Tíminn - 03.07.1960, Qupperneq 4
4
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
GULLIÐ SKÍRIST
Þvl oftar sem maður les
líkingar og dæmisögur Jesú,
þeim mun betur kemur í
ljós mikil mannþekking
hans, djúpur lífsskilningur
og þó umfram allt þessi hlýi
mannleiki, sem finnur til
með öllum í fögnuði þeirra
og raunum.
Frásögnin um konuna, er
týndi drókmunni sinni er
mjög gott dæmi um þetta.
Það gæti vel hafa verið
bernskuminning hans sjálfs
um mömmu sína eða systur.
Það þótti ekki lítill auður í
Gyðingalandi þeirra daga
að eiga heilan pening úr
gulli. Það varð því að leita
vel og vandlega, kvíðinn sár
yfir því að finna ekki og
fögnuðurinn mikill yfir því
að finna drökmuna aftur.
Þessar hræringar hjart-
ans skilur hvert barn, sem
hefur skynjað gildi hlut-
anna. En svo kemur hitt,
hið innra og eilífa gildi þess
arar litlu sögu úr hversdags
leikanum, úr lífsbaráttu fá-
tækrar og umkomulítillar
konu.
Drakman, gullpeningur-
inn verður þín eigin sál,
manngildi þitt, dyggðir þín
ar, allt eftir viðhorfi hverju
sinni, en þó umfram allt
þitt innsta ég, guðsmynd
þín, hugsjón þín.
Og þetta gull eiga fleiri
en aðeins þú og ég. Allir
eiga sína drökmu sitt gull.
Hversu ófík sem við kunn-
um að vera, fákæn, fávís og
fátæk, þá erum við gull í
augum Guðs, berum mjmd
hans og yfirskrift.
En svo — hvort óhreink-
ast gullið eða skírist, hvort
máist eða skýrist mynd
hans og áritun.
Þessi mynt, þetta gull
gengur ef svo mætti segja
hönd úr hönd. Hver hönd
setur sín fingraför. Áritun
og mjmd bera þeirra mérki.
Þetta er lifandi gull, við-
kvæmt gull, glóandi gull.
Heimilið, skólinn eða skól-
arnir, vinnustaðurinn, fé-
lagslífið, danshúsið, allt á
sín merki á gullinu góða.
Foreldrar, kennarar, félag-
ar og vinir yfirmenn og sam
starfsfólk. Hver hönd á
sína snertingu og stundum
bletti og för.
Myndin máist, gullið ó-
hreinkast, stundum týnist
peningurinn, skoppar út i
horn, hylst í ryki, sorpi og
hégóma. Áritunin sem sýndi
verðmæti hans verður
smámsaman ólæsileg.
Fáir fara að dæmi kon-
unnar, sópa og hreinsa,
leita og rannsaka horn og
gættir. Fáa grunar framar
að gimsteinn, gullið kunni
að leynast í sorpinu.
En eigandinn man samt
ennþá gullið sitt, peninginn
fagra, sem glóir svo fagur
lega ef hann finnst og er
fægður, gefur þá fyrirheit
um auð og unað, gerir Iífið
vonríkt og ljómandi.
Og hann fer því að eins
og konan eða lætur ein-
hvern þjóna sinna gjöra
það. Týnda gullið gimsteinn
inn, horfni, perlan eða pen
ingurinn skal finnast, hvað
sem það kostar.
Stundum verður að ryðja
burt heilum sorpdyngjum
áður en von er um að finna
gullið. Stundum eru þessar
sorpdyngjur miklar eignir
og auðæfi í augum fólks.
Stundum verður að fjar-
lægja eitthvað annað, sem
eru raunveruleg verðmæti,
heilsa, vinir, ættingjar, en
samt verður hin leitandi
hönd að fjarlægja það, jafn
vel frelsi og mannréttindi
verða að víkja meðan leitað
er.
Svo kveikir leitandinn
ljós, logi ástar og miskunn-
ar, samleiks og náðar lýs-
ir alla leið inn í innstu skot
og afkima hugans og hjart
ans. Og hugsið yklcur. Þama
glóir á gullið, þama er pen
ingurinn blikandi eins og
fyrri. Gleði leitandans gef
ur aftur þennan sérkenni-
lega ljóma, rykið er þurrkað
brott með hlýrri hönd, yfir-
skriftin kemur smámsaman
í Ijós og myndin lýsir fram
úr máðu gullinu, hljómur
inn er hreinn, peningurinn
týndi er fundinn.
Kannast ekki einhver við
þessa fallegu sögu úr sínu B
eigin lífi. En svo eru líka °
til aðrar sögur um þá, sem
alltaf geyma sitt hjarta-
gull og ávaxta það sumir
þrítugfalt, sextugfalt eða
hundraðfalt. Þeim er mynd
in og yfirskriftin meira
virði en svo að drakman
geti gleymzt eða týnzt.
Árelíus Níelsson.
Þökkum samúð, kveðjur og minningargjafir við fráfall og
jarðarför >
Helga Ögmundssonar,
Hvammstanga
Eiginkoná) börn tengdabörn
og barnabörn.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem á einn eða
annan hátt glöddu mig á 70 ára afmæli mínu 18.
júní s.l.
Jóhann Jónsson
Álfheimum 58.
V*V*V‘V*V«V*V»V<V«V*V*V»V*V»V*V*V*'
Prentum fyrir yður
smekklega
og fljótlega
L
Traktor
til sölu. — Uppl. í síma
50163 og 50091 næstu daga
Frá Gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
Væntanlegir nemendur 3. bekkjar (almenn gagn-
fræðadeild, landsprófsdeild, verknámsdeild) þurfa
að hafa sótt um skólavist fyrir 8. júlí n.k. Eftir
þann tíma verður ekki hægt að tryggja nemend-
um skólavist..
Tekið verður á móti umsóknum í Gagnfræðaskól-
anum við Vonarstræti (1. kennslustofu) dagana
4.-8. júlí n.k. kl. 13—17.
Nemendur, sem fylltu út umsóknarspjald í skól-
unum (2. bekk) í vor, þurfa ekki að endurnýja
umsóknir sínar.
FræSsluskrifstofa Reykjavíkur
\*V*V*V*V*‘
:
Höfum venjulega
á lager hinar eftirsóttu
SÝNISHÖRN
ÁVALLT
FYRIRLIGGJANDI