Tíminn - 21.07.1960, Síða 2

Tíminn - 21.07.1960, Síða 2
t T,í M I N.N, fijB^dagiitn^^J^^gO,. Mútmæli gegn ráðstöf- unum rlkisstjdrnarinnar Látið ekki á ykkur fá um of, þótt móti blási I bili og sóiin vilji ekki skína. Þessa mynd birt- um vi3 til þess a8 minna ykkur á, að öll él birtir upp um síðir, og þótt himinninn sé skýjum kafinn sem stendur, brýzt sólin fram á ný og þá verður aftur sól og sumar, og mannfjöldlnn, sem elcki lá á Arnarhóll í matar- tímanum í gær, loggst þar á ný og gleðsf yfir geislum eyglóar. (Ljósm.: TÍMINN KM). Mot norræfnia ungtemplara í FinnlandS í þessum mánuði er haldi'ð í Helsingfors í Finnlandi 13. mót Norrænna ungtemplara og sækja það m.a. tveir full- trúar frá íslenzkum ungtempl urum, þeir séra Árelíus Niels son og Sigurður Jörgensson. Sunnudaginn 24. júlí n.k. munu ungtemplarar úr Reykjavík og félagar úr tveim ungmennafélögum i ofan- verðri Ámessýslu keppa 1 frjálsum íþróttum á leikvang inum hjá Ásaskóla i Gnjúp- verjahrepp. Ungtemplarar efna til skemmtiferðar í Húsafells- skóg um Verzlunarmanna- helgina, en þá verður þar fjölbreytt mót bindindis- manna, Annað þing íslenzkra ung- templara verður haldið að Jaðri 12. og 13. ágúst og þriðja mót þeirra verður þar u mhelgina 13. og 14. ágúst. Athuga vegstæði Ási, 19. júlí. Á sunnudaginn var fóru þeir Stemgrímur Davíðsson vegaeftir- liTsmaður og Jón Víðis frá Vega- gerð ríkisins ásamt bændum úr Vatnsdal til að athuga möguleika a því að tengja Vatnsdalsveg við Kjalveg. Komust þeir á góðri jeppabifreið alla leið á Hveravalla- veginn norðan við Sandhöfða. Telja þeir vegargerð á þessari leði vel framkvæmanlega, og er aðal- íarartálminn um það bil 400 metra breitt mýrarsund, sem brúa þarf. G.J. Sífellt berast mótmæli hinna ýmsu stéttarfélaga vegna að- gerða ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, og er ekkert lát sjáanlegt á beim. Tíminn birtir hér á eftir nokkur þessara mófmæla, og má búast við að meira komi síðar: Hlíf í Hafnarfiríi Stjórn Verkamannafélagsins KJífar í Hafnarfirði hefur gert eft- iifarandi samþykkt: „Stjórn Vfm. Hlífar mótmælir harðlega þeirri ráðstöfun ríkis- sijórnarinnar að svipta atvinnu- fiugmenn verkfallsrétti og telur að hér sé um árás að ræða á verka- lýðshreyfinguna í heild sem verði að mæta með viðeigandi mótað- gerðum undir forustu Alþýðusam- bar.ds íslands. Stéttarfélag verkfræðinga Stjórn Stéttaxfélags verkfræð- inga samþykkti á fundi sínum 6. þ. m. eftirfarandi mótmæli og á- skorun, sem send hefur verið rík- isstjórninni: „Stjórn Stéttarfélags verkfræð- inga leyfir sér hér með að mót- mæla harðlega setningu bráða- birgðalaga ríkisstjórnarinnar 5. þ. m„ þar sem afnuminn er með valdboði réttur launþega skv. lög- um um stéttarfélög og vinnudeilur. Stjórn S.V. telur að með bráða- birgðalögum þessum sé farið inn á mjög varhugaverða braut, sem vandséð er hvert leiða kunni. Skor- ar hún á ríkisstjórnina að nema! þau þegar í stað úr gildi.“ Iíja á Akureyri Á stjórnarfundi í Iðju, félagi verksmiðjufólks á Akureyri, hald- inr. 10. júlí 1960. var eftirfarandi samþykkt gjörð: „Stjórn Iðju, félags verksmiðju- fólks á Akureyri, mótmælir harð- lega bráðabirgðalögum ríkisstjórn- a,,innar dags. 5. þ. m. þar sem af- numinn er með valdboði réttur launþega samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Stjórn Iðju, telur að bráða- b'irgðalögin, um bann við verk- falli atvinnuflugmanna, sé sú óhæfa sem engin ríkisstjórn megi leyfa sér í lýðfrjálsu landi, og enn fremur þar sem setning þessara laga brýtur í bága við yður yfir- lýsta stefnu ríkisstjórnarinnar, um aö hafa engin afskipti af frjálsum samningum verkalýðsfélaga og vinnuveitenda, þá skorar stjórn Iðju á ríkisstjórnina að afnema lögin þegar í stað.