Tíminn - 08.06.1960, Page 13
Knötturinn hafnar í fyrsta skipti í marki KR. — Hægri innherjinn, sem er lengst til vinstri, hefur spyrnt óverjandi í vark úr vítaspyrnunni. Knöttur-
inn hafnar út viö stöng, og Heimir geri ekki einu sinni tilraun til að verja, enda tilgangslaust.
aði Bjarni Fclixson sig illa, sem
var til þess, að hægri útherjinn
lék óhindraður upp að vítateigs-
ihorninu, og þaðan spyrnti hann á
onarkið þrumuskoti, sem hafnaði í
markhorninu, algeriega óverjandi,
og spyrnan var stórglæsileg.
Nokkru síðar skeðu þeir atburð-
ir í vítateig Rússa með Þórólf
Beek, sem fyir er sagt frá, og ekk-
ert var daemt á, og á 20 mín. skor-
uðu Rússar sjötta og síðasta mark
sití í leik og enn einu sinni með
þnfmuskoti frá vítateig. Enn var
hægri innherjinn að verki.
Þrátt fyrir þennan markamun
var leikurinn ekki leiðinlegur það
sem eftir var. Rússarnir .sýndu
snilldarknattspyrnu — knötturinn
gekk frá manni til manns í hröð-
um, snöggum sendingum, þar sem
allir voru með, allt frá bakvörðum
til útherja. Undir lok leiksins
hvessti mjög og var þá erfiðara
fyrir leikmenn að hemja knöttinn.
En KR-ingar náðu þá meðal ann-
ars tveimur ágætum upphlaupum
— þótt knötturinn væri yfirleitt
á vallarhelmingi þeirra. í fyrra
skiptið spyrnti Örn Steinsen fram
hjá af stuttu færi, en siðara skipt-
ið 'komst Þórólfur í gegn, en rann
með knöttinn í vítateignum. Hann
lék síðan á nokkra menn í stað
þess að gefa knöttinn og spyrna
hans á mark var máttlaus.
ÁGÆTUR LEIKUR
í liði Dynamo er vart hægt að
taka einn leikmann framyfir ann-
an, enda eru leikmennirnr svo
jafngóðr að unun er á að horfa.
Tvær breytngar voru gerðar á lið-
inu frá fyrsta leiknum — og
vakti annar leikmaðurinn, hægri
framvörðurinn, einna mesta at-
ihygli. Og eitt er víst að Dynamo er
í tölu beztu — ef ekki bezta lið —
sem komið hefur hingað í heim-
sókn.
Eftir mörkunum að dæma,
kunna margir að álíta að KR-liðið
hafi staðið sig illa. En það er öðru
nær. Margir leikmenn áttu ágætan
j leik, þótt þeir réðu ekki við Rúss-
ana. Heimir varði oft stórvel í
markinu, og Hreiðar og Bjarni gáf
I ust aldrei upp allan leikinn. En
bezti maður KR-liðsins var Hörð-
ur Felixson, .sem lék af miklu ör-
! yggi og festu og það svo, að mið-
I herjanum rússneska þótti nóg um
I á tíma og færði sig út á kantinn,
I enda komst hann ekkert áleiðis
með Hörð. Þá átti Garðar Árnason
mjög góðan leik, mun betri en
með landsliðinu. Helgi Jónsson
var ágætur meðan hann hafði út-
hald. f framlínunni var Þórólfur
beztur og Ellert Schram vann
mjög vel. Hins vegar var Sveinn
Jónsson ekki upp á sitt bezta, og
sama er að segja um Örn og Gunn-
ar Guðmannsson. Gunnar lék 200.
leiik sinn með meistaraílokki KR í
þessum leik. KR-ingar heiðruðu
hann með blómvöndum og einnig
fékk hann gjöf frá rússneska lið-
Laxveiðimenn
Höfum til ráðstöfunar nokkra stangadaga í Úlf-
arsá (Korpu) í sumar. Upplýsingar veittar í síma
32000.
ÁbUrðarverksmiðian h.f.
13
—---------------------N
30. Skerja-
fiarðarsundið
Á annan i hvítasunnu,
urn miðjan dag, synti Eyj-
ólfur Jónsson, sundkappi,
yfir Skerjafjörð. Var þetta
i þrítugasta skiptið, sem
hann gerði það. Hann lagði
af stað úr Grímsvör og tók
stefnuna á Bessastaða-
kirkju. Eyjólfur kom að
landi í vikinni,' sem er
skammt frá skanzinum,
eftir 1 klst. og 13 mín.
sund- Hann svamm bringu
sund alla leiðina, þetta frd
34 t'il 38 sundtök á mín-
útu. Vegalengdin er um 3
rastir (km.).
Vegna þessa „afmælis“-
sundmóts, fóru nokkrir vin
ir hans og samherjar, með
honum i tveimur vélbát-
um; þar á meðal forseti
ÍSÍ, formað.ur SSÍ, for.mað
ur Þróttar og Pétur Eiríks
son, sundkappi. Mettimi
Eyjólfs yfir Skerjafjörð er
réttar 54 mín. Og alltaf
hefur hann lagt af stað
úr Grímsvör.
