Tíminn - 18.08.1960, Qupperneq 12

Tíminn - 18.08.1960, Qupperneq 12
T í M IN N, fimmtudaginn 18. ágúst 1960. 12 «i&atBíaiM iiiim....v. RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON Vonzkuveður bítur ekki á Vilhjálm Einarsson — Stökk 16.41 metra á Ólympíudeginum í fvrra- kvöld. Slæmt vetíur eyðilagöi mótiÖ aíS mestu Ólympíunefnd íslands gekkts fyrir íþróttakeppni á Laugar- dalsvellinum í fyrrakvöld og þrátt fyrir mjög óhagstætt veður náðist sæmilegur árang- ur í nokkrum greinum. þótt, þrístökk Vilhjálms Einarsson- ar beri þar lang hæst, en hann stökk 16.41 metra, og átti nokkur önnur góð stökk. Lof- ar þessi frammistaða hans mjög góðu fyrir Ólympíuleik- ana — en þetta er síðasta keppni hans fyrir leikana. Þá vakti Jón Pétursson mikla athygli í hástökkinu, en hann reyndi við 2.04 m., og var nærri að stökkva þá hæð í tveimur tilraunum sín um. Jón lét hækka úr 1.93 m. í 2.04 m. og var það fullmikið að þessu sinni, þvj sennilegt er, að hann hefði stokkið 2.01 —2.02 metra í hinum góöu til raunum sínum, og því sett nýtt fslandsmet, en af því urðu áhorfendur, vegna þess hve hækkunin var mikil. Hins vegar virðist aðeins tímaspursmál hvenær Jón stekkur þessa hæð eða meir, því hann er alltaf að ná betri og betri tökum á stílnum. Allir þátttakendur íslands á Ólympiuleikunum voru þátt takendur á þessu móti — að einum frjálsíþróttamanni og sundfólkinu undanskildu. Hilmar Þorbjörnsson sigr- aði í 100 m. hlaupi á 10.6 sek. án þess að leggja nokkuð að ■sér, enda ekkert vit í því, eins og veðrið var. Pétur Rögn- valdsson hljóp 110 m. grinda hlaup á 14.6 sek. sem er sama og íslandsmet hans, en þess má geta, að árangur i sprett- (Framhald a 13 síðu > Allt upp- selt í Höfn t kvöld fer fram á Idrets- parken í Kaupmannahöfn, knattspyrnuleikur milli hinna fimmföldu Evrópumeistara Real Madrid og dansks úrvals liðs. Danska landsliðið átti í fyrstu að leika gegn Real Mad rid, en hætt var við það. þar sem talið var nauðsynlegt, að hvíla leikmennina fyrir Ólym píuleikina, en þeir hafa leikið mjög marga leiki að undan- fömu. Á mánudaginn voru allir aðgöngumiðar á leikinn uppseldir, nema 3.500 stæði, sem búizt var við að myndu seljast upp um daginn. Yfir 50 þúsund áhorfendur verða því á leiknum og hagnaður fslandsmeistarar frá Akranesi Á þriðjudagskvöldið fór fram úrsiitaleikurinn i íslandsmótinu í 2. flokki og léku Akurnesingar og Valur til úrslita, en þessi lið höfðu borið sigur úr býtum í riðlunum. Leikar fóru þannig, að Akurnesingar sigruðu með 2—0 og hlutu því íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í þessum flokki. í fyrri hálfleik var ekkert mark skorað. Myndin hér að ofan er af sigurvegurunum frá Akranesi. Ólympíulið Astralíu Á þriðjudag voru valdir þátttakendur Ástralíu í sundi á Ólympíuleikana valdir, en þeir eru hinir fremstu í heimi. John Henrics og John Dewitt keppa í 100 metra skriðsundi, John Konrads og Murry Rose í 400 og 1500 m., David Theile og John Mockton í 100 metra baksundi. Dawn Fraser og Ilsa Konrads keppa \ 100 m, og 400 m. skriðsundi kvenna, og Fraser keppir einnig í flug sundi. mikill, þótt Real Madrid taki offjár fyrir leikinn. Da Siiva hyggst verja titil sinn Litlar fréttir hafa borizt af Brazilíumanninum da Sllva síðusfu tvö árin — en hann hefur þó ekki lagt skóna á hilluna. Nýlega barst síðunni þessi mynd frá Bandaríkjunum, en þar hefur da Silva æft síðustu mánuðina með góðum árangri, og hann er ákveðinn í því að taka þátt í Ólympíuleikunum f Róm og verja þar titil sinn í þrí- stökkinu. da Sllva var hinn ókrýndi konungur Ólympiuleikanna i Helslnki 1952, stökk fjórum sinnum yfir 16 metrana, lengst 16,22 m. og bætti heimsmetið tvívegls. Á Ólympíuleikunum í Melbourne bar hann einnig sigur úr býtum, þó eftlr harða keppni við óþekktan íslending, Vilhjálm Einarsson, sem hafðl bætt ólympiumet da Sllva í 16.26 m. — og stóð það á annan klukkutíma, er da Silva tókst að stökkva lengra, og verða Ólympiumelstari i annað sinn. da Sllva stökk lengst 16,56 m. ( þrístökkinu, sem nú er orðinn fimmti bezti árangur f helminum, en var það um árabll heimsmet. Framþró- unin heldur stöðugt áfram í íþróttunum og árangur afreksmanna fyrri ára hefur nú falllð í skugga enn rneiri afreka íþróttamanna dagsins í dag. Þorvaldur Ásgeirsson á metið í golfkeppni Á síðunni hér síðast liðinn sunnudag var skýrt frá ár- E.ngri á Golfmeistaramóti Ak- ureyrar oq sagt, að árangur sigurvegarans, Gunnars Sól- nes, en hann sigraði með 302 höggum, væri sá þriðji bezti, sem náðst hefur hér á landi í 72. holu keppni. Þetta er ekki rétt og blað- inu er nú kunnugt um, að nokkrir menn hafa náð betri árangri. Á íslandsmótinu 1950 sigraði. Þorvaldur Ásgeirsson með 296 höggum og Ewald Berndsen varð þá annar með 298 högg. Þeir eru báðir Reyk víkingar. Þá mun Hermann Ingimarsson, Akureyri, hafa leikið 72 holur á 299 höggum í opinberri keppni, og á ís- landsmótinu 1948 bar Jóhann es G. Helgason, Reykjavík sig ur úr býtum með 300 höggum. Þá má geta þe-ss, að þegar þeir Þorvaldur og Ewald náðu sínum góða árangri 1950 varð Ingólfur Isebarn, Reykja vík, í þriðja sæti með 304 h. — en á þessu móti náðist betri árangur, en á golfmóti fyrr eða síðar hér á landi. Vera kann, þó að blaðinu sé ekki kunnugt um það, að fleiri golfmenn hafi leikið 72 holur á um 300 höggum — og ef svo væri þá þætti íþrótta- síðu Tímans fengur að fá upp lýsingar um það. Vann 115 þús. danskar kr. Fyrsti getraunaseðillinn með 12 réttum eftir sumarfríin í Danmörku gefur eiganda sín um 115.600 danskar krónur - eða á sjöunda hundrað þús- und íslenzkar krónur, og er það ein mesta upphæð. sem greidd hefur verið í dönsku getraununum — virkilegur tólfari. Eigandi er frá Norö- ur- Sjálandi og leikirnir fóru fram um síðustu helgi. ÞORVALDUR ÁSGEIRSSON — myndin var tekin, þegar nann varð íslandsmeistari í badminton sl. vetur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.