskunni
heitir hún „The Dud Avo-
cado".
Þetta er býsna skemtileg
skáldsaga, þó að helzt til oft
sé skipt um rekkjufélaga fyrir
minn smekk, en það virðist
mjög erfitt fyrir nútíma höf-
unda að komast hjá því að fara
hamförum í því tilliti. Þrátt
fyrir það, þá er margt gott um
söguna að segja. Höfuðpersón-
an er ung bandarísk stúlka,
sem dvelur í Evrópu í sjálfs-
mennsku að loknu skólanámi.
Hana hefur alltaf dreymt um
að sjá heiminn og njóta lífsins
í sem ríkustum mæli og legg-
ur sig fram um að afla sér
„lífsreynslu“, fer þar að vísu
oft fremur eftir hugmyndum
úr skáldverkiun en eigin löng-
unum.
í París hittir hún gamlan
kunningja, sem hún telur mikl-
ar líkur á að sé hinn eini sanni
draumaprins. En eftir að sam-
skipti þeirra hefjast, fara annar
legir straumar að gára yfirborð
þess marglita straums, sem
hún berst með. Sá undirstraum-
ur reynist býsna gelgvænlegur
og má ekki tæpara standa að
hún klóri í bakkann.
En það er svo falslaus kímni
í frásögninni, að ómögulegt er
annað en hiægja meðan á lestri
stendur og þó bregður alltaf
við og við fyrir mjög góðum
myndum af hinum . raunveru-
legu skuggahliðum lífsins, sem
felast undir yfirborðsmennsku
og kæruleysi. — S.Th.
Ekki allar eins og
MARLYN MONROE
Ekki geta allar konur verið
þvengmjóar eða leyft sér að
klæðast eins og Marilyn Mon-
roe, sem einn snjall blaðamað-
ur sagði að gengi eins og hún
væri að stugga köngurló af bak
hlutanum á sér. En tízkan í ár
er svo fjölbreytt, að ástæðu-
laust er að óttast, að ekki megi
finna snið, sem henta þeim,
sem mættu vera • nokkrum
kflóum léttari.
Hér eru teikningar af nokkr
um kápum, dröktum og kjól-
um, sem hæfa þreknum kon-
um. Kápurnar eru víðar, drakt
irnar með beinum jökkum og
kjólarnir hæfilega aðskornir.
- 7 ---------T7?—j-----------—-------; 37 -—r—------------------------
wr öxpn#77i umdwrTz wr öðrwm árrzcuom __________________
Músíkölsk konungs-
hjón
Eftir háift ár koma hin
ungu konungshjón Thai-
lands í heimsókn til Dan-
merkur. Þau eru bæði mjög
Konungur
tónelsk, og. konungur er
þekktur fyrir'að spila vel á
saxófón og drottningin er
ágætur píanóleikari, þannig
að glatt ætti að geta orðið
á hjalla í Amalienborg í
september næstkomandi.
j Konungur var munkur fyrir'
skömmu. Þar fylgdi hann
jþeim thailenzka sið, að sér-
! hver sanntrúaður buddha-
j trúarmaður, skuli að
minnsta kosti einu sinni á
■ ævi sinni vera munkur.
Það er ekki ósennilegt, að
það sé vegna veru sinnar í
klaustrinu sem Bhumipol
konungur hefur nú stanzað
byggingu flestra mustera, >
og í .staðinn sikipað svo fyr- j
i ir, að fjármunum skuli var-
: ið til að gera við þær eignir,
og drottning
sefur þú
Ungi píanóleikarinn hafði
boðið hinum eldri og reynd-
ari stéttarbróður sínum á
fyrsta koncert sinn. Hann
vildi fá álit hans á leik sín-
um.
Meðan á hljómleikunum
stóð, sofnaði hinn frægi
píanóleikari og hraut þang-
að til hinn ungi píanóleikari
vakti 'hann öskureiður:
— Ég hafði boðið yður
hingað til að heyra álit yð-
ar, svo sofnið þér bara.
— Ungi maður, svaraði
hinn frægi píanóleikari vin-
gjarnlega, — svefn er stund
um álit líka ....
G6(J föt
Það eru margir, sem
munu minnast kvikmynda-
leikarans Vietors Prancen
úr góðum hlutverkum. Nú
er hann kominn á efri ár,
en hann lítur stórt á sjálfan
sig og það er ekki að ástæðu
lausu.
Hann leikur, sem stend-
ur, aðalhlutverkið á Theatre
du Palais Royal í La Fleur
des Pois eftir Edouard Bour
det og klæðist í hlutverk-
inu fötum, sem saumuð
voru árið 1932.
I SkiliÖ kvetýju heim
Bandarískur ferðaflokkur1
var á ferðalagi í Moskvu og
vildi þá það slys til, að bíll-
inn, sem ferðafólkið var í,
rakst á vörubíl. Vörubíl-
stjórinn var ævareiður og
skammaðist langa hríð.
— Hvað segir hann?,
spurði einn Bandaríkja-
mannanna hinn rússneska
farastjóra.
Rússinn tapaði ekki .sínu
diplómatíska andliti sínu,
en svaraði virðulega:
— Hann biður hina banda
rísku ferðalanga að skila
kveðju til bandarískra verka
manna frá verkamönnum
Sovétrikjanna.
^erw^prd ortJinn
íraustur
Fimm vikum eftir að árás
armaður skaut tveimur kúl-
i uum í höfuð hans, yfirgaf
forsætisráðherra Suður-
j Afríku spítalann, við góða
I heilsu.
Orottningarmó'Öir í
^iftrngarhugleiÖ-
ingum
Undir risastórri mynd af
Elizabeth drottningarmóður
birti blaðið Daily News eft-
irfarandi frétt:
— Ástin blossar, drottn-
inganmóðirin í giftingarhug-j
leiðingum.
Blaðið sagði, að drottning,
armóðirin , seon er 59 ára
gömul, og hefur verið ekkja
í átta ár, ætli sér að giftast
Sir Arthur Penn sem er 74
ára gamall piparsveinn.
Einkaritari drottningarmóð-
urlnnar hefur borið þessa
frétt til baka og segir að
hún sé „tóm vitleysa".
Hlýðinn nemandi
Kennari nokkur í Mem-
phis í Bandaríkjunum skip-
aði nýlega 7 ára gömlum
nemenda sínum að renna
þvf niður, sem hann var að
tyggja. Nemandinn hlýddi
kennara sínum og árangur-
inn varð sá, að hann var
fluttur á spítala með blý-
antsstubb i maganum.
Viviein Leigh biður
ím skilnaÖ
Hin fræga brezka kvik-
myndaleikkona Vivien Leigh
hefur farið fram á skilnað
Sir Olivier og viðhaldiS.
við mann sinn leikarann Sir
Laurence Olivier, en þau
hafa verið gift í nítján ár.
Vivien segir að Sir Laur-
ence vilji fá skilnað til að
giftast leikkonunni Joan
Plowright, sem er 28 ára
gömul.