Tíminn - 08.06.1960, Side 1
Flugvélin steyptist
kollhnís og lagöist
þvert á þjóöveginn
Tveggja sæta flugvél frá flugskólanum Þyt
nauðlenti vestur á Mýrum á hvítasunnudag.
Nauðlendingin tókst vel en flugtakitS mis-
heppna'ðist
Á sunnudaginn nauðlenti
tveggja sæta flugvél frá flug-
skólanum Þyt á túninu hjá
Hofsstöðum í Álftanesshreppi
á Mýrum. Blaðið ætlaði að
afla sér heimilda um atburð
'heimleið, þraut vélina bensín. Á-
fcvað flugmaðuiinn, Ástvaldur
Eiríksson, þá að nauðlenda á tún-
inu á Hofsstöðum. Tókst lendin-g-
in vel, og safcaði vélina ekki.
Rakst á girðingu
þennan beint frá fyrstu hendi,
sem sé Þyt, en fyrirsvars-
menn þar neituðu að gefa
nokkrar upplýsingar og kváðu
sér fulla óþökk í því, að nokk
uð yrði sagt frá þessu.
Tiidrög voru þau, að piltar tveir
voru að fcoma frá fermingarveizlu
á ísafirði á tveggja sæta fliugvél
— sennflega Piper Cub. Pegar
þeir komu yfir ÁKtaneshrepp á
Því -næst urðu pil-tarnir sér úti
um bensín á vélina, og reyndu að
því búnu við flugtak. Þá kom á
daginn, að túnið var of stutt til,
þess að vélin kæmist á næga
ferð. Rafcst hún fyrst á girðingu
við enda túnsins, flaug síðan yfir
skurð og rak þar nefið á kaf i
uppgröftmn úr skurðinum. Þar
steyptist hún síðan kollhnís og
lagðist þvert yfir þjóðvegin-n, sem
var handan ruðningsins. Mennina
sakaði lítið sem ekkert, þó mun
(Framhald á 15. síðu). I
NÝI FRÍLISTINN ER
.. EKKI FRÍLISTI “
MacmHlan ræðir við norsku
stjómina um landhelgina
Macmillan forsætisráðherra Breta er kominn í fjögra
daga opinbera heimsókn til Noregs. Mun Macmillan.
eiga viðræður við Gerhardsen forsætisráðherra og fleiri
ráðherra norsku stjórnarinnar. Sagt er að Macmillan
muni fyrst og fremst ræða um samskipti hinna tveggja
markaðslanda Evrópu, en Bretar og Norðmenn eiga
báðir aðild að bandalagi ytri ríkjanna sjö svokölluðu.
Einnig mun Macmillan ræða um ákvörðun norsku
stjórnarinnar að færa fiskveiðilandhelgina út í 12
mílur frá ströndum Noregs.
Það brá mörgum heldur
betur í brún, þegar þeim
barst í hendur hinn margum-
talaði og rómaði frílisti, því
að 1. grein reglugerðarinnar
hljóðar á þessa leið:
„Innflutningur ANNARRA
VARA, en hér eru taldar á
eftir, skal vera frjáls."
Síðan kemur lan-g-ur listi um
þær vörur, sem áfram verða háð-
ar gjaldeyris- og innflutningsleyf-
um og eru það flestar eða allar
nauðsynjavörur almennings. —
Það er ekki fyrir hvern sem er að
komast að því, hvaða vörur það
eru, sem undanþe-gnar eru leyfum,
þó ekki geti þær verið margar,
því að við les-tur hins langa upp-
talnin-garlista þeirra vara, sem ó-
frjálsar eru verður ekki í fljótu
bragði séð að þar hafi nokkuð
gleymzt af þeim vöium, sem al-
mennrngur notar mest. Væri því
ekki úr vegi fyrir ríkisstjórnina
að gefa út lista yfiir þær vörur,
sem raunverulega eru frjálsar í
innflutnin-gi.
Hér á eftir skal borið á víð og
dreif niður í hinn langa upptaln-
ingarlista um ófrjálsu vörurnar og
næstu daga mun blaðið leitast við
að upplýsa almenning um hina
„frjálsu verzlun", sem Morgun-
blaðið telur að marki tímamót í
viðskiptum á íslandi.
Eftirtaldar vörur eru háðar
gjaldeyris- og innflutningsleyfum:
Kaffi, rúgmjöl, kartöflumjöl,
klíð, strásykur, molasykur, kandís,
þrúgusykur, súkkulaði og vörur
úr kakó, sulta og aldinmauk, kaffi
bætir og kaffilíki, kol, steinolía,
benzín og brennsluolíur, blýantar
og skólakrit, hjólbarðar og slöng-
ur á ökutæki, gólfdúkar, krossvið-
ur, húsgögn, gólfmottur og á-
breiður, þak- vegg- og gólfpappi,
ytri fatnaður og nærfatnaður úr
baðmull, höi eða öðrum jurta-
spun-aefnum, handsápa og rak
(Framhald á 15. síðu).
Sláttur
hafinn
Sláttur er almennt ekki haf-
inn en þó eru einstaka bændur
famir að slá því víðast er gras
vel sprottið. Enda hefur verið
einmuna tíð undanfarið, stöð-
ug lilýindi. Geir bóndi Gunn-
laugsson i Eskihlíð byrjaði að
slá 3. júni eins og sagt var frá
í blaðinu á Iaugardag. Myndin
sýnir kaupamann Geirs slá
fyrstu skákina. Geir býr stór-
búi suður í Fossvogi, hefur þar
tugi kúa, allmörg svín og fleiri
hænsn cn tölum verður talið.
Enda nægir honuni ekki taðau
af túninu í Fossvogi, hann
heyjar á ýmsum jörðum í
grennd.
Sláttur mun hafinn víðar og
hefur blaðinu borizt fregn um
að bændur í Melaleiti í Mela-
sveit hafi byrjað slátt um svip-
að leyti og Geir. Þar búa félags
búi feðgarnir Jón Magnússon
og Magnús Eggertsson og hafa
hirt heyið jafnóðum í votheys-
gryfjur, því sprettan er svo ör
að ekkert má liggja. Eftir þessu
að dæma þurfa bændur ekki að
kvíða sumrinu.
—
Það vorar vel 1 í hafinu — bls. 3