Tíminn - 21.07.1960, Qupperneq 3
31
Hljóp frá
dómaranum
Gæzlufangi fék á sprett
í miðri yfirheyrslu
í fyrrakvöld strauk fangi
úr Heningarhúsinu i Reykja
vík. Var það Friðrik Anton
Höenason, Wfreiðarstjóri,
Reynimel 23 hér i bæ, sem
setið hafði í gœzluvarðhaldi
undanfarna 3 daga. Á tólfta
tímanum um kvöldið var
Ármann Kristinsson fulltrúi
að yfirheyra Friðrik Anton
í Hegningarhúsinu. Vissi
hann þá ekki fyrri til en
fanginn tók á sprett út úr
herberginu og þaðan út á
götu þar sem hann hvarf
sjónum manna. Var hann
einn í herbergi með dómar
anum og aðeins einn mað-
ur á vakt í Hegningarhúsinu
og gat hann ekki veitt Frið
rik Anton eftirför. — Var
þegar hafin leit að „stroku-
fanganum“ og ibúð hans að
Reynimel 23 brotin upp með
fógetaxald■ þá um nöttina.
Ekki hafði leitin borið ár-
angur þegar blaðið vissi síð
ast til í gærkvöldi. Friðrik
Anton er 23 ára gamall, um
180 cm. á hœð méð dökkt,
skolleitt hár. Eru þeir sem
kynnu að hafa orðið hans
varir vinsamlegast beðnir
að sera rannsóknarlögregl-
unríi viðvart.
Helmingi minna
saltað en í fyrra
f gær nam síldarsöltun á
öllu landlnu samtals 50.794
tunnum, og er það meir en
helmingi minna en á sama
tíma í fyrra. Þá hafði verið
saltað í 104.082 tunnur. Lang
mest hefur verið saltað á
Siglufirði, eða 32.191 tunna,
en í fyrra hafði verið saltað
þar í 72.597 tunnur. Næst
Siglufirði kemur Raufarhöfn
með 8727 tn og þá Dalvík með
3617 tn, en sýnu minna hefur
verið saltað á öðrum stöðum.
Á Siglufirði hefur mest verið
saltað á þessum fjórum sölt
unarstöðvum: Nöf, 2934y2;
Reykjanes 3433; Haraldarstög
2637 og Pólstjarnan 3025
tunnur.
Ræður þessi vél örlögum mannkynsins?
Kveikjulásinn er merktur „STRÍÐ"
og „FRIÐUR" („war" og „peace") til
vinstri á myndinni, og lyklarnir að
honum hanga um hálsinn á þessum
bandaríska hershöfðingja. Sé lyklum
snúið er þegar í stað sent á loft Thor-
flugskeyti hlaðið atómsprengju og það
þýtur af stað með 18.000 km. hraða á
klst. og stefnir — í austur Þessi
óvenjulega mynd birtist fyrst í
frönsku tímariti og sögð vera tekin í
bandarískri herstöð á Englandi, en
myndin birtist í vikunni í brezka blað-
inu Sunday Times. Eins ber þó að geta
segir Sunday Times: Áður en flug-
skeytinu er skotið á loft verður að
liggja fyrir gefið samþykki Banda-
ríkjaforseta og brezka forsætisráð-
herrans og að auki verður að vera við-
staddur fulltrúi brezka flughersins,
því að hann hefur aukalykla og án
þeirra fer flugskeytið ekki af stað.
Kongóstjórn samþykkir að
biðja um rússneska aðstoð
NTB—Leopoldville, 20. júlí.
Ríkisstjórn Kongo samþykkti
í dag, að biðja Sovétríkin eða
Asíu- eða Afríkuríki að senda
herlið til landsins Kongo-
stjórn til hjálpar og er það í
samræmi við úrslitakosti þá
er Lumumba gerði Belgíu-
mönnum. Lumumba forsætis-
ráðherra upplýsti hins vegar á
blaðamannafundi í dag að
stjórn hans myndi draga að
senda formlega beiðni þar til
vitað væri um úrslit fundar
öryggisráðsins um Kongo-
málið, sem hefst I New York
seint í kvöld.
- híður órslita af f undi öryggisráðsins
i Ahyggjuefni vestra
! Fréttamenn í New York
sögðu í kvöld, að þessi sam-
þykkt Kongóstjórnar yrði
aðal umræðuefni á fundi ör-
yggisráðsins, en talsmenn
S.þ. hafa látið í Ijós áhyggj
(Framh á 15 síðu.)
Skemmtiferð um helgina
Á sunnudaginn kemur, 24. júlí, efna Framsóknarfélögin í
Reykjavík til skemmtiferðar austur í Árnessýslu. Ekið verður
austur Hellisheiði, um Selfoss, upp Skeið, allar götur til Skál-
holts og Laugarvatns. Þaðan fram í Efstadal í Lugardal og um
Þingvöll til Reykjavíkur. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður
heldur erindi í Skálholti og Bjarni Bjarnason fyrrv. skólastjóri
Iýsir staðháttum á Laugarvatni. f Efstadal vcrður farið í ýmiss j
konar Ieiki svo sem reiptog og pokahlaup. Þátttakendum gefst 1
kostur á að fá sér gufubað og fara í sundlaug að Laugarvatni.
Verð farmiða er kr. 200.00, matur og öl eða gosdrykkir innifalið.
Skrifstofan í Framsóknarhúsinu verður opin í allan dag,
símar 15564 og 12924.
Lumumba sagði 1 þessu sam
bandi, að í baráttu sinni fyrir
burtför belgíska herliðsins frá
Kongó, myndi hann ekki víla
það fyrir sér að leita að-
stoðar sjálf fjandans, ef það
mætti duga. Lumumba sagði
ennfremur, að ef Sameinuðu
þjóðirnar gæfu ekki Belgíu-
mönnum skipun um að hverfa
á brott frá Kongó þegar i
stað, yrði hann að draga þá
ályktun af því, að þær væru
verkfæri heimsvaldasinna og
þá yrði harm að leita aðstoð
ar austurveldanna, sem sýnt
heföu stjórn hans samúð.
og Framsóknarflokkinn
Miðstjórn Frarnsóknarflokks-
ins hefur ákveðið að beita sér
fyrir almennri fjársöfnun með
al stuðningsmanna flokksins
íum land allt til styrktar Tím-
anurn og Framsóknarflokkn-
um.
Hefur þegar verið leitað til
flokksfélaga í sýslum og kaup
stöðum og þau beðin að safna
ákveðmni upphæð, hvert á
sínu félagssvæði.
Eins og kunnugt er hefur
flokkurinn staðið í miklum
framkvæmdum að undan-
förnu. Nægir í því sambandi
að nefna Framsóknarhúsið,
breytingu og stækkun á Tím
anum, ásamt nýrri prentvél,
(Framhald á 15 síðu).