“ Múrarafélag Reykjavíkur Á fundi stjórnar Múrarafélags Keykjavíkur 8. þ. m. var eftirfar- andi samþykkt gerð með sam- hljóða atkvæðum: „Stjórn Múarrafélags Reykja- víkur mótmælir setningu bráða- birgðalaga, sem banna löglega boðuð verkföll og telur setningu þeirra óréttmæta og freklega skerð i/igu á frjálsum samningsrétti verkalýðsfélaga." ItSja í Reykjavík Á fundi stjórnar Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, 11. þ. m„ var ef-tirfarandi samþykkt gerð með samhljóða atkvæðum: „Fundur stjórnar Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, hald- inn .11. júlí 1960, mótmælir harð- lega lögum þeim, er banna verka- lýðsfélögum að knýja fram kjara- bætur með verkföllum.“ Kjördæmaþing og héraðsmót Kjördæmaþing Framsóknarflokksins verður haldið að Vogalandi, Króksfjarðarnesi, laugardaginn 23. júlí. Hefst kl. 3 e. h. Héraðsmótið verður haldið að Bjarkarlundi sunnudaginn 24. júlí og hefst kl. 3 e. h. DAGSKRÁ: 1. Mótið sett. 2. Ávörp. Alþm. Hermann Jónasson og Sigurvin Einarsson, enn fremur Markús Stefánsson deildarstj. 3. Ræða: Þórarinn Þórarinsson ritstj. 4. Gamanþættir: Haraldur Adolfsson, Gestur Þorgrímsson og Jón Sigurðsson. 5. Einsöngur: Erlingur Vigfússon, undirleikari Fritz Weis- chappel. Almennur söngur milli atriða. FRAMSÓKNARFÉLÖGIN. Farið um Sovétrík- in og Norðuriönd FeríSaskrifstofa ríkisins efnir til 20 daga hópfer'ðar í september Snemma í september efnir Ferðaskrifstofa ríkisins, í sam ráði vis rússnesku ferðaskrif stofuna Intourist til 20 daga hópferðar um Sovétríkin og Norðurlönd. Margir hafa und anfarna daga lagt leið sína á Ferðaskrifstofuna til þess að afla sér nánari upplýsinga um ferðina. Svo virðist sem íslendmgar hyggi gott til glóðarinnar að sleikja sólskin ið á Svartahafsströndum. Ákveðið hefur verið að leggja af stað þann 2. sept- ember, fljúga til Kaupmanna hafnar og þaðan áfram til Moskvu. Dvalizt verður 5 daga í Moskvu. Dagana, sem hópur inn er um kyrrt í Moskvu er leikárið að byrja og því mikið um að vera í borginni. Einnig gefst mönnum kostur á að skoða Kreml, kirkjur og söfn. og loks landbúnaðar. og iðn- sýningu í útjaðri Moskvu. Frá Moskvu verður flogið til Sochi, borgar á Krím- skaga, sem nefnd hefur verið „perla Svarbahafsins". — Þangað flykkjast menn úr öllum landshornum til þess að njóta þeirra lystisemda, sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Eftir 4 daga verður haldið til Leningrad, borgar tsar- anna, þar sem dvalizt verður í 2 daga. Farið verður m. a. í Hermitage-safnið, eitthvert auðugasta safn málverka og höggmynda. í Leningrad verður stigið á skipsfjöl og komið við í þeim höfuðborgum Norður- landa sem liggja að Eystra- salti. Fyrst verður haldið til Helsinki. Þar verður dvalizt hluta úr degi, en síðan haldið aftur um borð. Næsti áfanga sbaður er Stokkhólmur. Þar verður hópurinn um kyrrt nokkra stund, síðan verður siglt eins og leið hggur til T'aupmannahafnar. Ekki þarf að hafa mörg orð né stór um okkar fornu höfuð borg. Hana þekkja allir ís- lendingar af lestri eða eigin raun. í Höfn dveljast ferða- langarnir 2 daga, og fljúga heimleiðis 21. september. t

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.