Tíminn - 08.06.1960, Síða 12
12
X í MIN N, unövikudagiim 8. jáuí 1960.
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Bezta knattspyrna, sem sést hefur á Laugardalsvellínum
Dynmo Moskva sigra'Si KR meS sex mörkum
gegn engu og landsIiÖiÖ meÖ þremur mörkum
gegn engu —
„Þetta er bezta knattspyrna, sem sézt hefur á Laugar-
dalsvellinum" sagði maður nokkur eftir að Dynamo Moskva
hafði sigrað KR með 6—0 í fyrrakvöld. Og þetta eru orð að
sönnu, þótt sú staðreynd sé höfð í huga, að á Laugardals-
vellinum hafa leikið landslið sex þjóða, þar á meðal hið
franska, því leikni þessara rússnesku snillinga frá Moskvu
er stórkostleg, hraðinn gífurlegur, en gengur þó aldrei of
langt, þannig að samleikurinn gengur fyrir öllu. Og KR-ing-
ar eiga heiður skilið fvrir þann leik, sem þeir sýndu. Þeir
gáfust aldrei upp, þótt þeir berðust vonlausri baráttu við
nfureflið, og voru sannarlega óheppnir að skora ekki eitt
'il tvö mörk í leiknum. En leikur þeirra gerði það að verk-
um, að leikurinn í heild var miklu skemmtilegri fyrir áhorf-
endur en fyrsti leikurinn, þegar Dynamo sigraði landsliðið
mðe 3—0 — en bá fannst manni, sem Rússarnir keyrðu
aldrei af fullum krafti — enda kannski skiljanlegt, þar sem
leikmenn voru til þess að gera nýkomnir hingað eftir tveggja
daga erfitt ferðalag.
Leikurian í fyrrakvöld var lengi sagt, og vítaspyrnan kom Rússun-
v f- -y,-.... !.
vel nokkuð jafn, og upphlaupin
gengu á báða bóga. KR-ingar
komu vissulega á óvart með fcraft-
miklum og ákveðnum leik. Rúss-
arnir reyndu nokkur langskot
fyrstu mínúturnar, en tókst ekki
að hitta markið, þótt þeir síðar í
leiknum, sýndu mikla hæfni í lang
skotum.
Og þegar Rúsunum tókst ekki
að skora, varð dómarinn Magnús
Pétursson, að taka málið i sínar
hendur og á 15. mín. dæmdi hann
vítaspyrnu á KR, sem var vafasöm
um á bragðið. Vinstri kantmaður-
inn lék þá að marki KR með
Bjania Felixson að baki sér. Hreið
ar Ársælsson kom á móti kant-
manninum, og þegar hann ætlaði
að leika á Hreiðar, skullu þeir sam
an og Bjarni, sem kom hlaupandi
skall á þá. Rússinn lenti þvi á milli Fyrir þetta dæmdi Magnús Pétursson vítaspyrnu. Kantmanninum og Hreiðari Ársælssyni hefur lent saman, og
þeirra, en hann var ekki í mark- Bjarni Felixson, sem liggur á vellinum, rennur á þá. Áhorfendum fannst dómur Magnúsar mjög strangur, og
tækifæri, þegar þetta skeði. Samt
sem áður hikaði dómarinn ekki
við að dæma vítaspymu á KR —
enda sumir dómarar, og Magnús
einn af þeim, sem í hverjum leik
myndin virðist sanna álit þeirra. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson.
að nota það mesta vald, sem einn
dómari hefur yfir að ráða. Hægri
í meira lagi, svo ekki sé méira þurfa að láta bera á sér, með því I innherji skoraði örugglega úr víta-
Haimir Guðjónsson varði snilldarlega skallknött frá miðherja Dynamo. Myndin sýnir, er hann hefur slegið knött-
inn yfir.
spyrnunni.
