Tíminn - 03.07.1960, Page 2
T í M I N N, sunnudaginn, 3. júli^lgGO.
To
í gær og dag stendur yfir í Reykjavík aSalfundur stjórna norrænu sölutæknifélaganna. Fundinn sækja for-
vfgismenn samtakanna frá Noregi, SvfþjóS, Danmörku og Finnlandi. Fulltrúarnlr komu tll Reykjavíkur meS
Hrímfaxa á föstudagskvöidiS og sjást þeir hér viS komuna.
Kýpur lýðveldi
NTB—Nicósía, 1. |úlí. — í
kvöld var fullyrt í Nicósíu að
samkomulag hefði náðst um
seinustu deiluatriðin milli
brezku stjórnarinnar og full-
trúa Kýpur. Seinasta samn-
ingsatriðið mun hafa verið
efnahagsaðstoð Breta, en
lengst af hefur staðið í þrefi
um herstöðvamálið.
Hvað eftir annað hefur orð
ið að fresta fyrirhugaðri lýð
veldisstofnun vegna þess, að
Kraup fyrir
Nínu
NTB—Vínarborg, 1. júlí. —
Sovézkur flóttamaður búsett-
ur í Vínarborg, kraup á kné í
dag fyrir framan frú Nínu
Krustjoff og bað hana að
hjálpa sér til að fá fararleyfi
fyrir eiginkonu sína og dóttur
frá Sovétríkjunum.
Það gerðist, er frú Krustj
off var að koma út úr lista-
safninu í Vínarborg. Maöur
braust í gegnum mannhring
inn að frú Krustjoff. Rétti
hann henni bréf og kraup um
leið á kné „Já,já. sagði frú
Nina, „Eg skal fá manninum
mínum þetta bréf“.
BRÓÐIR EISENHOWERS
Bróðir Eisenhowers forseta,
dr. Edgar Eisenhower, er
staddur í Vínarborg þessa
dagana.Hann skýrði svo frá í
dag, að hann hefði flutt sig
frá Hótel Imperial tveimur
stundum áður en Krustjoff
kom þangað. Kvaðst forseta
bróðirinn ekki óska að vera
undir sama þaki og Krustjoff.
strandað hefur á samkomu-
lagi um þetta mál.
Lýðveldi í ágústlok
Fulltrúar Kýpur hafa verið
þeir Makarios erkibiskup fyr
ir grískumælandi Jmenn og
Fazil Kutchuk fyrir tyrkneska
minni hlutann. Þegar lýðveld
ið verður stofnað á Makarios
að verða forseti, en Kutchuk
varaforseti. Aðalfulltrúi af
hálfu Breta hefur verið Sir
Hugh Foot. Makarios hefur
verið mjög erfiður við Breta
í herstöðvmálinu, krfizt þess,
ð lnd undir herstöðvr yrði
miklu minna en Bretar
heimta og þær öðruvísi stað
settar. Bar mikið á milli og
því foykir víst að báðir hafi
slakað mikið til.
Tvö skátamót
í Botnsdal
Þessa dagana eru haldin
tvö skátamót, í Botns-
dal í Hvalfirði og í Vatnsdals
hólum. Það er Skátafélag
Akraness undir stjórn Páls
Gislasonar læknis, sem hef-
ur undirbúið mótið. í Botns-
dal,_ sem hófst 29. þ.m.
í gær heimsótti forseti
íslands, hr. Ásgeir Ásgeirs-
son, verndari skátahreyfing-
arinnar á íslandi mótið ásamt
helztu forráðamönnum fyrir
skátahreyfingunni hérlendis.
Mótið í Vatnsdalshólum
hafa skátafélögin á Blöndu-
ósi og Skagaströnd undirbú
ið og sækja það einkum skát-
ar af Norðurlandi. Foringjar
félaganna eru Jón ísberg,
sýslumaður á Blönduósi og
Ingólfur Ármannsson kennari
á Skagaströnd.
Mótstímum eyða skátarnir
í gönguferðir, skátaleiki og
ýmsar skátaiþróttir, en
skemmta sér á skátavísu með
ýmsum söngvum og leikþátt
um á kvöldin. Báðum skáta-
mótunum lýkur í dag.
