Tíminn - 31.05.1960, Side 13
TÍMINN, þriSjudaginn 31. ms> 1960.
13
„Villifé
u
(Framhald af 9. sí5u).
hafi meira og minna forustu
mn slíkar athuganir.
MauSsyn á markaSs-
könnun
— Hefur þú e. t. v. ein-
h\erjar tillögur um einhver
viss atriði i þessum málum?
— Auðvitað reyni ég að
gera mér einhverjar hug-
myndir um þau eins og flestir,
en hef að sjálfsögðu ekki að-
stöðu, frekar en aðrir ein-
staklingar til að imdirbyggja
þær með athugunum og rann
sóknum. En eina hugmynd
langar mig til að drepa á, ef
ég má. Eg er þvi kunnugur,
að flest stærri fyrirtæki telja
sjálfsagt að verja talsverðu
fé árlega i markaðskönnun og
markaðsleit fyrir vörur sinar.
Eg held að við séum ekki nægi
lega vakandi um þessi atriði.
Við þurfum aö sinna meir
þeim þætti að selja vörur
okkar. Sumir segja, að þegar
búið sé að framleiða hverja
vöru — þá sé helmingur af
vandanum búinn. Hinn helm
ingur vandans sé sala vörunn
ar fyrir gott verð. í þessu sam
bandi vil ég nefna eina vöru
•tegund. Það er íslenzka lamba
kjötið (og nefni ég þessa vöru
'sem dæmi). Eg held, að þar
höfum við vöru, sem hægt
væri aö selja fyrir hærra verð
-en nú gerist, jafnvel helm-
ingi hærra verð, en auðvitað
kostar það mikla umhugsun
og peninga, (sem lagðir eru
í hættu) og talsverðan dugn
að. Hér er um að ræða mjög
lítið vörumagn, sérstaks eðl-
is, og þarf að haga sér eftir
þvi. Hinar ríku þjóðir hér í
kring um okkur vilja fá eitt-
hvað nýtt á matseðilinn. Eln
hverja tilbreytingu frá naut
inu, svíninu og hænunni.
-Kjöt af íslenzku „villifé", sem
-lifað hefur á hinum kjarn-
mikla gróðri íslenzkra heiða
landa — þannig þyrfti að aug
lýsa.
— Hvers vegna■ villifé?
— Jú, það ættum við aö
nota í auglýsingunum. Kjöt
af villtum dýrum, (hjörtum
• rádýrum og þess háttar) er
alltaf í háu verði, þó það sé
ekki nærri eins gott og okkar
kindakjöt.
— En fá þessar þjóðir, sem
þú talar um, nóg af lamba-
kjöti t. d. frá Argent-ínu, Nýja<-
Sjálandi og Ástraliu?
. spillir bragðinu
— Jú, en það er alit annað
kjöt, það fé er fyrst og fremst
ullarfé og ullafolían er svo
megn, að hún spillir bragði
kjötsins. Það er „ullarbragð
að þessu kjöti. Þess vegna
megum við ekki láta okkar
V%-V*V»V*'V»V»*V»V*X»X»,N.»VjV*>
kjöt ganga inn á markað \
þessa kjöts og sæta sama
væri að velja t. d. 4 til 5 stór-
borgir, sem markað hafa fyrir
okkar kjöt. Auglýsa það í
staðarblöðum þar. Verja
í þær auglýsingar, tals-
verðu af fé og sjá svo um, að
alltaf væri til gott íslenzkt
kjöt árið um kring, handa
þessum viðskiptavinum okkar.
Það þarf að kenna þeim að
matbúa kjötið og framreiða.
Einn dugandi maður gæti sezt
að í hverri hinna fjögurra
stórborga sem sæi umO " :
markaðinn og annaðist söl-
una e.t.v. helzt fyrir eigin
reikning með samningi til
vissra ára, þannig að hann
hefði hagnaðarvon, ef vel
tækist. En byrjunarkostnað-
inn yrðu eigendur vörunnar
að legga fram að einhverju
leyti. En sá kostnaður myndi
fljótt koma inn aftur, ef til-
raunin , i-heppnaðist. Eins
og ég sagði, tók ég hér aðeins
dæmi um það hvernig kæmi
til mála að vinna — en vil
með því segja, að ég tel mikla
þörf á að vinna skipulega og
af myndarskap og framsýni,
bæði að markaðsmálum okk
ar og athugunum á efnahags
byggingu okkar yfirleitt. —
Þetta var dæmi, sem ég tók
um kjöt, — en minna má á,
að við höfum hér á landi tals
vert af úrvals fiski. Svipuð
dæmi mætti taka um hann.
