Tíminn - 25.08.1960, Page 1
Sólarhringsveiðin
var 600 silungar
Vestfiráir hafa löngum
veriS taldir mikið veiðiland,
og piltarnir. sem skruppu um
daginn í eina vestfirzka vík
víS árós og komu heim meS
600 sjóbirtinga eftir sólar-
hrings veiðiskap munu varla
þurfa að láta segja sér það.
Svo bar við fyrr í sumar, að
menn fóru til silungsveiða í Fljóta
vík nyrzt á Hornströndum, en
ikomu því nœr slyppir heim, því
Engin síld,
bara kolmunni
Ve'ður . var aftur orðið
skárra fyrir Austurlandi í
fyrrinótt og gærdag, en veiði
lítil sem engin. í gær var vit-
að um fjögur skip sem á und-
anfarnum sólarhring höfðu
fengið smásíldarafla eystra,
samtals 500 mál. Ægir og
Panney voru að síldarleit, og
leitarflugvél var á lofti fyrir
Austurland i gær, en þau
munu ekki hafa orðið vör
neinnar síldar. Hins vegar
lóðast stöðugt kolmunni úti
fyrir Austfjörðum.
að varla sást branda þá .
En þegar þeir [hinir sömu fóru
í aðra veiðiferð þangað á dögun-
um, var öðruvísi umhorfs. Þá var
silungurinn í þéttum torfum í vík-
inni og ósi Fljótavatns skamint
undan eyðibýiinu Atlastöðum.
Veiðimennirnir leigðu sór bát upp
á hlut til veiðanna og lögðu net
sín í Fljótavíkina. Eftir það gerðu
þeir nær ekkert annað en fai'a
með netunum næsta sólarhringinn
og tína úr þeim silunginn, því að
netin fyltust jafnharðan.
Þetta var vænn og mjög falleg-
ur silungur, og menn geta getið
sér til um veiðfhlutinn, þar sem
aflahlutur bátsins seldist nokkuð
á þriðja þúsund fcr'ónur.
Þess skal samt getið til að-fyrir-
byggja misskilning, að það vom
fulltrúar iandeiganda, sem voru
þarna að veiðum og öðrum er það
að sjálfsögðu óheimilt. —
HB-skýrsIan
34 síður
Rannsókn heldur enn áfram á
þjófnaðinum á Hótel Borg, en
þaðan var stolið 54 þúsundum
króna á dögunum svo sem kunn-
ugt er. Búið er að taka skýrslur
af nálega 30 manns sem vinnur á
hótelinu og fyllir heildarskýr'slan
34 vélritaðar síður. Ekkert hefur
cnn komið fram í málinu sem leitt
gæti til handtöku þjófsins. —h
MikiS verður um dýrðlr í Rómaborg í dag, því að eftir hádegið fer fram
setningarathöfn 17. Sumarólympíuieikanna. Rómaborg hefur verið hrelns-
uð og skrýdd þessa siðustu daga — hérna er verið að hvítþvo úlfynjuna
frægu. TfMINN helgar Ólympíuleikunum 3 síður í blaðinu í dag, 11—13
síða.
Síldarleit hætt
um helgi
Siglufirði, 24. ágúst. — Síld
arleitin á Siglufirði tekur
upp pjönkur sínar og lýkur
stöfum um næstu helgi, enda
virðist ekki feitan gölt a'ð tflá
af síldveiðunum eða síldarleit
framvegis í sumar. Þrir menn
hafa starfað þar í sumar.
Síldarleitin á Raufarhöfn
mun sennilega halda áfram
störfum enn um skeið. — All-
margir síldarbátar á heimleið
að austan hafa komið við á
Siglufirði undanfarna daga,
og eru nokkrir í höfninni í
dag. Láta sjómenn misjafn-
lega af sínu hlutskipti og
margir illa. I.K. "
Mikið um
ávísanafals
10—20 ávísanamái hjá
lögreglunni daglega
Mikið af ávísanamálum
berst þessa dagana til rann-
sóknarlögreglunnar og hefur
hún nú milli 10 og 20 slík mál
til meðferðar. Langmest er
um að gefnar séu út ávísanir
sem innstæða er ekki til fyrir.
(Framhald á 15. síðu).
Nýr togari, Freyr, kom tll landsins í gær. Hann er elgn Ingvars Vilhjálmssonar útgerðarmanns og er 1000 lest-
ir að stærð eða stærsti togari íslendinga nú, 7 lestum stærri en Maí frá Hafnarfirði. Togarinn er smíðaður I
Bremerhaven og gekk 16.1 mílu í reynsluferð. Skipið er hið fullkomnasta í alia staði. í því er m.a. 50 lesta
slorgeymir, sem tryggir það, að allur aflinn verði nýttur. Búið er skipið öllum fullkomnustu slglingar- og leit-
artækjum, m.a. djúpmæli, en í honum er unnt að fylgjast með vörpunni í sjónum og fiski fyrir framan hana.
Skipið fer á ísfiskveiðar eftir tvo daga. Skipstjóri á Frey er Guðni Sigurðsson, sem áður var með Ask.
Maður fannst lát-
inn í fyrrakvöld
Lá á kassa i porti við bílavogina við Faxa
garð — Þekktist af útvarpslýsingu
Um níuleytið i fyrrakvöld
barst lögreglunni tilkynning
um að maður lægi í porti við
Faxagarð. Fór lögreglan þeg-
sr á staðinn og fann mann-
inn, sem þá var látinn. Lá
hann á kassa þar í portinu, og
mun hafa verið þar frá því
fyrr um daginn. Maðurinn
íiét Hiöðver Magnússon, Kamp
Knox E22. Hann var 46 ára
gamail.
Nánari atvik voru þau aS mað-
u: nokkur hringdi til lögreglunnar
um níuleytið um kvöldið og til-
kynnti að rr.aður lægi á kassa í
porti við Faxagarð þar sem bíl-
vogin er. Taldi sá sem hriogdi í
lögregluna að eitthvað væri að
manninum, og virtist hann með-
vitundarlaus.
Þekktist af útvarpslýsingu
Lögreglan fór þegar á srtaðinn
og var Hlöðver látinn þegar komið
\ar að. Lá hann í hnipri á kass-
anum og var sem hann svæfi.
Engin skilríki voru á Hlöðver eða
neitt annað sem sýndi hver hann
var. í vösum hans var ekki annað
en hárgreiða, vasaklútur, eldspýtu
stokkur og eitthvað af smámynt.
Lögreglan lét síðan lesa.lýsingu
á Hlöðver í hádegisútvarpi í gær
og gáfu sig þá þegar fram nokkrir
menn, sem könnuðust við hann af
lýsingunni.
(Framhaid á 3. síðu).