Tíminn - 17.11.1960, Qupperneq 2
2
Kjörbréfanefnd-
in kSofnaði
Á þingfundi Alþýðusam-
bandsins í fyrrakvöld fór fram
kjör á starfsmönnum þingsins.
Við kjör á aðalforseta komu
fram tvær uppástungur og
var stungið upp á Birni Jóns-
syni á Akureyri og Eggert Þor
steinssyni, Reykjavík. Úrslit
urðu þau, að Björn Jónsson
var kosinn með 208 atkv.. Egg
ert Þorsteinsson fékk 118
atkv. Auðir voru 3 seðlar ó-
gildir 2. Fyrir varaforseta
voru kosin Guðmundur Björns
son, Stöðvarfirði og Herdís
Ólafsdóttir. Akranesi, l)æði
með samhljóða atkv.
Ritarar þingsins voru kjörnir
þeir Björgvin Salómonsson, Vest-
ur-Skaft., Snorri Þorsteinsson,
Norðurárdal, Björgvin Brynjólfs
son, Skagaströnd og Þórir Daníels-
son, Akureyri.
Ágreiningur var um kjörbréf
tveggja fulltrúa, frá Vélstjórafé-
lagi ísafjarðar og Verzlunarmanna
félagi Siglufjarðar. Kjörbréfa-
nefnd klofnaði um afgreiðsluna.
Tillaga meiri hluta nefndarinnar
um að tekin yrði gild kosning full-
trúa Vélstjórafélagsins, Kristins
Guðmundssonar, og að fulitrúa
Verzlunarmannafélagsins yrði
heimiluð þingseta með málfrelsi
og tillögurétti, var samþykkt.
Þjóðaratkv.
greiðsla
um Alsír
París, 16.11. — De Gaulle
Frakklandsíorseti lýsti yfir því
í dag, að hann myndi efna til
þjóðaratkvæðagmðslu í Frakk-
landi til sð Ieita stuðnings þjóð-
ar sinnar f Alsírmálinu. Talið er
sennilegt. að atkvæðagreiðslan
fari fram i janúar n.k. Óstaðfest-
ar fregnir lierma, að de Gaulle
muni senn beita sér fyrir vopna-
hléi í Aisir, en vitað er að Frakk
ar í Alsír myndu mjög mótfalln-
ir slíku.
Slys við
Öskjuhlíð
Það slys varð sunnan við brekku-
brúnina austanundir Öskjuhlíð kl.
átta í gærkveldi að bifreið og
skellihjól rákust á með þeim af-
leiðingum að ekillinn á skellihjól
inu slasaðist alvarlega. Kannsókn-
arlögreglan var að vinna í málinu
þegar blaðið fór í pr'entun og
hafði þá enn ekki fengið vitneskju
um nafn mannsins. Hann var flutt-
ur á Landakotsspitalann, talinn
mjög illa slasaður. Eginn meiddist
í bifreiðinni.
Framsögumaður meiri hluta kjör-
bréfanefndar var Snor'ri Jónsson
en minni hlutans Björgvin Brynj-
ólfsson.
Fyrir fundinum lá inntökubeiðni
í ASÍ frá Félagi byggingariðnaðar-
rnanna í Árnesssýlu. Var hún sam
þykkt samhljóða, sömuleiðis kjör-
bréf fulltrúa félagsins.
I
Frá AlJjjngi
(Framhald al 7 síðu)
lítilsháttar tilhliðrunarsemi
við framkvæmd útfærslunn-
ar.
Ólafur Thors sagði að mál-
staður Hermanns væri óverj-
andi. Hermann hefði komið
til sín áður en hann sendi
skeytið og spurt sig hvort
hann (Ól. Th.) vildi eiga að-
ild að skeytinu. Sagöi hann
að Hermann væri sjálfum sér
ósamkvæmur að segja að við
værum búnir að sigra í mál-
inu, því að hann hefði lagt
til að leitað yrði ásjár Banda
rikjanna.
Hoggið á hnútinn
Hermann Jónasson sagði
að hann myndi ekki vel eftir
þessu samtali við Ólaf Thors
um skeytið. Hins vegar eru
skjalfestar sannanir fyrir
því, að Ólafur Thors og Sjálf
stæðisflokknum þótti of
skammt gengið í skeytinu,
sem sent var 18. maí, og
deildi sérstaklega á mig fyrir
að vilja ekki taka upp samtt
ingaþóf um málið. Framsókn
arflokkurinn var að höggva
á þann hnút, sem málið var
komið í með því að senda
skeytið, þar sem það var lát
ið í ljós að hugsanlegt væri
að íslendingar væru fáanleg
ir til að sýna tilhliðrunar-
semi, gegn yfirlýsingu allra
Nato-þjóða um einhliðarétt
okkar til útfærslu. Alþýðu-
bandalaginu fannst of langt
gengið, en Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn
vildu ganga lengra. Milli
þessa skers og háru sigldi
Framsóknarflokkurinn í land
helgismálinu í örugga höfn.