Og í sambandi við iðnaðar-
framleiðslu mætti hugleiða,
að þjóðin er óvenju listræn.
Hvaða möguleikar kunna að
felast í því?
Myndin er frá garnfram-
leiðsluverksmiðju. Með góðri
skipulagningu, sérmenntun
starfsfólks og ótrúlegri tækni
breytingu hefur ýmsum ná-
grannaþjóðum okkar tekizt
að verða færar um að keppa
við iðnað landa, sem greiða
stórum hærri vinnulaun.
Kýr
vil kaupa 2 góðar kýr. —
Uppl símstöðinni, Krýsu-
vík.
13 ára
drengur óskar eftir að kom-
ast á gott sveitaheimili í
sumar Upplýsingar í síma
24139.
Auglýsið í Tímanum
ALLT A SAMA STAÐ
PAYEN
PAKKNINGAR *
PAKKNINGASETT
PAKKDÓSIR
Egill Vilhjálmsson h.f.
Laugavegi 118, sími 2-22-40.
»X»X*X»V»V*X*,V*V»V*X*V»X.»V*%»V*V*V*V»'\
v»v>> «v*v -
•V*V*V»V«V»V»‘
Það tilkynnist hér með, að samkvæmt samkomulagi bankanna verður, frá og með
1. júní n. k. þar til öðruvísi verður ákveðið, afgreiðslutími útibúa vorra í Reykjavík,
svo og síðdegisafgreiðsla í Útvegsbankanum, sem hér segir:
BÚNAÐARBANKS ÍSLANDS
Austurbæjarútibú, Laugavegi 114.
Opið virka daga kl. 10—12 f.h., 13—15
og 17—18,30 e.h.
Laugardaga kl. 10—12,30 árd.
Miðbæjarútibú, Laugavegi 3.
Opið virka daga kl. 13—18,30 e.h.
Laugardaga 10—12,30 árd.
UTVEGSBANKI ISLANDS
Útibú á Laugavegi 105
Opið virka daga kl. 10—12 f.h. og kl.
15—18,30 e.h.
Laugardaga kl. 10—12,30 árd.
Síðdegisafgreiðsla í Útvegsbanka íslands
við Lækjartorg
Kl. 17—18,30 e.h., nema laugardaga.
t
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
f
)
)
)
)
)
)
>
Sérhver kona á auðvelt með að
sjá hvenær maðurinn er aftur
sómasamlega rakaður *
10 blaða málmhylki meí
hólfl fyrir notuð blöð
-&• Og slíkur rakstur fæst aðeins meo
Bláu Gillette Blaði í Gilletté rakvél.
Reynið eitt blað úr handhægu málmhylkjunum á
morgun og finnið mismuninn.
Gillette
Til að fullkomna raksturinn — Gillette rakkrem
•v»v*v«v*v»v»v»v»v*v»v»v*v*v
Dieselvél
Til sölu er ný 5 ha dísilvél,
1500 sn. á mín. Vatnskæld.
Rafall 3 kw 32 volt, getur
fylgt. Uppl. milli kl. 6 og
8 síðd. í síma 13077.
•v*v*v»v*v»v»v*v*v*v*v*v*v»v
•v.*v*v*v*v*v*v*v»v»v*v*v»v»v
Bændur
18 ára stúlka og 13 ára
drengur óska eftir kaupa-
vinnu. Uppl. í síma 50227.
V»V*V»V»V»V»V»V*'
AÐALFUNDUR
Húseigendafélags Reykjavíkur verður haldinn í
Skátaheimilinu við Snorrabraut, föstudaginn 3.
júní n.k. kl. 8,30 síðdegis.
Félagsstjórnin
Byggingarfélag verkamanna Reykjavík:
Til sölu
3ja herbergja íbúð í 2. byggingarflokki. — Um-
sóknir sendist skrifstofu félagsins, Stórholti 16,
fyrir 6. júní n.k.
Stjórnin
V*V*V»V*V«V*V»V*V»V»V*‘
,*v*v*v*v*v*v»v*v