ÞÁ VAR EKKI DÆMT
En síðar í leiknum dæmdi Magn í
ús ekki upplögð brot. í síðari hálf-1
leik braust Þórólfur Beck í gegn,!
en vinstri bakvörður Rússanna
náði honum inn í vítateig og bein-!
línis lagðist á Þórólf til að hindra1
hann í að ná kncttinum. En þá
var ekki dæmt. Og síðar var Þór-
ólfur aftur í færi við vítateigs-
punktinn, þegar sami bakvörður
hrinti honum með hendinni. Þá
var heldur ekki dæmt. En við
þetta hafði dómarinn skapað sér
svo miklar óvinsældir hjá áhorf-
endum— að honum þótti bezt að
sjá ekki neitt athugavert, þegar
einn varnarléikmaður KR sló
knöttinn frá á marklínu KR með
hendinni síðast í leiknum og bjarg
aði með því marki. Það var víta-
spyrna og því tækifæri til að láta
ljós sitt skína að nýju.
TVÖ MÖRK
Strax á eftir, að Dynamo hafði
skorað úr vítaspyrnunni, og KR-
i ingar hafði leik að nýju, náðu
I Rússarnir knettinum og léku upp
að KR-markinu. Þetta var glæsi-
i legt upphlaup, sem hægri fram-
| vörðurinn rak endahnútinn á með
glæsilegu skoti frá vítateig, sem
Heimir Guðjónsson hafði ekki
nokkuð minnsta tækifæri til að
verja. Þ’annig höfðu Rússarnir
fengið tvö mörk næstum á sömu
mínútunni — og spennan í leikn-
um minnkaði.
Og 10 mín. síðar sfcoruðu þeir
þriðja markið. Þá var snöggt upp-
hlaup hægra megin og gefið fyrir
markið. Hægri innherjinn var al-
veg frír á marklínu (rangstæður?)
og tókst á laglegan hátt að koma
knettinum í mark.
En uppúr þessu náðu RR-ingar
tveimur ágætum uphlaupum. Eftir
hið fyrra fengu þeir hornspyrnu,
sem Sveinn Jónsson skallaði yfir
i úr, og aðeins síðar lék Helgi Jóns
son upp miðjuna og upp að víta-
teig. Hann spyrnti föstu skoti á
mark, en geigaði og spyrnan fór
rétt uta-n hjá. Og aftur sóttu Rúss-
ar. Heimir varði stórglæsilega skall
knött frá miðherjanum eftir horn-
spyrnu — og Bjarni Felixson
bjargaði fyrir opnu marki rétt á
eftir.
Þegar 40 mín. voru af leik, lék
Þórólfur Beck á miðjunni og
renndi knettinum mjög laglega
gegnum rússnesku vörnina, og þar
var Sveinn Jónsson kominn, fékk
knöttinn með sér og átti aðeins
markmanninn eftir. Svéinn skaut
föstu skoti af stuttu færi, en sá
rússneski sýnd snilld sína, með því
að verja. Þess má geta, að hinn
frægi markmaður, Jashin, lék nú
ckki með, en í stað þess varamark-
maður íiðsins, og vakti hann mikln
athygli' fyrir leik sinn, ekki sízt
útspyrnur hans frá marki, seni
voru lengri, en hjá sjálfum Helga
Daníelssyni!!
En þó svo tækist til mcð spyrnu
Sveins á markið, létu KR-ingar
ekki hugfallast, og nokkrum sek.
síðar var Þórólfur fyrir opnu
marki inn í vítateig Rússa, en
spyrnti yfir. KR-ingar voru sannar
lega óheppnir að fá ekki mark úr
öðru hvoru þessara tækifæra.
Og síðast í hálfleiknum fengu
Rússar sitt fjórða mark. Mikil
hætta hafði þá verið við KR-mark-
ið, Garðar Áí-.nason meðal annars
bjargað á línu, en KR-ingum tókst
ekki að hreinsa og vinstri innherj-
inn fékk knöttinn og spyrnti af
stuttu færi á markið. Heimir náði
knettnum, en missti hann undir
sig í markið, enda spyrnan snögg
og af stuttu faeri. Ef til vill er
hægt að kenna Heimi um þetta
mark — en það voru þá einu mis-
tök hans í leiknum.
ÞRUMUSKOT
Dynamo byrjaði með ákafri
sókn í síðari hálfleik og það gaf
fljót uppskeru. Á 5, mín misreikn
•//