Togurum lagt
(Framhaid af 1. síðu).
jafnan talið hana til fyrirmyndar.
Nú er svo háttað, að tveir ráðherr-
ar eru búsettir Hafnfirðingar og
helztu forystumenn Alþýðuflokks-
ins þar, og hinn þriðji, forsætis-
ráðherrann, er úr sama kjördæmi
—iSem sagt nærri hálf ríkisstjórn-
in. Einn þeirra er sjálfur sjávar
útvegsmálaráðherrann, sérlegur
fulltrúi Hafnfirðinga í áratugi.
Því verður varla um kennt, að
Hafnfirðingar eigi ekki menn í
áhrifastöðum, menn, sem ættu að
hugsa um þá, enda er orsakarinn-
ar ekki að leita þar.
Strand
Hér er aðeins um að ræða eina
mynd þess allsherjar strands sem
er að verða, í íslenzkum útgerðar-
málum. Útgerðargrundvöllurinn
er brostinn vegna efnahagsað-
gerða ríkisstjórnarinnar. Hálfur
bátaflotinn eða meira er strand-
aður, togararnir eru að stranda
einn af öðrum. Hér í blaðinu var
sagt frá „strandi“ hins nýja tog-
! Ríkisstjórnin ætlar
í
, (F-ramhald af 1. síðu).
urfregnir í brezkum blöðum.
Þá sagði forsætisráðherra, er
hann svaraði hvers vegna ekki
hefði verið haft samband við
utanríkismálanefnd, að utan-
ríkisráðherra vær> því mót-
fallinn, vegna þess að nauð-
synlegt væri að full leynd
hvíldi yfir samningaviðræðun-
um.
Eysteinn Jónsson krafðist
fullra ef-ida á lotorðinu um
samráð við Alþingi. Sagt er
frá viðræðunum á þingsíðu
blaðsins — bls. 7
,rMoríbréfamáliía
(Framhald af 16. siðu).
>ar,s væri hlutdræg. Hvernig í
ósköpunum getur Mbl. leyft sér
a.'ö draga þá ályktun að frásögnin
væri hlutdræg af pólitískum á-
stæðum þegar það hafði enga að-
stöðu til þess að ganga úr skugga
um hvort svo væri, vegna þess
einfaldlega að blaðamenn þess
hafa ekki sézt við réttarhöldin og
veit því blaðið ekkert um það
sem þar fór fram.
Hvað telur Mbl. fréttnæmt?
Það gerist víst ekki á hverjum
degi, meira að segja ekki í stór-
borgum, að lögreglumaður er
kærður af hinu opinbera fyrir að
hcta lögreglustjóra sínum lífláti.
Ef Mbl. telur réttarhöld, sem þau
s;m nú standa yfir, ekki þess verð
að birta nánar fréttir af þeim, þá
hiýtur sú spurning að vakna:
Hvað telur Mbl eiginlega vera
íréttnæmt yfirleitt?
Slælegur fréttaflutningur
Mbl. af pólitískum toga
spunninn
Undirrituðum, sem viðstaddur
var framhaldsrannsóknina og rit-
aði grein þá, sem Mbl lætui í
veðri vaka að hlutdræg sé, stend-
ur á sama um hverjar lyktir verða
á þessu máli, en gerir sér hins
\egar ljóst að það er ekki annað
en heilbrigð og eðlileg fréttaþjón-
usta við almenning að skýra frá
gangi málsins. Hin pólitíska hlut-
drægni, sem Mbl. talar um, birtist
fyrst og fremst í íréttaflutningi
Morgunblaðsins sjálfs af máli
þessu, sem einkennist af grafar-
þögn.
Að lokum væri ekki úr vegi að
rainna ritsijóra Mbl. á að Blaða-
mannafélag íslands gekk fyrir
nokkru siðan í Aiþjóðasamtök
blaðamanna, og gekkst þannig
undir „Hippókratesar“-eið blaða-
mennskunnar, sem meðlimir í sam
tbkunum aiga að hafa að leiðar-
Ijósi. Ein grein þessara „siðferðis-
reglna" fjallar um sannan og heið
axlegan fréttaflutning. Hafa rit-
sljórar Morgunblaðsins kynnt sér
hana?
H. H.
ara, Sigurðar, í gær. Ýmsum öðr
um togurum hefur verið lagt.
Þannig er nú komið fyrir stórvirk-
ustu atvinnutækjum þjóðarinnar
af völdum „viðreisnarinnar“,
tækjum, sem geta tryggt næga
gjaldeyrisöflun þjóðarinnar og at-
vinnu í landi, ef sæmilega er að
þeim búið af hálfu stjórnarvalda.