Norðmenn
þakka
Aðfaranótt þess 22. þ. m.,
veiktist skipverji af norsku
veiðiskipi mjög hastarlega
og var álitið, að sprungið
hefði í honum magi eða ann
að slíkt alvarlegt innvortis
tiifelli. Þegar þetta skeði var
skipið statt 2 mílur norður
af Kolbeinsey og reið á að
koma manninum sem allra
fyrst í læknishendur en löng
leið til lands. orska sendiráðið
bað Slysavarnafélag íslands
að beita sér fyrir því að feng
in yrði þyrilvængja eða sjó
flugvél til að sækja manninn.
Leitað var fyrst til Sjóbjörg
unarliðsins á Keflavíkurflug
velli, en það treysti sér ekki
til að senda þyrilvængju út
yfir hafið eða lenda þar sjó-
flugvél en bauðst til að
senda vél til Grímseyjar að
sækja manninn. Landhelgis-
vélin Rán taldi heldur ekki
gerlegt að lenda úti á hafi,
en var tilbúin að taka mann-
inn íGrímsey og flytja hann
til Akureyrar. Var þá varð-
skipið Óðinn sem var statt
fyrir norðan land fengið til
að fara á móts við norska skip
jið, var maðurinn fluttur yfir
í varðskipið á hafi úti, sem
svo sigldi á fullri ferð meö
manninn til Grímseyjar þar
sem Rán tók við honum, og
flutti hann á sjúkrahúsið á
Akureyri þar sem allt var til-
búið að taka á móti mann-
inum. Sesselja Eldjárn, form.
færði hinumn norska sjó-
manni blómvönd frá Slysa-
varnafélaginu.
Norskur niðursuðu-
sérfræðingur hér
.. Hefur leiðbeint ísienzkum verksmiðjum um
niðursuðuvörur
Útlagastjórnin hugsar
ráft sitt '
T„n:Ljrg, 2. júlí. — I dag skýrðu
sendimenn nýkomnir frá Farís,
útlagastjárninni frá vit- éðum þar.
Þykir síjórninni s "yrði Frakka
óaðgengileg. Er búizt við, að
stjórnin hugleiði málið-næctu daga
áður en hún segir af eða á um,
hvort .sérstök sendinefnd verður
send til Parisar.
Um nokkurt skeið hefur!
staSið til, aS fenginn yrSi
hingaS á vegum ISnaSarmála-
stofnunar íslands — IMSÍ —
og tækniaSstoSar Bandaríkja-
stjórnar — ICA — sérfræS-
ingur til leiSbeiningar fýrir ís-
lenzkan niSursuSuiSnaS Var
nfSursuSuverksmiSjunum til-
kynnt í maí 1959 um þetta, og
létu þær allflestar í Ijós ein-
tíreginn áhuga á málinu. RáS-
gert var, aS hingaS kæmi
þekktur bandarískur sérfræS-
ingur, en hann féll frá
skömmu áSur en för hans
skyldi hefjast.
Var þá ákveðið að rejma
að fá hihgað norskan sér-
fræðing, sem starfaði hér um
mánaðarskeið á s.l. ári og var
nokkrum aðiltmi í niðursuðu
iðnaði okkar þegar kunnur.
Er hér um að ræða nortska
vélaverkfræðinginn Carl
Sundt Hansen, og kom hann
hingað 4. maí s.l.
Síðan Sundt Hansen lauk
námi við Noregs Tekniska
Höyskola i Þrándheimi 1940,
hefur hann lengst starfað í
sambandi við niðursuðuiðnað,
síðustu átta árin sem sjálf-
stæður ráðgefandi verkfræð
ingur, einkum á sviði niður-
suðu sjávarafurða, og hafa
verkefni hans aðallega verið
skipulagning niðursuðuverk-
smiðja og vélaverkfræðileg
viðfangsefni í fiskiðnaði.
Sundt Hansen heimsótti hér
nær allar starflandi niðvir-
suðuverksmiðjur, og athug-
aði tæknileg vandamál þeirra
og skrifaði síðan álitsgerð
fyrir hverja verksmiðju.
Hann heimsótti verksmiðj
ur í Kóp»avogi, Reýkjavik,
Bíldudal, ísafirði, Siglufirði
og Akureyri. Hvarvetna reynd
ist mikill áhugi vera á leið-
beiningsrstarfsemi þessari.