Þegar Eyjólfur steig á
land, t-óku forsetahjónin
á móti sundkappanum, og
bauð honum, ásamt fylgd-
arliði að Bessastöðum, til
Kaffidrykkju. Sátu menn
þar góða stund í gó&um
fagnaði. 4lltaf þykir mönn
um gott að koma á Bessa-
staði, til hinna vinsœlu for
setahjóna.
Eyjölfur er. nú í ágœtri
œfingu og hyggst að leysa
fleiri sundafrek af hendi
hér í sumar. Þá mun hann
og reyna fyrir haustið að
synda yfir Ermarsund. Og
óska honum allir velfarn-
að.ar í þeirri miklu þrek-
raun, sem ekki aðeins mun
skapa honum frœgð, held-
ur og íslandi og íslending
um, ef vel tekst.
--------------------
lslenzka landsliðsnefndin er fljót að gleyma
11
í gœr var íslenzka lands
liðið, sem leika á við Norð
menn i Osló á morgun, val-
ið. Landsliðið er þannig
skiptíð: Helgi Daníelsson,
Akranesi; Hreiðar Ársœls-
son, KR; Árni Njálsson,
Val; Garðar Árnason, KR;
Rúnar Guðmannss., Fram;
Sveinn Teitsson, Akranesi,
fyrirliði; Örn Steinsen KR,
Sveinn Jónsson KR; Þór-
ólfur Beck, KR; Ingvar
Eliasson, Akranesi og Þórð
ur Jónsson, Akranesi.
Já, lesendur góðir,
þetta 'er landsliðið sem
landsliðsnefnd, þeir Sœm-
undur Gíslason, Fram;
Lárus Árnason, Akranesi
og Haraldur Gíslason KR,
hafa valið. Landsliðsnefnd
kemur ávallt á óvart og þá
ekki síður að þessu sinni
— op virðist afar fljót að
Ssl. landsliðið gegn Mmönnum valið
gleyma. Þeir sem sáu lands
leikinn við Dani í Kaup-
mannahöfn í fyrrasumar,%
munu seint gleyma Herði
f'blixsyni í þeim leik —
hann var beinlínis stórkost
legur, og dönsku blöðin
áttu varla nógu sterk lýs-
ingarorð yfir leik hans. Þá
átti Hörður mjög góðan
leik í fyrrakvöld g egn
Dynamo, það góðan að mið
herjinn, sem hann gœtti,
flýði um t-íma út á kant.
En landsliðsnefndarmenn-
irnir þrír virðasi hafa
gleymt öllu, sem skeði í
Idretsparken — og ekki
séð leikinn i fyrrakvöld.
Rúnar Guðmannsson, sem
tekur stöðu Harðar í lands
liðinu, er ágœtur leikma&ur
en hann átti ekki að kom-
ast í landsliðið á kostnað
bezta manns varnarinnar.
Og annað, sem slœmt er í
sambandi við það a& Her&i
er kastað. Hann var hinn
sjálfkjörni fyrirliði liðsins
á leikvelli, og þó Sveinn
Teitsson sé alls góðs mak
legur, veit ég, að hann get
ur ekki fyllt stö&u fyrir-
liðtí liðsins eins vel og
Hörður hefði gert.
En þegar vig rennum
augum yfir val liðsins og
lesum að lokum — Ingvar
Ellasson, Þór&ur Jónsson
Akranesi, — sjáum við
fljótt hvað hefur verið að
ske. Það eru bein hrossa-
kaup milli Framarans og
Akurnesingsins í nefnd-
inni. Þeir Sœmundur og
Lárus hafa samið um það,
a& ef Sœmundur fengi
Rúnar í liðið, þá skyldi
Lárus fá Ingvar. Þetta hef-
ur svo sem áður skeð hjá
íslenzku landsliðsnefnd-
inni, blessaðri, að verzlað
hafi verið með leikmenn.
Ingvar Eliasson er ungur,
efnilegur leikmaður, en
hann á ekkert erindi i
landsliðið að þessu sinni
— hann á framtíðina fyr
ir sér, og leikur hans gegn
Dynamo s.l. föstudag gaf
þetta einmitt til kynna. —
En verzlun er verzlun —
og þá skiptir ekki máli
hvort maðurinn á heima
á þessum st-að eða ekki.
Ástœ&ulaust er að rœða
þetta mál frekar — lands-
liðsnefndarmennirnir
stinga áreiðanlega hausn-
um i sandinn — og hlusta
ekki á neinar ákœrur frek
ar en fyrri daginn. En KSÍ
verður að gera breytingu
á nefndinni, láta ein mann
velja, liðið, svo þessi sí-
felldu hrossakaup með fé-
lagsmenn nefndarmanna,
hætti. Leikmennirnir sjálf
ir grœ'ða ékkert á þessu,
það er þeim miklu frekar
, til tjóns.
Varamenn fyrir leikinn
eru: Heimir Guðjónsson,
Hörður Felixson KR, Ellert
Schram, KR, Gunnar Guð
mannsson KR og Berg-
steinn Magnússon Val.
— hsím.
----—-----rrrrr-ninnnnnnnnnnnni1)l||l[1|