Til Afríku
Á sama líma sem þannig erástatt
fyrir útveginum vegna skaðvæn-
legra efnahagsráðstafana, stend
ur ríkisstjórnin í samningum við
Breta um að minnka fiskveiði-
Iandhelgina næs’tu árin um allt
að helmingi, og fangará.ð stjórn-
arflokkanna er að senda íslenzk
fiskiskip srður til Afríkustranda
í staðinn.
TÍMINN, fimmt.udaginn 17. nóvember 1960.
Ölafur vissi um skeytiS
(Frambald af 1. síðu).
uppi ósannindavaðli vegna slæmrar samvizku, að þeir
festast í sínu eigin lyganeti. Forsætlsráðherrann lýsti
því yfir að Hermann Jónasson hefði komið til sín áður
en hann sendi skeytið og borið það undir sig og óskað
eftir aðild hans að því. Þar festist Ól. Thors í sinni
eigin snöru.
Hann hafði sagt litlu fyrr í umræðunum, að skeyt-
inu hefði verið Ijóstrað upp nú síðustu daga. Svo hljóp
hann á sig og lýsti vfir að hann hefði vitað um það
áður en það var sent. — Sannaði forsætisráðherrann
sjálfur, hve mikil fjarstæða það er að tala um upp-
Ijóstranir í sambandi við þetta skeyti, enda hefur
skeytið verið birt í blöðum og kosningapésijm og marg-
rætt á kosningafundum.
Hermann Jónasson fletti gjörsamlega ofan af Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðuflokknum í afstöðu þeirra
til útfærslunnar 1958 í umræðunum á Albingi í gær.
Frásögn af umræðunum er á bls 7.
MálfundanámskeiS F.U.F
í Arnessýslu
F.U.F. í Árnessýslu oengst fyrir mí’fundanámskeiði á
Flúðum í Hrunamannahreppi. Námskeiðið hefst laug-
ardaginn 19. nóv k! 9 síðd. Lsiðbeinandi: Örlygur
Hálfdánarson, form, Sambands jngra Framsókrtar-
manna. Þátttaka tilkynnist formanni félagsins, Sigur-
finni Sigurðssyni, Birtingaholti.
Framséknarvist á SauSárkróki
Framsóknarfélögin í Skagafirði haida skemmtun í fé-
lagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki n k. laugardags-
kvöld og hefst hún kl 8,30 s.d. Þar verður spiluð Fram-
sóknarvist, flutt ávarp og dansað Eiguleg spilaverð-
laun.
AKURF.YRI og NÁGRENNI
Árshátíð Framsóknarmanna verður haldin að Hótel
KEA á Akureyri laugardaginn 26. nóvember n k., ef
næg þátftaka fæst.
Þess er óskað, að Framsóknarmenn á Akureyri og nær-
liggjandi hreppum Eyjafjarðarsýsiu og Suður-Þingeyj-
arsýslu fjölmenni á árshátíðina og gefi sig fram sem
allra fyrst við Ingvar Gíslason, formann Framsóknar-
félags Akureyrar. — Tilhögun nánar auglýst síðar.
HéraSshátíð Framsóknarfélags
Borgfirðinga
Laugardaginn 19. nóv. n k. helduf Framsóknai .„.ag
Borgfirðinga almenna héraðshátíð að Hlöðum á Hval-
fjraðarströnd og hefst hún kl. 8,30 s.d. Ræður fíytja
Halldór E. Sigurðsson, alþm. og Daníel Ágústínusson.
Ávarp frá S.U.F. fluft af varaforsrt. Jóni Óskarssyni.
Erlingur Vigfússon, tenórsöngvari, syngur með undir-
leik Ragnars Björnssonar, og Kart Guðmundsson, gam-
anleikari fer með skemmtiþætti og eftirhermur
Hljómsveit úr Reykjavík leikur fyrir dansi.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Bifreiðaferð verður frá Þórði Þ. Þórðarsyni — sími
17, Akranesi.
Framsóknarvist í Hafnarfirði
Framsóknarmenn í Hafnarfirði haída skemmtun í Góð-
templarahúsinu, Hafnarfirði, n.k. laugardagskvöld kl.
8,30. Spiluð verður Framsóknarvist. Enn fremur verður
kvikmyndasýning. Framsóknarfólk er hvatt til að fjöl-
menna og taka með sér gesti. — Aílir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Álmennur stjórnamálafundur
í Vestmannaeyjum
Framsóknarmenn halda almennan stjórnmálafund f
Vestmannaeyjum n.k sunnudag k) 3,30.
Frummælendur Björn BjÖrnsson alþm., Óskar Jónsson,
fulltrúi, og formaður kjördæmasambands Suðurlands-
kjördæmis, Matthías Ingibergsson, lyfsali, Selfossi.