Margir tillöguuppdrættir
að niðurskipan véla voru
gerðir, veittar voru leiöbein
ingar um val á tegundum véla
og athuganir gerðar á ein-
stökum atriðum, svo sem á-
íyllingu og lokun dósa, hita-
mælingum og lofttæmingu.
Einnig voru ýmis fjárhagsleg
atriði í sambandi við fram-
leiðsluna athuguð.
Jafnframt var safnað efni,
sem lagt mun verða til grund
vallar við samningu almennr
ar skýrslu um ástand og horf
ur í þessari framleiðslugrein.
Þeirri skýrslu mun þó fyrst
verða lokið, þegar unnið hef-
ur verið úr öllu efni, en á
þessu stigi málsins telur ráðu
nauturinn sig geta bent ■ á
nokkur almenn atriði varð-
andi framtíð niðursuðuiðnað
ar hér á landi. Segir hann að
svo virðist sem Faxasíld sé
gott hráefni til framleiðslu
á reyktri síld (kippers) og
síld í alls konar sósum. Niður
soðnar rækjur héðan eru
j gæðamiklar. Vafasamt er,
j hvort þau mið, sem nú þekkj
last, þola meiri veiði, og að
leita verði nýrra miða.
Smásíldin er, a.m.k. á viss
um árstímum, gott hráefni
til framleiðslu á síldarsardín
um o.fl.
ísland hefur á að skipa
allmörgum mönnum, með
talsverða reynslu í niðursuðu
iðnaði. Samt sem áður er ríkj
andi viss skortur á faglærðu
í hópi verkstjóra. Þörf er á
fólki og þá fyrst og fremst
verkstjórum með þekkingu í
verkstjóm, almennri fram-
leiðslutækni og hagfræði og
sem auk þess eru með við-
bótarfræðslu í niðursuðu-
tækni.
Ráðunauturinn hyggur að
stofnun eins eða tveggja ára
niðursuðuskóla hér mundi
missa marks í dag. Styttri
námskeið, til viðbótar ann-
arri menntun, telur hann
réttari leið-
Á heimsmarkaðinum ríkir
hörð samkeppni i niðursuðu
iðnaðinum, og ekki má vænta
þess, að útflutningur aukist
án markaðsrannsókna og
virkrar sölustarfsemi. Virðist
sem lítið hafi verið unnið
hingað til af íslands hálfu
á þessu sviði. Verksmiðjun-
um eru mörg vandamál sam
eiginleg bæði varðandi fram
Ieiðslu og sölu. Samstarf inn
an þessarar atvinnugreiraar
ætti því að reynast mjög
mikilvægt.
Samstarf, er byggist á sölu
miðstöð eða einhverju svip-
uðu fyrirkomulagi, hyggur
fulltrúinn að ekki væri rétt
nú. Hins vegar ætti að reyna
að koma á samstarfi í verö
lagsmálum til að koma í veg
fyrir eyðandi samkeppni
íslenzkra niðursuðufyrir-
tækja.
íslandi er unnt að auka út
flutning sinn á niðursuðuvör
um all verulega, varasagt er
þó að hrinda af stað of kröft
ugri útþennslustrfsemi allt
í einu. Markaðsrannsóknir,
sala, vörugerð, menntun fag-
manna, trygging jafnna gæða
— allt verður þetta að þróast
samtímis. Það er margt sem
gera þarf, álítur Hansen, að
það sé ógjörlegt að fram-
kvæma það á einu eða tveim
ur árum. En meö stöðugu, ein
beittu starfi verður markinu
náð, þótt það kunni að taka
j nokkur ár, segir Sundt Han-
|sen.
; Þess skal getið, að IMSÍ
I hafði nána samvinnu við
! dr. Sigurð Pétursson, gerla-
fræðing um undirbúning og
framkvæmd þessa máls.
Leitað aíi nazistaböðli
L'-ndon, 2. júlí. — Argentínu-
stjórn hefur gefió út handtöku-
skipun á h—idur illr.emdum stríðs
glcep.manni frá valdadögum Hitl
ers, Mangele lækni. Maður þessi
starfaði meðal annar við fanga-
b'ðirnar í Auswicb '-ar sem hann
valdi úr fólk til tortímingar í múg
mcrðstækjum nazista. Bonn-stjórn
uefur áður kraí'izt þess að mað
urinn yrði framseldur.